Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1994 Sérstæð sakamál Hefndin Karen Lawrie. Jimmy Sacho með konu og börnum þegar ailt gekk vel í hjónabandinu. Líkið af Karen Lawrie, þrjátíu og þriggja ára, fannst í skógi í Hern- ando-sýslu í Flórída í Bandaríkjun- um þann 18. júní 1982. Fregnin um morðið komst þegar á síður frétta- blaðanna og einn þeirra sem lásu hana var David Cusak. Hann sann- færðist þegar um að einungis einn maður gæti hafa ráðið Karen af dögum, maður hennar, Wilson Lawrie, þrjátíu ogfjögurra ára bíla- viðgerðarmaður. David Cusak hafði allnokkra ástæða til að gruna Wilson um morðið. David haíði verið elskhugi Karenar og því ekki ólíklegt að afbrýðisemi heíöi gripið WOson. Þá hafði Wilson tvívegis verið ákærður og komið fyrir rétt eftir að hafa lagt hendur á Karen. í bæði skiptin sem hann hafði leik- ið hana svo grátt hafði hann kom- ist að því að hún átti sér elskhuga. Barsmíðarnar og málareksturinn höfðu þó ekki þau áhrif á Karen að hún hætti að vera manni sínum ótrú og David Cusak var einmitt sá sem hún hélt við þegar hún var myrt. Reiði og hatur Þegar David hafði lagt frá sér blaðið með fréttinni um morðið á Karen hafði slík heift gripið hann að hann hét því að hann skyldi hefna konunnar sem hann hafði elskað pg átt hafði að verða konan hans. í framhaldi af þessu tók David þá ákvörðun að ráöa Wilson af dögum. Eftir fyrstu fréttina af morðinu birtust aðrar. Var þar meðal ann- ars greint frá því að Karen hefði verið barin til dauða aðfaranótt 15. júní. Þetta varð til þess að styrkja David enn frekar í þeirri trú sinni að Wilson væri sá seki. Reyndar fannst honum nú sem hann hefði fengið endanlega sönnun fyrir því hver ódæðismaðurinn væri. Lögreglan lét það verða eitt sinna fyrstu verka að taka Wilson tii yfir- heyrslu. Var hann spurður hvar hann hefði verið umrædda nótt. Sagðist hann þá hafa verið hjá vin- konu sinni, Mandy Selsden, en hún bjó langt frá skóginum þar sem lik- ið af Karen fannst. Mandy var yfir- heyrð og staðfesti hún að Wilson hefði verið hjá sér þessa nótt. Jafn- framt lýstu nágrannar hennar yfir því að þeir hefðu séð Wilson þegar hann kom og fór. Hann reyndist þannig hafa óhagganlega fjarvist- arsönnun og varð lögreglunni því ljóst að morðinginn væri einhver annar. Skotinn í hnakkann Sá eini sem lagði ekki trúnað á að Wilson hefði verið hjá Mandy Selsden umrædda nótt var David Cusak. Blindaður af reiði og hatri út í manninn sem hann taldi hafa svipt sig þeirri hamingju að kvæn- ast Karen bjó hann sig undir að koma fram hefnd. Til þess valdi hann kvöld eitt í júlí, eftir afar heit- an dag. David þekkti vel til á heimili Wil- sons eftir heimsóknir sínar til Kar- enar. Hann faldi sig á bak við runna í garðimim og þegar hann sá Wil- son setjast fyrir framan sjónvarpið fór hann inn í húsið, gekk aftan að Wilson og skaut hann þremur skot- um í hnakkann. Wilson lést sam- stundis. En David hafði ekki heppnina með sér. Nágrannar Wilsons höfðu Wilson Lawrie. séð hann á bak viö runnann og hringt á lögregluna. Hún var að koma að húsinu þegar skothvell- irnir þrír kváðu við og fáum mínút- um síðar sat David milli lögreglu- þjóna í bíl á leið í varðhald. Viðbrögðin sannfærðu Eitt það fyrsta sem rannsóknar- lögreglumönnunum kom til hugar eftir að David var handtekinn var aö hann hefði einnig myrt Karen. Þótti þeim ekki ólíklegt að hann hefði átt í einhverjum útistöðum við Lawrie-hjónin og ákveðið að ráða þau bæði af dögum. En þegar þar kom í viðtölum rannsóknarlög- reglumannanna og Davids að hon- um var gert ljóst að Wilson hefði alls ekki myrt konu sína brást hann við með því að lýsa yfir því af mik- iUi heift að hann skyldi finna hinn raunverulega morðingja Karenar og senda hann inn í eilífðina. Svo heiftarleg voru viðbrögð Davids að rannsóknarlögreglu- mennirnir sannfærðust um að hann væri að segja satt þegar hann héldi því fram að hann hefði myrt Wilson til að hefna fyrir morðið á Karen. Það leið ekki á löngu þar til fyrsta vísbendingin fékkst um það að óþekktur maður hefði ráðið Karen af dögum. Ummæli mótelstjórans Um sex kílómetra frá þeim stað þar sem líkið af Karen fannst var The Blue Lagoon Motel. Eigandinn, Albert Massey, sneri sér ótilkvadd- ur til lögreglunnar. Hann skýrði svo frá að undir kvöld þann 14. júni hefðu maður og kona komið og tekið herbergi á leigu. Hefðu þau sagst vera hjón. Um miðja nótt hefðu þau hins vegar farið án þess að borga reikninginn. Kvaðst Massey hafa séð mynd af Karen Lawrie í blaði og væri hún konan sem komið hefði með manninum á mótelið. Massey gat gefið lýsingu á honum. Hófust nú tímafrekar viðræður við vini og kunningja Karenar Lawrie. Kom þá í ljós að hún hafði átt vingott við allmarga menn. Var gerður listi yfir þá og þegar hann var fullgerður voru á honum níu nöfn. Var nú athugað hvemig bíl hver og einn þessara níu manna ætti. Maður númer sjö reyndist eiga sams konar bíl og þann sem mótelstjórinn, Massey, hafði séð parið koma í að kvöldi 14. júní. Handtakan Eigandi bílsins reyndist vera Jimmy Sacho, þijátíu og eins árs. Massey staðfesti síðan að hann væri sá sem verið hefði í fylgd með Karen. Var þá aðeins eitt að gera fyrir Jimmy Sacho. Að játa á sig morðið á Karen. Og það gerði hann. Jimmy sagði að hann hefði um hríð átt vingott viö Karen. Hún hefði hins vegar orðið óánægð með samband þeirra og viljað slíta því. Hann kvaðst árangurslaust hafa beðið hana um aö gera það ekki, en hún hefði haldið fast við sitt. Loks hefði hann spurt hana hvort hún væri ekki til í að eiga með sér stund áður en leiöir skildi. Hefði hún fallist á það. Þau héldu til The Blue Lagoon Motel en það fór ekki vel á með þeim þar og kom til rifrildis. Lauk því á þann hátt að Jimmy baröi Karen til dauða. í skjóli myrkurs kom hann líkinu út í farangurs- geymslu bíls síns og ók með það út í skóginn þar sem það fannst. Lögreglan hafði nú loks fundið morðingja Karenar Lawrie. Skýring Jimmys Jimmy Sacho sagði fúslega sögu sína. Hann væri fjölskyldumaöur en hefði misst vinnuna og væri at- vinnulaus. Sambúð þeirra hjóna hefði stöðugt versnað og hann sagði að kona hans hefði sífellt ver- ið að skamma sig og segja að það væri ekki hægt að búa með honum. Þegar þannig hefði gengið um hríð hefði hann kynnst Karen. Hún hefði sýnt honum samúð í erfið- leikum hans og þau farið að hittast um hríð daglega. Jimmy fundust umskiptin mikil því Karen var honum í senn sálufé- lagi og bólfélagi. En sú hamingja stóð ekki lengi og þar kom, eins og fyrr segir, að hún lýsti yfir því við hann að hún vildi ekki hitta hann oftar. Fannst honum þá sem hún væri að svipta sig þeirri litlu lífs- hamingju sem hann nyti. Sagði hann það ástæðuna til þess hve harkaleg viðbrögð hans heföu orð- ið á mótelinu. Fundur í fangelsi Jimmy sat í varðhaldi í mánuð. En þá gerðu yfirvöldin alvarleg mistök. Þau lét flytja harin til. Hann lenti í sama fangelsi og David Cus- ak. Fregnin um að Jimmy væri væntanlegur barst til fanganna nokkrum dögum fyrir komu hans og því hafði David nægan tíma til að undirbúa það sem honum fannst hann enn eiga ógert. Honum tókst aö ná í óvenjulega langan nagla. Á verkstæði fangelsisins slípaði hann oddinn uns hann varð mjög beitt- ur. Þá var aðeins að bíða eftir rétta tækifærinu. Á hverjum degi fengu fangarnir að fara út í garð til að viðra sig og ganga um. David fylgdist þar með ferðum Jimmys og íhugaði á hvern hátt yrði best að koma ráðagerð- inni í framkvæmd. Og fljótlega sá hann það. Einn daginn nálgaðist David Jimmy hljóðlega aftan frá og þegar hann var kominn í návígi lyfti hann höndinni og rak naglann af öllu afli í bak Jimmys. Hefnd að lokum Naglinn gekk á hol. Hann var um fimmtán sentímetra langur eða á við hníf og jafnhættulegur. Jimmy hné niður. Hann var þegar fluttur burt á börum og komið undir lækn- ishendur en sárið var djúpt og hon- um varð ekki bjargað. David var þegar sviptur að mestu því litla frelsi sem hann hafði í fangelsinu og tekinn til strangrar yfirheyrslu. Þar skýrði hann frá því að hann hefði aldrei fallið frá þeirri fyrirætlan sinni að koma fram hefnd fyrir morðið á Karen fengi hann tækifæri til þess. Og það hefði gefist þegar Jimmy Sacho var fluttur í fangelsið þar sem hann var fyrir. Yfirvöldum til afsökunar má segja að þau hafi ekki talið að David væri enn í fyrra hugarástandi eftir að vera búinn að fá langan dóm fyrir morð. Aftur var gefin út ákæra á hend- ur David Cusak. Þrátt fyrir ítarleg- ar yfirheyrslur gaf hann aldrei aðra skýringu á athæfi sínu en þá sem nefnd hefur verið. Honum var oftar en einu sinni bent á að Karen hefði átt níu elskhuga og því hefði hún vart gifst honum frekar en hinum átta. En David neitaði stöð- ugt að trúa sögunni um elskhugana níu og á endanum komust þeir sem með rannsókn málsins fóru að þeirri niðurstööu að í raun hefði David aðeins gengið það til að hefna konunnar sem hann elskaði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.