Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Blaðsíða 4
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1994
Fréttir
Miklar flárfestingar sveitarfélaga á Vestflörðum:
Skuldir yf irleitt langt
yf ir viðmiðunarmörkum
- staðan miklu betri á Austfjörðum þar sem menn sýndu fyrirhyggju í flárfestingum
Skuldir nokkurra sveitarfélaga 1992
■ í hlutfalli af landsmeðaltali
500%-
Skuldir á íbúa T
þús. króna
Heimild: Árbök sveitarfélaga
ÍDV
„Það er ekkert launungarmál að
þessi sveitarfélög eru stórskuldug.
Fari svo að þau sameinist verða að
koma til peningar frá Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga og ríkinu. Það breytir
litlu hvort skuldir eru færðar saman,
eftir stendur að þaö þarf aö standa
undir þeim,“ segir Kristján J. Jó-
hannesson, sveitarstjóri á Flateyri.
Við athugun á ársreikningum
sveitarfélaga kemur í ljós að vest-
firsk sveitarfélög bera höfuð og herð-
ar yfir önnur sveitarfélög í landinu
sé litiö til skuldsetningar. Sé miðað
við skuldsetningu á íbúa miðað viö
meðalskuldir allra sveitarfélaga 1992
kemur í ijós. að Hofsós, sem er eina
sveitarfélagiö sem verið hefur í
„gjörgæslu" félagsmálaráðuneytis,
er með skuldir sem eru 72% af því
meðaltali sem meðal-íslendingurinn
ber. Súgfirðingar eru aftur á móti
með skuldsetningu upp á hvorki
meira né minna en 480% eða 380%
yfir meðallagi sem er jafnframt ís-
landsmet í skuldsetningu á íbúa.
Skuldir Súgfirðinga eru í árslok
1992 420 þúsund á mann á meðan
hver íbúi á Hofsósi skuidar tæp 43
þúsund. Það sem þessi byggðarlög
eiga sameiginlegt er að bæði hafa
fengið styrki vegna greiðsluerfið-
leika úr Jöfnunarsjóði. Mannijöldi
er svipaður og lifibrauð íbúanna það
sama; sjávarfang.
Jafnvægi á Austfjörðum
Meðalskuldir á einstakling í aust-
firskum sveitarfélögum eru lang-
hæstar í Breiðdalshreppi, eða krónur
177 þúsund á mann, lægstu skuldir á
austfirskum útgerðarstöðum eru í
Djúpavogshreppi næsta byggðarlagi
eða 60 þúsund á mann. Sé litið til
Vestfjarða kemur í ljós að minnst
skuldsetta sveitarfélagið er Tálkna-
fjörður sem er með 122 þúsund á
mann, eða helmingi meira en á
Djúpavogi.
Atvinnuástand á Austfjörðum hef-
ur verið gott undanfarin ár. Allflestir
útgerðarstaðanna hafa haldið togur-
um sínum og bátum gagnstætt við
það sem gerist á Vestfjörðum þar
sem margir togarar hafa verið seldir
vegna erfiðleika fyrirtækjanna. Það
er erfitt aö skýra þessa þróun, eink-
um meö tilliti til þess að meðalafli
Fréttaljós
togara frá Vestfjörðum hefur lengst
af verið miklu hærri en Austfjarða-
togaranna. Það er mat margra að þar
sem uppgripsafli sá sem Vestfjarða-
togarar voru með í kringum 1980
hafi ekki náð til hinna austfirsku
hafi austfirsk fyrirtæki ekki lagt út
í þá miklu fjárfestingu sem hin vest-
firsku lögðu út í þegar bjartsýnin réð
ríkjum. Þegar samdráttur í þorsk-
kvóta fór aö segja til sín hafi vest-
firsku fyrirtækin verið í miklum fjár-
festingum sem grundvölluðust á
svipuðum aflabrögðum. Vestfiröing-
ar hafi einfaldlega ekki þolaö sam-
dráttinn og erfiðleikar dunið á fyrir-
tækjunum og færst yfir á sveitarfé-
lögin.
Það virðist almennt ríkja jafnvægi
á Austfjörðum í rekstri sjávarútvegs-
fyrirtækja, sem og hjá sveitarfélög-
unum, á meðan ástandi vestfirskra
sveitarfélaga og fyrirtækja er þveröf-
ugt farið. Alvarleg vandræði eru
ýmist þegar orðin að veruleika eða í
sjónmáli.
Vantar regiur um yfirtöku
Þegar erfiðleikar sveitarfélaga
komast á ákveðið stig tekur félags-
málaráðuneytið yfir fjármálastjórn-
ina í viðkomandi sveitarfélagi. Ekki
eru fastmótaðar reglur um það hve-
nær slíkt gerist og viröist slíkt byggj-
ast á mati ráðuneytisins hveiju
sinni. Samkvæmt þeim viðmiðunar-
reglum, sem nefnd á vegum ráðu-
neytisins lagði til að unnið yrði eftir,
er þó ljóst að skuldir vestfirsku sveit-
arfélaganna eru langt yfir hættu-
mörkum í þeim efnum. Nefndin lagöi
til aö sveitarfélag með skuldastöðu
þar sem nettóskuldir væru komnar
yfir 50% af skatttekjum teldust kom-
in of langt í skuldasöfnun og þau sem
komin væru með nettóskuldir á bil-
inu 80 til 90% væru komin á hættu-
mörk.
Samkvæmt þessu mati eru nú sex
af níu sveitarfélögum á Vestfjöröum
langt yfir hættumörkum. ísafjörður,
Hólmavík og Tálknafjörður eru réttu
megin við strikið en önnur eru mis-
munandi sett. Afgerandi verst er
staða Suðureyrar þar sem hlutfallið
er neikvætt um 246%. Þá fylgja fast
á eftir Þingeyri með 230% og Flateyri
með 203% neikvæöa stöðu miðað við
skatttekjur. Annars staðar á landinu
er hvergi að finna sveitarfélag sem á
í fjárhagsvanda sem nær þessari
skilgreiningu nefndarinnar. Niður-
staðan er sú að Vestfirðir einir eiga
við slíkan fiárhagsvanda að stríða.
Kemur ekki á óvart
Bragi Guöbrandsson, fyrrum að-
stoðarmaöur félagsmálaráðherra,
segir þessa niöurstöðu ekki koma sér
á óvart. „Á þessu svæði verða menn
að sameina fyrirtæki og sveitarfélög
í enn ríkara mæli en orðiö er. Menn
hafa verið að framkvæma hver í sínu
horni og samnýting er ekki sem
skyldi. Þetta hefur kostað stórfé og
felur í sér innbyggt sóunarkerfi.
Kerfisbreytingar eru grundvallar-
atriði og fiárframlög án þess að ann-
að komi til eru ekki til neins," sagði
Bragi.
Fleiri viðmælendur tóku í sama
streng um ástæður þess hvers vegna
svo illa er komið. Menn bentu á ein-
hæft atvinnulíf sem byggist á veiðum
á þorski og steinbít hluta úr árinu.
Báðar þessar fisktegundir hafa
brugðist sem hefur leitt af sér hnign-
un sem ekki hafi tekist að mæta með
sókn í aðrar tegundir.
„Vestfirðingar veröa að vakna af
þymirósarsvefninum og skoða sína
stöðu án þess að loka augum fyrir
þeim óþægilegu staðreyndum sem
við blasa. Það hafa komið upp vanda-
mál þar sem ábyrgðir hafa falliö á
sveitarsjóði vegna þess að menn sitja
báðum megin viö borðið. Stórir at-
vinnurekendur hafa jafnframt setið
í sveitarsfiórn og þá kemur upp þessi
hættaá hagsmunaárekstrum," sagði
viðmælandi DV sem þekkir vel til
málefna fiórðungsins.
Skapar erfiðleika
við sameiningu
Komi til sameiningar ísafiarðar-
kaupstaðar, Suðureyrar, Flateyrar
og Þingeyrar, auk sveitahreppanna,
er Ijóst að hið nýja 5000 manna sveit-
arfélag mun skulda upp undir millj-
arð eða 200 þúsund á hvem íbúa.
Þetta em nfiög háar skuldir á mann
og óvíst að ísfirðingar sætti sig við
þá skuldaaukningu þar sem meðaltal
þeirra er nú um 120 þúsund á mann.
Vandséð er aö nýtt sveitarfélag
mundi rísa undir slíkum skuldum.
Samgöngur á svæðinu eru erfiðar og
skilyrði til samnýtingar þjónustu
erfið. Það liggur fyrir aö rekstrar-
kostnaöur verður hár vegna fiar-
lægða milli staða og erfiðra sifióa á
vetrum. Það er því einsýnt að lag-
færa verður verulega skuldastöðuna
áður en að sameiningu getur orðið.
Þá er það ljóst aö erfiöleikar flestra
fyrirtækja á svæðinu þýöa það að
sameining ein og sér með niðurfell-
ingum skulda er skammgóður verm-
ir. Ef svæðið á að ná því að vera sjálf-
bært verður að koma atvinnulífinu
í lag.
„Þetta er afleiðing af atvinnustig-
inu. Tekjur okkar hafa dregist saman
og við höfum þurft að horfa upp
mikla á fólksfækkun. í dag tekst okk-
ur að reka sveitarfélagið með því að
gera ekki neitt. Við erum þegar bún-
ir að skera niður eins og hægt er í
rekstri," sagði Krisfián J. Jóhannes-
son, sveitarsfióri á Flateyri.
w
^ Mm >■■ % ý ,<11'*
o S//M //M
-ÍOO
•93,9
150 Hlutfall
200_skulÉ!0Siekna________
sveitarfélagamia 1993
* 1992
.2$®SLí----■— -----——
■ iii
-160 -163,4
B.l
-203
-230
Helmild: Árbók sveitarfélaga
-246
Lesendur DV spá um úrslit í HM:
Aðeins f leiri spá Búlgörum 3ja sæti
- Brasilla talin örugg 11. sæti
, Þegar ljóst var aö Búlgarar og
Svíar myndu keppa um bronsið í HM
í knattspymu hafa lesendur DV spáð
þeim nokkuð jöfnu gengi. Síðdegis í
gær var þó aðeins farið að halla á
Svíana. Eftir að 238 höfðu greitt at-
kvæði voru 144 á bandi Búlgara en
94 á bandi Svía. Á fimmtudag var
staða þeirra hins vegar hnífiöfn.
Brasilíumenn yrðu ömggir heims-
meistarar í knattspymu árið 1994 ef
lesendur DV fengju einhverju um
þaö ráöið. Af 331 atkvæði fá Brassar
211 en ítalir aðeins 120.
Leikið verður um 3ja sætið í kvöld
og ennþá er hægt að leggja Búlgörum
eða Svíum lið. Hringja þarf í 99-1750
en mínútan kostar 39,90 krónur.
Eftir leikinn í kvöld veröur síma-
leiknum breytt og þá geta lesendur
haldið áfram að veðja á tilvonandi
heimsmeistara. Enn getur allt gerst
og ítalir hafa sýnt það og sannað að
þeir em seigir.
Þrítugasti hver sem hringir fær
pitsu frá Hróa hetti og 2 lítra af Tab
Extra frá Vífilfelli en nú hafa verið
afgreiddar hátt í hundrað pitsur síð-
an á mánudag.