Dagur - 17.09.1994, Page 2

Dagur - 17.09.1994, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 17. september 1994 FRÉTTIR Héraðsráð Norður-Þingeyinga: Skorar á Sighvat aö kanna möguleika á aukinni samvinnu heilsugæslustöðva - héraðsráð bendir á ýmislegt sem skýrir hlutfallslega háan kostnað við heilsugæslu í Norður-Þingeyjarsýslu Héraðsráð Norður-Þingeyinga ;amþykkti á fundi sínum sl. Immtudag ályktun þar sem skorað er á heilbrigðisráðherra ið kanna möguleikann á auk- inni samvinnu heilsugæslustöðv- anna þriggja í sýslunni, á Kópa- ikeri, Þórshöfn og Raufarhöfn, og beita sér fyrir því að komið verði á einni stjórn fyrir þessar þrjár heilsugæslustöðvar. Ingunn St. Svavarsdóttir, for- maður héraðsráðs, sagði í sarhtali við Dag að héraðsráö hafi ályktað í þessa veru í kjölfar skýrslu Hag- sýslu ríkisins um heilsugæslu- stöðvar, en þar kemur fram að hlutfallslega sé mestur kostnaður við rekstur heilsugæslustöðvanna á Norðausturhorninu. Ingunn segir að vitaskuld taki Norður-Þingey- ingar þessa skýrslu alvarlega og í því Ijósi beri að túlka ályktun hér- aðsráðs, en hins vegar sé því fjarri að fram hafi komið í opinberri umræóu um þessa skýrslu hvað liggi aó baki hlutfallslega ntiklum kostnaði við heilsugæslu á Norð- austurlandi. Ingunn segir að í þessu sam- bandi vilji héraðsráð benda á eftir- farandi: I fyrsta lagi séu alltaf tveir læknar á vakt í Norður- Þingeyjar- sýslu vegna mikilla vegalengda og það séu jafn margir læknar og eru á vakt í Reykjavík. „Þetta skýrir að kostnaður pr. íbúa er mun hærri hér en víðast annars staöar," sagði Ingunn. í öóru lagi er bent á að slysa- móttaka er á heilsugæslustöðvun- um í Noróur-Þing. en á stærri þétt- býlisstöðum er sérstök slysamót- taka á sjúkrahúsunum. I þriðja lagi er hlutfallslega mikill kostnaóur vió sjúkraflutn- inga í sýslunni vegna mikilla vegalengda og mikill tími fer í vitjanir. I fjórða lagi bendir héraðsráó á að á heilsugæslustöóvunum í Norður-Þingeyjarsýslu sé víðtæk- ari þjónusta vió íbúana, vegna þess að allskonar sérfræðiþjónusta sem þekkist á stærri þéttbýlisstöð- um sé einfaldlega ekki til staðar í Norður-Þing. Þetta er t.d. þjónusta sem kvensjúkdómalæknar annast og það sama gildir um sérfræði- þjónustu bamalækna og bæklunar- lækna á stórum sjúkrastofnunum. Einnig er bent á að heilsugæslu- læknar í héraði þurfi einnig að annast ýmiskonar ráðgjöf, sem t.d. félagsráðgjafar og sálfræðingar annist á stærri þéttbýlisstöðum. „Héma fer þetta hins vegar allt í gegnum heilsugæsluna og þar af leióandi eru ársverkin á heilsu- gæslustöðvunum fleiri pr. íbúa. Þá má einnig benda á að læknar sinna ráðgjöf varðandi kynlíf og getnaó- arvarnir. Þeir veita einnig næring- arráðgjöf og krabbameinsskoðun og eftirlit er sömuleióis á þeirra könnu, en t.d. í Reykjavík er þessi þjónusta á hendi Krabbameinsfé- lagsins. Þá má einnig nefna að læknar annast reykinganámskeið,“ sagði Ingunn. I fimmta lagi er bent á að heilsugæslulæknar á heilsugæslu- stöövum úti í hinum dreifðu byggðum þurfi að sinna störfum sem meinatæknar og röntgentækn- ar sinni á sjúkrahúsunum. I sjötta lagi er bent á að ekkert sjúkrahús er í Norður- Þingeyjar- Kaffihlaðborð Við bjóðum upp á kaffihlaðborð á sunnudaginn. Verð kr. 600 pr. mann. Hestaleiga á staðnum. Verið velkomin. Gistiheimilið Engimýri Öxnadal, sími 26838. T/ÍN uið HRRFNRGIL sýslu, en vitað er að þangað fer drjúgur fjöldi fólks á stóru þétt- býlisstöðunum sem aftur sækir ekki þjónustu viðkomandi heilsu- gæslustöðvar. „Skúli Johnsen, borgarlæknir, gerði könnun fyrir nokkrum árum á því hversu marg- ar sjúkrahússinnlagnir voru frá hinum ýmsu stöðum á landinu. í ljós kom að sá staður á landinu sem var með lægstu tíóni sjúkra- hússinnlagna, var Raufarhöfn. Kostnaður við sólarhringsinnlögn pr. sjúkling á hátæknisjúkrahús er 33 þúsund krónur. Þetta er sami kostnaður og heilsugæslustöðin á Raufarhöfn borgar fyrir einn íbúa á heilu ári,“ sagði Ingunn. óþh Gamla fólkið á Akureyri hefur verið duglegt að sækja Sundlaug Glcrárskóla, frá því hún var opnuð fyrir fáum ár- um. Bryndís Þorvaldsdóttir, íþróttakcnnari, hefur m.a. verið þar með sundkennslu og leiklimiæfingar fyrir aldraða og þegar ljósmyndari Dags leit við í gær, var ein slík í gangi og yfir 20 manns í lauginni. Mynd: Robyn. Starfsmönnum Laxóss hf. sagt upp störfum: Olafsfiröingar vilja koma upp bleikjueldi Olafsfjarðarbær mun draga sig út úr starfsemi hafbeitarstöðvar- innar Laxóss hf., en stöðin rekur auk þess seiðaeldisstöð. Bæði er það vegna þess að heimtur á hafbeitarlaxi hafa verið mikið lakari í sumar og haust en vonir stóðu til og eins hefur nýrna- veiki greinst í seiðum sem seld hafa verið frá stöðinni til Straumfisks á Svalbarðseyri. Hálfdán Kristjánsson, bæjar- stjóri, segir að búið sé að segja starfsmönnum stöóvarinnar upp störfum en Gunnar L. Jóhannsson í Hlíð hafi sýnt því áhuga að koma þar upp bleikjueldi en Gunnar hef- ur verið með vinnslu á bleikju og laxi, og hefur þar aðallega verió um reykingu að ræöa. Gunnar hef- ur ásamt fleiri Olafsfirðingum og í samstarfi við aðra aðila utan OI- afsfjarðar kannað möguleika á að hefja þarna bleikjueldi og m.a. hefur bæjarráð Olafsfjarðar rætt við Gunnar um það hvort um sam- starf gæti orðið aö ræða milli hans, Laxóss hf. og þeirra aðila sem hann hyggst verða í samstarfi við. „Rekstur Laxóss hf. verður gerður upp og fyrirtækið lagt nið- ur þegar fyrir liggur hvaða kröfur hvíla á fyrirtækinu en hugsanlega verður hægt að selja tap fyrirtæk- isins til að gera upp kröfurnar. Heimtur á þeim hafbeitarlaxi sem eftir á að ganga í ósinn næstu þrjú ár veróur samkomulag milli Lax- óss hf. og veiðifélagsins, og verð- ur andvirði hans skilað upp í þær kröfur,“ segir Hálfdán Kristjáns- son, bæjarstjóri. Bæjarstjóm Olafsfjarðar sendi Ríkisútvarpinu fyrr á þessu ári at- hugasemdir vegna endurvarps á staðnum, ekki síst vegna hlutverks RÚV í almannavörnum, en endur- varpió var inn á sveitarlínu, þ.e. einfasa rafmagni og því mjög óör- uggt. Bæjarstjóri segir þessum framkvæmdum lokið, þ.e. útvarps- endurvarpið fær rafmagn frá bæj- arkerfinu. GG I SEPTEMBER STÓRÚTSALA A POTTABLÓMUM stórum og smáum, grænum og blómstrandi. RISATRÉ Á GjAFVERÐI. Ný sending afpottum og gjafavöru Brauð og tertur nýbakað alla daga. Vínarís - vænn og vinsæli íslendingar og Norömenn aö samningaborðinu 11. október: Ekki skilyrði að Islendingar hætti veiðum fyrir þann tíma Á fundi Barentsráðsins í Tromsö í Noregi náðu utanríkisráðherr- ar fslands og Noregs, þeir Jón Baldvin Hannibalsson og Björn Tore Godal, samkomulagi um að sest verði að samningaborði um Smugudeiluna, þ.e. um sam- eiginleg hagsmunamál ríkjanna á sviði sjávarútvegs og fiskveiða og verður fyrsti fundurinn 11. október nk. I samkomulaginu er þess ekki krafisí af Norómönnum að Islend- ingar hætti veiðunt í Smugunni áður en sest verður að samninga- borðinu. Norrænu utanríkisráð- herrarnir áttu einnig fund með utanríkisráðherra Rússa, Andrej Kozyrev, sem segir að bráðnauð- synlegt sé að stöðva nú þegar veiðar í Smugunni vegna hættu á ofveiði. Kozyrev sagði aó þeim fundi loknum að íslenski utanrík- isráðherrann væri sammála því að vandi væri á höndum og vernda þyrfti fiskistofna. Islendingar og Rússar muni setja saman vinnuhóp sérfræðinga til að ræða veiðar í Smugunni og mun hann taka til starfa fyrir opin- bera heimsókn Jóns Baldvins til Moskvu 12. október nk. Jón Baldvin sagói í Tromsö á fimmtudag að ef pólitískur vilji væri fyrir hendi væri hægt að leysa deiluna á grundvelli Hafrétt- arsáttmála SÞ en þar er lögð áhersla á að ekkert ríki getur ein- hliða tekió sér rétt að skera úr um veiðar á alþjóðlegu hafsvæði. GG

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.