Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1994 Dagur í lífi Ólafs Arnar Haraldssonar, framkvæmdastjóra 21. landsmóts UMFÍ: Gengið frá lausum endum Ólafur Örn Haraldsson, framkvæmdastjóri 21. landsmóts UMFÍ. Ég vaknaði klukkan 20 mínútur yfir 7. Undanfama daga hef ég að jafnaði ekki unnið undir 16 klukku- tímum á sólarhring, enda margir lausir endar sem hefur þurft að hnýta áður en 21. landsmót UMFÍ á Laugarvatni hæfist. Þennan umrædda mánudag var fyrsta verk mitt að hitta útivinnu- hópinn klukkan 8. Hlutverk hans hefur m.a. verið að reisa tjöld, girða, setja upp sjoppur, merkja bíla- og tjaldstæði og ganga frá ýmsu fyrir mótið. Hér er komiö upp myndarlegt tjald á palli, 500 fermetrar að stærð. Þar fer fram margvísleg skemmti- dagskrá og dansleikir um helgina. Meðal annars munu gömlu, góöu Hljómar leika fyrir dansi á laugar- dagskvöldiö. Tjaldið er í útjaðri svæðisins. Hægt verður að opna það út á svæðið og halda eins konar úti- tónleika úr því meðan þeir sem viija dansa geta verið inni. Að fundinum með útivinnuhópn- um afloknum kom framkvæmda- nefnd landsmótsins saman til fundar en við erum fjögur sem sitjum í henni. Við fórum yfir stöðu undir- búningsins á öllum sviðum. Viö höf- um hist að lágmarki einu sinni á dag undanfamar vikur til að ráðgera um framhaldið næsta dag. Símtöl og útréttingar Þegar hér var komiö sögu biðu margvísleg símtöl og útréttingar. Meðal annars var verið að undirbúa kvöldvöku og ýmsar uppákomur um helgina þar sem Magnús Scheving kemur fram. Hann mun fara um svæðið og vera með gestum allan laugardaginn og fram á miðjan sunnudag. Hann er snjali maður og viil leika af fmgrum fram eftir því hvar stemningin er mest á svæðinu hverju sinni. Sérstakur maður er hér í flutning- um og hann sér um aödrætti. Þennan tiltekna dag kom upp mál sem ekki hafði gengið eftir þeim nótum sem við höfðum ætlað. Það kom sumsé í Ijós að við gátum ekki fengiö allar þær fánastengur og fánaborgir sem við ætluðum að fá hjá einum aðila. Þaö fóru snöggir tveir tímar í að fmna fánastengur til viðbótar og út- vega ódýra flutninga á þeim austur. Þetta mál leystist ekki fyrr en um hádegi og stengurnar komu síödegis þennan sama dag. DV-mynd Jón Þórðarson Þá þurfti að semja við hjálparsveit skáta í Kópavogi sem verður með slysavakt og sjúkraflutninga vegna minni háttar óhappa á mótinu. Ég hitti einnig lögreglu og ræddi um- ferðarmálin rétt einu sinni. Að þessu loknu þurfti að hafa sam- band viö Landgræðsluna um hvar skolpinu yrði dreift á örfoka land en umhverfismál verða í brennidepli á mótinu sem er nýjung. UMFÍ mun vera í samstarfi við ýmsa aðila, svo sem Olís um landgræðslu, sem alhr mótsgestir geta tekið þátt í, svo og skógrækt í samvinnu við íslands- banka. Sorp og skolp verða leyst með umhverfisvænum hætti í samvinnu við umhverfisráðuneytið. Þá er mót- ið reyklaust og ég átti fund með skiltamanninum okkar sem var að útbúa skilti þar sem minnt væri á reyklaust mótssvæöi. Fánar staðsettir Síðdegið notaði ég til þess að fara yfir svæðið með útiverkstjóranum og ákveða staðsetningar. Þaö þurfti til dæmis að staðsetja fánaborgimar og -stengurnar. Það er ekki einfalt mál því auk þess sem taka þarf tillit til flölmargra kostunaraðila þá em mjög nákvæm fyrirmæli um hvemig flagga eigi í kringum aðalvöllinn. Velja þarf nákvæmlega stað Norður- landafánanna og röð þeirra, einnig hvítbláins, mótsfánans, fána staðar- ins, svo og ríkisfánans. Þá var verið að staðsetja fánaröð við hinar þrjár innkomur á mótssvæðið. Þá þurfti að staðsetja 40 salemi sem Gámaþjónustan hefur séð um og er þijónusta fyrirtækisins til mikillar fyrirmyndar. Loks þurfti að útvega 20 unghnga flokk frá Hvolsvelli til þess að strengja borða á bflastæði á svæðinu. Eftir kvöldmatinn hittist öh lands- mótsnefndin, 7-8 manns, og átti tveggja tíma fimd. Klukkan tíu um kvöldið, þegar fundurinn var búinn, var margvísleg skrifborðsvinna eftir sem lauk ekki fyrr en klukkan að ganga eitt um nóttina. Þar með var mánudagurinn á enda runninn. Finnur þú fimm breytingai? 266 Nafn:........ Heimilisfang: Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í Ijós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: Rummikub-spil- ið, eitt vinsælasta fjölskyldu- spil í heimi. Það er þroskandi, skerpir athyghsgáfu og þjálfar hugareikning. 2. verðlaun: Fimm Úr- valsbækur. Bækumar sem eru í verðlaun heita: Mömmudrengur, Þrumuhjarta, Blóðrúnir, Hetja og Ban- væn þrá. Bækumar em gefear út af Frjálsri Qölmiðlun. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 266 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir tvö hundr- uð sextugustu og fiórðu get- raun reyndust vera: 1. Berta Ellertsdóttir, Skarðsbraut 7, 300 Akranesi. 2. Matthildur Óskarsdóttir, Faxabraut 38d, 230 Keflavík. Vinningamir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.