Dagur - 19.12.1992, Side 5
Laugardagur 19. desember 1992 - DAGUR - 5
Bára með sonum, tengdadætrum og barnabörnum fyrir framan æskustöðv-
arnar á Austurgötu 40 í Hafnarfírði.
Hjá Báru - ævisaga Báru Sigur-
jónsdóttur kaupkonu, er ein
þeirra ævisaga, sem vakið hafa
athygli í „jólabókaflóðinu“ í ár.
Þótt Bára hafi lengst af búið í
Reykjavík og rekið þar verslun
um langt árabil, þekkir hún vel til
á Akureyri. „Bókin mín er að
mörgu leyti norðlensk," segir
Bára sjálf, „því á stríðsárunum
dvaldi ég um tíma á Akureyri þar
sem ég lærði hattasaum hjá frú
Sigríði Kristjánsdóttur, sem rak
hattaverslun á Akureyri. Þar
hófst einnig samband mitt við
fyrri eiginmann minn, Kjartan
Sigurjónsson söngvara, fyrir
alvöru. Ég bjó ennfremur sem
ung kona á Siglufirði um hríð.
Og ekki má gleyma því að bókin
er skrifuð alfarið á Norðurlandi,
en höfundur hennar, Ingólfur
Margeirsson rithöfundur, vann
allan texta bókarinnar í Hrísey í
sumar.“
í bókinni lýsir Bára m.a. dvöl
sinni á Akureyri og koma þekktir
Akureyringar þar við sögu. í
þeim hópi er fyrrnefnd Sigríður
Kristjánsdóttir, eða Sigga hatta
eins og hún var kölluð manna á
meðal; maður hennar Sigurður
Flóventsson lyfjafræðingur svo
og Ryel-hjónin og börn þeirra.
Þar er einnig sagt frá mannfögn-
uði á Kirkjuhvoli, sem nú er
Minjasafn Akureyrar, heimili Þor-
steins M. Jónssonar skólastjóra,
og ævilöngum vinskap Báru við
Þórhöllu, dóttur Þorsteins og
konu hans, Sigurjónu Jakobs-
dóttur. Þá lýsir Bára mannlífinu
á Siglufirði þann tíma sem hún
dvaldist þar á stríðsárunum
ásamt unnusta sínum og síðar
eiginmann, Kjartani Sigurjóns-
syni en hann stjórnaði þar Karla-
kómum Vísi.
„Norðurland á stóran hluta af
hjarta mínu,“ segir Bára Sigur-
jónsdóttir. „Það er kannski ekki
nema von, því öll stærstu örlög í
lífi mínu tengjast Norðurlandi á
einn eða annan hátt.“ Með þeim
orðum vísar Bára m.a. til þess að
landsþekktu ástar- og listasam-
bandi hennar við Sigfús Halldórs-
son tónskáld lauk á Akureyri og
á Siglufirði heyrði hún fyrst þá
frétt að Kjartan eiginmaður
hennar lægi fyrir dauðanum í
London árið 1945. Loks má geta
þess að faðir Báru, Sigurjón Ein-
arsson, var um tíma skipstjóri á
bv. Elliða frá Siglufirði og einnig
bv. Jörundi, sem Hríseyingurinn
Guðmundur Jörundsson gerði út
og veiddi fyrstur íslenskra skip-
stjóra síld í Norðursjó.
. Jóla
prennan
Skemmtileg í SKÓINN
kjörin meö JÓLAKORTINU
og gerir JÓLAPAKKANN
ennþá meira spennandi.
„Bókin mín er að
mörgu leyti norðlensk“
- segir Bára Sigurjónsdóttir, kaupkona
- líka á jólunum
Og þegar fernurnar eru tómar má breyta þeim í
skemmtilegt / i i i
jólaskraut ..«? \ J )
MLWOr