Dagur - 08.04.1993, Blaðsíða 13
Flugan
Umspn: Kolbeinn Gíslason
Fimmtudagur 8. apríl 1993 - DAGUR - 13
Munk-
urinn
Eins og ég sagði ykkur frá í
síðasta þætti fáum við nú að
sjá laxaflugu sem Þórarinn
Agústsson framkvæmda-
stjóri Samvers á Akureyri
hnýtti fyrir nokkrum árum.
Þórarinn hefur í mörg ár ver-
ið illa haldinn af veiðibakt-
eríunni og jafnan hnýtt sínar
flugur sjálfur. Um fluguna
sem hefur verið notuð af vin-
um og ættingjum og heitir
Munkurinn segir Þórarinn
að sé sérlega gjöful og marg-
ir vænir laxar hafa fallið fyrir
henni í Laxá í Aðaldal en
þar veiðir Þórarinn oftast.
Nafnið er til komið vegna
Bláu Nunnunnar sem bróðir
Þórarins, Ólafur, hnýtti og
er löngu orðin landsþekkt.
Lítum á fluguna.
Uppskrift:
/
Laxaöngull nr. 4-12
Broddur: ávalt silfur og
gult flos
Stél: Hausfjöður af gull-
fashana
Búkur: Svartur
Vöf: Ávalt silfur
Vængur: Svartur íkorni
Vangi: Frumskógarhana-
fjöður
Kragi: Hringvafinn blá
hanahálsfjöður
Haus: Svartur
Frumskógarhanafjaðrirnar
eru settar á á undan kragan-
um sem er hringvafinn á
eftir. Frumskógarhanafjaðr-
ir eru oft klofnar og þá sér-
staklega þær stærri. Gott ráð
er að setja dropa af glæru
lakki á þumalfingur og draga
fjöðrina nokkrum sinnum á
milli hans og vísifingurs.
Meira í næstu viku.
Aðalfundur Fjarkans
- félags eldri borgara
í hreppunum Qórum
norðan Akureyrar:
Talsverð staif-
semi í vetur
Aðalfundur Fjarkans - félags
eldri borgara í hreppunum fjór-
um norðan Akureyrar, var hald-
inn fyrir skömmu. Á fundinum
var stjórnin öll endurkjörin en
hana skipa, Steinn Snorrason,
formaður, Hreinn H. Jósavins-
son, gjaldkeri, Þorsteinn
Jónsson, ritari og Hólmfríður
Ehrat og Agnar Þórisson með-
stjórnendur.
Störf hins unga félags hafa ver-
ið talsverð í vetur. Fólk hefur
komið saman sér til gagns og
skemmtunar. Fundahöld verða
aflögð í sumar en fyrir dyrum
standa ferðalög. Skemmtifundur
verður í Víkurröst á Dalvík fyrir
öll öldrunarfélögin norðan Akur-
eyrar laugardaginn 17. apríl nk.
Stjórn Fjarkans vill þakka öll-
um þeim sem hafa stutt félagið
fyrstu sporin, með láni á hús-
næði, fjárframlögum og hvers
kyns fyrirgreiðslu. Gleðilegt
sumar og lifið heil.
Stjórn Fjarkans
Munkurinn. Mynd: þ.á.
Hópferðabíll
Geri tilboð í alla fólksflutninga.
Kristján Gunnþórsson,
Seljahlíð 5 c ■ Akureyri ■ Sími 96-22288 - 985-23033.
Ertþú
að tapa réttíndum?
Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðfélögum yfirlit um iðgjaldagreiðslur á árinu 1992:
Lffeyrissjóður Austurlands. Lffeyrissjóðurínn Björg.
Lífeyrissjóður Bolungarvíkur. Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar.
Lífeyrissjóður framreiðslumanna. Lffeyrissjóðurinn Hlíf.
Lífeyrissjóður Hlífar og Framtíðarinnar. Lífeyrissjóður matreiðslumanna.
Lífeyrissjóðurinn Sameining. Lífeyrissjóður sjómanna.
Lífeyrissjóður Sóknar. Lífeyrissjóður starfsfólks í veitingahúsum.
Lífeyrissjóður Suðurnesja. Lífeyrissjóður trésmiða á Akureyri.
Lífeyrissjóður verkafólks í Grindavík. Lffeyrissjóður verkalýðsfélaga á Suðurlandi.
Lífeyrissjóður verkamanna á Hvammstanga. Lífeyrissjóður verksmiðjufólks.
Lífeyrissjóður verkstjóra. Lífeyrissjóður Vestfirðinga.
Lífeyrissjóður Vestmannaeyinga. Sameinaði lífeyrissjóðurinn. Lífeyrissjóður Vesturlands.
Hafír þú ekki fengið yfírlit, en dregið hefur verið af
launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyris-
sjóðum, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfírlitið,
skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð
hið allra fyrsta og eigi síðar en 1. maí nk.
Viö vanskil á greiöslum iðgjalda í lífcyrissjóö cr hætta á að dýrmæt rcttindi tapist. Þar á meðal má nefna:
ELLILÍFEYRI - MAKALÍFEYRI - BARNALÍFEYRI - ÖRORKULÍFEYRI.
Gættu réttar þíns
/ lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars:
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota,
skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfírlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda
til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu tímamarka
leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil, sem er í vanskilum.
Komi athugasemd ekki fram frá launþega er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir
réttindum á grundveili iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd,
enda hafí lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.