Dagur - 08.04.1993, Page 19
Fimmtudagur 8. apríl 1993 - DAGUR - 19
Börnin okkar Kristín Linda Jónsdóttir
Bömin okkar í i sérke nnslu
Samkvæmt lögum um grunnskóla er þaö grundvallarréttur
allra barna að fá kennslu við hæfí í heimaskóla sé þess nokk-
ur kostur. Börn sem eiga við námsvanda að stríða, félags- og
tilfínningalega örðugleika eða fötlun eiga einnig þennan rétt.
Þau geta þurft á sérkennslu að halda, en sérkennsla er hluti
af starfí sérhvers skóla.
í reglugerð Menntamálaráðuneytisins um sérkennslu, sem
gefín var út árið 1992, segir í 2. gr. „Grunnskólinn skal laga
starf sitt að þroska og getu allra nemenda sinna, þannig að
hver nemandi fái kennslu við hæfi . . . Með markvissu þró-
unarstarfi skal stefnt að samskipan fatlaðra og ófatlaðra
nemenda í heimaskóla.“
En hvað er sérkennsla og hver tekur ákvörðun um það
hvort barnið okkar þarf á sérkennslu að halda eða ekki? Til
að leita svara við spurningum sem þessum knúði ég dyra hjá
Önnu Lilju Sigurðardóttur sérkennslufulltrúa Fræðsluskrif-
stofunnar á Norðurlandi eystra, greinin er byggð á samtali
okkar.
í reglugerð Menntamálaráðu-
neytisins um sérkennslu segir í 3.
gr-:
„Sérkennsla felur í sér veru-
lega breytingu á námsmarkmið-
um, námsefni, námsaðstæðum
og/eða kennsluaðferðum miðað
við það sem öðrum nemendum á
sama aldri er boðið upp á. Sér-
kennsla er skipulögð til lengri
eða skemmri tíma eftir þörfum
nemandans, jafnvel alla skóla-
göngu hans.“
Sérkennsla fer ýmist fram inn-
an veggja almenna grunnskólans
eða í sérskólum. Þegar valið er á
milli þessara tveggja úrræða er
lagt mat á alla þætti, bæði af fag-
fólki og foreldrum barnsins, vilji
foreldranna ræður úrslitum. Sér-
skólarnir eru sérstök rekstrarein-
ing á vegum ríkisins en Fræðslu-
skrifstofan hefur umsjón og eftir-
lit með rekstrinum. Einn sérskóli
er starfandi á grunnskólastigi á
Norðurlandi, það er Hvamms-
hlíðarskólinn á Akureyri þar eru
nú níu nemendur.
Blöndun
Samkvæmt reglugerð um sér-
kennslu segir að stefnt skuli að
samskipan fatlaðra og ófatlaðra
einstaklinga. Á síðustu árum hef-
ur börnum með miklar sérþarfir
fjölgað í grunnskólunum. Flestir
eru sammála um að það sé
jákvæð og eðlileg þróun.
Við lifum öll í sama þjóðfélag-
inu og það er eðlilegt að börn
sæki sama skóla hvort sem þau
eru fötluð eða ófötluð. En það
kallar á vandaða kennslu og mark-
viss og skipulögð vinnubrögð inn-
an skólans þar sem námsefnið er
við hæfi hvers og eins. Beiting
fjölbreyttari kennsluaðferða
kemur öllum nemendum til góða
jafnt ófötluðum sem fötluðum.
Nú stendur yfir samstarfsverk-
efni milli Hvammshlíðarskóla,
Fræðsluskrifstofunnar og grunn-
skóla í fræðsluumdæminu.. Unnið
er að aukinni blöndun fatlaðra og
ófatlaðra og meiri samvinnu milli
grunnskóla og sérskóla. Æ fleiri
fötluð börn stunda nám í grunn-
skólunum og í sérskólunum er til
staðar mikil þekking á sérþörfum
fatlaðra barna. Aukið samstarf á
milli þessara eininga er því mikils
virði.
Hve margar sérkennslu-
stundir fær hver
grunnskóli?
Sérkennsla grunnskólanna í
hverju fræðsluumdæmi heyrir
undir Fræðsluskrifstofu þess.
Veitt er ein fjárveiting vegna allr-
ar sérkennslu á svæðinu, sem
ekki er innan sérskólanna, svo-
kallaður „sérkennslukvóti“.
Þetta kennslustundamagn er föst
stærð reiknuð út frá heildar
nemendafjölda í hverju umdæmi.
Sérkennslufulltrúi Fræðsluskrif-
stofunnar gerir tillögu að skipt-
ingu sérkennslutímanna sem
umdæmið fær, milli grunnskól-
anna á svæðinu. Það verk er unn-
ið samkvæmt umsóknum sem
berast sérkennslufulltrúa frá
stjórnum skólanna að undan-
gengnu mati á sérkennsluþörfinni
og skipulagsvinnu innan skólans.
Um þessar mundir er verið að
fjalla um umsóknir vegna sér-
kennslu á næsta skólaári og í
byrjun maí lýkur úthlutun sér-
kennslutíma til grunnskólanna
I reglugerð Menntamálaráðu-
neytisins um sérkennslu er
skýrt kveðið á um þátttöku
foreldra í allri ákvarðanatöku
um málefni barnsins þeirra.
Þegar um sérkennslu er að
ræða er enn mikilvægara en
ella að samvinnan milli starfs-
fólksins í skólanum og foreldr-
anna sé eins góð og unnt er.
Mikilvægast er það fyrir barnið
okkar, sem þarf á sérkennslu
kennarans og stuðningi
foreldra sinna að halda.
Börnin okkar eiga öll rétt á kennslu sem hæfir þroska þeirra og getu.
Umsóknir um sérkennslu fyrir skólaárið 1992-93
Skipting eftir bekkjum.
Myndin sýnir hlutfall af heildarnemendafjölda hvers árgangs.
30%
•/ ^ s/ ^ ^ ^ ^
vegna næsta skólaárs. Hver skóli
fær úthlutað ákveðnum fjölda
sérkennslustunda. Það er síðan á
ábyrgð stjórnenda skólans og
svokallaðs nemendaverndarráðs,
að halda utan um framkvæmd-
ina.
Hvernig er sérkennslu-
stundunum deilt niður
innan skólans?
Nemendaverndarráð, eða skóla-
stjóri og sérkennari þar sem ekki
er nemendaverndarráð, tekur
ákvörðun um hvernig best sé að
ráða fram úr vanda hvers
nemanda og samræmir sér-
kennslumál innan skólans. í
Nemendaverndarráði, sem starf-
ar í öllum stærri skólum, situr
hjúkrunarfræðingur skólans,
sérkennari, aðili frá skólastjórn,
sálfræðingur skólans og fulltrúi
kennara. Á hverju vori metur
hver umsjónarkennari sér-
kennsluþörf í sínum bekk. Nem-
endaverndarráð tekur við beiðn-
um kennarans og skipuleggur
hvernig sérkennslunemendum
skólans verði best komið til
hjálpar á næsta skólaári.
Ef umsjónarkennari verður
þess var að einhver nemandi hans
á við erfiðleika að etja, til dæmis
á miðjum vetri, getur hann leitað
til Nemendaverndarráðs. í fram-
haldi af því er hugsanlega sótt um
auka sérkennslukvóta vegna
þessa nemanda til Fræðsluskrif-
stofunnar.
Er nóg framboð af hæfum
sérkennurum til að kenna
börnunum okkar?
í reglugerð Menntamálaráðu-
neytisins um sérkennslu 24. gr.
segir:
„Sérkennsla skal innt af hendi
af sérkennara eftir því sem við
verður komið, eða undir umsjón
sérkennara ef betur þykir henta
að nemandi fái sérkennslu hjá
umsjónarkennara eða öðrum
kennurum."
Til þess að öðlast full réttindi
sem sérkennari, þurfa kennarar
að loknu kennaraprófi að leggja
stund á tveggja ára nám í sér-
kennslufræðum til BA prófs. Til
þessa hefur verið verulegur
skortur á sérkennurum hér á
Norðurlandi en nú eru tuttugu
kennarar af svæðinu í sér-
kennaranámi. Þessir kennarar
eru nú um það bil að ljúka námi
og með menntun þeirra hefur
orðið gjörbreyting á framboði
menntaðra sérkennara á þessu
svæði.
Eftir því sem menntun og sér-
þekking eykst aukast mögu-
leikarnir á að sinna öllum börn-
um í sínum heimaskólum. Litlu
sveitaskólarnir eru síður en svo
verri fyrir börn með sérþarfir ef
sérþekkingin er til staðar.
Á Fræðsluskrifstofunni er starf-
rækt kennslu-, sérkennslu- og sál-
fræðiráðgjöf og geta kennarar og
foreldrar leitað þar aðstoðar.
Sérkennsla þarf að vera
fyrirbyggjandi starf
Það er hægt að fullyrða að nú er
lögð aukin áhersla á sérkennsl-
una sem fyrirbyggjandi starf. Það
er að segja reynt er að bregðast
við um leið og barn þarfnast
stuðnings en ekki beðið þangað
til vandi barnsins er orðinn veru-
legur. Nokkur hópur barna hefur
fengið sérþjónustu áður en skóla-
ganga þeirra hefst og er skóla-
byrjun þeirra skipulögð sérstak-
lega. Við upphaf skólagöngu
standa börn almennt misvel að
vígi og því er nauðsynlegt að
fylgjast vel með og grípa strax
inn í sé aðstoðar þörf. Umsjónar-
kennarar leitast við að meta
stöðu barnanna í daglegu skóla-
starfi, en einnig er unnt að beita
ýmisskonar athugunum í því
skyni. Til dæmis svokallaðri
teikniathugun Tove Krogh, sem
hefur verið notuð í talsverðum
mæli til að finna börn sem þarfn-
ast aðstoðar. Þessi athugun er
lögð fyrir börn í 1. bekk. Æski-
legast er að um leið og einhver
frávik greinast, taki foreldrar,
kennari barnsins og sérfræðingar
skólans ákvörðun um það á
hvern hátt best sé að hjálpa barn-
inu. í flestum tilfellum er ekki
um neinar rótækar aðgerðir að
ræða heldur miklu fremur mark-
vissan stuðning sem getur skipt
sköpum um líðan og framtíð
barnsins innan skólans.
I sérkennslunni er kennt sam-
kvæmt einstaklingsáætlun. Form
sérkennslu getur verið með ýms-
um hætti og er miðað við þarfir
livers nemanda fyrir sig. Til dæm-
is getur verið um að ræða sér-
kennslu inn í bekk, þá starfar
1 sérkennari með bekkjarkennar-
anum, sérkennslu í litlum hóp
! eða einstaklingskennslu. Aðeins
lítill hluti nemenda þarf á sér-
kennslu að halda í gegnum alla
sína skólagöngu, flestir þarfnast
sérkennslu um skamman tíma til
dæmis í einn til tvo vetur.
Algengustu ástæður þess
að barn þarf á sérkennslu
I að halda?
í áætlun skólanna í fræðslu-
umdæminu vegna skólaársins
1992-1993 var óskað eftir sér-
kennslu fyrir tæplega 700
nemendur.
Um fjórðungur hópsins var til-
greindur með lestrar- og skriftar-
örðugleika á einhverju stigi.
Stærsti hluti þessa hóps eru
nemendur sem ná valdi á lestri og
skrift á fáeinum árum, hinir gætu
átt við þennan vanda að stríða til
lengri tíma. Þeir greinast þá
hugsanlega með sértæka lestrar-
örðugleika sem á erlendum mál-
um er nefnt dyslexia.
Hópur barna þarfnast sér-
kennslu vegna almennra náms-
erfiðleika sem getur verið vegna
seinkaðs þroska eða fötlunar.
Einnig má nefna nemendur með
félags- og tilfinningalega örðug-
leika, sem geta komið fram sem
lítil einbeiting, samskiptavandi
og fleira í þeim dúr. Áð mati
margra kennara fer þessi hópur
stækkandi. Þetta eru algengustu
orsakir fyrir beiðni um sér-
kennslu en sérþarfir barna geta
einnig verið af ýmsum öðrum
ástæðum t.d. vandi tengdur máli
og tali og seinkaður hreyfiþroski.
Nemendur sem hafa dvalið
langdvölum erlendis og börn inn-
flytjenda eiga rétt á sérkennslu í
íslensku og aðstoð við aðlögun í
nýjum skóla. Börn sem eru frá
skóla um lengri tíma vegna veik-
inda eiga einnig rétt á kennslu á
sjúkrahúsi eða í heimahúsi.
Minnumst þess að hjá börnun-
um okkar ræður samspil margra
þátta úrslitum um líðan þeirra og
gengi í námi.
Næsti þáttur: Samvera