Dagur - 08.12.1992, Side 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 8. desember 1992
Fréttir
Nefndarmenn atvinnumálanefndar Akureyrarbæjar, fulltrúar bæjarstjómarflokkanna og fulltrúar, stjómir og trún-
aðarmenn verkalýðsfélaga á Akureyri héldu uppi stífum áróðri á helstu verslunarstöðum á Akureyri sl. laugardag
og svo verður næstu tvo laugardaga. „Framtíðin er í þínum höndum, veldu íslenskt“, voru slagorðin. Á myndinni
eru Sævar Frímannsson, starfsmaður Einingar og Hildur Sigurgeirsdóttir, ásamt fríðu föruneyti í Sunnuhlíð í Gler-
árhverfi, og Sævar var ánægður með viðbrögð bæjarbúa. Mynd: -kk
Sauðárkrókur:
Fundur um málefni unglinga
könnun um tómstundir unglinga kynnt
Einar Gylfi Jónsson forstjóri Reykingar nemenda í áður-
Unglingaheimilis ríkisins og töldum bekkjum hafa aukist um
Arnar Jensson lögreglufulltrúi
héldu fundi með foreldrum,
nemendum og skólamönnum á
Sauðárkróki í síðustu viku.
Fundarefni voru vímuefnamál
og samskipti unglinga, foreldra
og kennara. Jafnframt voru
kynntar niðurstöður úr könn-
un sem Matthías Viktorsson
félagsmálastjóri á Sauðárkróki
hefur gert meðal nemenda í 8.,
9. og 10. bekk.
Þeir Einar Gylfi og Arnar
héldu fund með foreldrum og
starfsmönnum í Gagnfræða-
skólanum á miðvikudag. Að sögn
Matthíasar mættu 150 manns,
sem var mjög góð mæting. Vill
hann sérstaklega þakka það
nýstofnuðu Foreldrafélagi. „Allir
eru sammála um að þessi mál
verði best unnin í gegnum For-
eldrafélagið og foreldra og heim-
ilin sjálf,“ sagði Matthías í
samtali við blaðið. Á fimmtudag
hittu Einar Gylfi og Arnar
nemendur í 8., 9. og 10. bekk og
því næst var fundað með nem-
endafélagi Fjölbrautaskólans.
Síðdegis var fundur með kennur-
um og skólastjórum skólanna og
starfsmönnum félagsmiðstöðvar.
Loks var haldinn fundur með
félagsmálaráði, áfengisvarna-
nefnd, íþróttaráði, heilsugæslu,
sóknarpresti og lögreglu og fleiri
aðilum.
Samanburðarkönnun Matthí-
asar Viktorssonar náði til
nemenda í 8., 9. og 10. bekk á
árunum 1990 og 1992. í könnun-
inni er spurt um tómstundir ungl-
inga, um vímuefni og útivistar-
tíma. Margt forvitnilegt kemur
fram í niðurstöðum. Þátttaka f
íþróttum er umtalsverð, en hefur
þó minnkað lítillega. Öðrum
áhugamálum hefur fjölgað,
þannig segjast 41% nemenda
vera í öðru félagsstarfi en íþrótt-
um, á móti 16% 1990. Þar er sér-
staklega um að ræða það tóm-
stundastarf sem Félagsmiðstöðin
býður upp á. Nemendum Tónlist-
arskólans hefur fækkað um 7% á
þessum tveimur árum, mest í 9.
bekk, um 12%. Af áhugamálum
var tónlist í fyrsta sæti, því næst
íþróttir. Kvikmyndir og ferðalög/
útilegur voru einnig ofarlega á
blaði.
1% og þeim sem neytt hafa
áfengis um 11%. Stelpum sem
neytt hafa áfengis hefur fjölgað
um 20% meðan sambærilegar
tölur fyrir stráka eru 1%. Af
þeim sem neytt hafa áfengis eru
30% sem aðeins hafa neytt þess
einu sinni, en 41% segjast hafa
orðið „dauðadrukkin“ einhverju
sinni. Þar eru stelpur líka í meiri-
hluta.
Hvað útivistartíma unglinga
um helgar varðar segjast 21%
vera heima allt kvöldið, 24%
koma heim um miðnætti og 14%
koma heim kl. 3 að nóttu eða
síðar. Nemendur reyndust nokk-
uð ánægðir með félagsmiðstöðina
og vildu helst hafa þar diskótek,
böll og klúbbastarf, en margt
fleira var nefnt. Þegar spurt var
hverju þau vildu helst breyta í
félagsmálum unglinga nefndi
mikill meirihluti að ljúka þyrfti
íþróttahúsi og fjölga tímum þar.
Jafnframt vildu þau fá stað til að
hittast á um helgar.
Matthías tók fram að tölur um
áfengisneyslu væru ekki frá-
brugðnar því sem gerist annars
staðar. Hann kvaðst afar ánægð-
ur með fundina og sagði þá „góða
byrjun“ og sagðist vonast til að
aftur yrði haldinn slíkur fundur
að ári og þá jafnvel með börnum
og foreldrum saman. sþ
íslensku bókmenntaverðlaunin:
Þroskakostir tilnefiid
Bók Kristjáns Kristjánssonar
lektors við Háskólann á Akur-
eyri, Þroskakostir, var í gær til-
nefnd til íslensku bókmennta-
verðlaunanna í flokki fræðirita
og bóka almenns efnis. Fimm
bækur hlutu tilnefningu í þess-
um flokki og er þetta mikill
heiður fyrir hinn unga heim-
spekidoktor.
Aðrar bækur sem tilnefndar
voru í þessum flokki eru Bók-
menntasaga eftir Véstein Ólafs-
son, Dómsmálaráðherrann eftir
Guðjón Friðriksson, Fjarri hlýju
hjónasængur eftir Ingu Huld
Hákonardóttur og Utanríkis-
þjónusta íslands og utanríkismál
eftir Pétur Thorsteinsson.
í flokki fagurbókmennta hlutu
tilnefningu Klukkan í turninum
eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur,
Kynjasögur eftir Böðvar Guð-
mundsson, Mold í Skuggadal eft-
ir Gyrði Elíasson, Sæfarinn sof-
andi eftir Þorstein frá Hamri og
Tröllakirkjan eftir Ólaf Gunnars-
son. SS
Námsstefna um gæðastjórnun:
Kastljósinu beint í
auknum mæli að þjónustunni
- segir Magnús Pálsson
Magnús Pálsson, fram-
kvæmdastjóri verkefnisins
„Þjóðarsókn í gæðamálum“
sagði á námsstefnu um gæða-
stjórnun á Akureyri í síðustu
viku að kastljósi gæðastjórn-
unar sé nú beint að þjónustu-
fyrirtækjum. Hafa verði í huga
að 9 af hverjum 10 störfum sem
nú verði til í hinum vestræna
heimi séu í þjónustu. Hér sé
um eftirtektarverða þróun að
ræða en fram til þessa hafi
framleiðslufyrirtæki verið í far-
arbroddi á sviði gæðastjórnun-
ar.
Meðal framsögumanna á
námsstefnunni var Arni Laugdal,
nemandi við gæðastjórnunar-
braut Háskólans á Akureyri, og
kynnti hann 7 hjalla umbótaferli í
leitinni að bættum gæðum. í
erindinu kom fram að mikil-
vægt sé að öll umbótavinna sé vel
ígrunduð og skipulega unnin.
Aðalatriðið sé að taka eitt skref í
einu. Gott sé að staldra stöku
sinnum við og líta um öxl, fara
yfir einstaka liði aftur til að
Félag útlendinga í Eyjafirði í undirbúningi:
Fræðir félagsmenn um réttindi og
skyldur í íslensku þjóðfélagi
Til stendur að stofna félag
útlendinga sem búsettir eru á
Akureyri og nágrenni og er til-
gangurinn sá að gefa útlend-
ingum búsettum hérlendis
tækifæri til að hittasít reglu-
lega. Send hafa verið út um
120 bréf, en Ijóst þykir að fleiri
útlendingar dvelja hér á svæð-
inu.
í fyrra var stofnað í Reykjavík
félag sem heitir Society of New
Icelanders - SONI og er hug-
myndin að starfsemi þessa félags
verði á svipuðum nótum.
Laugardaginn 12. desember
nk. kl. 20.00 er boðaður fundur
með öllum útlendingum á svæð-
inu, en einnig þeir sem ekki hafa
fengið bréf eru velkomnir sem og
þeir útlendingar sem hafa öðlast
íslenskan ríkisborgararétt. Fund-
urinn fer fram í Háskólanum við
Þingvallastræti.
Tilgangurinn með þessari
félagsstofnun er m.a. að veita
félagsmönnum upplýsingar um
lög, réttindi og skyldur sem og
skattamál og tryggingamál svo
eitthvað sé nefnt. Nánari upplýs-
ingar veita Patti Turner í síma
11102/11780 og Cees van de Ven.
GG
Akureyri:
Umferðarhnútiir í símkerfinu
í vikunni er leið var sett upp
nýtt stýrikerfi í símstöðina á
Akureyri. í fyrrinótt var sams-
konar stýrikerfi sett upp í Mið-
bæjarsímstöðina í Reykjavík. í
gær gekk símnotendum á
Akureyri treglega að ná til
staða er tengjast Miðbæjar-
stöðinni og gott betur en það,
því erfitt reyndist einnig að ná
línum innanbæjar.
„Stýrikerfi þau sem búið er að
setja upp á Akureyri og í Mið-
bæjarstöð eiga að koma í allar
símstöðvar í landinu. í Mið-
bæjarstöðinni kom upp villa í
upplýsingum er forrit vinna eftir.
Af þeim sökum má segja að
umferðarhnútúr hafi skapast í
símakerfinu. Unnið er hörðum
höndum að lausn mála og villan
finnst á næstu klukkutímum,“
sagði Ragnar Benediktsson, yfir-
deildarstjóri sjálfvirku símstöðv-
arinnar í Reykjavik, um miðjan
dag í gær. ój
skerpa heildarmyndina. Fyrstu 3
hjallarnir séu í rauninni rann-
sóknarstig en næstu 3 hjallarnir
úrbótastig. Á sjöunda hjallanum
sé farið yfir farinn veg og skoðað
hvað hafi áunnist við verkefnið.
Magnús Pálsson benti á að
mörgum stjórnendum reynist erf-
itt að dreifa valdinu en gæða-
stjórnun sé í raun valddreifingar-
leið. Stjórnendur megi ekki
gleyma liðsheildinni og þeim
fyrirtækjabrag sem þurfi til að
góður árangur náist. JÓH
Akureyri:
Innbrotm
óupplýst
Innbrotin á Akureyri í síðustu
viku eru óupplýst en rannsókn-
arlögreglan vinnur að lausn
þessara mála.
Brotist var inn í Hvítasunnu-
kirkjuna og stolið þaðan pening-
um. Einnig var brotist inn í hús-
næði Dagsprents hf. og óveruleg-
ar skemmdir unnar.
Að sögn Gunnars Jóhannsson-
ar, fulltrúa hjá rannsóknarlög-
reglunni á Akureyri, er talið víst
að ungmenni hafi farið inn í
kirkju Hvítasunnusafnaðarins og
gramsað í samskotabaukunum.
Sá sem fór inn í húsnæði Dags-
prents hefur hins vegar verið
mjög ölvaður og lítið vitað hvað
hann átti af sér að gera þar inni.
______________________SS
Húsavík:
Fyrsti fundur
Listaverkasjóðs
Stjórn Listaverkasjóðs Húsa-
víkurkaupstaðar hélt sinn
fyrsta fund í nóv. sl. Stjórnin
var kjörin eftir kosningarnar
1990, en það ár var sjóðurinn
stofnaður í tilefni af fertugs-
afmæli bæjarins.
Á fundinum var Stefán Har-
aldsson (B) kosinn formaður og
Þorvaldur Vestmann (D) ritari.
Farið var yfir skipulagsskrá
sjóðsins og hugsanlegt hlutverk
sjóðsins gagnvart núverandi lista-
verkaeign Húsavíkurbæjar,
skráningu listaverka, ávöxtun
fjármuna og hugsanlegar tekju-
öflunarleiðir.
Á afmælinu 1990 var veitt 500
þúsund króna framlag til
sjóðsins, en síðan skal hann
árlega hafa tekjur er nemi 0,1%
af tekjum bæjarsjóðs og bæjar-
fyrirtækja. IM