Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1994 Stuttar fréttir Utlönd Útvarpa áródri Stjórn Norður-Kóreu er aftur farin að útvarpa áróðri gegn for- seta Suður-Kóreu. Engarþvingaitir Ekki er hægt aö þvinga norskan blaðamann til að gefa upp heim- ildarmenn sína í sambandi við stuldinn á Ópi Munchs.. ElísabettilBorísar Elisabet Eng- landsdrottning iteimsækir Jeltsín Rúss- landsforsota upp úr miöjum október í haust og veröur hún fyrst úr bresku konungsfjölskyldunni til að gera slikt frá því bolsévíkar drápu keisarafjölskylduna 1918. Máliðáhlöðuveggí Formaður í samtökum norskra smábænda vill að menn máli víg- orö gegn ESB á hiööuveggina sína. Strand viðSvalbarða Sænskt farþegaskip fékk 'aöstoð norsku strandgæslunnar eftir að þaö strandaði viö Svalbarða. Forsetafrúíaðgerð DanieUe Mitterrand, forsetafrú í Frakklandi, gekkst undir hjarta- aðgerð í gær og gekk vel. HÓtarafsögn ítalska ríkisstjómin hótar af- sögn ef þingið samþykkir ekki tilskipun sem takmarkar völd rannsóknardómara í spillingar- málum. Hermennfeildir Skæruliöar marxista i Kólumb- íu felldu tugi hermanna í fyrirsát. Jeltsínkvefaður Borís Jeltsín Rússlandsfor- setierkvefaður og komst af þeim sökum ekki á ríkis- stjómarfund í gær. Aðstoðar- menn hans kenna loftræstikerfum um krankleikann. Kynfræðsluskylda Svo kann aö fara aö skólar á írlandi verði skyldaðir til að veita nemendum kynfræöslu. Áöruggusvæði Forseti Ruanda og þrír ráðherr- ar á flótta undan uppreisnar- mönnum eru komnir á griöa- svæöi Frakka. Keutur, ntb Erlendar kauphallir: Hlutabréfa- verðhækkar Síðustu daga hefur hlutabréfaverð í helstu kauphöllum heims verið að hækka. Þannig hafa vísitölurnar FT-SE 100 og Dow Jones farið upp á við í kjölfar frétta af jákvæðum hag- tölum frá Bandaríkjunum. Fundur sjö helstu iðnríkja heims í Napólí á Ítalíu hefur lítil áhrif haft á heims- viðskipti. Kaffi á erlendum mörkuðum held- ur áfram aö hækka og sykurverð hefur lækkað örlítið. Verkfall olíuverkamanna í Nígeríu stendur enn yfir og veldur því m.a. að hráolíuverð hækkar jafnt og þétt. Þegar viðskiptum lauk í London á fimmtudag var tunnan seld á 18,64 dollara, sem er 8% hærra verð en fyrir viku. Bensínverð í Rotterdam hefur sömuleiðis hækkað. Norska stjómin breytti lögum: Refsivert nú að truf la hvalveiði Norska strandgæslan getur nú beitt sér enn markvissar en áður í baráttunni gegn hvalveiðiandstæð- ingum á borð við Greenpeace og Paul Watson eftir lagabreytingar sem norska stjórnin stóð fyrir í gær. Lögin eiga við um veiðar sjávar- fiska og ná þau hér eftir einnig yfir hval- og selveiðar. Þeir sem trufla slíkar veiðar geta því átt yfir höfði sér sektir eða varðhald í allt að sex mánuði. „Nýju reglurnar munu auðvelda okkur að stöðva aðgerðir gegn hval- veiðum úti á miðunum," segir Rolf Pettersen, yfirmaður hjá strandgæsl- unni. Grænfriðungar segja hins veg- ar að lagabreytingarnar skipti engu Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs- ráðherra Noregs. Sfmamynd Reuter máli fyrir aðgerðir þeirra. Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs- ráöherra Noregs, segir ástæðuna fyr- ir lagabreytingunni vera aðgerðir grænfriðunga og skips þeirra, Síríus- ar, gegn hvalveiöibátnum Senet í Norðursjónum undanfarna daga. Lögfræðingurinn Steingrim Wol- land sem hefur veitt grænfriðungum aðstoð eftir aðgerðir þeirra segir að það sem grænfriðungar hafi gert til þessa og hafi veriö löglegt verði nú ólöglegt. Karsten Monsen lögreglustjóri seg- ir í viðtali við norska ríkisútvarpið að héðan í frá geti það vel komið til greina að leggja hald á bæði gúmbáta og skip grænfriðunga. NTB Urvinda fjölskylda frá Ruanda hvílir lúin bein eftir flótta til nágrannarikisins Saír undan hörmungunum í heima- landinu. Hálf milljón manna hefst nú vió i bænum Goma. Simamynd Reuter Jacques Santer tekur við af Delors: ESB fær síbrosandi f orseta Jacques Santer, forsæt- isráðherra Lúxemborgar, þáði í gær emb- ætti forseta framkvæmda- stjómar Evr- ópusambands- ins og bað um að verða dæmdur af verkum sínum. Aðdáendur hins 57 ára gamla Sant- ers í stórhertogadæminu Lúxemborg kalla hann „brosandi Jacques" og ástæðan er einfaldlega sú að hann er síbrosandi, hress og kátur. Santer er hæfileikaríkur og reynd- ur samningamaður sem stjórnmála- skýrendur segja að kjósi heldur að starfa í kyrrþey á bak við tjöldin en aö vera í sviösljósinu. Hann hefur heldur ekki þann pólitíska hugsjóna- eld sem þykir einkenna Jacques De- lors, manninn sem hann tekur við af. Allir reikna með að Santer verði ekki jafn sterkur leiötogi og Delors. Stuöningsmenn hans benda þó á aö hann hafi töluverða reynslu í að standast þrýsting af hálfu voldugra nágranna sinna. Santer fæddist í smábænum Wass- erbillig og hóf stjómmálaferil sinn í ungliðahreyfmgu kaþólikka. Hann las lögfræði við háskóla í Strassborg og París og starfaði sem lögmaöur í nokkur ár áður en stjómmálin náðu að gleypa hann með húð og hári. Hinn nýi forseti framkvæmda- stjórnar ESB á franska eiginkonu og tvö börn og helstu áhugamál hans em knattspyrna og sund. Reuter, NTB Simbabvestjóm íhugarþotukaup fyrirforsetann Robert Mugabe, forseti Simbabve, og ríkisstjóm hans íhuga nú að kaupa far- þegaþotu upp á tvo milijaröa íslenskra króna fyrir forsetaembættið, að því er norska ríkisútvarpið skýrði frá í gær. Norðmenn veita Simbabve- stjóm árlega um 1200 milljónir islenskra króna í aöstoð en Kari Nordheim-Larsen, ráðherra þró- unaraðstoðar í norsku stjórninni, segir aö aöstoðin verði þó ekki afturkölluð að sinni. Fyrir tveimur árum drógu Norðmenn úr aöstoð við Namibíu eftir flugvélakaup stjórnvalda. Norðmenn setja nýfisksölumet til útlanda Útflutningsverðmæti norskra sjávarafurða fara sífellt vaxandi og fyrstu sex mánuði þessa árs var seldur fiskur til útlanda fyrir sem svarar tæpum níutíu millj- örðum íslenskra króna. Útflutningurinn fyrstu sex mánuðina er um tólf milljörðum króna verömætari en á sama tíma í fyrra. Verðmætaaukningin er sextán prósent en magnaukn- ing sjö prósent. Búist er við að útflutningurinn verði jafn góöur það sem eftir er ársins. Það er einkum aukinn útflutn- ingur á saltfiski og eldislaxi sem skýrir þessa miklu velgengni. Stjörnufræðing- arbúasigundir risaárekstur Stjarniræðingar hafa flykkst til Suöur-Afriku að undanfórnu til að ná eins konar stúkusætum þegar stærsti áreksturinn sem hefur orðið í sólkerfinu á þessari öld verður í kvöld. Þá rekast fyrstu brotin úr halastjörnunni Shoemaker-Levy 9 á plánetuna Júpíter. Dave Laney stjömufræðingur sagöi Reuters-frétastofunni að áreksturinn kynni að verða jafn hrikalegur og sá sem visinda- menn segja að hafi útrýmt risa- eðlunum fyrir 65 milljónum ára. Svo kann þó að fara hala- stjörnubrotin sundrist og þá verður áreksturinn lítiö annað en eins og loftsteinadrífa að sjá. Leiðtogar Isra- els og Jórdaníu ætlaaðfunda Bill Clinton Bandaríkjafor- seti skýrði frá því í gær að þeir Yitzhak Rabin, forsæt- isráðherra y ísraels, og Hus- sein Jórdaníu- konungur myndu hittast í Was- hington þann 25. júlí næstkom- andi. Þetta verður fyrsti opinberi fundur leiðtoganna tveggja sem jafnframt munu ávarpa fund í sameinuöu Bandaríkjaþingi og snæða kvöldverð í Hvíta húsinu. „Miðausturlönd eru á leiö inn í nýtt tímaskeið. Ég mun gera allt sem i mínu valdi stendur tii að tryggja að þjóöir þessa heims- hluta átti sig á þeirri guðs blessun sem fnöurinn er og sem þær hafa ekki fengið aö njóta of lengi,“ sagði Clinton. NTB, Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.