Dagur - 17.06.1995, Síða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 17. júní 1995
Það er hægt að fjarlægja
óæskileg hár og æðaslit
Trúlega vilja flestir hafa þykkt og gróskumikið hár á
höfðinu og karlmenn eru jafnvel hinir kátustu með
hár um allan skrokk Það eru konur hins vegar ekki
og margar þeirra eiga í hinni mestu baráttu við
óæskileg hár. Eftirfarandi umfjöllun um háreyðingu
er byggð á samtali við Nönnu Yngvadóttur snyrti-
fræðing og grein efti'r Elvu Elvarsdóttur um þetta
efni.
Orsakir óæskilegs hárvaxtar geta verið margar
en algengast er að um ættgengan eiginleika sé
að ræða ýmist úr móður- eða föðurætt viðkom-
andi einstaklings. Hormónabreytingar geta einnig
valdið óæskilegum hárvexti. A breytingaskeiðinu
geta til dæmis komið hár á líkama kvenna á þeim
stöðum þar sem hárvöxtur er algengur hjá karl-
mönnum svo sem á höku, efri vör og innan á
læri. Konur á meðgöngu geta fengið óæskilegan
hárvöxt en í flestum tilfellum hverfur hann þegar
líkaminn nær aftur fyrra jafnvægi eftir fæðingu.
Ymsir sjúkdómar geta komið af stað hormóna-
ójafnvægi og þannig aukið óæskilegann hárvöxt,
til dæmis móðurlífssjúkdómar og móðurlífsað-
gerðir. Streita getur líka valdið óæskilegum hár-
vexti. Ef kona er undir miklu álagi í langan tíma
getur adrenalfnið í líkama hennar ön/að hányöxt.
Hvað er til ráða? Margar konur byrja sjálfar að
eiga við hár sem þeim finnast of áberandi jafnvel
þó um Ijós hár sé að ræða sem aðrir sjá varla.
Algengast er að konur plokki hárin eða taki þau
með vaxmeðferð. Þessar lausnir geta hins vegar
ön/að frekari hán/öxt, sérstaklega í andliti, og
það er sannarlega ekki það sem konan ætlaði
sér þegar af stað var farið. Niðurstaðan verður
samt sem áður sú að hárið fær örvun og verður
sterkara, grófara og dekkra eftir því sem það er
plokkað oftar.
Varanleg háreyðing felst í því að nýta hátíðni-
rafstraum. Meðferðin byggist á því að örfínni
beinni nál, örlítið sveiganlegri sem’ er tengd í
nálahaldara og rafmagnstæki er stungið varlega
ofan í hárpokann á hverju einasta hári og
straumur nýttur til að rjúfa sambandið við hár-
æðapokann og þá losnar hárið, næringin til hárs-
ins minnkar og rótin veikist smá saman.
Varanlegur árangur næst aðeins með því að
koma reglulega í meðferð í ákveðinn tíma á
meðan verið er að eyða hárunum. Það tekur
mislangan tíma að eyða hárunum en smátt og
smátt hægir á vextinum og hárin hverfa og þá er
varanlegum árangri náð. A sama hátt er hægt að
fjarlægja inngróin hár, til dæmis í skeggrót, hækka
hárlínu við enni og fjarlægja skegg karlmanna
sem hyggjast skipta um kyn.
Háræðaslit. Með sambærilegum hætti er unnt
að fjarlægja háræðaslit. Hátíðinistraumur er not-
aðurtil að brenna háræðamará yfirborði húðar-
innar. Aðeins er hægt að fjarlægja grunnar hár-
æðar t.d. í andlrti, á bringu eða fótleggjum. Með-
ferðin tekur 10-15 mínútur í hvert skipti. Þar
sem hvert svæði húðarinnar þolir litla meðferð
hverju sinni þurfa að líða 2-3 vikur á milli með-
ferða á hverju svæði. Frost getur aukið háræða-
slit og því er aðeins hægt að fjarlægja háræðaslit
yfir sumartímann.
MATARKROKURI NN
Kleínur og Kókos-
bolluæði frá DaÍvík
Dalvíkingurimi Herborg Harðar-
dóttir leggur til uppskriftir í Mat-
arkrók Dags að þessu simú en
hún starfar við sundlaugina á
Dalvík. Eiginmaður Herborgar er
Már Kristinsson annar tveggja
framkvæmdastjóra Isstöðvarinnar
á Dalvík. Þau hjónin eiga tvo
syni. Herborg ákvað að gefa okk-
ur góða kleinuuppskrift en ein-
mitt þessar kleinur em ákaflega
vinsælar á heimili hennar bæöi af
ungum og gömlum. Ef til vill má
segja að kleinur séu hefðbundinn
og margreyndur rcttur en það er
hins vegar rétturimi „Algjört æði“
ekki. Hann er samiarlega forvitni-
legur og nýstárlegur og því ættu
allir að finna einhverja uppskrift
við sitt hæfi að þessu sinni.
Eplakökuna er aö sögn Her-
borgar kjörið aö eiga tilbúna í
frosti ef óvænta gesti ber að garói
í sumar en hún er fljótleg, góm-
sæt og matarmikil.
Herborg hefur fengiö Hjörtínu
Guðmundsdóttur, nágrannakonu
sína við Dalbrautina, til að leggja
til uppskriftir í næsta Matarkrók.
„Eg er viss um að hún á einhverj-
ar
gomsætar
sagði Herborg.
fiskuppskriftir,“
Kótelettur í ofni
4 kótelettur, stórar, lamba
eða léttreyktar svína
4 anauashringir
1 paprika, brytjuð
150 g majones
2 eggjahvítur, stífþeyttar
feiti til steikingar
krydd eftir smekk
Brúnið kóteletturnar á pönnu og
kryddið. Setjið þær í eldfast mót
og leggið anan-
ashringi ofan á
ásamt papriku.
Majonesið er
kryddað eftir
smekk og eggja-
hvítunum blandað
saman við og blandan
sett yfír paprikuna og an
anasinn. Sett í ofn sem er
250° C heitur þar til majones-
blandan verður gulbrún. Gott
með soðnu grænmeti og kartöfl-
um.
Eftirrétturinn algjört œði
/ dós jarðarber
/ dós perur
100 g rjómasúkkulaði
4-5 stk. kókosbollur
Sigtið safann frá ávöxtunum, setj-
ið þá í eldfast mót og brytjið
súkkulaðið yfir. Merjið kókos-
bollumar og smyrjið þeim yfir
ávextina. Setjið í ofn á 200° C
þar til rétturinn er aðeins farinn
að brúnast. Berið fram með ís eða
rjóma.
Góð eplakaka
2-3 egg
150 g sykur
100 g hveiti
/-1 tsk. lyftiduft
3 epli, stór
3 tsk. kalt smjör,
skorið m/ostaskera
'YTT
3 tsk. kanelsykur
100-125 g grófur sykur
Þeytið egg og sykur vel, blandið
lyftidufti og hveiti út í. Setjið í
vel smurt form, gjaman með
lausum botni. Skrælið eplin og
skerið í þunnar sneiðar og setjið
út í deigið í forminum. Stráið
kanel yfir og ýtið eplunum ofan í
deigið. Smjörið er sett yfir ásamt
grófa sykrinum. Bakið neðst í
ofni viö 200-210° C í um það bil
30 mín. Berið fram með rjóma
eða ís.
Kleinur
1 kg hveiti
250 g sykur
100 g smjörlíki
2 stk. egg
8-10 tsk. lyftiduft
1/ tsk. hjartasalt
3-4 tsk. kardimominur
/1 súrmjólk