Dagur - 08.04.1993, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 8. apríl 1993
Um víðan völl
Stefán Þór Sæmundsson
g$g DAGUE IJS
IlWíníi i ífyiniiiiliií og |r«pk»»iidaiii t Sif'iilníí
ItatKtofu k.L \. «ir<\í» líti ánt
Úr gömlum
Degi
Nýjar mjólkurflöskur
í dag og framvegis verður
mjólk á Akureyri afgreidd í
nýjum flöskum úr lituðu
gleri. Þykir mjólk úr þessum
flöskum betri, því litaða
glerið hindrar ljósgeisla, sem
valda stundum þráabragði í
mjólkinni.
Áfram verður mjólk einn-
ig seld í lausu máli, og skipt
verður um flöskurnar til 5.
apríl. Verð á þeim er
óbreytt.
Mjólkursamlagið mun í
dag dreifa leiðbeiningum um
bæinn um þetta efni. (Dagur
27. mars 1963)
Spaug
Kristján skrifstofustjóri hafði
verið í mánaðarferðalagi.
Þegar hann kemur á skrif-
stofuna fréttir hann að Hafliði,
undirmaður hans, hafi verið
eina viku í burtu og setið að
drykkju. Þegar Kristján hittir
Hafliða segir hann:
„Þú hefur verið viku fjarver-
andi; þín hefur verið saknað."
„Já, en þú hefur verið mán-
uð fjarverandi og þín hefur
enginn saknað.“
Ágúst kaupmaður hringdi í
sýslumann einn úti á landi. Af
misgáningi var honum gefið
samband við sýslumanninn í
næstu sýslu. Sýslumaður áttar
sig brátt á þessum mistökum
og segir:
„Þér talið við vitlausan
sýslumann.“
Krafan er...
Landsmenn eigi gleðilega
páska. Þetta er fullkomlega
eðlileg krafa en hugsanlega
byggð á mikilli óskhyggju.
Það er líka spurning hvað
væntingar fólks eru miklar,
hvernig það vill eiga gleði-
lega páska og hvaða kröfur
það gerir. Við þessir meðal-
jónar viljum sennilega liggja
í leti, sem þarf ekki endilega
að vera löstur, og borða góð-
an mat. Innifalið í þessu er
samvera með fjölskyldunni,
útivist, heimsóknir og eitt-
hvað fleira notalegt. Það er
hverjum manni nauðsynlegt
að eiga kyrrðarstund, staldra
við, líta um öxl og fram á við
og safna kröftum fyrir næstu
törn. Vonandi munu ferm-
ingarbörnin eiga gleðilega
páska og gestir þeirra allir.
Að svo mæltu máli kveð ég
og mæti með Nöldrarann í
næsta helgarblaði.
Furður
Fyrsta stafrófskver á íslandi
var gefið út í Skálholti 1695,
„Eitt lítið stafrófskver fyrir
börn og ungmenni“. Aftan
við það voru prentuð fræði
Lúters. Samt er talið að
kunnátta í lestri og skrift hafi
verið almenn fyrir þann tíma
en menn hafi lært lestur af
handritum. Að minnsta kosti
segir Norðmaðurinn Absal-
on Bayer á 16. öld að á ís-
landi sé almenn venja að
kenna börnum, bæði drengj-
um og stúlkum, að lesa og
skrifa. Það hefði því senni-
lega vakið furðu hans að
frétta af Lestrarkeppninni
miklu, sérstöku átaki til að
skikka íslensk börn til að
lesa.
Alfræði
Utiseta: Næturdvöl á krossgötum
þar sem allar göturnar liggja
beina leið til kirkju. Tilgangurinn
með útisetu var upphaflega að
vekja upp drauga og fregna af
þeim um óorðna atburði en síðar
tengdist hún búferlaflutningum
huldufólks á nýárs- eða Jóns-
messunótt. Sá sem situr í vegi
fyrir huldufólki á krossgötum
getur samkvæmt íslenskri þjóð-
trú eignast gull og gersemar sem
huldufólkið býður honum fyrir
að færa sig ef hann þegir alla
nóttina og lítur hvorki til hægri
né vinstri.
Orðabókin
göndla, -aði s snúa upp á, vinda
og hnoða saman: göndla e-u
saman\ spinna e-ð gróft, göndlast
áfram böðlast áfram.
Málshættir
Guð styrkir góðan vilja.
Grimmur er guðlaus maður.
Dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Fimmtudagur 8. april
skírdagur
14.50 Heimstniboð - Evrópa.
Upptaka fré samkomu í
Essen í Þýskalandi þar sem
trúboðinn Biily Graham var
aðalræðumaður.
15.50 Finnland 75 ára.
Upptaka frá Finnlandshátíð í
listahöllinni í Tampere 4.
desember sl.
17.00 Hugsandi tni.
Dagskrá um herra Sigur-
bjöm Einarsson biskup.
18.00 Stundin okkar.
18.30 Babár (8).
18.55 Táknmálsfréttír.
19.00 Wolfgang (1).
Fjölþjóðlegur myndaflokkur
um líf og starf tónskáldsins
Wolfgangs Amadeusar
Mozarts.
Aðalhlutverk: Alexander
Lutz, Toni Böhm og
Magdalena Reifova.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Við slaghörpuna.
Jónas Ingimundarson tekur
á móti Kolbeini J. Ketilssyni,
Guðna Franzsyni og Unni
Wilhelmsen í sjónvarpssal
að viðstöddum áhorfendum.
21.20 Torfkirkjurnar.
Heimildarþáttur um torf-
kirkjunar sex sem enn eru
eftir á íslandi.
21.50 Upp, upp mín sál (5).
(I'll Fly Away.)
22.40 Töfrafjallið (3).
Lokaþáttur.
00.30 Dagskrárlok.
Sjónvarpið
Föstudagur 9. april
föstudagurinn langi
15.45 Bakkynjumar.
18.00 Ævintýri Tlnna (9).
Blái lótusinn - seinni hluti.
18.30 Bamadeildin (3).
(Children's Ward.)
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Wolígang (2).
20.00 Fréttir og veður.
20.30 14 ár i Kína.
Þáttur um ævi og starf Ólafs
Ólafssonar sem ungur
sveitadrengur fékk köllun til
kristniboðs i Kina.
21.00 Heyr himna smiður.
Upptaka frá setningu tón-
menntadaga Ríkisútvarps-
ins í febrúar 1992.
21.40 Drengirnir frá Sankt
Petri.
(Drengene fra St. Petri.)
Myndin gerist i Danmörku á
striðsárunum og segir frá sjö
piltum í bænum St. Petri,
baráttuvilja þeirra og frelsis-
ást.
Aðalhlutverk: Dan Laust-
sen, Lars Nielsen, Leif Axel
Kjeldsen, Morten Degnbol,
Jacob Groth, Ib Tardini og
Mads Egmont Christensen.
22.30 Blóð og sandur (1).
Fyrri hluti.
(Dust and Blood.)
Fjölþjóðlegur myndaflokkur
sem gerist á timum kross-
ferðanna.
Aðalhlutverk: Brian
Blessed, Femando Rey,
David Wamer, Valeria
CavaUi og Jean-Yves
Berteloot.
Atriði í myndinni eru ekki
við hæfi barna.
01.00 Útvarpsfréttir i dag-
skrárlok.
Sjónvarpið
Laugardagur 10. apríl
09.00 Morgunsjónvarp barn-
anna.
Dolli dropi í Japan.
Helgileikur.
Böm úr Nessókn flytja helgi-
leik um það sem gerðist á
páskunum.
Símon í Krítarlandi.
Álffinnur - fyrri hluti.
Hlöðver grís (10).
Sungið með sínu nefi.
Litskrúðugur og söngelskur
páfagaukur syngur með eig-
endum sínum.
Blíðubangsar í Undralandi.
Spúkarnir.
Eiríkur Fjalar flytur eitt lag
og Pálmi Gunnarsson syng-
ur Gleðibankann.
11.05 Hló.
16.00 íþróttaþátturínn.
í þættinum verður meðal
annars bein útsending frá
leik í fyrstu deild karla á
íslandsmótinu í handknatt-
leik. Einnig verða sýndar
myndir frá landsmóti í skíða-
íþróttum sem fram fór í Hlíð-
arfjalli við Akureyri um síð-
ustu helgi, og svipmyndir úr
knattspymuheiminum.
18.00 Bangsi besta skinn (10).
18.30 Hvutti (2).
(Woof V.)
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Strandverðir (10).
(Baywatch.)
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 Æskuár Indiana Jones
(12).
21.30 Tangókvöld.
Edda Erlendsdóttir, Oliver
Manoury og hljómsveit skip-
uð valinkunnum hljóðfæra-
leikurum leika tangótónlist á
Sólon íslandus í Reykjavík.
22.15 Lögregluskólinn.
(Police Academy I.)
Bandarísk gamanmynd frá
1984 um litríkar persónur
sem hefja nám í lögreglu-
skóla.
Aðalhlutverk: Steve Gutten-
berg, G. W. Bailey, George
Gaynes, Kim Cattrall og
Bubba Smith.
23.40 Blóð og sandur (2).
Seinni hluti.
Atríði í myndinni eru ekki
við hæfi barna.
01.10 Útvarpsfréttir í
dagskrárlok.
Sjónvarpið
Sunnudagur 11. april
páskadagur
09.00 Morgunsjónvarp barn-
anna.
Kórsöngur.
Skólakór Seltjamamess flyt-
ur lagið Jósúa sat um Jeríkó.
Heiða (15).
Álffinnur - seinni hluti.
Þúsund og ein Amerika
(16).
Átján barna faðir i álfheim-
um.
Felix köttur (13).
Elías.
Elías, fyrirmynd annarra
barna í góðum siðum, segir
frá því hvemig á að haga sór
í fjölskylduboði.
Páskahérinn.
Vilhjólmur og Karítas.
Karítas heimsækir Vilhjálm
sem liggur veikur.
11.25 Hlé.
14.15 Lucia di Lammermoor.
Uppfærsla Scala-óperunnar í
Mílanó á óperu Gaetanos
Donizettis.
16.00 Stórviðburðir aldarinn-
ar (6).
6. þáttur: 2. september
1939.
Heimsstyrjöldin síðari -
fyrsti hluti.
17.00 Páskamessa.
Páskamessa í Víðistaða-
kirkju í Hafnarfirði. Prestur
er séra Sigurður Helgi Guð-
mundsson.
18.00 Páskastundin okkar.
18.30 Seppi.
íslensk kvikmynd um lítinn
flækingshvolp sem fer að
leita að mömmu sinni og
lendir í ýmsum ævintýrum.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Wolfgang (3).
Lokaþáttur.
20.00 Fréttir og veður.
20.20 Hið hljóðláta verk.
Um líf og list Gunnlaugs
Óskars Schevings.
21.05 Svarta kertið.
(The Black Candle.)
Sagan gerist á Norður-Eng-
landi um síðustu aldamót og
segir frá ungri konu og
örlagaríkum atburðum sem
hafa mikil áhrif á líf hennar.
22.50 Samivel.
Kvikmynd eftir Karel Prokop
um franska rithöfundinn,
kvilmiyndagerðarmanninn
og íslandsvininn Samivel,
höfund bókarinnar Guíl
íslands.
23.50 Aldasöngur.
Sönghópurinn Hljómeyki
flytur Aldasöng eftir Jón
Nordal.
00.05 Útvarpsfréttir í dag-
skráriok.
Sjónvarpið
Mánudagur 12. apríl
annar í páskum
16.00 Skrítla.
(Skeezer.)
Bandarísk fjölskyldumynd
frá 1982, um tíkina Skrítlu og
afrek hennar.
Aðalhlutverk: Karen
Valentine, Dee Wallace og
Tom Atkins.
17.50 Ævintýrí á okkar
tímum.
18.00 Töfraglugginn.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Auðlegð og ástríður
(102).
19.30 Út í loftið (4).
(On the Air.)
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Simpsonfjölskyldan (9).
(The Simpsons.)
21.00 Dagur í lífi Kristjáns
Jóhannssonar.
í tilefni af frumraun Krist-
jáns á sviði Metropolitan-
óperunnar fór Valgerður
Matthíasdóttir til New York
og ræddi við hann um störf
hans í helstu óperuhúsum
heims.
21.45 Marilyn í blíðu og
stríðu.
(Marilyn - The Untold
Story.)
Bandarísk sjónvarpsmynd
um ævi leikkonunnar
Marilyn Monroe.
Aðalhlutverk: Catherine
Hicks.
00.05 Útvarpsfréttir og dag-
skrórlok.
Sjónvarpið
Þriðjudagur 13. apríl
18.00 Sjóræningjasögur (17).
Spænskur teiknimyndaflokk-
ur sem gerist á slóðum sjó-
ræningja í suðurhöfum.
18.30 Frægðardraumar (3).
(Pugwall.)
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Auðlegð og ástriður
(103).
19.30 Skálkar á skólabekk
(24).
Lokaþáttur.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Fólklð i landinu.
Nafn hans er samofið
skipasögu Eimskips.
Ragnar Halldórsson ræðir
við Viggó Maack skipaverk-
fræðing.
21.00 Hver kyssti dóttur
skyttunnar? (2).
(The Ruth Rendell Mysteries
- Kissing the Gunner's
Daughter.)
21.55 Útvarpsráð.
Umræðuþáttur um Ríkisút-
varpið og hlutverk útvarps-
ráðs.
23.00 Ellefufréttir og dag-
skrárlok.
Stöð 2
Fimmtudagur 8. apríl
skírdagur
09.00 Kátir hvolpar.
09.20 Pegasus.
09.45 Hilda skoðar heiminn.
10.10 Undirheimar Ogganna.
10.30 Ævintýri Vífils.
10.50 Sögur úr Andabæ.
11.15 Fótfimi froskurínn.
11.35 Barnapíurnar.
(The Baby Sitters Club.)
12.00 Gusugangur.
(Splash.)
Myndin segir frá manni sem
verður ástfanginn af haf-
meyju.
Aðalhlutverk: Daryl
Hannah, Tom Hanks, John
Candy og Eugene Levy.
13.45 Alríkislöggurnar.
(Feds.)
Myndin segir frá tveimur
ungum konum, EUie og
Janis, sem komast inn í hinn
stranga lögregluskóla FBI.
Aðalhlutverk: Rebecca
DeMomay, Mary Gross,
Kenneth Marshall og Fred D.
Thompson.
15.05 Rodgers og Hammer-
stein.
The Sound of American
Music.)
í þessum fróðlega þætti er
fjallað um söngleikjatónlist
þeirra Rodgers og Hammer-
stein.
16.30 Með afa.
18.00 Kennedy fjölskyldan.
18.50 Hollensk list.
Fyrsti þáttur í sérstaklega
vel gerðri og forvitnilegri
þáttaröð um hollenska list-
sköpun.
19.19 19:19.
20.00 Elliott systur II.
Lokaþáttur.
21.00 Aðeins ein jörð.
21.30 Ljós í myrkri.#
(Fire in the Dark.)
Vönduð, mannleg og góð
mynd um baráttu fullorðinn-
ar konu við að halda reisn
sinni og sjálfstæði þegar
aldurinn færist yfir.
Aðalhlutverk: Olympia
Dukakis, Linsay Wagner,
Jean Stapleton og Ray Wise.
23.05 Skuggar fortíðar.#
(A Fatal Inversion.)
Fyrsti hluti.
Adam og Rufus vom óað-
skiljanlegir félagar á skóla-
árunum, hæfilega villtir og
passlega kærulausir.
Ákveðnir í að njóta lífsins til
fullnustu þrátt fyrir litla
lausafjármuni komast þeir í
sannkallaða gullnámu þegar
Adam erfir Wyvis Hall,
gamalt breskt ættaróðal.
Aðalhlutverk: Douglas
Hodge, Jeremy Northam,
Saira todd, Julia Ford,
Gordon Wamecke.
00.00 Leðurblökumaðurínn.
(Batman.)
Myndin er byggð á teikni-
myndasögunum um millj-
ónamæringinn Bmce Wayne
og geðsjúkan glæpamann
sem kallast Joker.
Aðalhlutverk: Jack Nichol-
son, Michael Keaton, Kim
Basinger, Robert Wuhl, Pat
Hingle og Billy Dee
Williams.
02.00 Ávaktinni.
(Stakeout.)
Myndin fjallar um tvo lög-
reglumenn sem fá það sér-
verkefni að vakta hús konu
nokkurrar. Verkefnið fer
nánast í handaskolum þegar
annar þeirra verður yfir sig
hugfanginn af konunni.
Aðalhlutverk: Richard
Dreyfuss og Emilio Estevez.
Bönnuð börnum.
03.55 Dagskrárlok.
Stöð 2
Föstudagur 9. apríl
föstudagurínn langi
09.00 Þrír litlir draugar.
09.10 Dynkur.