Dagur - 17.06.1995, Síða 13
POPP
Laugardagur 17. júní 1995 - DAGUR -13
MACNÚS CEIR CUÐMUNDSSON
Hátíðír á hátíðír ofan
Nú þegar komiö er hásumar í
Evrópu, skella tónlistarhátíð-
irnar á og er þar svo sannar-
lega af nógu að taka. Er það
ekki hvað síst í Bretlandi sem
mikið verður um að vera, en
þar skipta hátíðirnar, stórar
sem smærri, tugum. Meðal
þeirra helstu eru Glastonbury,
sem haldin er 23.-25. þessa
mánaðar, Phoenix 13.-16. júlí,
Heineken í Leeds 20.-23. júlí
og Reading 25.-27. ágúst. Á
Glastonbury verða aðalnöfnin
m.a. Prodigy, Oasis, Stone
Roses og Cure. Bob Dylan,
Paul Weller, Faith No More og
Wildhearts á Phoenix, á Hein-
eken Siouxsie And The Bans-
hees, Mike And The Mechan-
ics og Pulp og á Readinghátíð-
inni verða í aðalhlutverkum,
Neil Young (ásamt væntan-
lega Pearl Jam) Soundgarden,
Smashing Pumpkins, Foo
Fighters, nýja hljómsveitin
hans Dave Grohl úr Nirvana
og síðast en ekki síst, BJÖRK.
Kemur hún fram á laugardeg-
inum 26. ágúst. Eina hátíð
enn má nefna, sem fram fer í
gamla heimsveldinu í sumar,
Þjóðlagahátíðina í Cambridge
28.-30. júlí. Koma þar fram
þekkt nöfn á borð við Elvis
Costello, Clarence „Gat-
emouth" Brown og The As-
hley Hutchings Dance Band.
(Hutchings er m.a. frægur fyrir
að hafa stofnað Fairport Con-
Pulp.
Bob Dylan.
vention og Steeleye Span,
tvær af þekktustu þjóðlaga-
sveitum Bretlands.) í Evrópu
er líka margt um að vera, en
eins og stundum áður er það
Hróarskelduhátíðin í Dan-
mörku, sem mesta athygli
vekur, allavega í augum okkar
íslendinga. Verður þar nú
dagana 29. júní til 2. júlí, lík-
lega meira um dýrðir en
nokkru sinni fyrr, því þetta er í
25. skipti sem hátíðin er hald-
in. Á sviðum hennar, sem eru
nú um átta talsins munu
hundruð listamanna koma
fram og er stjörnufansinn nær
yfirþyrmandi. Örfá dæmi þar
um eru REM, Page og Plant,
Cranberries, Offspring, Bob
Dylan, Van Halen og þannig
mætti áfram telja. Hér á ís-
landi er síðan, eins og fram
hefur komið í fréttum, fyrir-
huguð hátíð seinna í sumar
með þáttöku Bjarkar og dans-
sveitarinnar Underworld.
Nánar er hins vegar ekki vitað
um framkvæmdina ennþá.
Um hana verður væntan-
lega fjallað síðar, en nú fyrst.
Gleðilega þjóðhátíð!
Þriðja vers Bubba og Rúnars
Tiltæki þeirra Bubba Morthens
og Rúnars Júlíussonar að taka
upp samstarf sumarið 1991,
flestum ef ekki öllum til mikill-
ar undrunar, verður að teljast
með því skemmtilegra sem
gerst hefur í íslensku popplífi
á seinni árum. Þarna samein-
uðu krafta sína tveir af vinsæl-
ustu og virtustu tónlistar-
mönnum landsins af eldri og
yngri kynslóðinni og gekk það
dæmi betur upp en nokkurn
grunaði. Ásamt þeim Gunn-
laugi Briem trommuleikara og
Bergþóri Morthens gítarleik-
ara sem hljómsveitin GCD,
tóku þeir þetta Bubbi og Rún-
ar sumarið með trompi og
þótti stemmningin í kringum
þá minna á gamla dýrðardaga
sveitaballamenningarinnar. í
samræmi við það seldist plat-
an þeirra, hrá og kraftmikil, í
um 7000 eintökum og var ein
sú söluhæsta þetta árið. Það
var einmitt „til að geta spilað
kraftmikið rokk og ról og sýnt
tattóin", eins og Bubbi komst
að orði í einhverju viðtalinu,
að þeir félagarnir tóku upp
samstarf m.a. og endurspegl-
aðist það vel á fyrstu plötunni.
Framhaldið þarf vart frekar að
rekja, nema hvað að 1993 end-
urtóku þeir leikinn, en með
heldur lakari árangri. Platan
Svefnvana, sem þá kom út, er
þó í reynd engu síðri en GCD,
en einhvem veginn var ekki
sami glansinn yfir þeim í aug-
um landsmanna.
Neistinn lifir
Eftir að GCD var „lögð niður"
að nýju að útkomu Svefnvana
genginni, átti maður ekki von
á að þráðurinn yrði tekinn upp
í annað sinn. En neistinn milli
þeirra Bubba og Rúnars hefur
greinilega ekki slokknað því
urinn, að ógleymdum Ég sé
ljósið og Konur og vín. Þau tvö
síðasttöldu eru reyndar merki-
legri fyrir textana og þá sér-
staklega Ég sé. Sannleikurinn
um konurnar og vínið er líka
skemmtilega fram settur, en
hann á svo sem stundum líka
við á hinn veginn. Annars er
að öðru leyti réttara að láta
tónlistarunnendur dæma sjálfa
um þetta þriðja vers þeirra
Rúnars og Bubba. Dómur
þeirra er jafnan áhrifamestur.
Að síðustu er þó ekki hægt
annað en að minnast á tvennt
sem sérstaklega er hrósvert.
Annars vegar mjög góða upp-
töku og hins vegar prentun á
textum, sem er til fyrirmyndar,
skýr og vel læsileg. Á þessum
síðustu og verstu tímum
geislaplötuvæðingarinnar er
það því miður oftar en ekki
þannig með prentunina að
hún er illa gerð og illlæsileg,
upplýsingar og textar t.d.
prentaðir með ljótum hætti of-
an í ljósmyndir, sem ömurlegt
er að sjá. En það er annar
handleggur og á ekki við hér.
Könnun hjá
Könum
Eins og mörgum er sjálfsagt
kunnugt um eru Bandaríkja-
menn þjóða glaðastir í að gera
allskyns kannanir. Ein slík
tengd tónlistariðnaðinum var
gerð fyrir skömmu og hafa nið-
urstöðurnar nú verið birtar í
tónlistarritum þar vestra.
Kemur þar ýmislegt fróðlegt í
ljós sem vert er að drepa á hér
og gæti sumt af því hæglega
átt við um ísland líka. Fyrir
það fyrsta tók könnunin yfir
þá stöðu sem nú er á mark-
aðnum annars vegar milli
geislaplatna og hins vegar
gömlu góðu breiðskífanna og
snælda. Kemur þar ekki á
óvart að niðurstaðan er
geislaplötunum mjög í hag,
58,4% á móti 41,6. Sjá menn
þessa þróun halda áfram hægt
og bítandi, þannig að ekki
mun líða á löngu uns plöturn-
ar gömlu hverfi alveg af mark-
aðinum. Snældurnar lifa hins
vegar eitthvað lengur ef að lík-
um lætur. Annað úr könnun-
inni sem sérstaklega er at-
hyglisvert, er hlutfall ein-
stakra tónlistarstefna af söl-
unni. Þar virðist rokkið í víðum
skilningi (hversu víðum er þó
ekki tekið fram) hafa vinning-
inn með 35,1%, en auk þess er
sveitatónlistin með góðan
hlut, eða 16,3%. Síðast en ekki
síst er svo fróðlegt að sjá hvað
könnunin leiðir í ljós varðandi
á hvaða aldri Bandaríkjamenn
kaupa helst tónlist. Er niður-
staðan í þeim efnum sú að
tveir aldurshópar skera sig
áberandi úr, 15-19 ára og síð-
an 40 ára og eldri. Kemur
þetta ekki á óvart hvað varðar
fyrrnefnda hópinn, en með
hinn teljast þetta ansi hreint
merkileg tíðindi. Væri gaman
að vita hver niðurstaðan yrði
hérlendis ef slíkt væri kannað.
Mætti alveg segja manni að
hún gæti orðið sérstaklega
fróðleg fyrir innflytjendur er-
lendrar tónlistar.
Bruce Springsteen.
síðla vetrar boðuðu þeir komu
sína í þriðja sinn og með sömu
formerkjum og áður, plötu
snemma sumars og þeysireið
um landið í kjölfarið. Það verð-
ur þó að segjast eins og er að í
upphafi leist manni ekki of vel
á blikuna eftir að hafa séð þá
kappa flytja forsmekk af því
sem koma skyldi í þætti hjá
Hemma Gunn í vor. Minna
rokk, en þess í stað reggí og
meiri poppsvipur en ella. Ekki
beinlínis það sem búast mátti
við miðað við það sem á und-
an hafði komið. Þegar svo
Teika, eins og platan nefndist
á endanum eftir að hafa áður
gengið undir nafninu Á
grænni grein, leit dagsins ljós
um mánaðamótin síðustu kom
það líka á daginn að um held-
ur „léttari" verk var að ræða
en hinar tvær plöturnar. Hins
vegar hefur það reynst
ástæðulaust að ætla að minna
rokk þýddi minna eftir að
slægjast. Þvert á móti eru
lagasmíðarnar á Teika fjöl-
breyttari en á hinum plötun-
um og það sem athyglisverð-
ara er, textarnir eru mun bita-
stæðari en áður og raunar
stórgóðir margir hverjir. Dæmi
um þar sem hvorttveggja er
um góða lagasmíð og texta að
ræða em Mikið ertu ljúf, Vímu-
efnahraðlestin og Aulaklúbb-
Bændur!
Eigum til afgreiðsiu okkar margreynda Trio
baggaplast.
Það borgar sig að nota það plast sem þið þekkið,
því beljurnar eiga það besta skilið.
ÞORSHAMAR HF.
Tryggvabraut 5 • Sími 462 2700