Dagur - 17.06.1995, Blaðsíða 15
UTAN LANPSTEINANNA
Laugardagur 17. júní 1995 - DAGUR - 15
UMSJÓN: SÆVAR HREIÐARSSON
Ekki er allt
sem sýnist
£eikkonan góðkunna MICHELLE frEIFFEK er
foxill þessa dagana eftir að henni barst til
eyma að mynd sem átti að sýna hana ber-
brjósta hafi birst á tövluskjám víða um heim að
undanfömu. Ekki væri yfir miklu að kvarta ef hún
hefði setið fyrir nakin hjá ljósmyndara en svo er
ekki og í raun er um að ræða samsetta mynd með
andliti Pfeiffer og líkama sem fenginn er að láni hjá
annarri konu. Einhver tölvufíkillinn hefur komið
líkamshlutunum svo vel saman að varla er hægt aó
merkja aó um falsaða mynd er að ræóa. Því næst
var myndin sett inn á veraldarvefinn þar sem hún
hefur vakið verðskuldaða athygli. Eflaust hafa
margir rekiö upp stór augu við aó sjá hina undur-
fögru Pfeiffer berháttaða en hún þvemeitar að hafa
fækkað fötum fyrir ljósmyndara, fyrr eða síðar.
Leikkonan íhugar nú málssókn á hendur sökudólgn-
um.
Michelle Pfeiffer eins og hún birtist á tölvuskjám víða
um heim, en ef vel er að gáð sést að ekki er alit eins og
það sýnist.
Þráir að
eiqnast barn
ÉJ^ ynbomban SrlAftOM STOME segist þrá þaó
Jí heitasta þessa dagana að eignast bam en hún
W \ bætir því strax við að hún hafi engan áhuga á
eiginmanni þessa stundina. Eg var eitt sinn gift en
kom út úr því hjónabandi með brostið hjarta. Þaó
svíður mig enn, segir Stone, sem skildi við kvik-
myndaframleiðandann Michael Greenberg eftir
tveggja ára hjónaband árið 1987. Hún segist ekki
hafa farið vel út úr samskiptum sínum við hitt kynið
en hún viöurkennir fúslega að hún hefur sjálf gert
fjölda mistaka. Síðasta árió hefur hún átt í föstu
sambandi við mann að nafni Bob Wagner en hann
var aðstoðarleikstjóri myndarinnar The Quick And
The Dead, sem frumsýnd var fyrr á þessu ári. Við
erum ekki oft saman á almenningsfæri. Samband
okkar er bara fyrir okkur og kemur engum öðrum
við. Hann er ofur-myndarlegur og blíður maður og
ég veit að hann mun geta af sér falleg börn með
réttu konunni, segir Stone, sem þessa dagana er að
leika í myndinni Last Dance á móti Rob Morrow.
Þar leikur hún dæmdan morðingja sem býður aftöku
þegar lögfræðingur hennar fellur fyrir henni og beit-
ir öllum brögðum til aó sanna sakleysi hennar.
Fær með klippurnar
að fór ekki
framhjá
ncinum
fréttasnápnum
þegar LOREMA
3033in sneiddi
manndóminn af
eiginntanni sín-
um, JOrlM
WAYNE 3033irr,
eftir að hafa þolað
barsmíðar og yfir-
gang hans um
langt skeið. Lor-
ena var send á
geðdeild unt hríð
á meóan eigin-
maðurinn, John
Wyane Bobbitt,
var að ná sér eftir
heimsþekkta
ágræðslu útlims síns. Hann rakar
nú inn milljónunum með alls kon-
ar uppákomum en minna hefur
farið fyrir Lorenu í fréttunum. Nú
er hún laus úr haldi og farin að
vinna fyrir sér á
snyrtistofu í Ar-
lington í Virginiu-
fylki. Hún er sögð
sérfræðingur með
skærin, nagla-
klippurnar og
naglalakkið og í
reynd er hún eftir-
sóttasti snyrti-
fræðingurinn á 111-
usions snyrtistof-
unni. Þegar fólk
kemur hingað inn
heimtar það oftast
að Lorena snyrti
það. Stúlkugreyið
fær aldrei frið,
segir Irma Wheel-
er, eigandi stof-
unnar. Þaó fylgdi
sögunni að margir af viðskiptavin-
um frú Bobbitt séu karlmenn, sem
halda upp á kvittunina frá viö-
skiptunum við frú Bobbitt sem
verðmætan minjagrip.
Lorena og John Wayne Bobbitt
á mcðan allt lék í lyndi. Þau
komust í heimsfréttirnar þegar
Lorena minnkaði manninn sinn
um nokkra sentimetra.
Með 72 í takiim
Frá Bandaríkjunum berast
þau tíðindi að leikarinn
TOM AftNOLD, fyrrum
eiginmaður Rose-
anne og aðstoðar-
maður Arnie
Schwarzenegger í
myndinni True
Lies, hafi sett nýtt
met á vinsælum
strippstað í New
York. Hann fékk
72 nektardans-
meyjar til að sýna
listir sínar fyrir
frarnan opið ginið
á sér á einu
kvöldi. Ymist
komu tvær eöa
þrjár í einu og
dönsuðu í kring-
um borð hans á
staðnum Scores,
en Arnold ætlar að gifta sig í sum-
ar og nýtir frelsió til fulls þangað
til. Haft er eftir starfsstúlku á
staðnum að Arnold hafi aðeins
stoppað í þrjá tíma á staðnum en
nýtt þá til hins ýtrasta. í för með
honum voru m.a. grínistamir
Chris Farley ,og David Spade, sem
slógu í gegn vest-
an hafs fyrr á
þessu ári með
myndinni Tommy
Boy, auk þess
sem rapparinn
Hammer var í
fylgdarliðinu.
Amold, sem er 36
ára, undirbýr nú
brúðkaup sitt og
skólastúlkunnar
JULIE CHAMP-
NELLA, sem er
fjórtán árum yngri
en hann. Hann
segist ekki fela
neitt fyrir verð-
andi eiginkonu og
að hún hafi vitað
að hann væri að fara á Scores en
líklega hefur hann ekki nefnt að
hver einasta dansmær staðarins
myndi halda einkasýningu fyrir
hann.
Tom Arnold sposkur á svip þcg-
ar hann fær koss frá verðandi
eiginkonu, Julie Champnella.
^ Sharon
Stone segir
villtar nætur að
baki og hcnnar
hcitasta ósk sé að
fjölga mannkyn-
Hamslaus reiði
Ifyiíiú storstjarna
að hefur heldur betur hallað
undan fæti hjá stórstjöm-
unni KEVIN COSTMER
undanfarna mánuði. Myndin hans
Waterworld virðist dæmd til þess
að sökkva eftir að hafa farið langt
fram yfir kostnaðaráætlun og að
leikstjórinn, Kevin Reynolds,
sagði starfi sínu lausu áður en
gerð myndarinnar var lokið. Eig-
inkonan yfirgaf Costner á meðan
á tökum stóð og sakaði hann um
framhjáhald í stórum stíl. Sagan
segir að svo gagntekinn hafi
Costner verið af þörf sinni fyrir
konur að vinir hans ráðlögðu hon-
um að sækja um vist á kynlífs-
hæli, líkt og Michael Douglas fór
á fyrir skömmu, til að yfirvinna
fíknina áður en hún legði líf hans í
rúst. Kevin er haldinn þeirri þrá-
hyggju að sofa hjá hverri einustu
konu sem hann kynnist. Hann sef-
ur hjá öllum þeim sem til eru í
tuskið, var haft eftir nánum vini
leikarans. Nokkrir vinir hans
hvöttu hann til að leita sér hjálpar
en Kevin svaraði því til að hann
ætti ekki við vandamál að stríða.
Undanfarið hefur hann verið jafn
kræfur sem fyrr og stutt er síðan
ljóstrað var upp um ástarsamband
hans við nöfnu sína, Kevin Wynn.
Stúlkan sú cr dóttir milljónamær-
ingsins Steve Wynn, sem rekur
fjölda spilavíta í Las Vegas. Það
samband entist þó ekki lengi því
nýjustu fréttir herma að hann hafi
tekið saman við breska kvik-
myndaframleiðandann Juliu Verd-
in.
Fyrir rúmum rnánuði komst rapparinn 3033Y
BROWM í kast við lögin í fimmta sinn á aðeins
sex árum og ekki er ólíklegt að hans bíði fanga-
vist í allt að fimm ár ef hann er fundinn sekur um lík-
amsárás og óprúðmannlega framkomu. Atburðurinn
sem leiddi til handtöku Brown átti sér stað í Pleasure
Island næturklúbbnum í Disney World í Flórida. Rapp-
arinn hafði kynnst ungri dömu og boðið henni upp á
glas þegar að dreif ungan mann, Neil Kelly, sem reyndi
að taka stúlkuna á löpp. Það sætti Brown sig ekki við
og ásamt fylgdarliði sínu, lífverði og umboðsmanni,
hófst hann handa við að berja á manninum. Vitni segja
þetta hafa verið blóðug átök og þrátt fyrir að Kelly hafi
legið eftir meðvitundarlaus í gólfinu héldu Brown og
félagar áfram að sparka og stappa á fómarlambinu og
rapparinn hafi þar veriö í aðalhlutverki. Eftir að aðrir
gestir höfðu hjálpað þeim vamarlausa lögðu Brown og
félagar á flótta en vom eltir af um 40 öryggisvörðum
og lögreglumönnum. Þeir voru stöðvaðir og handsam-
aðir á flóttanum en þar með var Brown ekki hættur.
Þegar honum hafði verið komið fyrir í aftursæti lög-
reglubílsins héldu lætin áfram. Hann barði höfðinu af
krafti í glugga, losaði úr þvagblöðrunni á gólfið og
krotaði fúkyrði aftan á sætið fyrir
framan sig með kúlupenna. Rappar-
anum og fylgdarliði hans var
sleppt úr haldi gegn tryggingu
eftir fjóra tíma í fangageymslum.
Eiginkona kappans, söng-
konan Whitney Houston,
var ekki par hrifin af
athæfinu og hefur
hótað honum skiln-
aði ef hann bæt-
ir ekki ráð
sitt.
Bobby Brown illur á svip ásamt
inkonu sinni, Whitncy Houston.
Stúlkan sem barist var um
heitir Chastity Recd og
er ritari að at- ^
vinnu.