Dagur - 03.02.1995, Page 14
14 - DAGUR - Föstudagur 3. febrúar 1995
HVAÐ E R At> CERAST?
Félagar f
Skotfélagi
Akureyrar!
Æfíngatímar
Við viljum minna á æfingatíma félagsins í íþrótta-
skemmunni á Gleráreyrum, á laugardagsmorgnum
kl. 10-12.
Rifflar á staðnum.
Stjórnin.
Félagsfundur
laugardaginn 4. febrúar kl. 15.00 í Gamla-
Lundi við Eiðsvallagötu.
Framboðslisti Kvennalistans á Norðurlandi eystra
fyrir Alþingiskosningar 1995 kynntur.
KVENNALISTINN
Gamla-Lundi við Eiðsvallagötu, sími 96-27522.
s, á þor Brottf< sba ætaferðir rablót Fnjóskdælinga laugardag 4. febrúar 3r frá Umferðamiöstöð kl. 20.00 Verð kr. 1.000,00 pr. sæti. SÉRLEYFISBÍLAR AKUREYRAR HF. AKUREYRIBUS COMPANY
Dalsbraut 1 • Símar 23510 & 985-22616 • Fax 27020
ÖLDRUNARDEILD
ELDRIBORGARAR
TAKIÐ EFTIR!
Þriðjudaginn 7. febrúar kl. 13.00 verður tekin í
notkun aðstaða fyrir félagsstarf fyrir aldraða í
KJALLARA BJARGS Bugðusíðu 2 (GENGIÐ
INN í HÚSIÐ AÐ AUSTANVERÐU).
Að því tilefni viljum við hvetja sem flesta til að
koma og kynna sér aðstöðuna.
ÞAÐ VERÐUR HEITT Á KÖNNUNNI.
VERIÐ VELKOMIN.
Félagsstarf aldraðra.
KVAK sýnir Næturvörðinn
Borgarbíó frumsýndi sl. miðvikudags-
kvöld dönsku spennumyndina Natte-
vagten (Næturvörðurinn) sem er ein
best sótta mynd Norðurlanda frá upp-
hafi og hefur hlotið viðurkenningar á
fjölmörgum kvikmyndahátíðum. Leik-
stjóri myndarinnar og handritshöfundur
er Ole Bomedal og er þetta fyrsta
mynd hans.
Næturvörðurinn fjallar um laga-
nemann Martin sem tekur þátt í leik
„án takmarkana" með Jens besta vini
sínum. Þeir mana hvor annan til ýmissa
ævintýra og eru reglur leiksins þannig
að sá sem tapar verður að fóma frelsi
sínu með því að ganga hið snarasta í
hjónaband. Martin er einnig að leita sér
að sumarstarfi og hefur störf sem næt-
urvörður í líkhúsi. Starfið reynist ekki
eins létt og hann hélt í fyrstu því
óhuggulegir atburðir fara að gerast.
Fjöldamorðingi og náriðill gengur laus
og leikurinn teygir sig inn í líkhúsið til
Martins og inn í huga hans. Hann veit
ekki hvort Jens vinur hans er að leika
sér að honum eða hvort hann er orðinn
geðveikur, jafnvel morðingi. Nætur-
vörðurinn er fyrsta spennumynd frá
Norðurlöndum til að hljóta alþjóólega
dreifingu og standa nú yfir samninga-
viðræður um endurgerð myndarinnar í
Hollywood en slíkt hefur færst í vöxt
undanfarin ár með evrópskar myndir
sem siegið hafa í gegn.
Alfreð Flóki og Joris Jóhann-
es Rademaker í Listasafninu
Laugardaginn 4. febrúar kl. 16 verður
opnuö í Listasafninu á Akureyri sýning
á teikningum og krítarmyndum eftir
Alfreð Flóka í austur- og miðsal og
sýningu á málverkum eftir Joris Jó-
hannes Rademaker í vestursal. Sýning
Alfreós Flóka stendur til 26. febrúar en
sýningu Jorisar Jóhannesar lýkur 19.
febrúar.
Listasafnið á Akureyri er opið alla
daga nema mánudaga frá kl. 14 til 18.
Alfreó Flóki fæddist 1938 og and-
aðist fyrir aldur fram 1987. Alfreð
Flóki skapaði einstæða veröld, þar var
hann einfari rétt eins og í íslenskri
myndlist. A þessari sýningu eru myndir
frá 1970 til 1987 auk fjölda skyssa frá
ýmsum tíma. Myndimar á sýningunni
eru í eigu Listasafns Reykjavíkur.
Joris Jóhannes Rademaker er fædd-
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107,600 Akureyri
Sími 96-26900
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálfum
sem hér segir:
Hlíðarlundur 2, kjallari, Akureyri,
þingl. eig. S.S. Byggir h.f., gerðar-
beiðendur Lífeyrissjóður verslunar-
manna og Lýsing h.f., 8. febrúar
1995 kl. 10.00.
Rauðamýri 19, Akureyri, þingl. eig.
Sigurjón O. Sigurðsson, gerðar-
beiðendur Akureyrarbær, Lands-
banki íslands, Lífeyrissjóður verk-
stjóra og (slandsbanki h.f., 8. febrú-
ar 1995 kl. 10.30.
Sýslumaðurinn á Akureyri
2. febrúar 1995.
ur 1958 í Eersel í Hollandi og hefur
verió búsettur á Akureyri síðan 1991.
Hann hefur oft sýnt list sýna, bæði hér
heima og erlendis, m.a. í Deiglunni
1993 og 1994. Á þessari sýningu í
Listasafninu sýnir Joris málverk á
striga og vegg safnsins. Verkin eiga
það sameiginlegt að fjalla um rými
með fíngerðu netmunstri sem lifnar í
augum áhorfandans.
Wolfgang Tretsch á hádegis-
tónleikum í Akureyrarkirkju
Á morgun, laugardag, kl. 12 leikur
þýski orgelleikarinn Wolfgang Tretsch
á hádegistónleikum í Akureyrarkirkju.
Á efnisskránni verða verk eftir J.S.
Bach, Petr Eben, Bohuslav Martinu og
Felix Mendelssohn Bartholdy. Eftir
tónleikana verður boðið upp á léttan
hádegisverð í Safnaðarheimili Akureyr-
arkirkju. Aðgangur er ókeypis og eru
allir velkomnir.
Wolfgang Tretsch er fæddur í Au-
erbach í Þýskalandi árið 1937. Hann
hóf ungur tónlistamám og lauk tónlist-
arkennaraprófi frá Humbolt háskólan-
um í Berlín 1958. Strax að því loknu
hóf hann að starfa sem organisti og
helgaöi sig eftir það kirkjutónlistinni.
Hann lauk A-prófí í orgelleik og kant-
orsnámi frá kirkjumúsíkskólanum í
Halle árið 1965 og nam síðar kórstjóm,
söngtækni og einsöng við Hanns Eissl-
er tónlistarháskólann í Berlín. Jafnhliða
námi starfaði hann sem kantor, Iengst
við Pfmgstkirkche í Berlín. Hann hefur
haldið fjölda orgeltónleika í Þýska-
landi, Póllandi, Tékkóslóvakíu og Ung-
verjalandi.
Vorið 1992 var hann organisti vió
kirkjuna á Isafirði og hélt þá tónleika
hérlendis bæði norðanlands og sunnan.
Hann starfar nú sem tónlistarkennari
við Tónlistarskóla Mývatnssveitar.
Tónleikar í Þóroddsstaða- og
Reykjahlíðarkirkju
Tónleikar verða haldnir í Þóroddsstaða-
kirkju nk. sunnudag kl. 21 og Reykja-
hlíðarkirkju mánudaginn 6. febrúar kl.
21. Flytjendur em blandaður kór úr
Mývatnssveit, Margrét Bóasdóttir,
sópran, Baldvin Kristinn Baldvinsson,
bariton, Antje Gobel, fiðla, og Wolf-
gang Tretzsch, orgel, sem jafnframt er
stjómandi. Sóknarprestar flytja bæn og
blessun. Á efnisskránni em kórverk,
einsöngslög, dúettar og orgelverk eftir
m.a. Áma Thorsteinsson, Eyþór Stef-
ánsson, Mozart, Dvorák og Mendelso-
hn. Aðgangseyrir er 800 krónur og em
allir velkomnir.
Rabbi Sveins hjá Lífí og fjöri
Tríó Rabba Sveins leikur fyrir dansi
annað kvöld, laugardag, kl. 22-03 í
Fiðlaranum á 4. hæð Alþýöuhússins
við Skipagötu á Akureyri. Félagsvist
verður spiluð á sama stað sunnudaginn
5. febrúarkl. 20.30.
Undir áhrifum á Dropanum
í kvöld, föstudaginn 3. febrúar, og
laugardaginn 4. febrúar mun hljóm-
sveitin Undir áhrifum þreyta fmmraun
sína á Dropanum á Akureyri. Undir
áhrifum skipa reyndir spilarar sem get-
ið hafa sér gott orð með ýmsum hljóm-
sveitum eins og Ömmu Dýmnn, Kredit
og Karakter.
Undir áhrifum skipa Rúnar söngur,
Ingvar gítar, Óli gítar, Ármann bassi og
Jón trommur.
KVAK sýnir Allir
heimsins morgnar
Kvikmyndaklúbbur Akureyrar
(KVAK) mun nk. mánudag kl. 18.30
og þriðjudág á sama tíma sýna „Allir
heimsins morgnar" (Tous les Matins du
Monde) í Borgarbíói.
Allir heimsins morgnar er gerð eftir
metsölubók Pascal Quignard sem kom-
ið hefur út í íslenskri þýðingu. Með eitt
aðalhlutverkið fer Gérard Depardieu.
Myndin gerist á síðari hluta 17. ald-
ar og segir frá miklum tónlistarmanni
sem er snillingur gömbunnar (forveri
sellós). Hann hefur misst eiginkonu
sína og í þjáningu sinni einangrar hann
sig frá umheiminum með tónlistinni og
sinnir ekki dætrum sínum. Árin líða og
ungur lærisveinn sem Gerard Depardi-
eu leikur á efri árum og er sögumaður
myndarinnar, tekur að nema hjá hinum
mikla gömbuleikara er gerir meiri kröf-
ur en svo að sveinninn standi undir
þeim og eldri dóttirin verður geðbiluð
þegar ungi maðurinn missir áhugann og
hverfur frá henni.
Þetta er áhrifarík og sérstök mynd
sem unnendur listrænna mynda ættu
ekki að láta fram hjá sér fara.
Allir eru velkomnir.
Unun á Akureyri og Húsavík
Hljómsveitin Unun, sem sló í gegn á
jólaplötumarkaðnum, verður í Sjallan-
um í kvöld, föstudag. Hljómsveitin
verður síðan á Húsavík, nánar tiltekið
Samkomuhúsinu, annað kvöld.
Fundur hjá Guðspekifélaginu
Guðspekifélagið á Akureyri heldur
fund í húsnæði félagsins að Glerárgötu
32, 4. hæð, nk. sunnudag kl. 16. Flutt
verður erindi eftir Jóhann Loftsson sál-
fræðing um ný og athyglisverð viðhorf
á sviói sálfræðinnar. Tónlist, umræður
og kaffiveitingar að fundi loknum.
Fundir Guðspekifélagsins eru öllum
opnir og ókeypis.
Undanfarin ár hafa konur úr Kvenfélagi Akureyrarkirkju valió fyrsta sunnudag í
febrúar sem sérstakan kirkjugöngudag. Þegar messu er lokið er haldið niður í Safn-
aðarheimili og sest að góðum veitingum. Þessar stundir hafa verið mjög ánægjuleg-
ar og mjög til eftirbreytni fyrir önnur félög og klúbba.