Dagur - 19.12.1992, Side 17
Laugardagur 19. desember 1992 - DAGUR - 17
®Laufásprestakall:
Kirkjuskóli nk. laugar-
dag, 19. des., í Svalbarðs-
kirkju kl. 11 og í Greni-
víkurkirkju kl. 13.30.
Kvöldstund við kertaljós í Laufás-
kirkju sunnudaginn 20. des. kl. 21.
Ræðumaður sr. Hannes Örn
Blandon.
Aðventukvöld í Grenivíkurkirkju
mánudaginn 21. des. kl. 20.30. Ingi-
björg Siglaugsdóttir í Laufási flytur
hugleiðingu.
Sóknarprestur.
Hríseyjarkirkja:
Aðventukvöld verður sunnud. 20.
des. kl. 20.30. Ræðumaður kvölds-
ins er Einar Georg Einarsson skóla-
stjóri.
Sóknarprestur.
HVÍTASUntlUKIfíKJAn wsmrdshlíð
Föstudaginn 18. desember kl. 20.00:
Bænasamkoma.
Sunnudaginn 20. desember kl.
15.30: Söngsamkoma, syngjum jólin
inn, skírnarathöfn, samskot tekin til
innanlandstrúboðs, barnapössun 0-8
ára.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðisherinn.
Sunnud. 20. des. kl.
17.00 „Við syngjum jólin
í garð“. Börnin sýna
helgileik.
Öll fjölskyldan hjartanlega velkom-
in.
SJÓNARHÆÐ
‘ ■' kT HAFNARSTRÆTI 63
Sunnud. 20. des. Almenn samkoma
á Sjónarhæð kl. 17.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
□ RÚN 599212207 - J.F.
*Eldri borgarar athugið.
Við bjóðum ykkur hjart-
>\ anlega velkomin á jóla-
agy fagnað, miðvikud. 30.
des. kl. 15.00.
Hringið í síma 24406, ef þið þurfið
keyrslu.
Hjálpræðisherinn,
Hvannavöllum 10.
Hjálpræðisherinn.
Opið hús á aðfangadags-
, kvöld.
Við bjóðum þeim, sem
eru einir og þeim, sem vegna veik-
inda eða af öðrum ástæðum eiga erf-
itt með að undirbúa jólakvöldið
heima, að vera með okkur þetta
kvöld.
Við borðum hátíðarmat kl. 18.00 og
höfum ánægjulega kvöldstund
saman.
Vegna undirbúnings verður að til-
kynna þátttöku í síðasta lagi
mánud. 21. des. í síma 24406, eða á
símsvara 11299.
BORGARBÍÓ
Salur A
Laugardagur
Kl. 9.00 Jersey stúlkan
Kl. 11.00 Lifandi tengdur
Sunnudagur
Kl. 3.00 Öskubuska
Kl. 9.00 Jersey stúlkan
Kl. 11.00 Llfandi tengdur
Mánudagur
Kl. 9.00 Jersey stúlkan
Þriðjudagur
Kl. 9.00 Jersey stúlkan
JaiMÍ Grrt/
ilvlaii i'HJBlí
JEftSEV STULKAN
MYMÖ SEM K£MUft
SKEMMTÍLEQAÁ
ÓVAftT.
STÚLKA SEM VfclT
HVAOHÚNVILL
TEKSTHENNfAO
NEGLAORAUMA-
PRINSINN?
ÖAMANMYNDFYRiR
i»IG.
Salur B
Laugardagur
Kl. 9.00 Tvídrangar
Kl. 11.00 Hinir vægðarlausu
Sunnudagur
Kl. 3.00 Prinsessan og
durtarnir
Kl. 9.00 Tvídrangar
Kl. 11.00 Hinir vægðarlausu
Mánudagur
Kl. 9.00 Tvídrangar
Þriðjudagur
Kl. 9.00 Tvídrangar
ATH! Á annan f jólum sýnum við
tvær íslenskar myndir, Sódóma
Reykjavík og Karlakórinn Hekla.
Einnig sýnum við Tomma og
Jenna með íslensku tali.
BORGARBÍÓ
S 23500
Akureyringar-Nærsveitamenn!
Öll rafvirkjaþjónusta.
Allt efni til staðar.
Ekkert verk er það lítið að því sé
ekki sinnt.
Gunnar Frímannsson,
rafvirkjameistari, Akureyri.
Sími 96-22015 í hádeginu og á
kvöldin. Bilasími 985-30503.
Munið að gefa
smáfuglunum
Efst í huga
Geir Guðsteinsson
Þungur hrammur
atvinnuleysisins skyggir
á jólagleði margra
Komandi jólahátíö verður Norðlend-
ingum minnisstæð. Fyrst er til að taka
að aldrei hafa fleiri Akureyringar haldið
heilög jól í skugga atvinnuleysis, en
um 6% vinnufærra manna í höfuðstað
Norðurlands eru á atvinnuleysisskrá,
sem er helmingi hærra hlutfall en
landsmeðaltalið. Ástæður þessa
ástands eru margþættar, en það er
umhugsunarefni að á sama tíma er lít-
ið sem ekkert atvinnuleysi í mörgum
sjávarplássum hér á Norðurlandi og
jafnvel mannekla. Það er því full
ástæða til þess að álykta sem svo að
hér hafi verið flotið sofandi að feigðarósi
í atvinnumálum. Ljós í þessu myrkri er
kannski kaup Útgerðarfélags Akureyr-
inga á meirihluta í þýsku útgerðarfélagi
en skip þess munu væntanlega landa
hluta aflans hérlendis og skapa þar
með atvinnu í landi.
Stanslaus stórhríð síðustu daga er
sveitarfélögunum ekkert fagnaðarefni
en hlýtur að vera kaupmönnum visst
fagnaðarefni. Landinn hefur verið
hvattur til að kaupa íslenskt en í mörg-
um þorpum og bæjum hér norðan-
lands er þetta ekki aðeins spurning um
að kaupa íslenskt heldur einnig að
kaupa í heimabyggð. íbúar þessara
staða eiga margir hverjir ekki annarra
kosta völ nú en að kaupa íslenskt í
heimabyggð — eða ekkert!
Virðing þegna þessa lands fyrir lög-
gjafarsamkomunni, Alþingi, hefur oft á
tíðum ekki risið hátt, en mér segir svo
hugur nú að allt þetta málþóf vegna
EES-samninga sé ekki til að bæta þar
um. Innan um þær umræður á jólaföst-
unni er svo lætt að okkur hugmyndum
um að persónuafslátturinn verði lækk-
aður, vaxtabyrðin verði aukin og áhrif
þeirra stjórnvaldsaðgerða að afnema
aðstöðugjaldið komi hinum almenna
launþega að litlu haldi. Þær aðgerðir
áttu þó að verka hvetjandi á allt
atvinnulífið, auka framleiðni þeirra
fyrirtækja sem fyrir eru í landi og stuðla
jafnvel að stofnun nýrra. Allt til þess
fyrst og fremst að herða sóknina gegn
atvinnuleysisdraugnum og skapa ný
atvinnutækifæri. Tíminn mun leiða í
Ijós hvort svo verður.
Að vanda verða margar bækur lesn-
ar um þessi jól, og alltaf njóta ævisög-
urnar vinsælda. Eg dreg hins vegar í
efa að frásagnir af fólki, sem vart hefur
lifað lengur en aldarfjórðung, séu mikið
lesnar, kannski skoðaðar fyrir forvitnis-
sakir. Skyldu bókalesendur berja ævi-
sögur unglinga augum um næstu jól,
hver veit! Gleðilega jólahátíð. GG
Nýjar bækur
Ágúst Jónsson, byggingameistarí,
Reynivöllum 6, Akureyri, verður 90
ára 22. desember nk.
í tilefni afmælisins tekur hann og
kona hans Margrét Magnúsdóttir á
móti gestum að Hótel Hörpu,
sunnudaginn 20. desember kl. 15-
19.
3. október voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju af séra Birgi
Snæbjömssyni brúðhjónin Gunn-
laug Kjartansdóttir og Jón Magnús-
son. Heimili þeirra er Hlíðarstræti
20, Bolungarvík.
Ljósm.: Norðurmynd, Ásgrímur.
Litlar sögur
Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnarfirði,
hefur gefið út bókina Litlar sögur,
smásagnasafn eftir Sverri Pál
Erlendsson á Akureyri. Höfundur-
inn Sverrir Páll hefur áður gefið út
ljóðabókina Þú og heima og þýtt
bækurnar um Önnu (Kæri herra
Guð, þetta er hún Anna og Önnu-
bók). Einnig hefur hann skrifað
kennslubækur í hljóðfræði, málsögu
og tjáningu. Litlar sögur eru fyrstu
frumsamdar sögur hans sem dregnar
eru upp úr skúffu og koma fyrir
augu manna.
A kápu segir: „Litlar sögur eru
safn sextán sagna um fólk og fyrir-
bæri og óvenjulegar hliðar hvers-
dagsleikans. Meðal annarra koma
við sögu Þórunn Sveinsdóttir fyrir-
myndarhúsmóðir, Herjólfur skó-
smiður, Jóhanna af Örk, unglingur-
inn Gunnar og ég. Farið er á tón-
leika á gulum Renault, í leikhús,
fylgst með kosningadegi, hlýtt á
söng fiskanna og horft á húsið mál-
að svart.“
Litlar sögur er 217 bls. Kápu
gerði Friðrik Ó. Friðriksson, Akur-
eyri.
Galdrar
á íslandi
Út er komin á vegum Almenna
bókafélagsins bókin Galdrar á ís-
iandi í umsjá Matthíasar Viðars
Sæmundssonar.
Bókinni er lýst þannig á bókar-
kápu: „Þessi bók inniheldur galdra-
handrit sem er einstæð heimild um
galdra eins og þeir voru iðkaðir
hérlendis á 17. öld. Raunar á þetta
handrit sér enga hliðstæðu í Norður-
Evrópu enda var slíkum ritum tor-
tímt eftir fremsta megni á galdra-
tímanum. Hér á landi varð hópur
fólks eldinum að bráð fyrir þær sakir
einar að hafa galdrarit á borð við
þetta í fórum.sínum. Galdrahandrit-
inu fylgir viðamikil ritgerð eftir
Matthías Viðar Sæmundsson og
nefnist hún: „Var þá þytur í loftinu.
Frá rúnaristum til dauðsmanns-
beina.“ í henni er brugðið óvæntu
Ijósi á þekkingarheim sem að mestu
hefur verið á huldu.“
Bókin er 460 bls. með fjölda
mynda einkum af galdrastöfum og
öðrum galdratáknum. Bókin kostar
kr. 3.495.
Fjörið blikar
augum í
Örn og Örlygur hafa sent frá sér
bókina „Fjörið biikar augum /“ sem
hefur að geyma safn hestavísna.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Hinn landskunni hestamaður og
hagyrðingur, Albert Jóhannsson í
Skógum, fyrrverandi formaður
Landssambands hestamanna, hefur
um árabil safnað saman fjölda
hestavísna hvaðanæva af landinu.
Árangur af þessu mikla söfnunar-
starfi Alberts birtist nú í bókinni
Fjöríð blikar augum í. í bókinni eru
hátt í eitt þúsund hestavísur enda er
af nógu að taka því skáld og hagyrð-
ingar hafa frá upphafi íslandsbyggð-
ar ort um samskipti sín við hestinn.
Svo drjúgir hafa jafnt leikir sem
lærðir verið við kveðskapinn að
jafnvel mætti telja hestavísur til
ákveðinnar greinar innan ljóðagerð-
ar.“
Glerárkirkja:
Aðventusamkoma
ámorgun
Aðventusamkoma verður í hinni
nývígðu Glerárkirkju á morgun,
sunnudag, en aðventukvöld er
vera átti síðastliðið miðvikudags-
kvöld féll niður vegna óveðurs og
ófærðar. Pétur Þórarinsson,
sóknarprestur í Laufási og fyrr-
um sóknarprestur í Glerárpresta-
kalli, flytur ræðu. Einnig verður
kórsöngur og ljósahátíð.