Dagur - 19.12.1992, Blaðsíða 23

Dagur - 19.12.1992, Blaðsíða 23
í UPPÁHALDI Laugardagur 19. desember 1992 - DAGUR - 23 Bændur athugið! Smákálfaslátrun verður miðvikudaginn 30. desember, að öðru leyti verður slátrað á föstudögum eins og verið hefur. Sláturhús KEA Starfsmenntastyrkir félagsmálaráðuneytisins Félagsmálaráðuneytiö auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu samanber lög nr. 19/1992. Styrkir eru veittir til stuðnings við skipulega starfsmenntun, undirbúning, náms- og kennslugagnagerð, kennslu og starfsþjálfun. Miðað er við að styrkir séu veittir vegna við- fangsefna á fyrri hluta árs 1993. Lögð er áhersla á stuðn- ing við ný starfsmenntunarnámskeið eða vegna endurnýj- unar á eldra námsefni sem hefur reynst vel. Rétt til að senda umsóknir eiga: Samtök atvinnurekenda og launafólks, einstök atvinnufyrirtæki, einkaaðilar, eða opinberir aðilar sem standa fyrir starfsmenntun í atvinnu- lífinu, starfsmenntaráð einstakra atvinnugreina og sam- starfsverkefni tveggja eða fleiri framangreindra aðila. Umsóknir frá skólum koma til álita þegar um er að ræða samstarf við samtök sem áður eru nefnd. Umsóknir berist félagsmálaráðuneytinu, Hafnarhúsi við Tryggvagötu, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 29. janúar 1993, á sérstökum eyðublöðum og skulu merktar: Umsókn um styrk vegna starfsmenntunar. Nánari upplýsingar er að finna í lögum nr. 19/1992, um starfsmenntun í atvinnulífinu, en sérprentun þeirra liggur frammi í félagsmálaráðuneytinu. Sérprentuð umsóknar- eyðublöð liggja frammi á sama stað. Félagsmálaráðuneytið, 16. desember 1992. Kvenfélagið Iðunn í Eyjafjarðarsveit: Afhendir Fæðingardeild FSA peningagjöf Kvenfélagið Iðunn í Eyjafjarðarsveit, afhenti nýlega Fæðingardeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri 100 þúsund króna gjöf. Peningamir verða notaðir til kaupa á ungbarnavigt og ferðamjaltavél. Á myndinni tekur Ingibjörg Jóns- dóttir, yfirljósmóðir, við gjafabréfi úr hendi Þórdísar Ólafsdóttur, formanns Iðunnar. Með þeim á myndinni eru konur úr kvenfélaginu og ef vel er að gáð, Kristján Baldvinsson, yfirlæknir Fæðingardeildar. Mynd: Robyn Kristilegt útvarp á Akureyri: Stjaraan hóf útsendingar í viknnni Útvarpsstöðin Stjarnan hóf útsendingar á Akureyri í vik- unni. Hér er um að ræða kristi- legt útvarp, þar sem flutt er kristileg tónlist og kristileg boðun, á FM 104,1. Gunnar Þorsteinsson stjórnar- maður í Kristilegri fjölmiðlun, sagði í samtali við Dag, að lengi hafi staðið til að hefja útsending- ar á Akureyri og nú væri það markmið orðið að veruleika. „Við erum komin til að vera,“ sagði Gunnar ennfremur. Kristileg fjölmiðlun rak áður útvarpsstöðina Alfa en keypti Stjörnuna af íslenska útvarps- félaginu og eru fréttir Bylgjunnar einnig sendar út á Stjörnunni. -KK «t Þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför systur okkar, SIGURHELGU PÁLSDÓTTUR, hjúkrunarfræðings, Dvergabakka 26, Reykjavík. Kristin Pálsdóttir, Erling Pálsson og fjölskyldur. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför systur okkar, mágkonu og föðursystur, AÐALBJARGR HELGU SIGURÐARDÓTTUR, frá Hlíðarenda, Bárðardal, Víðivöllum 12, Akureyri. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki A-gangs Dvalar- heimilisins Hliðar. Jón Ólafur Sigurðsson, Jakobína Júlíusdóttir, Arnór Sigurðsson, Guðrún Kristín Hjartardóttir, Karen Ó Hannesdóttir, Aldís R. Hannesdóttir, Kristján Júlíusson, Sigrún B. Hannesdóttir, Jónas V. Karlesson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.