Dagur - 08.04.1993, Side 23
Fimmtudagur 8. apríl 1993 - DAGUR - 23
Efst íHUGA
Óskar Þór Halldórsson
Krummamálið og siðferði
íslenskra stjórnmálamanna
„Krumminn á skjánum" - sjálfur Hrafn Gunn-
laugsson. Um hann snýst öll þjóðfélagsumræð-
an þessa dagana. Þjóöin hefur steingleymt
samningaviðræðum aðila vinnumarkaðarins. Allt
snýst um Krumrha. Ekki fer á milli mála að þar fer
einn umdeildasti maður þjóðarinnar.
Ekki ætla ég að dæma um hvort Hrafn Gunn-
laugsson er hæfur til að gegna starfi fram-
kvæmdastjóra Sjónvarpsins. Manninn þekki ég
ekki nokkurn skapaðan hlut og get því á engan
hátt lagt dóm á hvort hann sé hæfur fram-
kvæmdastjóri. Tíminn einn leiðir í Ijós hvort
ráðning hans verður Sjónvarpinu til heilla eða
ekki.
Hitt er svo annað mál að aðdragandi að ráðn-
ingu Hrafns er með hreinum ólíkindum og þeim
stjórnmálamönnum sem að ráðningunni stóðu til
skammar. Almenningi í landinu er gróflega mis-
boðið og það ekki að ástæðulausu.
í umræðum á Alþingi sl. mánudag sögðu þeir
sjálfstæðismenn, sem vörðu gjörðir mennta-
málaráðherra (athygli vakti að Þorsteinn
Pálsson, settur menntamálaráðherra, var ekki í
þeirra hópi), að ekkert hafi verið athugavert við
þessa ákvörðun ráðherrans. Miklu fremur væri
gagnrýnivert að útvarpsstjóri hafi vikiö Hrafni
Gunnlaugssyni úr stóli dagskrárstjóra innlendrar
dagskrárgerðar á Sjónvarpinu vegna þess eins
að hann hafi látið í Ijós skoðanir sínar í margum-
ræddum sjónvarpsþætti. Þessi málflutningur
dæmir sig sjálfur og er viðkomandi til vansa.
Staðreynd málsins er þessi: Fram kom í máli
útvarpsstjóra að ummæli Hrafns hafi verið „korn-
ið sem fyllti mælinn". Þetta skilja allir sem vilja.
Menntamálaráðherra sagði sjálfur að útvarps-
stjóri hefði vald til þess að segja dagskrárstjóran-
um upp, en samt sem áður varaði hann útvarps-
stjórann við. Hvað fólst í þeirri aðvörun? Auðvit-
að ekkert annaö en það að útvarpsstjóri skyldi
hafa verra af ef hann dirfðist að hrófla við Hrafni.
Hvað kom á daginn? Menntamálaráðherra refs-
aði útvarpsstjóra með því að setja Hrafn í valda-
meira embætti við sömu stofnun og hann hafði
nokkrum dögum áður verið rekinn frá. Þvílíkt og
annað eins siðleysil!
Þetta mál segir okkur því miður eina ferðina
enn að siðferði íslenskra stjórnmálamanna er á
svo lágu plam að engu tali tekur. (sland er ban-
analýðveldi hvað siðferði margra stjórnmála- og
embættismanna varðar. í siðmenntuðum lönd-
um leyfi ég mér að fullyrða að slíkur valdahroki
og vinargreiði myndi aldrei líðast. (Trúir því ann-
ars einhver að Davíð Oddsson, Matthildingur og
vinur Hrafns Gunnlaugssonar, hafi ekkert komið
nálægt þessu máli?)
Hvað eftir annað hafa íslenskir stjórnmála- og
embættismenn sukkað með almannafé og ráðið
vanhæfa kunningja og samflokksmenn í hin og
þessi störf. Því miður hafa þeir oftast komist upp
meö það. Magnús Thoroddsen, þáverandi for-
seti Hæstaréttar, fékk aö vísu að fjúka um árið,
enda full ástæða til. ( Danmörku hafa stjórnmála-
menn manndóm í sér til að segja af sér embætt-
um, jafnvel forsætisráðherraembætti, ef þeir
lenda í slæmum málum. Ég er ansi hræddur um
að þyrfti mikið til að forsætisráðherra íslands
segði af sér!
Mál Hrafns Gunnlaugssonar snýst ekki og á
ekki að snúast um hvort hann sé hæfur fram-
kvæmdastjóri og kvikmyndagerðarmaður. Þetta
snýst miklu fremur um og staðfestir dómgreind-
arleysi og siðferðisbrest þeirra stjórnmálamanna
sem að þessu dæmalausa máli stóðu.
er opinn laugardaginn 10. apríl frá
kl. 11.00-15.00.
Akureyringar, ferðamenn!
Sannkölluð markaðsstemmning.
Vandaðar norðlenskar vörur á frábæru
Bólumarkaðsverði.
Hattar, plötur, sælgæti, páskaskraut, skartgripir,
lopapeysur, prjónavörur, brauð og margt fleira.
Það borgar sig að versla á Bólumarkaði.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkra- og dvalarheimilið Hornbrekka Ólafsfirði
óskar eftir hjúkrunarforstjóra frá og með 1. júní
1993.
Upplýsingar um starfiö og starfskjör veitir forstöðu-
maður Kristján Jónsson í síma 96-62482.
Skriflegar umsóknir sendist fyrir 21. apríl nk.
PÓSTKORT FRÁ PAU
Verðir siðgæðis
og laga
Innilega þakka ég þeim sem glöddu
mig með heimsóknum, gjöfum og
skeytum á sjötugsafmæli mínu,
HARALDUR KRISTINSSON,
Öngulsstöðum I.
Kæri vinur.
Mikið líður tíminn nú hratt.
Veturinn runninn sitt skeið á
enda og við tekið vor, í það
minnsta hérna megin Atlantsála.
Ekki laust við að ég sé farinn að
hlakka til að trampa niður
íslenskan nýgræðing þegar ég
kem heim, en þangað til verða
fætur mínir að gera sér að góðu
gras í pauverskum almennings-
görðum. Annars er útlit fyrir að
ég haldi mig mest inni við þessar
síðustu vikur útlegðarinnar, því
veðurguðirnir virðast ætla að
halda í gamlar hefðir og hafa
hellirigningu fram í júní. Um
daginn kom þó slík rjómablíða
að ég, íslendingurinn, dreif í að
kaupa mér stuttbuxur, sólgler-
augu og sólarolíu. Smurði mig
síðan hátt og lágt og hneykslaði
franskan almenning með því að
spóka mig um, eins lítið klæddur
og leyfilegt er. Lagðist meira að
segja í sólbað í einum almenn-
ingnum. Blessaðir Frakkarnir
svitnuðu fyrir vikið þeim mun
meira í sínum frökkum og Ieður-
jökkum, enda útilokað fyrir þá,
með alla sína íhaldssemi, að
fækka fötum í marsmánuði.
Annars virðast gilda hér
strangar reglur um fækkun fata á
almannafæri, a.m.k. fyrir kven-
þjóðina. Meðan ég flatmagaði á
stuttbuxum einum fata, Iá annar
Norðurlandabúi, kvenkyns, hald-
inn sömu löngun og ég til að
brúnka örlítið á sér kroppinn í
suðrænni sólinni og því kominn
úr bolnum, á toppinn. Eitthvað
fór það hins vegar fyrir brjóstið á
tveimur laganna vörðum, sem
áttu leið framhjá og skipuðu þeir
henni að hafa sig í snatri í spjar-
irnar. Hræddur er ég um að
eitthvað myndi heyrast í íslensk-
um konum, ef þær mættu ekki
lengur spóka sig um á brjósta-
haldaranum í norðlenskri
sumarblíðu. Annars er þetta í
samræmi við jafnrétti kynjanna
hérlendis, sem er heldur af
skornum skammti miðað við á
íslandi. Get ég nefnt sem dæmi,
að til eru lög í Frakklandi sem
banna konum að vinna seint á
kvöldin og á nóttunni, nema í
þágu heilbrigðis eða þjónustu.
En ekki orð um það meir.
Fyrst að ég minntist áðan á
franska laganna verði, sem orð-
lagðir eru fyrir þrjósku og þjóð-
arstolt, er ekki úr vegi að ég láti
fylgja reynslusögu norsks skóla-
bróður míns, sem fékk að kynn-
ast klefanum eina nóttina. Þann-
ig var mál með vexti, að Norsar-
inn, sem enn hefur ekki náð
almennilegum tökum á franskri
tungu, fór út að skemmta sér eina
kvöldstund. Eins og góðra
Norðmanna er siður, fékk hann
sér einn, tvo, þrjá, fjóra og jafn-
vel fimm og var síðan kominn í
fangið á löggunni áður en varði,
sakaður um að hafa brotið rúðu í
einhverjum bíl úti í bæ. Piltur-
inn, sem yrði allra manna síðast-
ur til spellvirkja, var því næst
færður á stöðina, ásamt mexí-
könskum vini sínum, sem var með
honum á skrallinu. Þar voru þeir
teknir í yfirheyrslu, en þegar þeir
gátu lítt tjáð sig á franskri tungu
var þeim bara sagt að í Frakk-
landi töluðu menn frönsku og ef
þeir gætu það ekki, hefðu þeir
ekkert þar að gera. Síðan var
þeim stungið í steininn. Morgun-
inn eftir voru þeir aftur teknir á
beinið, en sama sagan endurtók
sig og það var ekki fyrr en frönsk
vinkona þeirra, sem þekkti ein-
hvern á stöðinni, mætti á svæðið,
að þeir fengu að fara.
Sem betur fer, hefur mér enn
sem komið er, tekist að sleppa
við of náin kynni af þessum vörð-
um siðgæðis og laga. Ekki þar
með sagt að ég haldi ekki við
ýmsum siðum íslendinga sem
bregða sér til útlanda, en eins og
þú veist manna best, er sá einn
saklaus, sem ekki kemst upp um.
Ton ami.
SBG.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
afi og langafi,
SIGURÐUR HALLDÓRSSON,
Víðilundi 24,
fyrrv. starfsmaður Rafveitu Ak.,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri 3. apríl.
Jarðarförin verður miðvikudaginn 14. apríl kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hins látna
er bent á Dvalarheimilið Hlíð.
Guðrún Árnadóttir, Bára Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Maðurinn minn,
TRYGGVI BENEDIKTSSON,
Vöglum, Eyjafjarðarsvelt,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, laugardaginn 3.
apríl.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 13. apríl
kl. 13.30.
Hrafnhildur Jóhannsdóttir.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð
og vinarhug, við andlát og útför bróður okkar, föður, tengda-
föður, afa og langafa,
HALLGRÍMS BJÖRNSSONAR,
Sultum.
Systkini, börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.