Dagur - 08.12.1992, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 8. desember 1992 - DAGUR - 7
YHr níu hundruð manns
við vígslu Glerárkirkju
Mikil hátíðarstemmning ríkti er
biskup íslands, herra Ólafur
Skúlason, vígði Glerárkirkju
síðastliðinn sunnudag. Yfír níu
hundruð manns voru viðstadd-
ir athöfnina, sem tók hátt í
þrjár klukkustundir. Með
vígslu aðal kirkjunnar er mikl-
um áfanga náð í byggingarsögu
hennar. Ibúar Glerárhverfís
hafa lyft Grettistaki með bygg-
ingu hennar, en framkvæmd-
um er nú nánast lokið. Auk
þess að vera veglegt guðshús
og glæsilegur útvörður byggð-
ar Akureyrar í norðri, veitir
hin nýja kirkjubygging mögu-
leika til öflugs safnaðarlífs og
fjölbreytilegra starfa er rúmast
innan ramma kristinnar kirkju.
Með kirkjubyggingunni hefur
Glerársöfnuður eignast athvarf
- fastan samastað um ókomna
framtíð.
Athöfnin hófst með inngöngu
biskups, presta, sóknarnefnd-
armanna, meðhjálpara og
arkitekts kirkjunnar á meðan
leikið var Largo, úr sónötu eftir
Henry Eccles. Þá flutti meðhjálp-
ari bæn og sunginn var sálmur.
Því næst fór fram ritningarlestur
er biskup íslands, sóknarprestur,
organisti og aðilar úr sóknar-
nefnd Lögmannshlíðarsóknar
önnuðust. Að því loknu vígði
herra Ólafur Skúlason kirkjuna
með þessum orðum.
„ Vér höfum heyrt orð Drottins
og beðist fyrir. Guðs orð og bæn-
in helga lífið og alla hluti. Drott-
inn Guð vorskal tilbeðinn á þess-
um stað og honum einum þjónað.
Hér er Guðs hús, hér er hilið him-
insins, staðurinn, sem þú stendur
á, er heilög jörð. Blessað sé þetta
musteri Drottins. Blessað sé allt,
sem hér fer fram. Blessað sé lífs-
ins orð og lífsins borð. Blessaðar
séu bænir og lofsöngvar. Blessað-
ur sé hver sá, er hingað leitar á
Drottins fund. Ég lýsi yfir því, að
þetta hús er vígt í nafni Guðs,
föður og sonar og heilags anda. “
Að því búnu flutti biskup
íslands bæn og sunginn var sálm-
urinn, Kirkja vor milda móðir,
eftir Sverri Pálsson, fyrrverandi
skólastjóra, við lag Áskels Jóns-
sonar, fyrrum organista og kór-
stjóra Lögmannshlíðarsóknar.
Eftir lestur úr heilagri ritningu,
sem sóknarprestur og aðilar úr
sóknarnefnd önnuðust, flutti
sóknarprestur guðspjall og trúar-
játningu og að því loknu var
frumfluttur sálmur eftir Kristján,
skáld frá Djúpalæk, sem hann
nefnir, í Glerárkirkju, við lag
Áskels Jónssonar. Þá flutti
biskup íslands prédikun. Að
prédikun lokinni söng Óskar Pét-
ursson, tenórsöngvari, Allsherjar
Drottinn, eftir César Franck.
Vígslubiskup Hólastiftis, Bolli
Gústavsson þjónaði fyrir altari
eftir prédikun og annaðist aðfar-
aorð að altarisgöngu. Að henni
lokinni var þjóðsöngurinn, Ó,
Guð vors lands, sunginn.
Að lokinni sjálfri vígsluathöfn-
inni fór fram afhending viður-
kenninga til þeirra er lengst og
mest höfðu unnið að kirkjusmíð-
inni. Þá voru einnig flutt ávörp
gesta. Ávörp fluttu, Pálmi Matt-
híasson, fyrsti prestur Glerár-
safnaðar, Pétur Þórarinsson, er
var prestur safnaðarins um skeið,
Birgir Snæbjörnsson, prófastur
Eyjafjarðarprófastdæmis, Svanur
Eiríksson, arkitekt kirkjunnar,
og herra Pétur Sigurgeirsson,
biskup og sóknarprestur á Akur-
eyri til margra ára. Þá afhenti
Torfi Guðmundsson, formaður
byggingarnefndar, Gunnhildi
Ásgeirsdóttur, formanni sóknar-
nefndar, lykil að Glerárkirkju.
Sigríður Stefánsdóttir, forseti
bæjarstjórnar Akureyrar, flutti
ávarp og færði hinni nývígðu
kirkju peningaupphæð frá Akur-
eyrarbæ. Þá færði Pálmi Matthías-
son, fyrrum sóknarprestur, og
Ingi Þór Jóhannsson, fyrrum for-
maður byggingarnefndar og síðar
sóknarnefndar, kirkjunni messu-
hökul að gjöf ásamt fjölskyldum
sínum. Glerárkirkju bárust auk
þessa fjöldi góðra gjafa í tilefni af
vígslunni. Að lokinni athöfn var
kirkjugestum boðið til kaffi-
drykkju í Glerárkirkju og safnað-
arheimili Glerársóknar. ÞI
Afsökunarbeiðni
Undanfarin átta ár hafa margir
aðilar unnið að uppbyggingu
kirkjunnarokkar. Vegnaþessara
tímamóta ákvað sóknarnefnd
að veita fjölmörgum aðilum
viðurkenningu fyrir vel unnin
störf eða stuðning við bygging-
una á þessu tímabili.
Við vígsluathöfnina sjálfa var
nokkrum aðilum afhent viður-
kenning. Á næstunni verður
öðrum send þakkarbréf og
viðurkenning. Eftir vígsluna
hefur sóknarnefnd fengið sterk
viðbrögð vegna vals á þeim,
sem fengu sínar viðurkenningar
afhentar við athöfnina. Þar
fengu tveir af fjórum sóknar-
prestum, sem þjónað hafa Gler-
árprestakalli, afhenta viður-
kenningu.
Viðbrögðin eru þau, að sjálf-
sagt og eðlilegt hefði verið að
fyrrverandi sóknarprestur okk-
ar sr. Pétur Þórarinsson, fengi
sína viðurkenningu afhenta við
þessa athöfn. Sóknarnefnd þyk-
ir mjög miður að hafa brugðist
vilja safnaðarins í þessu við-
kvæma máli.
Sóknarnefnd biður sr. Pétur
Þórarinsson opinberlega afsök-
unar á þeim mistökum sínum að
athenda honum ekki sína viður-
kenningu við vígslu Glerár-
kirkju. Jafnframt er söfnuður
Lögmannshlíðarsóknar beðinn
afsökunar á þessari tilhögun,
sem ekki var samkvæmt vilja
safnaðarins, eins og fram hefur
komið.
Það er von sóknarnefndar
Lögmannshlíðarsóknar, að
starf þessa safnaðar blómgist og
eflist á komandi árum. Jafn-
framt þökkum við öllum, sem
stutt hafa kirkjuna okkar og
starfað við hana og biðjum
þeim Guðs blessunar í framtíð-
inni.
Sóknarnefnd
Lögmannshlíðarsóknar.
Herra Pétur Sigurgeirsson, biskup, Birgir Snæbjörnsson, prófastur Eyja-
fjarðarprófastdæmis og Gunnlaugur Garðarsson, sóknarprestur í Lög-
mannshlíðarsókn, hlýða á prédikun herra Ólafs Skúlasonar.
Séð inn eftir kirkjugólfinu. Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, fyrir alt-
ari.
Glerárkirkja var þétt setin. Á myndinni er sá hluti kirkjugesta er sat í safn-
aðarheimilissalnum.
Kirkjukór Glerárkirkju.
■m
Gunnhildur Asgeirsdóttir, formaður sóknarnefndar og Torfi Guðmundsson
formaður byggingarnefndar Glerárkirkju. Myndir: Robyn