Dagur - 08.04.1993, Blaðsíða 6

Dagur - 08.04.1993, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 8. apríl 1993 m Verðlaunaafhending í ljóðasamkeppni Dags og MENOR á Fiðlaranum: Einróma niðurstaða dómnefndar Að þessu sinni bárust 109 Ijóð í ljóðasamkeppni Dags og Menningarsamtaka Norðlend- inga. Flest komu frá Akureyri og öðrum stöðum norðanlands en einnig voru send inn ljóð frá suðvesturhorninu og jafnvel öðrum löndum. Þessi góða þátttaka vitnar um áhuga almennings á Ijóðagerð og staðfestir það sem marga grun- aði að skáld og hagyrðingar leynast víða. Úrslit í Ijóðasam- keppninni voru kunngerð við hátíðlega athöfn á Fiðlaranum sl. sunnudag. Höfundar sendu ljóðin inn undir dulnefndi og því vissu dómnefndarfulltrúar ekki hver átti hugverkin sem þeir voru með í höndunum. Eftir að dómnefnd- in hafði komist að niðurstöðu var nafnleyndinni aflétt og þá kom í ljós að höfundur ljóðsins „Geig- ur“, sem dómnefnd mat best, var ! Aðalsteinn Svanur Sigfússon og á bak við ljóðið „Mynd“, sem talið var næstbest, leyndist Björn Ing- 'ólfsson. Fyrstu verðlaun voru Ritsafn Jónasar Hallgrímssonar og Sturl- !unga saga frá Máli og menningu og önnur verðlaun Ritsafn Jónas- Fyrstu verðlaun í ljóðasamkeppni Dags og MENOR: Geigur - eftir Aðalstein Svan Sigfússon Þöglar lágu þær í mýrinni staðnar dauðasvörtu vatni í sólskini hugboð um moldbrúnar axlir og stuttan hlátur skyggðan kvíða fyrir löngum vetri við reyk af hlóðum svo djúprættur geigur við gamlar sögur að geng enn á svig þó nú séu grafirnar fallnar inn og gróið yfir fyrir löngu hröðum skrefum því bíllinn gengur og stutt í fréttir. Önnur verðlaun í ljóðasamkeppni Dags og MENOR: Mynd - eftir Björn Ingólfsson Vetrarnótt. Víðáttan frosin, hljóð, vafin í teppi hvítt. Glitrandi skært í skini mána, það leggst yfir engið, ásinn, grundina, ána. Dulin í austri er dagsins glóð, daufeygar stjörnur vaka. Út í auðnina hvíta er eins manns slóð, engin til baka. ar. Aðstandendur samkeppninn- ar kunna Máli og menningu bestu þakkir fyrir stuðninginn. Við athöfnina á Fiðlaranum flutti Anna Helgadóttir, formað- ur MENOR, ávarp og ræddi til- urð og tilgang samvinnu Menn- ingarsamtakanna og Dags á undanförnum árum. Hún rifjaði upp að þessir aðilar hefðu tvíveg- is staðið fyrir ljóðasamkeppni og sömuleiðis tvisvar fyrir smá- sagnasamkeppni og hún þakkaði Hauki Ágústssyni, fyrrverandi formanni MENOR, sérstaklega fyrir þátt hans í því að koma þessum samkeppnum á. Valgerður Gunnarsdóttir, for- maður dómnefndar, gerði grein fyrir störfum nefndarinnar. Aðrir í dómnefnd voru Málmfríður Sig- urðardóttir og Stefán Þór Sæ- mundsson. Valgerður greindi frá því að niðurstaða dómnefndar hefði verið einróma og þótt ljóð- in 109 hefðu verið misjöfn að gæðum hefði verið gott að lesa þau öll. Síðan ræddi hún um ljóð- listina og breytingar á henni síð- ustu áratugina, bæði hvað efni og form varðar. Hún sagði að ljóðið speglaði sinn samtíma og rifjaði upp ljóðagerð íslendinga sem bjuggu við kröpp kjör fyrr á öldum. Þá byggðu íslendingar úr orðum meðan aðrar þjóðir byggðu hallir. Um efni innsendra ljóða sagði Valgerður: „Sumir líta til baka með söknuði, aðrir glíma við vandamál dagsins í dag og enn yrkja rrienn um ástina, þetta Hvatning til að halda áfram - segir Aðalsteinn Svanur Sigfússon Aöalsteinn Svanur Sigfússon hefur getiö sér gott orð sem myndlistarmaður en nafni hans hefur einnig skotið upp kollin- um í heimi Ijóðlistar. Hann fékk viðurkenningu í Ijóða- samkeppni Dags og MENOR fyrir fáeinum árum og nú vann hann til fyrstu verðlauna. „Ég hef líka fengist nokkuð lengi við að yrkja, en kannski ekki af neinni alvöru fyrr en á allra síðustu árum,“ sagði Aðal- steinn. Hann kvaðst forðast strangtrúarform í alvöru kveð- skap þótt það ætti vel við í tæki- færisvísum. „Til að yrkja vel með ljóðstöf- um og rími þurfa menn líka að vera miklu betri skáld en ég,“ sagði Aðalsteinn hógvær. - Þú sendir inn fleiri ljóð en „Geig“ í þessa samkeppni, ekki satt? „Jú, ég sendi ein þrjú ljóð úr gamla bunkanum en síðan small þetta ljóð saman rétt áður en skilafresturinn rann út og ég sendi það blautt úr ritvélinni. Ég var bara ansi ánægður með það og er auðvitað enn ánægðari eftir þessa viðurkenningu.“ - En hver er kveikjan að ljóð- Aðalsteinn Svanur Sigfússon. inu og hverjar „liggja í mýrinni staðnar dauðasvörtu vatni“? „Kveikjan að ljóðinu er reynd- ar dálítið skemmtileg. Ég var að lesa Salómón svarta og Bjart fyrir dóttur mína og þeir bræður Fíi og Fói voru að grafa svörð. Þá fóru að rifjast upp æskuminningar frá Árskógsströndinni um mógrafir eða svarðargrafir sem maður var oft varaður sterkt við. Þetta eru fléttur í kringum þessar bernsku- minningar.“ - Er geigur í þér ennþá? „Nei, að minnsta kosti ekki í sambandi við svarðargrafirnar. En ég vona að menn túlki þetta hver á sinn hátt og ég hef þegar heyrt nokkrar mismunandi skýr- ingar á ljóðinu." - Þessi viðurkenning er þér væntanlega hvatning til frekari afreka. „Já, mikil ósköp. Ég hef verið með einhvers konar útgáfu í huga í mörg ár en þetta dregst ár frá ári því bunkinn minnkar alltaf. Fyrir hvert nýtt ljóð sem bætist við þá detta kannski tvö eldri út. En það er svo sem ekkert á dag- skrá að gefa út bók á næstunni þótt vissulega sé þetta hvatning til að halda áfram.“ Aðalsteinn sagði að sér þætti mjög gott að geta lagt verk sín í dóm í ljóðasamkeppni. Hann væri eins og margir aðrir að dunda við ljóðagerð inni í kompu og þetta kæmi aldrei fyrir augu almennings. „Það er ágætt að fá einhver viðbrögð, ekki síst þegar þau eru í þessum dúr,“ sagði Aðalsteinn Svanur að lokum. SS Stendur ekki til að gefa út bók - segir Björn Ingólfsson Björn Ingólfsson, höfundur Ijóðsins sem dómnefnd setti í annað sæti í Ijóðasamkeppn- inni, er skólastjóri Grenivíkur- skóla. Hann er af kunnri hag- yrðingaætt og smellnar lausa- vísur hans hafa flogið víða en nú fannst honum tímabært að spreyta sig á alvarlegri Ijóða- gerð. Björn var fyrst spurður að því hvort hann hefði átt þessa „Mynd“ í fórum sínum eða dreg- ið hana sérstaklega upp fyrir samkeppnina. „Ég settist niður þegar ég frétti af þessari keppni. Ég er búinn að semja ýmislegt í gegnum tíðina með stuðlum og höfuðstöðum en ekkert af því verðskuldar að heita skáldskapur. Mér fannst forvitnilegt að vita hvort ég gæti samið ljóð og þá var upplagt að leggja það í dóm og bíða eftir úrskurði." - Þessi sýn sem birtist í ljóð- inu, er hún bundin við tiltekinn stað? „Nei. Sá sem hefur verið úti í tunglskini á vetrarnóttu þegar sléttur snjór liggur yfir öllu, óskemmdur af vélsleðaförum og öðru, gleymir ekki þeirri sýn. Og ég setti þessi spor út í auðnina í Björn Ingólfsson. lok ljóðsins til að gera það spenn- andi.“ - Já, það má jafnvel sjá feigð- artákn í þeim orðum. „Það má eflaust skilja það á ýmsa vegu. Lesendur verða að ráða í það.“ - Þú hefur ekki gefið út ljóða- bók, eða hvað? „Nei, og stendur ekki til. Ætli ég haldi mig ekki við tækifæris- kveðskapinn. En mér fannst toppurinn að eignast Jónas Hall- grímsson fyrir að setja saman eitt ljóð. Það eru ekki allir sem fara í föt Jónasar og sennilega enginn.“ Björn segist lesa töluvert af ljóðum. Hann kveðst ekki hafa mikinn tíma til að lesa og því sé handhægt að grípa í ljóðabók og lesa eitt og eitt ljóð, án þess að vera bundinn af heilum köflum eins og í skáldsögunum. - Nú er „Mynd“ með stuðlum og höfuðstöfum og einnig rími. Ertu minna fyrir hið frjálsa form? „Stuðlar og höfuðstafir eru sér- einkenni fyrir íslenskan kveð- skap og þótt ég sé ekki á móti öðruvísi kveðskap finnst mér að við megum ekki týna þessum ein- kennum. Ég les hefðbundin jafnt sem óhefðbundin Ijóð. Það eru orðin sem skipta mestu máli og bygging þeirra." - Nú veit ég að sumir vilja ekki leggja lag sitt við ljóðasam- keppni, en hvað finnst þér um framtak af þessu tagi? „Mér finnst það mjög gott. Menn lúra víða á góðum kveð- skap og þetta hvetur menn til að fara af stað.“ Björn sagðist að lokum vera afar ánægður með að Þráinn Karlsson skyldi hafa verið feng- inn til að lesa ljóðið. „Ég hef ekki heyrt neinn núlifandi mann lesa ljóð betur en hann,“ sagði Björn. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.