Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Side 5
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1994
5
Fréttir
Hellir grafinn 1 Langjökul og íslögin aldursgreind:
ís frá tímum Snorra
„Draumsýnin er að gera stór sal-
arkynni inni í jöklinum. Það er svo
silfurtært og yndislegt þarna inni.
Síðan lýsir maður þetta upp og þá
verður þama einstakur furðu-
heimur," segir Kristleifur Þor-
steinsson á Húsafelli.
Kristleifur hefur hugsað sér að
verða fyrstur manna til þess að
gera helli inni i Langjökli. Hann
ætlar að hefja verkið í dag og ljúka
fyrsta áfanga verksins áður en
ferðamenn yflrgefa landið í haust.
„Við notum í þetta keðjusög, heit-
an vír og rafmagnshöggbor. Þetta
verður mikið verk og það fer nátt-
úrlega eftir því hvað hellirinn á að
vera stór hversu langan tíma þetta
tekur. Þetta verður kannski tíu ára
verk en þá verða þama komin heil-
mikil salarkynni þvers og kruss
um jökulinn. Jökullinn býður upp
á svo mikið og inni í hellinum verð-
ur hægt að gera listaverk og alls
kyns afldma," segir Kristleifur.
Byrjað. verður á því að grafa
metradjúpa sprungu í jökulinn og
á hellinum verður væntanlega
fimm metra þykkt þak sem á að
endast nokkur ár. Meiningin er að
byggja stiga niður í sprunguna.
„Náttúruverndarráð fer fram á
að fylgst sé með þessu verki af
marktækum vísindamönnum.
Helgi Björnsson jarðeðlisfræðing-
ur verður því með mér í þessu og
ætlar að aldursgreina ísinn í jöklin-
um fyrir mig. ísinn ætla ég að nota
í drykki fyrir ferðamenn. Fólk get-
ur þá valið ísinn frá því ári sem
það kýs. Ef það vill ís í drykkinn
sinn frá tímum Snorra Sturlusonar-
þá verður það væntanlega hægt,“
segir Kristleifur.
Kristleifi þykir mikilvægt að
ferðamennirnir fái að sjá eitthvað
af jöklinum, jafnvel í blindþoku.
Þá er hægt að fara með þá inn í
jökulinn í staðinn fyrir upp á hann.
Þj óöminj avörður:
Ekki beðinn
um skýrslu
- hittirráðherraumhelgina
„Ég sagði í gríni við fréttamann
Stöðvar 2 og Bylgjunnar: „Æth mað-
ur þurfi ekki að skrifa skýrslu um
þetta?“ Þá kom frétt um að mér hefði
verið gert að skila skýrslu um horfna
muni í Þjóðminjasafninu," segir Þór
Magnússon þjóðminjavörður í sam-
tali við DV.
Að sögn Þórs hefur hann ekki ver-
ið beðinn um skýrslu varðandi
horfna muni í Þjóðminjasafriinu en
hann mun taka saman greinargerð
engu að síður fyrir sjálfan sig og er
ráðuneytinu velkomið að fá hana
einnig.
Þór sagði við DV að hlutir sem
hyrfu af safninu fyndust yfirleitt aft-
ur. Sem dæmi um það fundust nýlega
tvö innsigli sem hafði verið sárt
saknað. Algengasta orsökin fyrir að
hlutir týnist er að þeir eru lagðir á
rangan stað í safninu. Vegna við-
gerða á Þjóðminjasafninu er stöðugt
verið að flytja til hluti og Þór býst
við að sjá marga hluti sem ekki hafa
sést árum saman.
„Það eru ekki margir munir sem
eru horfnir og þeir finnast örugglega
aftu. Fjölmiðlar eru að gera úlfalda
úr mýflugu," segir Þór.
Þjóðminjavörður hittir mennta-
málaráðherra, Ólaf G. Einarsson, um
helgina og ætla þeir að ræða ýmis
mál er við koma safninu.
Eurimages-sjóðurinn:
Benjamín dúfa
fær tæpar 8
milljónir
Stjóm kvikmyndasjóðs Evrópu-
ráðsins, Eurimages, samþykkti á
fundi sínum í Varna í Búlgaríu að
veita stuðning við 25 verkefni. Euri-
mages hefur það hlutverk að styðja
evrópsk samstarfsverkefni á sviði
leikinna kvikmynda í fullri lengd og
heimildamynda. Fulltrúi íslands í
stjórn Eurimages er Ólafur Arnar-
son.
Meðal þeirra verkefna sem hlutu
stuðning var myndin Benjamín dúfa
sem er samstarfsverkefni íslenskra,
sænskra og þýskra aðila. Leikstjóri
myndarinnar verður Gísli Snær Erl-
ingsson. Stuðningurinn, sem er í
formi víkjandi láns, nemur um 7,7
miljónum íslenskra króna.
SVARTISVANURINN
Laugavegi 118
Sumarverð á ís
Barnaís
60 kr.
Venjulegur
80 kr.
Hvítur-Bleikur-Brúnn
úsnœði e<5a ráðast
aðrar fra>;
Reglulegar afborganir: mána&arlegarársfjór<5ungslega
ramlevcemdir.
•gar afborganii
eða tvisvar á ári, allt eft ir förfum hvers
og ems.
til 3ja ára homa feim vel sem hyggjast
kaupa t.d. bíl e<5a húsbúnað.
Me<5 fví að sta<5grei<5a viðhomandi hlut jœrðu í
mörgum tilvihum afslátt sem getur lœhhað
haupver<5i<5 verulega.
1 til nohhurra mánaða henta vel
joegar ráðist er í a<5 haupa
heimilistœhi eða fegar farf
a<5 brúa bil á milli haupsamnings-
greiðslna í fasteignahaupum,
svo a<5 dœmi séu teh in.
' VC‘#r
\a<5 mœta sveiflum í mánaðarlegum útgjöld-
um getur verið gott a<5 hafa yfirdráttarheimild á
téhhareihningnum / debethortareihningnum.
Sparisjóáur Hafnarfjaráar Lýáur einstaklingfum í launareikningfsviáskipti
og aágang aá fjölLreyttum lánamögfuleikum.
Menn kafa fært sigf úr kanka í sparisjóá fyrir minna
SPARISJ OÐUR HAFNARFJARÐAR
Strandgfötu • Reykjavíkurvegfi • Garáakæ