Dagur - 30.01.1993, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 30. janúar 1993
Fréttir
Rekstur Kristnesspítala á síðasta ári:
Um þremur miDjómun skilað af rekstrarpeningum ársins
- rekstrarkostnaður spítalans lækkaði um 10 milljónir milli ára
Um þremur milljónum króna
kemur tU með að verða skilaö
af þeim peningum sem ætlaðir
voru tU reksturs Kristnes-
spítaia á síðasta ári. Þessa dag-
ana er verið að ieggja loka-
hönd á reikninga spítalans fyrir
síðasta ár og segir Bjarni
Arthúrsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri spítalans, að
sparnaðurinn milli áranna 1991
og 1992 sé 10 milljónir, og
meiri sé reiknað á sama verð-
lagi.
„Spítalinn er ekki sérgreindur í
fjárlögum en spítalanum var út-
hlutað um 138 milljónum á árinu
1992, samanborið við 145 millj-
ónir árið 1991. Það eru því
nokkrar milljónir sem hafa spar-
ast umfram það sem okkur var
ætlað,“ sagði Bjarni en spítalinn
var rekinn sem hluti Ríkisspítal-
anna.
Útsalan byrjaði
kl. 10 (30. jan.)
Opið til kl. 16.
Tilvalið fyrír alla fjölskylduna
bporthuyid
Hafnarstræti
24350
Þór-Valur
i Höllinni á sunnudagskvöld kl. 20.00
Verið hagsýn - Verslið í Nettó
Ódýr markaður
Allra hagur
Kreditkortaþjónusta
Opið mánudaga-föstudaga kl. 12-18.30.
Laugardaga kl. 10-16. Sunnudaga kl. 13-17.
Hann segir að strax í febrúar á
síðasta ári hafi verið sett upp
áætlun um sparnað í rekstri spít-
alans og hann hafi komið fljót-
lega fram. Sparnaðurinn sé mest-
ur á launaliðum, t.d. í yfir- og
aukavinnu. Til viðbótar hafi ver-
ið dregið verulega úr viðhaldi,
fæðiskostnaður hafi lækkað sem
og rekstrarvörur.
„Það var unnið skipulega að
þessum sparnaði og það náðist
hreint ótrúlegur árangur. Tíu
milljóna sparnaður milli ára er
hátt hlutfall í ekki stærri rekstri
en þetta,“ sagði Bjarni og bætti
við að sumt af þeim aðgerðum
sem ráðist var í hefðu ekki skilað
sér fyrr en á yfirstandandi ári en
eins og skýrt hefur komið fram
breyttist rekstur spítalans um
áramótin og er nú rekinn sem
hluti af starfsemi Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri. JOH
„Fólkið í landinu er ekki sátt“
- segir Kári Arnór Kárason, formaður Alþýðusambands Norðurlands
„Það er mikiil misskilningur
hjá forsætisráðherra að þetta
snúist um ábyrgð og ábyrgðar-
leysi, að það séu einkum
stjórnarherrarnir sem séu
ábyrgir en að hinir séu ábyrgð-
arlausir. Þetta snýst um stefnu
í efnahags- og atvinnumálum,
hvort að menn ætla sér yfir
höfuð að sinna þeim mála-
flokki eða ekki,“ sagði Kári
Arnór Kárason, formaður
Alþýðusambands Norðurlands.
Kári var ynntur eftir stöðu
mála hjá verkalýðshreyfing-
unni á Norðurlandi þessa dag-
ana, en honum var efst í huga
að svara ummælum forsætis-
ráðherra á fundum á Húsavík
og Akureyri.
„Boðskapur forsætisráðherra
er að öll él stytti upp um síðir og
þess vegna eigi menn bara að
herða sultarólina og bíða eftir að
hlutirnir lagist. Það er stjórnar-
stefnan og hún er gamalkunn.
Það þyrfti að taka til hendinni
hér í atvinnumálum og skipta um
efnahagsstefnu, reyna að fá hjól-
in til að snúast. Við höfum ekki
haft trú á að hægt sé að spara sig
út úr þeim vanda sem við er að
glíma. Það er einföld staðreynd
að útgjöld eins eru tekjur annars.
Þegar ríkið sparar sín kaup af
Jóni, þá minnka tekjur Jóns og
hann borgar minni skatta. Jón
kaupir minna af þeim sem selur
honum og hann borgar minni
skatta. Aðgerðir stjómvalda hafa
því orðið til að magna kreppuna,
frekar en að draga úr henni.
Varðandi stöðuna á vinnu-
markaðnum tala stjórnarliðarnir
um að það sé lítið til skiptanna og
það sé enginn ábyrgur maður
sem fari að stefna málunum út í
ófrið á vinnumarkaði. Nú sé tími
erfiðleika og nú eigum við að
standa saman. Þetta segja menn
eftir að vera búnir að taka hverja
ákvörðunina á fætur annarri, sem
hafa rýrt kjör launþega og kjör
þeirra sem þurfa að nota heil-
brigðiskerfið, hópa sem ekki eiga
auðvelt með að bera hönd fyrir
höfuð sér.
„Með öðrum orðum: Fyrst slær
ríkisstjórnin og bítur frá sér í all-
ar áttir. Þegar menn ætla að verj-
ast eða svara þessum árásum
stjórnvalda þá á að standa
saman, þá eiga menn að hafa
ábyrgð til að vera þægir. Þannig
bara vinna menn ekki ef menn
ætla sér að hafa sátt í þjóðfélag-
inu. Stjórnin verður að fara að
frétta að aðgerðir hennar hafa
áhrif á kjör fólksins í landinu og
fólkið í landinu er ekki sátt við
það sem hefur verið látið yfir það
ganga að undanförnu. Þá á það
engra annarra úrkosta eii að
svara því á einhvern hátt.“ IM
Dalvík:
Bæjarráð mælir með því að bæjar-
ábyrgðir verði óheimilar
Á fundi Bæjarráðs Dalvíkur á
fimmtudag var samþykkt að
veita Bjarma Skarphéðinssyni
50 þúsund króna styrk, en
hann mun taka þátt í fyrsta
Olympíumóti unglinga á skíð-
um sem hefst á Ítalíu 6. febrú-
ar nk. Engin styrkbeiðni hefur
borist Bæjarráði Ólafsfjarðar
vegna farar Gísla Más Helga-
sonar á sama mót.
ekki heimilar. Bæjarráð Dalvík-
ur mælti með því að bæjar-
ábyrgðir yrðu bannaðar.
Bæjarsjóði Dalvíkur var boðin
húseignin Höfn við Karls-
rauðatorg til kaups, en í greinar-
gerð með Aðalskipulagi Dalvík-
urbæjar segir að húsið sé frá
árinu 1905 og hvatt til þess að
húsið fái að standa á sínum stað,
en á Dalvík hafa engin hús verið
friðuð og engin hús eru þar nógu
gömul til að falla undir ákvæði
um sjálfkrafa friðun.
Sj ávarút vegsdeild Dalvíkur-
skóla hyggst efna til fyrirlestra á
næstunni undir yfirskriftinni:
„Framtíð í sjávarútvegi" og leitar
eftir uppástungum að áhugaverð-
um umræðuefnum. GG
Skútustaðahreppur:
Óbreytt gjöld frá fyrra ári
í fundargerð Skipulagsnefndar
Dalvíkur var samþykkt að breyta
aðkomuleiðum að dvalaraheimili
aldraðra, Dalbæ, í tengslum við
byggingu fjögurra þjónustuíbúða
sem afhentar verða í júnímánuði
nk. og fyrirhugaðrar viðbygging-
ar við sjálft dvalarheimilið.
Lögð var fram breyting á regl-
um um veitingu bæjarábyrgða á
lánum, en fyrir skömmu barst
bréf frá Sambandi ísl. sveitar-
félaga þar sem áréttuð var sam-
þykkt Bæjarstjórnar Akureyrar
þess efnis að bæjarábyrgðir yrðu
Á fundi sveitarstjórnar Skútu-
staðahrepps sl. fimmtudag var
samþykkt óbreytt álagning
gjalda á íbúa sveitarfélagsins
frá fyrra ári.
Útsvarsprósentan verður því
7,5% á þessu ári og fasteigna-
gjöld 0.38 af íbúðarhúsnæði og
1.25 af atvinnuhúsnæði. Sigurður
Rúnar Ragnarsson, sveitarstjóri
Skútustaðahrepps, segir að í
fyrra hafi fasteignagjaldsstuðull
fyrir íbúðarhúsnæði verið lækk-
aður úr 0.40 í 0.38 og ákveðið
hafi verið halda þeirri prósentu
óbreyttri, „til þess að koma til
móts við íbúana í þeim þrenging-
um sem þeir standa frammi
fyrir.“ óþh
NÝ NÁMSKEIÐ
* I r b r u <i r - I S m u ,
i n n r i t u n
hlutatelknun
módeltelknun
andlltttelknun
málun og lltameðferð
vatnilltamálun
grafftk hö n nu n
tkrlft og I e tu r g e r ð
bútataumur
telknun, málun, mótun
fyrlr börn