Dagur - 08.12.1992, Page 5
Þriðjudagur 8. desember 1992 - DAGUR - 5
Afmælisveislan var haldin í „kafTiteríu“ íþróttahallarinnar, sem er orðin hin vistlegasta.
íþróttahöllin 10 ára:
Fjöldí fólks mættí í afmæliskaíli
Á laugardaginn var 10 ára
afmæli íþróttahallarinnar
haldið hátíðlegt, en Höllin
var formlega tekin í notk-
un þann 5. desember 1982.
Margt góðra gesta mætti
í afmæliskaffið sem haldið
var í svokallaðri kaffiteríu
sem nýlega hefur verið
standsett. Hún er upp á 2.
hæð þar sem gengið er inn
á áhorfendastæði og þar er
hægt að halda fundi og
veislur þó keppni fari sam-
tímis fram í íþróttasalnum.
íþróttahöllin er ekki eina
íþróttahús bæjarins sem á
merkisafmæli á þessu ári.
Nú eru liðin 10 ár síðan
íþróttahús Glerárskóla var
tekið í gagnið og 25 ár frá
opnun íþróttaskemmunn-
ar. Var forstöðumönnum
þessara húsa færð blóm í
tilefni dagsins. Að kaffi-
drykkju lokinni voru húsa-
kynni Hallarinnar skoðuð
undir dyggri leiðsögn
Aðalsteins Sigurgeirssonar,
forstöðumanns, sem um
leið fræddi fólk um þá
starfsemi sem þar fer fram.
HA
Tómas Búi Böövarsson, slökkviliðsstjóri, við vcisluborðið. Fjær má m.a. sjá
tvo af eigendum Bautans, þá Hallgrím Arason og Stefán Gunnlaugsson.
Hermann Sigtryggsson, framkvæmdastjóri íþrótta- og tómstundaráðs Akur-
eyrar, rakti byggingarsögu íþróttahallarinnar.
Richard Simm hélt tónleika í Wales
Richard Simm, píanisti og
píanókennari við Tónlistar-
skólann á Akureyri, hélt tón-
leika í Wales sl. laugardag og í
gær, mánudag.
Á tónleikunum sl. laugardag, í
Aberystwyth í Wales, lék Ric-
hard Simm ásamt Philomusica-
hljómsveitinni, annan píanó-
konsert Rachmaninovs. Á sínum
tíma var Richard Simm hljóm-
sveitarstjóri þessarar hljómsveit-
ar og lék með henni verk eftir
Grieg og Gershwin.
í gær hélt Richard Simm einleiks-
tónleika í Háskólanum í Wales,
þar sem hann starfaði á árunum
1977 til 1986. Á þessum tónleik-
um lék hann verk eftir Chopin,
Grieg, Hróðmar Sigurbjörnsson
(Tilbrigði) auk þess sem hann
Richard Simm við píunóið.
spilaði eigin útsetningu fyrir tvö á fimm íslenskum Iögum.
píanó (ásamt dr. Bernand Smith) (Fríuatiikynning)
Meðal gesta í afmælisveislunni voru skólameistarar framhaldsskólanna á
Akureyri, ásamt eiginkonum sínum. Fjær á myndinni má m.a. greina Gunn-
ar Jónsson, formann Iþrótta- og tómstundaráðs og Halldór Jónsson, bæjar-
stjóra.
Nokkrir af starfsmönnum íþróttahallarinnar. Aðalsteinn Sigurgeirsson, for-
stöðumaður hennar, er lengst til vinstri á myndinni. Myndír: Robyn
/f-—................................ ..................................................................................................... ^
Hluthafafundur
Hluthafafundur í Eignarhaldsfélagi
Verslunarbankans hf. verður haldinn í
Súlnasal Hótel Sögu, Reykjavík,
fímmtudaginn 10. desember nk.
og hefst hann kl. 16.00.
Á fundinum verður samrunasamningur
félagsins við íslandsbanka hf. kynntur og bor-
inn upp til samþykktar, en á aðalfundi 1. apríl
sl. var stjórn félagsins heimilað að undirbúa
samruna þess við Islandsbanka hf.
Dagskrá
1. Tillaga stjórnar félagsins um
samruna við íslandsbanka hf.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir \
hluthöfum og umboðsmönnum þeirra í íslands-
banka hf., Bankastræti 5 (4. hæð), Reykjavík,
dagana 7., 8. og 9. desember nk., svo og á
fundardegi.
Samrunasamningur við íslandsbanka hf.
ásamt fylgiskjölum og tillögum þeim, sem fyrir
fundinum liggja, verða hluthöfum til sýnis á
sama stað. ' ,
Reykjavík, 30. nóvember 1992
Stjóm Eignarhaldsfélags
Verslunarbankans hf.