Dagur - 08.04.1993, Blaðsíða 11

Dagur - 08.04.1993, Blaðsíða 11
Séra Birgir Snæbjörnsson fagnaði nýverið 40 ára starfsafmæli: Skímarböniin orðin 4825 og brúðhjónin 1443 Sr. Birgir Snæbjörnsson: Óneitanlega hvarflar stundum að manni þegar far- ið er til erfiðustu prestverkanna, hvort ekki hafi verið betra að velja eitthvert annað starf. En ég hef alltaf hugsað þannig að það sé mikils virði að koma fólki til hjálpar í gegnum Guðs orð og trúna. Mynd: Robyn. Þann 15. febrúar sl. voru liðin 40 ár frá því sr. Birgir Snæ- björnsson, prófastur á Akur- eyri, vígðist til prests. Þar af hefur hann þjónað Akureyrar- prestakalli í tæp 33 ár. Blaða- maður settist niður með sr. Birgi á skrifstofu hans í Safn- aðarheimili Akureyrarkirkju á dögunum og ræddi við hann um starf prestsins. En áður en sr. Birgi er gefið orðið er rétt að rifja upp að hann hóf prestskap að Æsustöðum í Langadal í febrúar árið 1953 og starfaði þar í sex og hálft ár. Síð- an lá leið sr. Birgis að Laufási við Eyjafjörð, þar sem hann þjónaði í hálft annað ár. Frá árinu 1960 hefur hann óslitið þjónað Akur- eyrarprestakalli. Reyndar sótti sr. Birgir um starf sóknarprests í Akureyrarsókn árið 1954, en fékk 20 atkvæðum færra en sá sem flest atkvæði hlaut. Þegar sr. Birgir horfir til baka segist hann vera þakklátur fyrir að hafa ekki unnið kosninguna þá. Það hefði einfaldlega verið alltof erfitt fyrir 24 ára reynslulausan prest að koma til starfa í svo stórum söfnuði. En 6 árum síðar segist sr. Birgir hafa verið reynslunni ríkari og tilbúinn að taka þetta erilsama og erfiða starf að sér. Sex úr stúdentahópnum í guðfræði „Ég hefði ekki viljað skipta á þessu starfi og einhverju öðru,“ sagði sr. Birgir. „Ég tók ákvörð- un um að læra til prests í fimmta bekk í menntaskóla. Þá voru miklar trúmáladeilur í skólanum og ég ásamt nokkrum öðrum skipuðum okkur í brjóstvörn fyr- ir kirkjuna og kristindóminn. Ég held að það hafi ekki verið nein tilviljun að úr okkar stúdenta- hópi fóru sex í guðfræði og allir erum við starfandi enn þann dag í dag. Strax sem barn lærði ég að biðja og allar götur síðar hef ég verið mjög trúaður.“ Mikið starf og oft kapp- hlaup við tímann „Starf kirkjunnar er mun fjöl- þættara en áður. Guðsþjónust- urnar og barnastarfið var fyrir- ferðarmest hér áður fyrr, en nú hefur margt bæst við. Ég nefni starf fyrir aldraða, mömmu- morgna, starf fyrir fólk í atvinnu- leit og aukið starf á Fjórðungs- sjúkrahúsinu, en þangað förum við prestarnir tvisvar í viku í vitj- anir. Einnig skal getið um starf Samtaka um sorg og sorgarvið- brögð og fyrirbænaguðsþjónust- urnar, sem eru alla fimmtudaga allan ársins hring. Þetta er auðvitað mikið starf og oft kapphlaup við tímann. En ég hef reynt að vera aldrei á síð- ustu stundu með hlutina. Ég reyni heldur að vaka lengur og það hefur bjargað mér að ég þarf mjög lítinn svefn, kemst af lang- tímum saman með 5-6 tíma svefn á nóttu. Aðeins einu sinni hefur komið fyrir mig að ná ekki að ljúka að skrifa predikun fyrir athöfn. Það var fyrir síðustu messu á jólum og þá sagði ég við sóknarbörnin að mig hefði hent það sama og skákmennina, að falla á tíma, og þau yrðu því að taka viljann fyrir verkið.“ Lífsfylling að geta orðið fólki að liði Ekki þarf að hafa um það mörg orð að mörg prestveílc eru afar erfið og reyna verulega á prest- ana. Sr. Birgir nefnir í því sam- bandi sumar útfarir, t.d. þegar börn eða fólk í blóma lífsins er borið til grafar. „Óneitanlega hvarflar stundum að manni þegar farið er til erfiðustu prestverk- anna, hvort ekki hafi verið betra að velja eitthvert annað starf. En ég hef alltaf hugsað þannig að það sé mikils virði að koma fólki til hjálpar í gegnum Guðs orð og trúna. Mér finnst ákveðin lífsfyll- ing að geta orðið fólki að liði á erfiðustu stundum." Skírnin ánægjulegasta prestverkið Hjónaskilnuðum hefur fjölgað á síðari árum og í hlut prestanna kemur að tala á milli hjóna. Stundum ber það árangur, stund- um ekki. Sr. Birgir segir fjölgun hjónaskilnaða dapurlega stað- reynd og því miður sé það svo að lítið hafi verið um giftingar að undanförnu. Það er af sem áður var, þegar mikið var um giftingar um jól og áramót. En hvaða prestverk veita sr. Birgi mesta gleði og ánægju? „Skírnin," segir hann og er fljót- ur til svars. „Þetta er orðinn stór hópur, skírnarbörnin á þessum 40 árum eru 4825 talsins," segir sr. Birgir og bætir við að brúð- hjónin séu orðin 1443 að tölu. Líður alltaf vel í kirkjunni Sr. Birgir sagði að í starfi prests hafi hann kynnst fjölda fólks og mætt velvild. „Ég er ákaflega þakklátur fyrir öll þessi mannlegu kynni og hvað fólk hef- ur veitt mér mikið. Þá vil ég geta þess að eiginkona mín, Sumarrós Garðarsdóttir, hefur verið mér ákaflega mikill styrkur í mínu starfi. Segja má að hún annist símavörslu að deginum og oft hefur hún náð að leysa úr erfið- um málum þegar ég kem heim að kvöldi.“ Sr. Birgir orðaði það svo að honum liði alltaf vel í kirkju. „í kirkjunni er alveg sérstakt and- rúmsloft. Stundum hef ég komið afar illa upplagður til messu og sagt við organistann að ég myndi ekki treysta mér til að tóna. En síðan þegar komið er inn í kirkjuna er eins og einhver hjálp veitist. Ég get líka nefnt að ég hef oft kviðið sárlega fyrir erf- iðum jarðarförum, en alltaf veit- ist manni einhver æðri styrkur. Við biðjumst fyrir í skrúðhúsinu áður en við hefjum stundir í kirkjunni, bæði fyrir jarðarfarir og messugjörðir, og bænin veitir alltaf styrk.“ Stórkostlegt að messa að morgni páskadags í dag, skírdag, er mikið um að vera í Akureyrarkirkju. Ferm- ingar eru bæði fyrir og eftir hádegi og síðan er guðsþjónusta í kirkjunni í kvöld. Á morgun, föstudaginn langa, er messað í Akureyrarkirkju, síðan tvisvar á páskadag og í Minjasafnskirkj- unni. „Boðskapur páskanna er stórkostlegur og að sama skapi er messa á páskadagsmorgni dýrð- leg hátíð. Ég tók upp þann sið hér fljótlega eftir að ég hóf hér störf að messa að morgni páskadags. Fyrstu morgunmess- una sóttu ef ég man rétt um 150 manns, en síðan hefur messu- sóknin aukist og þetta er að verða ein fjölsóttasta messa Ársins. Ég hef aftur á móti orðið Ifyrir vonbrigðum á síðari árum með messusókn á föstudaginn langa,“ sagði sr. Birgir. Þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa mikla starfsorku Sr. Birgir sagði í lok samtalsins að því væri ekki að neita að oft væri hann þreyttur eftir langan vinnudag, en hann hafi verið þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa mikla starfsorku og ekki átt við alvarleg veikindi að stríða á 40 árum í prestsstarfinu. „Ég er Guði þakklátur fyrir að hafa leyft mér að starfa fyrir sig og gefið mér þessa starfsorku. Ég má vera í starfi fram í ágúst 1999, þegar ég verð sjötugur, og ég er staðráð- inn í því að reyna að duga á með- an ég get,“ sagði sr. Birgir Snæ- björnsson og brosti. óþh Fimmtudagur 8. apríl 1993 - DAGUR - 11 íbúðir á söluskrá Bakkahlíð: 2ja herbergja íbúð, 65 fm á neðri hæð í tvíbýlishúsi, mikið endurnýjuð, falleg íbúð, góð eign. Möðrusíða: Einbýlishús á einni hæð, 148 fm, með bílskúr, tilbúið undir tréverk, til afhendingar strax, ýmis skipti koma til greina, verð 10,5. Grundargerði: Raðhús á 2 hæðum, 146 fm, fæst á góðu verði, mik- ið áhvílandi, laus eftir samkomulagi. Tjarnarlundur: 4ra herbergja íbúð á 3. hæð, 91 fm, mikið endurnýj- uð, góð sameign, laus strax. Kjalarsíða: 4ra herbergja íbúð á 3. hæð, 99 fm, mikið endurnýj- uð, björt og rúmgóð íbúð á góðum stað, laus 1. júní. Fasteignasalan Brekkugötu 4 • Sími 21744 Gunnar Sólnes hrl., Jón Kr. Sólnes hrl. og Árni Pálsson hdl. Solust. Oddur Oskarsson. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti Hlutafélagaskrá Laust er til umsóknar starf löglærðs fulltrúa hjá Hlutafélagaskrá. Möguleiki er á hlutastarfi. Launa- kjör skv. kjarasamningi BHMR og ríkisins. Upplýsingar um starfið gefur Benedikt Þórðarson, forstöðumaður Hlutafélagaskrár. Umsóknir sendist Viðskiptaráðuneytinu fyrir 30. þ.m. SAMVINNUHÁSKÓLINN - REKSTRARFRÆÐI REKSTRARFRÆÐADEILD Samvinnuháskólapróf í rekstrarfræðum miðar að því að rekstrarfræðingar séu undirbúnir til forystu-, ábyrgðar- og stjórnunarstarfa í atvinnu- lífinu. Inntökuskilyrði: Stúdentspróf af hagfræði- eða við- skiptabrautum eða lokapróf í frumgreinum við Sam- vinnuháskólann eða annað sambærilegt nám. Viðfangsefni: Öll helstu svið rekstrar, viðskipta og stjórnunar, s.s. markaðsfræði, fjármálastjórn, starfs- mannastjórn, stefnumótun, lögfræði, félagsmál, o.fl. Námstími: Tveir vetur, frá september til maí. Námið er lánshæft hjá LÍN. FRUMGREINADEILD Nám til undirbúnings rekstrarfræðanámi. Inntökuskilyrði: Þriggja ára nám á framhaldsskóla- stigi án tillits til námsbrautar. Viðfangsefni: Bókfærsla, hagfræði, tölvugreinar, enska, íslenska, stærðfræði, lögfræði og félags- málafræði. Einn vetur. Aðstaða: Nemendavist og fjölskyldubústaðir á Bifröst, ásamt vinnustofum, bókasafni, tölvubúnaði o.fl. Barnaheimili og grunnskóli nærri. Kostnaður: Fæði, húsnæði og fræðsla áætluð um 38.000 kr. á mánuði fyrir einstakling næsta vetur. Umsóknir: Með bréfi til rektors Samvinnuháskólans á Bifröst. Umsókn á að sýna persónuupplýsingar, upplýsingar um fyrri skólagöngu með afriti skírteina og um fyrri störf. Tvenn skrifleg meðmæli fylgi. Þeir umsækjendur ganga fyrir, sem eru orðnir eldri en 20 ára og hafa öðlast starfsreynslu í atvinnulífinu. Umsóknir verða afgreiddar 25. apríl og síðan eftir því sem skólarými leyfir. SAMVINNUHÁSKÓLINN Á BIFRÖST 311 BORGARNES - SÍMI 93-50000

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.