Dagur - 05.12.1992, Síða 15

Dagur - 05.12.1992, Síða 15
Laugardagur 5. desember 1992 - DAGUR - 15 Ungt FÓLK íris Guðmundsdóttir Skiptinemar á Akureyri Halla á köfunarnámskeiOi í Puerto Rico. Hélt að fólk byggi Theresa Budu-Larbi er 18 ára skiptinemi frá Ghana. Hún býr hjá stórri fjölskyldu og er í Verk- menntaskólanum á Akureyri. - Hvað vissirðu um landið áður en þú komst? „Ég fékk lítið sem ekkert að vita um landið og hélt að hér byggi fólk í snjóhúsum. Ég hafði heyrt að fólkið væri frekar feimið og ekki mjög vinanlegt. Auk þess var mér sagt frá Grýlu. En nú eftir að ég er komin, þá líkar mér mjög vel. Fólkið finnst mér vin- gjamlegt, en það er satt að miðað við fólkið í Ghana þá er það frekar feimið. I skólanum hefur mér ver- ið vel tekið. Ég er spurð margra spurninga um Ghana. Það eru margir sem halda að við búum hálfgerðu frumbyggjalífi en það er mesti misskilningur. Ghana er ríkasta land Afríku og það gætir Theresa Budu-Larbi Skemmtileg og framandi iífsreynsla Halla Jónsdóttir er 19 ára nemandi á félagsfræðibraut í MA. Sumarið 1991 fór hún á vegum skipti- nemasamtakanna AFS til Puerto Rico og dvaldi þar í eitt ár. Haustið eftir ákvað hún síðan að taka til sín skiptinema frá Belgíu, sem nú býr hjá henni. Halla er núverandi formaður samtakanna hér á Akureyri - Hvað er AFS? „AFS em skiptinemasamtök, sem sjá um að útvega nemum heimili í öðm landi í eitt ár. Þetta em samtök sem 50 lönd eiga aðild að. Á hverju ári fær ungt fólk frá íslandi tækifæri til að kynnast lífi í einu af 15 löndum sem samtökin úthluta íslandi. Undanfarin ár hafa Bandaríkin og Frakkland verið vinsælust en nú er að aukast áhugi á menningu fleiri landa eins og Thailand og löndum S-Ameríku. Tilgangur samtakanna er að kynna menningu annarra landa og efla með því skilning fólks, af mis- munandi menningarsvæðum, hvort á öðm. Á íslandi em nú á bilinu 40-50 skiptinemar víðsveg- ar að úr heiminum.“ - Þú fórst sem skiptinemi. Hveil fórstu og hvemig var? „Ég fór til Puerto Rico og bjó í litlum bæ hjá 5 manna fjölskyldu. í hverfinu sem ég bjó í, bjuggu eingöngu ættingjar fósturfjöl- skyldu minnar. Fósturforeldrar mínir eru verkamenn og líf þeirra er mjög frábrugðið því sem ég á að venjast og það var skrítið að sjá hversu einangrað samfélag þeirra er. Fólkið þama hefur afskaplega takmarkaða vitneskju um hvað er Umsjónarmaður síðunnar að þessu sinni er aðstoðarmaður írisar, Borgar Magnason. að gerast utan Ameríku, t.a.m. er Evrópa þeim framandi heimsálfa. Mér gekk vel að aðlagast siðum fjölskyldunnar en þó vom vissir hlutir sem ég gat ekki sætt mig við.“ - Hvað gaf það þér að fara sem skiptinemi? „Áður en ég fór hafði ég lítið hugsað um lífið í þessum heims- hluta, en núna skil ég menningu fólksins miklu betur. Þetta hefur líka kennt mér að meta það sem gott er og greina það sem betur mætti fara hér á ísíandi. Það gaf mér líka mikið að kynnast skiptinemum frá öðmm löndum og svo lærði ég spænsku í spænskumælandi landi sem er þó nokkuð betra er að læra hana á skólabekk. Þetta var mjög skemmtileg og þroskandi lífs- reynsla og gaf mér tækifæri til að upplifa hluti sem mér hefði aldrei boðist sem ferðamaður. “ - Nú býr skiptinemi frá Belgíu hjá þér, hvemig er það? „Mér finnst það mjög skemmti- legt. Þetta er eins og að eignast bam. Það þarf að kenna honum að tala og hvemig hann á að hegða sér. Sambúðin hefur geng- ið vel og það gefur mér mikið að fá að fylgjast með útlendingi, sem hefur svona mikinn áhuga á að kynnast íslandi. Ég hef líka fengið að vita ýmislegt um hvemig lifn- aðarhættir em í Belgíu. Það hefur reynst erfitt að finna fósturfjöl- skyldur á íslandi. Fólk heldur að það þurfi að hafa svo mikið fyrir skiptinema, eins og að hafa alltaf heitan kvöldmat og sífellt að hafa ofan af fyrir þeim. Svo er ekki raunin. Okkar daglega líf á ekkert að breytast þeirra vegna, vegna þess að skiptinemamir em hingað komnir til að kynnast okkar dag- lega líft. Þó er auðvitað nauðsyn- legt að sinna þeim eins og öðmm meðlimum fjölskyldunnar.“ - Eitthvað að lokum? „Það að taka þátt í starfsemi AFS gefur manni þekkingu á alþjóða vettvangi. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi sam- takana á einn eða annan hátt, skulu endilega hafa samband.“ Aaron Jay Willis er 18 ára skiptinemi frá litlum bæ í Kalifomíu í Bandaríkjunum. Hann er á viðskiptabraut í VMA og býr á Svalbarðseyri. - Myndaðir þú þér skoðun á því hvemig ísland væri, áður en þú komst? „Ég forðaðist að hugsa of mikið út í það og vildi ekki vera búinn að mynda mér neina skoðun á því áður en ég kæmi. En ég vissi víða vestrænna áhrifa. - í hverju finnst þér munurinn á íslandi og Ghana liggja? „Unglingar héma eiga- margt sameiginlegt með jafnöldmm sínum í Ghana. Við höfum mjög gott menntakerfi, en skólagjöldin þar em líka há. Það er 11 ára skólaskylda og eftir það eru tvö ár sem líkja mætti við mennta- skóla á Islandi. Ég er búin með allt nema síðustu tvö árin, sem ég tek í London. í Ghana taka foreldrar mjög strangt á því að unglingar pari sig ekki saman og það þekkist ekki að farið sé með þó að þetta væri vestrænt nútíma þjóðfélag." - Hvað kom þér helst á óvart þegar þú komst til landsins og hvemig líkar þér? „Aðallega vom það viðbrigði að hafa enga skóga. Bærinn sem ég kem frá er umlukinn skógi þannig að það er skrítið að hafa svona mikið útsýni. Ég sé annars engan regin mun á Islandi og kærastann heim til sín fyrr en maður er orðinn tvítugur.“ - Hvað ferðu að gera eftir að vem þinni á íslandi lýkur? „Héðan fer ég heim til Ghana og verð þar í um einn mánuð. Þá fer ég til London og klára það sem ég á eftir í skólanum. Eftir það er ég ekki alveg búin að ákveða hvað ég ætla að gera. Ég hef mikinn áhuga á lögfræði og popptónlist. Ég spila á trommur og hef lært á píanó. Ég geri mér fulla grein fyr- ir því að það er erfitt að sameina þetta tvennt svo að það verður bara að ráðast hvað ég geri.“ Bandaríkjunum en það em aftur ýmis smáatriði sem em öðmvísi. Til að mynda em húsin flest úr steypu, lítið er um ameríska bíla, götuljósin mikið lægri en heima og þannig mætti lengi telja. Mér líkar mjög vel við skólann. Það er oftast gaman, en bóknámið tekur mjög mikinn tíma frá fólki. Heima er námið ekki tekið jafn alvarlega og hér og í staðinn er meiri tíma eytt í félagslíf. Þá á ég einkum við íþróttir. Við höfum lið í ýmsum íþróttum, sem keppa við hina framhaldsskólana s.s. í amerískum fótbolta, glímu, körfubolta o.s.fv. Krakkamir í VMA eru vingjam- legir og hafa tekið mér vel og mér finnst góður andi ríkja í skól- anum.“ - Er daglegt líf frábmgðið því sem þú átt að venjast? „Helst er það hversu mikið fólk hefur að gera hér á landi. Það eyðir ekki jafn miklum tíma í að rækta vini sína eins og ég á að venjast.“ - Hvað ætlar þú að gera þegar þú kemur heim til Bandaríkjanna aftur? „Ég býst við að ég fari í háskóla en er ekki alveg búinn að ákveða hvað ég ætla að læra. Ég hef mestan áhuga á að gera eitt- hvað í sambandi við teiknun eða bfla.“ Aaron Jay Willis. íslendingar hafa mikið að gera

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.