Dagur - 16.03.1996, Síða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 16. mars 1996
Rekstrarstjórí
Óskum eftir að ráða fyrir Háskólann á Akureyri
rekstrarstjóra til að annast umsjón eigna stofnun-
arinnar og viðhald þeirra.
Rekstrarstjórinn mun jafnfram starfa við fjármálastjórn-
un með öðrum yfirmönnum Háskólans, einkum á sviði
eignahalds og innkaupa, eftir því sem við á.
★ Við leitum að duglegum, reglusömum og samvisku-
sömum einstaklingi í þetta starf. Frumkvæði og sjálf-
stæði í starfi er nauðsynlegt.
★ Æskilegt er að viðkomandi hafi háskólapróf t.d. í
rekstrar- eða iðnrekstrarfræði. Einnig er æskilegt að
umsækjandi hafi haldgóða verkmenntun, t.d. sveins-
próf eða meistararéttindi í iðngrein sem nýtist í starf-
inu.
★ Laun eru skv. kjarasamningum opinberra starfs-
manna og er upphaf ráðningartíma samkomulagsat-
riði.
Upplýsingar um störfin eru aðeins veittar á skrifstof-
unni þar sem umsóknareyðublöð liggja frammi.
D H /I Endurskoðun Akureyri hf.
#V i IVI (j löggiltir endurskoðendur
Glerárgötu 24, Akureyri • Sími 462 6600 • Fax 462 6601
Endurskoðun • Skattaráðgjöf • Rekstrarráðgjöf • Bókhald
Veitingahúsið Greifinn óskar eftir vönum
pizzubakara í hlutastarf.
Einnig eru laus til umsóknar störf við útkeyrslu
og er þar sömuleiðis um hlutastarf að ræða.
Umsækjendum er bent á að hafa samband við Ara
eða Jóhann á Greifanum mánudaginn 18. mars og
þriðjudaginn 19. mars frá kl. 9-12.30.
Atvinna í boði
Skrifstofa Verkalýðsfélaganna í S.-Þing. óskar að
ráða starfsmann til almennra skrifstofustarfa.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu við töluskrán-
ingu.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Verka-
lýðsfélaganna á Húsavík.
Allar nánari upplýsingar veitir Ágúst í síma 464 1301.
Forstöðumaður
Skólaþjónustu Eyþings
Stjórn Eyþings auglýsir lausa til umsóknar stöðu for-
stöðumanns Skólaþjónustu Eyþings í Norðurlandskjör-
dæmi eystra. Þjónustan verður með skrifstofu á Akur-
eyri og útibú á Húsavík.
Verkefni þjónustunnar veröa eftirfarandi:
• Ráðgjöf samkvæmt 42. og 43. gr. grunnskólalaga nr. 66/1995.
• Ráðgjöf samkvæmt 15. og að hluta 16. gr. laga um leikskóla nr.
78/1994. Sú ráðgjöf nærtil sálfræðiþjónustu og sérkennsluráðgjaf-
ar, en ekki til almennrar ráðgjafar eða rekstrarráðgjafar.
• Aðstoð við þróunar- og nýbreytnistarf í grunnskólum og tilboð um
endur- og símenntun fyrir kennara.
• Skýrslugerð og upplýsingagjöf til skóla, sveitarstjórna og annarra
opinberra aðila og umsjón með gagna- og upplýsingasafni fyrir
skóla og sveitarstjórnir.
• Úrvinnsla vinnuskýrslna kennara fyrir sveitarstjórnir.
Menntun og starfsreynsla:
Umsækjendur skulu hafa sérmenntun og starfsreynslu á ein-
hverju því sviði sem skrifstofan mun sinna. Stjórnunarreynsla
er nauðsynleg.
Umsóknarfrestur og upplýsingar:
Umsóknarfrestur er til 9. apríl næstkomandi og skulu um-
sóknir berast til skrifstofu Eyþings, Strandgötu 29, 600 Akur-
eyri.
Nánari upplýsingar veita formaður Eyþings, Einar Njálsson í
síma 464 1222 og framkvæmdastjóri Eyþings, Hjalti Jóhann-
esson í síma 461 2733.
Stjórn Eyþings,
16. mars 1996.
Danskir gestir
Miðvikudaginn 13. mars
bar góða gesti að garði á
Akureyri. Hér var um að
ræða danska tónlistarmenn sem
farið hafa sigurför um heimaland
sitt og miklu víðar. Þeir eru Benny
Andersen, píanóleikari, lagahöf-
undur og skáld, Povl Dissing,
vísnasöngvari og gítaristi, og Jens
Jefsen, kontrabassaleikari. Tón-
leikar Dananna þrigga voru haldn-
ir í Deiglunni, fjölnotasal Gilfé-
lagsins í Grófargili. Húsfyllir var
gersamlega og komust mun færri
að en vildu. Tónleikarnir stóðu í
um tvær stundir, en ljóst var að
engum leiddist og allir vildu heyra
meira þegar að lokum var komið.
Tónlistarmennimir þrír veittu
þakklátum áheyrendum af ríki-
dæmi sínu og tóku nokkur auka-
lög.
Danimir þrír em allir frábærir
listamenn. Þeir em ekki einungis
hver um sig mjög nánir sinni grein
tónlistarlegrar tjáningar, heldur
hafa auk þess náð sérlega vel sam-
an. Þar er lítill munur á þó að ljós-
astur sé hinn innilegi sammni
Benny Andersen og Povl Dissing,
enda hafa þeir unnið saman að
flutningi tónlistar allt því litlu eftir
1970 og ná svo vel saman í túlkun
sinni að þeir vinna sem einn mað-
ur. Hver leggur sitt til í þessa
heild og hana styður dyggilega
bassaleikarinn Jens Jefsen, sem er
meira en lipur á hljóðfæri sitt.
Píanóleikur Benny Andersen er
talsverð upplifun. Hann hefur á
valdi sínu hinn aðskiljanlegasta
stíl og getur brugðið fyrir sig
hverjum þeim blæ sem við á. Það
sem framar öðru einkennir þó leik
Benny Andersen er sparsemi.
Hann ofgerir ekki, hvort heldur í
hljómafyllingum eða flúri, heldur
leikur af natni sem veldur því að
bæði undirleikur hans og einleikur
falla eins og hanski að hönd í
hverju því sem hann fer með.
Annað einkenni leiks Benny And-
ersen er lifandi tilfinning fyrir
hrynjanda og takti. Hann skapar
hóflega spennu og fer ekki yfir
mörk, heldur flutningi gangandi í
TÓNLIST
HAUKUR ÁGÚSTSSON
SKRIFAR
lífrænu flæði sem á stundum fer
sem yfir flúðir í hröðum og hnit-
miðuðum leik þar sem píanistinn
sýnir á sér hliðar sem sæma
mundu mörgum þeim sem leitast
við að spinna í tónlistarflutningi
sínum.
Povl Dissing var frábær í sinni
túlkun. Hann sýndi í flutningi sín-
um ótrúlega fjölbreytni í túlkun
sem bæði byggðist á raddbeitingu
og fasi, ekki síst andlitsfari og
handahreyfingum sem lýstu upp
textaflutning og gerðu hann lif-
andi. í Povl Dissing er að finna
hinn dæmigerða vísnasöngvara og
trúbador sem ekki hefur endilega
stórfenglega söngrödd á klassíska
vísu en næma tilfinningu fyrir
texta og lagi og stórfelldar víddir
tjáningargetu, sem gerir mun betur
en vinna upp lærða raddbeitingu
og langa göngu um sali söngskóla.
Bassaleikarinn Jens Jefsen hélt
sig nokkuð í bakgrunni, en hann
gaf traustan grunn undir flutning
söngvarans og píanóleikarans.
Bassalínur hans voru ljúfar og ör-
uggar og þar sem hann tók sóló
mátti heyra að enginn viðvaningur
var á ferð. Þetta sýndi sig ekki síst
í síðasta lagi tónleikanna þar sem
Jens tók vel unnið sóló, sem
ávann honum verðugt viðurkenn-
ingarklapp áheyrenda.
Það var fengur að fá að njóta
samvista við þessa ágætu lista-
menn á tónleikunum í Deiglunni.
Skemmtilegur flutningur þeirra á
lögunum á efnisskránni gerði
stundina eftirminnilega og góða
og við bættist sá blær sem var á
öllu fasi og hinn ljúfl, danski
húmor sem þeir eiga svo mikið af.
Þetta voru góðir gestir.
Félag skógarbænda
við Eyjafjörð:
Aðalfxindur
í næstu viku
Félag skógarbænda við Eyjafjörð
heldur aðalfund sinn í blómaskál-
anum Vín í Eyjafjarðarsveit 21.
mars nk. kl. 20.30.
Auk venjulegra aðalfund-
arstarfa segir Helgi Gíslason,
framkvæmdastjóri Héraðsskóga,
frá skógrækt bænda á Fljótsdals-
héraði og Vilberg Jónsson,
Kommu, segir ferðasögu frá
Þrændarlögum.
Arið 1995 var skógarbændum
gott. Vöxtur trjáa var óvenju mik-
ill. Skógrækt ríkisins styrkti skóg-
rækt á bújörðum í Eyjafirði með
rúmum 5 millj. króna og fyrir þá
upphæð voru gróðursettar um
155.000 plöntur. Stefnt er að því
að umfangið verði ekki minna á
næstu árum. óþh
Hamar
félagsheimili Þórs:
MARSTILBOÐ
Nýjar perur í ljósabekkjunum
Frábært verð:
Stakur tími fyrir kl. 14.00 kr. 250,-
Eftirkl. 14.00 kr. 350,-
Þórsarar, mætið í morgunkaffi
á föstudögum kl. 09.00
Hamar
sími 461 2080
í UMFERÐINNI
ERU ALLIR
í SAMA LIÐI
m r*
LEIKFELAG AKUREYRAR
Leikfélag Akureyrar auglýsir lausar til
umsóknar stöður fastráðinna og laus-
ráðinna leikara leikárið 1996-1997.
Einnig auglýsir Leikfélag Akureyrar eftir leikstjórum
til starfa á leikárinu 1997-1998. Um er að ræða eina
stöðu fastráðins og tvær til þrjár stöður lausráðinna
leikstjóra.
Umsóknarfrestur um ofantaldar stöður er til 13. apríl.
Nánari upplýsingar gefur leikhússtjóri í síma 462 5073.
Skattstjóri Norðurlandsumdæmis eystra,
Akureyri.
Laus staða fulltrúa
Á skrifstofu skattstjóra Norðurlandsumdæmis
eystra, Akureyri, er laus staða fulltrúa í virðisauka-
skattsdeild.
Umsækjendur þurfa að vera talnaglöggir og geta tjáð
sig skipulega á rituðu máli.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
óskast sendar skattstjóra Norðurlandsumdæmis eystra,
Hafnarstræti 95, 600 Akureyri, fyrir 30. mars nk.
Launakjör eru samkvæmt launakjörum opinberra
starfsmanna.
Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Albertsson deildar-
stjóri Virðisaukaskattsdeildar í síma 461 2400 eða 461
2410.
Skattstjóri Norðurlandsumdæmis eystra.