Dagur - 17.06.1995, Qupperneq 3
FRETTIR
Laugardagur 17. júní 1995 - DAGUR - 3
Mál Ýtunnar hf. gegn Steypustöð
Dalvíkur hf:
Hæstiréttur staðfesti
A kajaknum á Svarfaðardalsá
Þessi hressi „vatnahestur“, sem heitir Björn Guðmundur Markússon, tók sig til á dögunum, þegar Svarfaðardalsá
var í sínum vcrsta ham, og fór á kajaknum sínum á ánni (frá bænuin Urðuin) og alla leið norður til sjávar, sem cr
drjúgt langk Hann Ict ekki þar við sitja hcldur hélt áfram alla leið út í Iln'scy. I>essi mynd var tekin af kappanum á
Svarfaðardalsá, á móts við Hreiðarsstaði. Mynd: Bæjarpósturinn
Hæstiréttur staðfesti nýlega
dóm Héraðsdóms Norðurlands
cystra frá 22. október 1993. Ýt-
an hf. áfrýjaði dómi Héraðs-
dóms til Hæstaréttar, en hann
hafði lýst stefnda sýknan af
kröfum stcfnanda.
Ytan haföi krafist þess aó
Stcypustöðin greiddi henni kr.
2.490.000 meö dráttarvöxtum, af
kr. 1.490.000 frá 21.05. 1992 til
greiðsludags að frádregnum kr.
1.000.000 er greidd var 13.05.
1992, og málskostnað, og bæri
málskostnaðarfjárhæðin dráttar-
vexti. Kröfurnar voru settar fram í
krafti þess að stefnandi hafi unriið
verk í þágu stefnda á árunum
1989-91, en þá gegndi sami mað-
ur stöðu framkvæmdastjóra
stefnanda og stöðum stjórnarfor-
manns og framkvæmdastjóra hins
stefnda. Hafi safnast upp skuldir
sem stefnandi hafi ætlað að fá
greiddar er breytingar á eignarað-
ild stóðu fyrir dyrum. Stefndi
hafói greitt stefnanda 1.000.000,
en þar sem engin gögn höföu
komið frá stefnanda um réttmæti
kröfunnar hafði Steypustöð Dal-
víkur hf. ekki getað fallist á frek-
ari greiðslur. A þessum grunni
byggði stefndi sýknukröfu sína.
Héraósdómur komst að þeirri
nióurstöðu að ekki heföu verið
lögð fram nein viðhlítandi gögn er
sýndu stöðu fyrirtækjanna inn-
byrðis og gæti Ýtan hf. því ekki
krafið stefnanda um frekari
greiðslur. Ýtan hf. áfrýjaði dómn-
um til Hæstaréttar, en haim stað-
festi dóm Héraðsdóms og dæmdi
Ýtuna hf. auk þess til að greiða
Steypustöð Dalvíkur hf. kr.
150.000 í málskostnað fyrir
Hæstarétti. shv
Alþingi kýs í stjórnir og ráð
Á síðasta starfsdegi Alþingis var
kjörið í ýmsar stjórnir og ráð.
Eftirfarandi listi tekur til nokk-
urra þessara stjórna og ráða:
Yfírkjörstjórn Norðurlands-
umdæmis eystra
Ólafur Birgir Árnason, lögfræð-
ingur Akureyri, Jóhann Sigurjóns-
son, menntaskólakennari Akur-
eyri, Guðmundur Þór Benedikts-
son, fulltrúi Ólafsfirði, Inga Þöll
Þórgnýsdóttir, lögfræðingur Akur-
eyri, og Þórunn Bergsdóttir,
skólastjóri Dalvík.
Yfírkjörstjórn Norðurlands-
umdæmis vestra
Halldór Þ. Jónsson, sýslumaður,
Bogi Sigurbjömsson, skattstjóri,
Egill Gunnlaugsson, dýralæknir,
Ingibjörg Hafstað, oddviti, Hólm-
fríður Bjarnadóttir, formaður
Verkalýðsfélagsins Hvatar á
Hvammstanga.
Bankaráð Landsbanka
Islands
Sigríður Stefánsdóttir, bæjarfull-
trúi Alþýðubandalagsins á Akur-
eyri, er nýr varamaður í bankaráði
Landsbankans. Hún er varamaður
Jóharms Ársælssonar, fyrrverandi
alþingismanns, sem kjörinn var
sem aðalmaður í stað Lúðvíks Jós-
epssonar, sem nú er látinn.
Haukur Halldórsson, formaður
Framleiðsluráðs landbúnaðarins,
er nýr varamaður í bankaráð
Landsbankans. Hann er varamað-
ur Helga S. Guðmundssonar,
tryggingaráðgjafa, sem kjöriim
var í stað Steingríms Kermanns-
sonar.
Stjórn Landsvirkjunar
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, fyrr-
verandi alþingismaður, er nýr
stjómarmaður í Landsvirkjun,
kjörinn af Alþingi. Eins og áður
hefur komið fram er Jakob
Bjömsson, bæjarstjóri, nýr fulltrúi
Akureyrarbæjar í stjórn Lands-
virkjunar.
Stjórn Kísiliðjunnar
I stjóm Kísiliðjunnar í Mývatns-
sveit vom kjörin þau Bjöm Jósef
Amviöarson, lögfræðingur og
bæjarfulltrúi Akureyri, Hreiðar
Karlsson, framkvæmdastjóri á
Húsavík, og Lára Erlingsen á Ak-
ureyri.
Stjórn Húsnæðisstofnunar
ríkisins
Hákon Hákonarson, formaður Fé-
lags jámiðnaðarmaima á Akur-
Dómur í hnífsstungumáli
eyri, var endurkjörinn í stjóm
Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Stjórn Byggðastofnunar
I stjóm Byggöastofnunar voru
kjörnir: Egill Jónsson, alþingis-
maður, Stefán Guðmundsson, al-
þingismaður, Einar K. Guöfinns-
son, alþingismaóur, Guðjón Guð-
mundsson, alþingismaður, Krist-
inn H. Gunnarsson, alþingismað-
ur, Magnús Björnsson, fram-
kvæmdastjóri, og Sigbjörn Gurm-
arsson, fyrrverandi alþingismaður.
Útvarpsráð
Gunnlaugur Sævar Guimlaugsson,
framkvæmdastjóri, Gissur Péturs-
son, verkefnisstjóri, Þórunn Gests-
dóttir, blaðamaður, Anna K. Jóns-
dóttir, aðstoðarlyfjafræðingur og
fv. borgarfulltrúi, Kristjana Bergs-
dóttir, formaður Landssambands
framsóknarkvenna, Guðrún
Hclgadóttir, fv. alþingismaður, og
Þóruim Sveinbjamardóttir, vara-
þingmaður Kveimalistans.
Aðalfundur Menor:
Tveir nýir
í stjórn
Aðalfundur Menor, menn-
ingarsamtaka Norðurlands,
var haldinn laugardaginn 10.
júní. Auk hefðbundinna
fundarstarfa héldu Kristinn
G. Jóhannsson, fyrsti for-
maður samtakanna, og Svan-
fríður Inga Jónasdóttir, ný-
kjörinn þingmaður, reeður á
fundinum og í hléi skemmti
Söngtríóið Tregabandið með
tali og tónum.
Ólafur Þ. Hallgrímsson frá
Mælifelli var endurkjöriim sem
formaður og einnig verða Hlín
Torfadóttir frá Dalvík og Guð-
rún Helga Bjamadóttir frá
Hvammstanga áfram í stjóm.
Rut Hansen, Akureyri, og Kári
Sigurðsson, Húsavík, gáfu ekki
kost á sér áfram og í stað þeirra
koma Roar Kvam, Akureyri,
og Helga Erlingsdóttir frá
Landamótsseli í Ljósavatns-
hreppi ný inn í stjóm. Nánar
verður greint frá fundinum í
blaðinu síðar. A1
^IBBIIBBiraiBBIISBIIBBIISHIBSIISBIflBIIBBIIBBIISBIIBBIISBIIBBIBBIIk
Á miðvikudag var kveðinn upp
dómur í Héraðsdómi Norður-
lands eystra í hnífsstungumáli
ákæruvaldsins gegn thailcnskri
konu.
Konunni var gefið að sök að
hafa stungið aöra thailenska konu
þremur hnífsstungum, í vinstri
öxl, hné og hönd, síðla í nóvem-
ber síðastliðnum. Krafðist ákæru-
valdið þess að ákærða greiddi
skaðabætur, kr. 51.865, auk máls-
kostnaðar, þ.m.t. saksóknaralaun í
ríkissjóð. Verjandi krafðist hins
vegar að ákæróa yrði sýknuð af
öllum kröfum, en ef ekki, aö hún
yrði þá dæmd til vægustu refsing-
ar sem lög heimiluðu.
Samkvæmt framburði vitna og
hlutaðeigandi hafði kastast í kekki
með konunum tveim skömmu eft-
ir komu þeirra til Islands 1991.
Síðan þá höfóu verið litlir kær-
leikar með þeim og upp úr sauð í
lok nóvember á síðasta ári, með
þeim afleiðingum að önnur konan
stakk hina þremur stungum með
hnífi.
Niðurstaða Héraðsdóms var sú
að ekki væri ástæða til að dæma
ákærðu fyrir tilraun til manndráps,
en að rétt væri að hún bætti fórn-
arlambinu tjón sem varð á fötum
þess, auk læknis- og lögmanns-
kostnaðar. Endanlegur dómur
varð 12 mánaða fangelsi, þar af
níu skilorðsbundnir, skaðabætur
að upphæð 47.365 og að ákæróa
greiddi allan sakarkostnað, sam-
tals kr. 185.000. shv
8
8
8
8
Guerlain
PARIS
g
.tc/iei
Ot
Húsnæöismálastjóm - Húsnæðisstofnun ríkisins:
Samkeppni um hönnun íbúða
Ákveðið hefur veriö að efna til
hugmyndasamkeppni um gruim-
hönnun á félagslegum íbúðum í
tilefni af fjörtíu ára afmæli hús-
næðismálastjómar og Húsnæðis-
málastofnunar ríkisins þami 20.
mars sl.
Á síðustu árum hefur talsverð
umræða farið fram í húsnæðis-
málastjórn um hönnun og gerð fé-
lagslegra íbúða. Var ákveðið að
leita eftir nýjum hugmyndum um
íbúðir, sem gætu hentað stórum
sem smáum byggðum um leið og
leitaó yrði nýrra lausna í ljósi
breyttra fjölskyldu- og þjóðfélags-
aðstæðna.
Með þessari hönnunarsam-
keppni er leitað eftir hugmyndum
um; mögulega þróun í húsa- og
íbúðagerðum á næstu ámm og
áratugum, gmnnhönnun íbúða
sem liggi til grundvallar við bygg-
ingu á ýmsum stærðum og gerð-
um híbýla og hagkvæmari bygg-
ingaraðferóir og byggingarefni,
samtímis því að hönnun feli í sér
lækkun á rekstrarkostnaði. Höiui-
unin á einnig að gefa möguleika á
fjölbreytni í útliti og tekið skal til-
lit til þess að kröfur um meðferð
sorps og fráveitu kunna að breyt-
ast verulega í nánustu framtíð.
Samkeppnin fer fram í sam-
vinnu við Arkitektafélag Islands.
Áformað er að afhenda keppnis-
gögn í ágúst eða september nk.
Rétt til þátttöku eiga allir félagar í
Arkitektafélaginu og aðrir þeir
sem hafa rétt til að leggja aðal-
uppdrætti fyrir bygginganefnd.
Úr fréttatilkynningu.
g
8
S
g
g
jörðunarmeistarijrá GUERIAIN
í éféarfá verður i verséun inn i
(ffimaro mánucíaginn 19.juni
jar rSem Áann mun (jó()a fzonum |
jörðun og jagfega rácjjöj
um notkun GUERlAiN sngrtivara
g
'ent
°Æot
miöstöð hagstœðra viðskipta
g
g velkom m
I
^IBSIJBSIJBflllBSIIBSIJB0IBfillBfi'IBfillBfillBSUBfllBflllBBJBfillBflllBflir