Dagur - 17.09.1994, Síða 11
Laugardagur 17. september 1994 - DAGUR - 11
Frá Suður-Afríku til Sauðárkróks
Hún heitir Deborah J. Robinson,
sveitastelpan frá Suður-Afríku,
sem hefur hreiðrað um sig í
Skagafirði og opnaði í byrjun
september P.R. stofuna í Stjórn-
sýsluhúsinu á Sauðárkróki.
- Hvcrnig lenti dóttir enskætt-
aða bóndans sem ræktar humal til
bjórgerðar í smá þorpinu George í
Suður-Afríku í Skagafirði?
„Ég er fædd í Suður-Afríku en
pabbi minn fæddist í Englandi.
Það var gott að vera barn í sveit í
Suður-Afríku og mjög lærdóms-
ríkt að kynnst öllum þeim þjóðar-
brotum sem búa í landinu. I Ge-
orge og nágrenni bjuggu svert-
ingjar af Xhosa þjóðflokki en í
Suður-Afríku eru töluð 23 tungu-
mál fyrir utan ensku, sem hvítir
íbúar landsins tala.“
Eg varð að fara
„Þegar ég var 25 ára tók ég
ákvörðun um að flytja burt frá
Suður-Afríku. Mér fannst engin
framtíð í því fyrir ungt fólk að búa
þar. Ég gat ekki hugsað mér að
búa í Suður-Afríku til frambúðar
vegna þess ástands sem ríkti þar í
mannréttindamálum og samskipt-
um milli kynstofna. Þess vegna
seldi ég allt sem ég átti og lagði
upp í ferðalag um heiminn. Ég fór
til Israel, svo ferðaðist ég víða um
Evrópu og til lands föður míns
Englands, þá voru peningarnir
mínir búnir. Þá heyrói ég af því að
hægt væri að fá vinnu í fiski á Is-
landi. Ég hafði aldrei unnið í fiski
en ég sótti um og fékk vinnuna og
þannig endaði Suður-Afríku stelp-
an í frystihúsinu á Flateyri við
Önundarfjörð. Það var árið 1987.“
Það var ástin
„Á Flateyri hitti ég víkinginn
minn, hann heitir Rögnvaldur
Guðmundsson og er núna verk-
stjóri Rafmagnsverkstæðis Kaup-
félags Skagfirðinga. Við eigum
tvær dætur, fimm ára og eins árs,
sem eiga mömmu frá syðsta odda
heimsins og pabba frá nyrsta
hjara.“
- Hvernig leist þér á þegar þú
varst komin til Flateyrar?
Að opna dyr með
almannatengslum
Deborah lagði stund á al-
mannatengsl, public relations,
í tækniháskóla í Höfðaborg í
Suður-Afríku. Almannatengsl
eru þriggja ára nám á háskóla-
stigi og nú ætlar hún að nýta
þessa menntun í eigin fyrir-
tæki.
Hún opnaði PR stofuna - al-
mannatengsl í Stjómsýsluhúsinu
á Sauðárkróki 1. september síð-
astliðinn. Að sögn Deborah eru
margir sem ekki gera sér grein
fyrir því hvað almannatengsl
eru. En hún segir almannatengsl
í raun ákvcðinn hugsunarhátt.
Tilgangur almannatcngsla er að
auka og bæta hverskyns sam-
skipti og ímynd, bæði innan fyr-
irtækja og utan. Aó koma góð-
um fréttum á framfæri og skapa
jákvæða ímynd. „Allt upplýs-
ingaflæði, kynning og markaós-
setning byggir á góðum sam-
skiptum, tengslum,“ sagði De-
borah.
Hún segir aó smátt og smátt
sé hún að fá vcrkcfni og hún
vonast til að forsvarsmenn fyrir-
tækja, sérstaklega í Skagafirði,
vilji nýta sér menntun hennar og
tungumálakunnáttu til hagsbóta
fyrir íyrirtæki sín. „Markmið
mitt meó stofnun fyrirtækisins cr
að aðstoða íbúa hér við að nýta
betur þá möguleika sem héraðiö
og fólkið sem það byggir býr yf-
ir. Ég vonast til að í kjölfar þess-
arar starfsemi opnist fleiri dyr í
feróaþjónustu, fyrirtækjarekstri
og á fleiri sviðum. Hver sem er
getur leitað til mín og óskað eftir
þjónustu,“ sagói Deborah.
Sem dæmi um þau verkelni
sem PR stofan - almannatengsl
fæst við cru erlcndar bréfaskrift-
ir og símtöl til útlanda, sant-
skipti við innlcnda og erlenda
fjölmiöla, skipulagning og fram-
kvæmd kynninga, ráðstefna,
funda og fyrirlestra, markaðs-
ráðgjöf og bæklingagcrð, mót-
taka gesta og skipulagning dag-
skrár fyrir gesti, kynnisfcróir um
Skagafjörö, námskeió og hvers-
kyns þýóingar. KLJ
Gegn framvísun skólaskírteina
Gildir fyrir nemendur MA, VMA, Háskólans,
Tónlistarskólans og Myndlistaskólans
GERIÐ
VERÐ-
SAMAN-
BURÐ
Opiðídagtilkl. 13.00
þar sem geisladiskar eru gersemi
Hafnarstræti 98 • 600 Akurcyri • Sími 12241
„Ég hafói engar fyrirfram
ákveðnar hugmyndir, ég bara tók
þessu eins og það var. Þegar ég
bjó í Suður-Afríku var ég í mjög
krefjandi vinnu. Ég vann annars
vegar við almannatengsl og hins
vegar fyrir tímaritaútgefendur við
auglýsingaöflun og fleira. Ég var
ákveðin í að beyta til og því fannst
mér ágætt að vinna í frystihúsinu
urn tíma, ég vann þar eina vertíð.
Svo langaði mig að takst á við
eitthvað annaó og fór að kenna í
grunnskólanum á Flateyri.
Næsta þrep í lífi mínu var að
fylgja Rögnvaldi manninum mín-
um til Reykjavíkur þar seni hann
lagði stund á iðnrekstrarfræói. I
framhaldi af því fékk Rögnvaldur
vinnu hér á Sauðárkróki og sum-
arið í sumar er fjóröa sumarió
okkar hér í Skagafirði.
- Hvernig er að búa í Skaga-
firói?
„Frábært, ég er ekta Skagfirð-
ingur. Mér fannst ríkja ákveðin
svartsýni og neikvæóni á Vest-
fjörðum en hér er allt annaó við-
horf ríkjandi. Hér cru allir já-
kvæðir, opnir og lífsglaðir og þaó
var strax tekið mjög vel á móti
ntér, stelpunni frá Suður-Afríku.
Ég hef ágætis samanburð, hef
ferðast víða og búið á ólíkum
stööum en Skagafjörður, hann er
mér að skapi.“
- Þú segist vera ekta Skagfirð-
ingur. Ertu þá hestakona?
„Ég er ekki ennþá oróin hesta-
kona hér á Islandi en ég var mikil
hestastelpa í Suður-Afríku. Þar
átti ég hesta og tók þátt í mótum.
Ég keppti í hindrunarstökki,
hlýðniæfingum og hindrunar-
stökki á opnu svæði, nokkurskon-
ar víðavangshlaupi með hindrun-
um, það var mín besta grein. Ann-
ars fannst mér skemmtilegast að
þjálfa hestana og oft keppti yngri
bróðir minn á hestunum sem ég
þjálfaói.“
Þýðir hestabækur
- Við hvað hefur þú starfaö síðan
þú kpmst hingaó á Sauðárkrók?
„Ég kenndi cnsku í gagnfræöa-
skólanum en svo ákvað ég að vera
hcimavinnandi og tók að mér
einkatíma í ensku af ýmsu tagi
bæói fyrir fullorðna og unglinga.
Svo kom eldhuginn Gísli á
Hofi í Húnavatnssýslu til mín.
Hann bauð mér að þýða bók, sem
Skagfirðingurinn Ingimar
Ingimarsson var að skrifa og Gísli
gaf út. Hún heitir Hestar í norðri
og var prentuð á þremur tungu-
niálum íslensku, ensku og þýsku.
Ég tók að mér að þýða bókina og
nú er ég nýbúin að ljúka þýöingu
fjórðu bókarinnar í þessurn
bókaflokki. Þessar bækur fjalla
um íslenska hrossaræktendur og
eru seldar jafnt á erlendri grund
sem hérlendis og nú er veriö að
þýða fyrstu bókina á fjórða tungu-
málið, norsku.
Auk þcss hef ég tekið að mér
ýmis verkefni í almannatengslum
bæði fyrir fcrðaþjónustufyrirtækið
Hcstasport hér í Skagafirði og fyr-
ir Vigfús Vigfússon, fyrrverandi
feróamála fulltrúa hér. Þessr störf
voru til dæmis gerð og þýðingar
bæklinga, móttaka erlendra gesta,
kynningarstöf á hestasýningum á
Vindheimamelum og skipulagn-
ing og markaðssetning ráðstefna.
/
„Attu ódýran miða til
Afríku og heim aftur?“
- Heldur þú að þú eigir eftir að
llytja aftur til Suður-Afríku?
„Auðvitað sakna ég vina og
ættingja scm búa í hcimalandi
mínu og líka þeirrar menningar
sem fylgir svarta kynstofninum og
blómstrar í Afríku. Móðir mín er
látin en pabbi býr í Suður-Afríku
og yngri bróðir minn. Ég var hins-
vegar svo heppin að eldri bróðir
minn giftist wellskri konu og býr
nú í Wales þannig að það er ekki
svo erfitt að halda sambandi við
hann. Ég hef aðeins farið einu
sinni til Suður-Afríku síóan ég fór
þaðan 25 ára gömul, ég vildi
gjarnan eiga þess kost aö koma
oftar til Afríku cn ekki endilega til
Suöur-Afríku. En eins og ég sagði
er ég ekta Skagfirðingur og þeir
búa í Skagafirði og þar verð ég,"
sagði Deborah. KLJ
|KtÍM HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA • RÉTTARHVAMM11 • S. 96-12600
v” Opið laugardaga kl. 10-15
RAFGEYMAR
★ Mælum gamla
rafgeyma
★ Seljum nýja
rafgeyma
★ ísetning á
staðnum
HJÓLBARÐAR
Erum með mikið úrval nýrra
og sólaðra hjólbarða undir
allar gerðir ökutækja
Fullbúið hjólbarðaverkstæði
með