Dagur


Dagur - 08.12.1992, Qupperneq 20

Dagur - 08.12.1992, Qupperneq 20
Hágæða litstækkun á 5 mínútum ^PedrGmyndir^ Skipagötu 16 - Sími 23520 Fingralangir á ferð Lögreglunni á Akureyri bárust þrjár kærur vegna peninga- þjófnaðar um helgina. Samtals munu 34 þúsund krónur hafa komist í greipar fingralangra í þessum tilvikum. Helgin var fremur róleg að sögn lögregluvarðstjóra. Þó var allmikil ölvun á föstudagskvöldið og ýmsir fylgifiskar hennar svömluðu um með sporðaköst- um. Þá var einn ökumaður tek- inn grunaður um ölvun við akstur en aðeins tveir árekstrar voru til- kynntir til lögreglu um helgina. Tíðindalítið var hjá lögreglu á Eyj afjarðarsvæðinu. Á Siglufirði @ VEÐRIÐ Veðurstofan spáir því að mjög hvöss suðaustan átt gangi yfir landið í dag. Hvassviðri eða stormur með snjókomu eða slyddu átti að skella á suð- vestanverðu landinu í nótt og síðdegis verða ósköpin komin norður. Heldur htýnar í bili. Á morgun verður komin vestan eða norðvestan átt með élja- gangi um vestan- og norðan- vert landið. voru nokkrir togarar inni í vari og var slegið upp landlegubaili en það fór vel fram, að sögn laganna varðar er gegndi kalli okkar. SS Norðurland: Flestir vegir greiðfærir a ný I gær var þokkalegasta færð á vegum víðast hvar norðan- lands. Greiðfært var miUi Akureyrar og Reykjavíkur. Vegurinn til Siglufjarðar var ruddur í gærmorgun og voru allir vegir færir í umdæmi Vegagerðar ríkisins á Norður- landi vestra nema Lágheiðin að sjálfsögðu. Fært var orðið til Ólafsfjarðar og Grenivíkur og um Víkurskarð til Húsavíkur og þaðan áfram með ströndinni til Vopnafjarðar. Skafrenningur var á Brekkna- heiði og færð gæti hafa spillst. Kísilvegur var fær og fært var um Vopnafjarðarheiði og Möðrudalsheiði til Egilsstaða. Fljótsheiði og Mývatnsheiði voru hins vegar ófærar. SS Hitaveita Akureyrar: Gengisfellingin veldur gjald- skrárhækkun eftir áramót - ennþá ovíst hversu mikil hækkunin verður vegna „vasksins“ Ekki liggur fyrir hversu mikla hækkun notendur hitaveitna í landinu verða að taka á sig vegna álagningar 14% virðis- aukaskatts. Stjórnvöld hafa fallist á það sjónarmið að hækkunin verði svipuð óháð búsetu og því liggur fyrir að í prósentum verður lagður á lægri skattur á hitaveitunot- endur sem búa við dýrustu hitaveiturnar þ.m.t. Akureyr- inga og Siglfirðinga. Gert er ráð fyrir annarri umræðu um fjárlög næsta árs í þessari viku og fyrir þann tíma mun væntanlega liggja fyrir hversu mikil hækkunin verður hjá notendum einstakra hita- veitna á landinu. Fjórtán prósent virðisaukaskattur á húshitun á Akureyri hefði skilað tæpum 58 milljónum króna í ríkissjóð á næsta ári, en ljóst er að sú upp- hæð verður umtalsvert lægri. „í mínum huga er mikilvægt að fram komi að með þessum skatti er ekki verið að hækka gjaldskrá Hitaveitu Akureyrar, heldur er ríkið að taka beint til sín nýjan skatt,“ sagði Franz Árnason, hitaveitustjóri. Hann sagði að hins vegar myndi Hitaveita Akureyrar hækka gjaldskrá sína eftir áramót í kjölfar 6% gengisfellingarinnar á dögunum. Gjaldskráin er bund- in byggingarvísitölu og þess er að vænta að hún hækki eftir áramót- in vegna gengisfellingarinnar. „Ég á ekki von á að heita vatnið hækki um 6%, það gæti hugsan- lega hækkað um 3-4%. Þetta er þó ennþá óljóst," sagði Franz. __________________________óþh Dalvík: Harður árekstur Haröur árekstur varð á Daivík á laugardagskvöldið og mikið eignatjón en fólk slapp án meiðsla og er það mikil mildi, að sögn lögregluþjóns. Óhappið varð með þeim hætti að tveir bílar skullu harkalega saman á mótum Goðabrautar og Stórhólsvegar Iaust eftir kl. 21 á laugardagskvöldið. Annar bíllinn skemmdist mjög mikið og er sennilega ónýtur og hinn skemmdist líka töluvert. Annað bar ekki til tíðinda á Dalvík um helgina samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. SS Akureyri: Fremstir meðal jafningja. F.v.: Steindór Gíslason, Birgir Brynleifsson og Ingvar Björn Ingvarsson. Mynd: Robyn : ^ÍmT^baiche er íslensk hágæða mjólkurafurð sem gefur ótal möguleika við matargerð. Sýrður hentar vel m.a. í salöt, sósur, ídýfur og með ávöxtum og tertum Ðetra bragð - líka á jólunum Mjólkursamlag KEA meo Fyrirsætukeppni Módelmynda og Sjallans: Tvítugur starfsmaður Mjólkur- samlags KEA sigurvegari karla Sjö ungir og fjallmyndarlegir herramenn tóku þátt í fyrír- sætukeppni Módelmynda og Sjallans sem haldin var í Sjall- anum sl. föstudagskvöld. Birg- ir Brynleifsson, tvítugur Akur- eyringur og starfsmaður Mjólk- ursamlags KEA, þótti mestum kostum búinn að mati dóm- nefndar og hlaut hann því sigurlaunin. í 2. sæti í keppninni varð Ingv- ar Bjöm Ingvarsson, 16 ára nemi í MÁ, og í 3. sæti varð Steindór Gíslason, 19 ára nemi í VMA. Sjö manna dómnefnd með Pétur Stein Guðmundsson í farar- broddi hafði það vandasama hlutverk með höndum að raða strákunum í sæti. Allir keppend- urnir fengu viðurkenningar og þrír efstu sérstök verðlaun. Þátttakendurnir í fyrirsætu- keppninni komu fram í ýmsum skemmtiatriðum í Sjallanum á föstudagskvöldið og dönsuðu og dilluðu sér fyrir áhorfendur og dómnefnd. Boðið var upp á fjöl- breytt atriði, tískusýningar, förð- unarsýningu, eróbik og fleira og síðan lék hljómsveitin Ný dönsk fyrir dansi. Þar með lauk fyrirsætukeppni Módelmynda og Sjallans 1992 en helgina áður höfðu stúlkurnar reynt með sér eins og við höfum greint frá. Fyrirsæturnar í efstu sætunum munu stefna á keppni í Reykjavík næsta vor og sumar hugsa jafnvel enn hærra. Þessi keppni gæti því reynst góður stökkpallur. SS

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.