Dagur - 08.04.1993, Blaðsíða 24
Að undanförnu hefur verið
mjög mikil vinna hjá Strýtu hf.
á Akureyri og að sögn Aöal-
steins Helgasonar, fram-
kvæmdastjóra, er fyrirsjáanlegt
að á því verði framhald eftir
páska og jafnvel fram á sumar.
Eins og komið hefur fram í
fréttum hefur verið mjög góð
rækjuveiði að undanförnu og
kaupir Strýta rækju til vinnslu
af fjölmörgum bátum og
skipum, bæði ferska og frosna.
„Pessa dagana er unnið frá kl.
08.00 á morgnana og til kl. 22.00
á kvöldin og á morgun (í dag
skírdag) verður unnið fram eftir
degi,“ sagði Aðalsteinn.
Hann sagði fyrirsjáanlegt að
það yrði mikil vinna í fyrirtækinu
næstu vikur og mánuði og í
athugun sé að koma á einhvers
konar vatktavinnu, sem um leið
þýddi að fjölga yrði starfsfólki.
Um 50 manns vinna hjá fyrirtæk-
inu í dag.
Aðalsteinn segir að fyrirtækið
hafi tryggt sér um 3000 tunnur af
grásleppuhrognum til vinnslu,
sem er svipað magn og unnið hef-
ur verið árlega í verksmiðjunni.
Hins vegar verður ekki farið að
vinna kavíar úr grásleppuhrogn-
um fyrr en í haust. -KK
í indíánaleik.
Mynd: Robyn
- gert ráð fyrir að hlutafé í Foldu
verði aukið um 16 milljónir
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti sl. þriðjudag með 10
samhljóða atkvæðum að
Framkvæmdasjóður Akureyr-
ar myndi auka hlutafé sitt í
ullarfyrirtækinu Foldu hf. að
hámarki um 8 milljónir króna.
Björn Jósef Arnviðarson (D)
sat hjá við atkvæðagreiðsluna.
Gert er ráð fyrir að hlutafé í
Foldu hf. verði aukið um 16
milljónir króna og samþykkti
bæjarstjórn sl. þriðjudag að auka
.hlutafjáreign Framkvæmdasjóðs
bæjarins um 50% af þeirri
upphæð, að hámarki 8 milljónir
króna.
Þrír bæjíirfulltrúar sem til máls
tóku, lýstu sig því fylgjandi að
auka hlutafé í Foldu hf.; Sigurð-
ur J. Sigurðsson (D), Heimir
Ingimarsson (G) og Jakob
Björnsson (B). Björn Jósef Arn-
viðarson (D) tók hins vegar fram
í upphafi máls síns að hann
myndi ekki greiða hlutafjáraukn-
ingu í Foldu atkvæði. Björn Jósef
sagðist almennt vera á þeirri
skoðun, eins og hann hafi oft
áður gert grein fyrir, að sveitar-
félög ættu að fara sér hægt í þátt-
töku í atvinnulífinu með þessum
hætti. Menn yrðu að spyrja sig
þeirrar spurningar hvar slíkt end-
iaði, af hverju sveitarfélög settu
peninga í eitt illa statt fyrirtæki
en ekki annað. Hins vegar tók
Björn Jósef fram að hann vonaði
sannarlega að Folda hf. myndi
rétta úr kútnum og verða öflugt
fyrirtæki. óþh
Útgerðarfélag Akureyringa hf.:
Til athugunar að fjölga störfum fiskverkafólks
í þessum mánuði verður
ákveðið hjá Útgerðarfélagi
Frumtillögur um hönnun vegna fyrirhugaðra
framkvæmda við Sundlaug Akureyrar:
Skilafrestur lengdur um viku
Starfshópur um byggingafram-
kvæmdir við Sundlaug Akur-
eyrar hefur ákveðið að lengja
þann frest um viku sem búið
var að gefa arkitektum á Akur-
eyri til að skila inn frumtillög-
um að hönnun nýbyggingar og
breytingum á núverandi iaug-
arhúsi og athafnasvæði Sund-
Iaugarinnnar. Nafnlausum til-
lögum á að skila fyrir 18. maí
nk.
Eins og fram hefur komið í
Degi er rætt um að byggja um
300 fermetra hús við núverandi
laugarhús og hefur starfshópur-
inn horft til þess að sú bygging
verði fyrir sunnan laugarhúsið,
enda verði bílastæði við íþrótta-
höllina einnig nýtt fyrir sund-
gesti. Starfshópurinn gerir ráð
fyrir að búningskiefar verði á
einni hæð og verði hluti þeirra í
nýja húsinu. Þá er rætt um að úti-
laugin haldi sér í stórum dráttum,
en þó er Ijóst að gera verður tölu-
HELGARVEÐRIÐ
í dag verður kaldaskítur af
austri með úrkomu um allt
Norðurland. Á föstudag geng-
ur til hægari austlægra átta og
heldur verður svalara. Úti við
ströndina verða slydduél eða
súld, en þurrt í innsveitum. Þá
gerir Veðurstofa íslands ráð
fyrir óbreyttu veðri fram á
sunnudag.
verðar endurbætur á henni, m.a.
til þess að minnka ölduganginn í
lauginni. Einnig vill starfshópur-
inn setja niður skilrúm „á 25
metrunum" og hugmyndin er að
gera heita potta og busllaug fyrir
yngstu borgarana.
Hugmyndir starfshópsins voru
kynntar fyrir arkitektum á Akur-
íeyri í síðustu viku og í kjölfarið
rituðu þeir sameiginlega bréf þar
sem fram komu ýmsar ábending-
ar og athugasemdir. í bréfinu var
m.a. farið fram á að fyrir hverja
frumtillögu yrðu greiddar 200
þúsund krónur, en starfshópur-
inn hafði gert ráð fyrir að greiða
100 þúsund. Að fenginni þessari
athugasemd ákvað starfshópur-
inn að greiða 140 þúsund krónur
fyrir hverja tillögu. Þá féllst
starfshópurinn á að skipaður
verði trúnaðarmaður, sem verði
einskonar tengiliður á milli
hönnuða og verkkaupa. Hins
vegar var ekki fallist á þá tillögu
arkitektanna að efna til sam-
keppni um hönnun samkvæmt
skilmálum Arkitektafélags ís-
lands.
Þann 18. maí nk. kemur í ljós
hversu margar arkitektastofur á
Akureyri skila inn frumtillögum
um hönnun, en sex stofur hafa
fengið gögn þar að lútandi. Að
fengnum tillögunum mun starfs-
hópurinn yfirfara þær ásamt hlut-
lausum aðila og í framhaldi af því
verður væntanlega ákveðið við
hvaða arkitektastofu verði geng-
ið til samninga um hönnun. óþh
Akureyringa hf. hvort ráðlegt
sé að hefja vaktavinnu í frysti-
húsi félagsins í því augnamiði
áð fjölga störfum fiskverka-
fólks hjá félaginu, sem er í
raun mjög aðkallandi þegar lit-
ið er til þess atvinnuleysis sem
ríkir á Akureyri.
í samtali við blaðamann Dags
staðfesti Gunnar Ragnars, for-
stjóri Útgerðarfélags Akureyr-
inga hf., að þeim möguleika hafi
verið velt upp að hefja vakta-
vinnu í frystihúsi félagsins.
Nokkrir valkostir eru fyrir hendi.
í fyrsta lagi að setja á vaktir frá
klukkan sex að morgni til klukk-
an tvö síðdegis og þá aftur frá
klukkan 14.00 til klukkan 22,00.
Annar valkostur er að fá nýjan
hóp til starfa klukkan fimm síð-
degis, sem síðan yrði að störfum
fram á kvöld, þ.e. til klukkan
,23,00.
„Við ætlum fljótlega að ná
niðurstöðu í máli þessu. Afli
berst stöðugt til frystihússins og
framleiðslugeta þess er mikil.
Þannig runnu 114 tonn í gegn sl.
miðvikudag. Svikull er sjávarafli
og margt þarf að athuga. í sumar
verða hefðbundnar togslóðir lok-
aðar fyrir togurum og við verðum
að meta áhrifin. Óneitanlega
væri það góður kostur að fjölga
störfum fiskverkafólks hjá félag-
inu nú þegar atvinnuleysisvofan
herjar á hinn vinnandi mann, en
aðgát skal höfð því óvissuþætt-
irnir eru margir og tímarnir við-
sjárverðir," segir Gunnar Ragn-
ars. ój
GUMMIVINNSLAN HF. - RÉTTARHVAMM11 - S. 96-26776
* Opið laugardaga frá kl. 10.-15.
HJÓLBARÐAR
★ Erum með mikið úrval
af dekkjum fyrir ailar
gerðir ökutækja.
★ Veitum aihliða
FÖlKSÖIt
RAF-
GEYMAR
★ Mælum gamla
rafgeyma.
★ Seljum nýja
rafgeyma.
ísetning
á staðnum
Mikil vinna hjá
Stfytu hf. á Akureyri:
I athugun
að koma á
vaktaviiuiu
Bæjarstjórn Akureyrar:
Ákveðið að auka hlutafé
Framkvæmdasjóðs í Foldu