Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Síða 8
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1994
Vísnaþáttur__
Vestur-
heimska
Fjöldi Islendinga fluttist vestur um
haf í lok síöustu aldar og freistaði
þess áð kanna landgæði þar vestra.
Furðar mann hversu þjóðrækni
þeirra var mikil og menningar-
starf. Fjöldi bóka og þá ekki síst
ljóðabækur voru prentaðar vestra.
Einn þessara manna var Sigur-
björn Jóhannsson frá Fótaskinni.
Um þá ágætu og víðkunnu konu
Gróu á Leiti orti hann:
Vondra róg ei varast má,
varúð þó menn skeyti,
mörg er Gróa málug á
mannorðsþjófa Leiti.
Sigurbjörn var eitt sinn spurður
hvert hann væri að fara og svaraði
þá með þessum vísum:
Lífsins neyð mér löngum sveið,
lítt þó beiðist tafar.
Mitt er skeið á ringulreið
rakin leið til grafar.
Hér ég bíð við hættu stríð,
heimskan þýðist vana,
lífs því kvíði langri tíð
langtum síður bana.
Einhverntíma var Sigurbirni út-
hýst ásamt fleirum sakir þrengsla.
Orti hann þá vísu þessa:
Héðan frá þótt hrekjast megum,
heims hvar þjáir vald,
skála háan allir eigum
uppheims bláa tjald
Næsta vísa Sigurbjamar er úr
runu er hann nefnir „Nokkrar
sundurlausar vísur“ og munu ortar
til Sveins nokkurs veitingamanns.
Ein vísan er svona:
Ölvaguðs að grátum kraup
gjaman breiskur maður.
Láttu Sveinn á lítið staup
lífs þá nýt ég glaður.
Þessa vísu Sigurbjarnar mætti
margur samtímamaðurinn grunda:
Lítils met ég mælskuglaum,
meira þarf að skoða
hvort mun betur standast straum
steinn eða hreykin froða.
Skömmu eftir að stuttu pilsin
urðu tíska sat Káinn fyrir framan
unga og fallega stúlku sem huldi
lítt leggjafegurð sína, nema að síð-
ur væri. Loks stóðst hann ekki
mátið og segir við hana:
Ekkert kalla ég á þér ljótt,
yndis-snjalla mærin;
mér hafa alla æfi þótt
á þér falleg lærin.
Þekktasti skáldbóndi er dvaldi í
vesturheimi mun ugglaust vera
Stephan G. Stephansson. Flutti
hann vestur 1873 með foreldrum
sínum. Var þar bóndi og landbún-
aðarverkamaður og viö skógar-
högg á vetrum.
Um ellikerlingu yrkir Stephan:
Fimleik skeikar förlast mér,
fætur reika eymdir,
giktarveikur armur er
æskuleikar gleymdir.
Við spurningunni um hvað sé
skáld, hefur Stephan þetta svar:
Hvaö sé skáld? Spyr þú að því!
Þarna er einkunn talin:
Það er djúpur eldur í
ösku þunnri falinn.
í blæ sem varla bærði rós,
blossa kann og funa,
kveikja hita, líf og ljós-
líka kannske bruna.
Vísnaþáttur
Valdimar Tómasson
Um ljóðabókina „Við ysta haf ‘ eftir
Huldu, er kom út árið 1926, yrkir
Stephan:
Er mér, lögstum undir skugga
aftur á bak,
yndi að heyra inn um glugga
íslenskt svanakvak.
Þessi alkunna vísa Stephans er
fyrir löngu orðin þjóðsöngur ei-
nyrkjans:
Löngum var ég læknir minn,
lögfræðingur, prestur,
smiður, kóngur, kennarinn,
kerra, plógur, hestur.
í þessari vísu hugsar Sthepan til
skáldbróður síns Þorsteins Erl-
ingssonar er hann líknar snjótittl-
ingum að vetrarlagi:
Um þessara fugla þorra-töf
því er til að gegna:
Ég tók þá af guði á gjöf,
greyin Þorsteins vegna.
Víst er það að hversu sem hérvist
okkar er kostum prýdd er ekkert
víst um um frekari sælu. Um þetta
kveður Sthepan:
Kvennalán ei hamlar hót
himnaflutningonum.
Jafnvel Drachmann, Danabót,
dó frá mörgum konum.
Meðan heimsstyrjöldin fyrri stóð
yfir kvað Stephan:
Læsir Hlóðyn, Hlé og ský,
hatursglóðum tveimur
dauðra blóði drukkinn í
djöfulóður heimur.
Heimildir:
Sigurbjörn Jóhannsson Ljóðmæli
1902
Andvökur I-IV 1953-58
Lausavísur 1993
ísl. skáldatal
PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN
Útboð
Steypuviðgerðir - Múlastöð
Póst- og símamálastofnun óskareftirtilboðum I steypuvið-
gerðir á Múlastöð, Ármúla 27 í Reykjavík. Útboðsgögn
verða afhent á skrifstofu fasteignadeildar Pósts og síma,
Pósthússtræti 5, 3. hæð, 101 Reykjavík, gegn 5.000 kr.
skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað mánudag-
inn 8. ágúst kl. 14.00. Vettvangsskoðun verður miðviku-
\ daginn 27. júlí kl. 14.00.
Matgæðingur viknrtnar_________x>^\
Heill humar með
smjörristuðu brauði
- og nautabógsteik
Ari Þorsteinsson, framkvæmdastjóri og matgæðingur vikunnar.
„Þessi réttur er mjög góður sem
forréttur en hann er líka hægt að
matbúa sem aðalrétt. Menn eru oft
í vandræðum með að fá humar en
minn humar hef ég fengið hjá Borg-
ey hf. í Hornafirði og þeir senda
hvert á land sem er,“ segir Ari
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
fiskvinnslustöðvar Kaupfélags Ey-
firðinga, Hrísey, en hann er mat-
gæðingur DV að þessu sinni.
Fljótlegur
og einfaldur
„Uppskriftina að heilum humri
fékk ég hjá kpkki á Hótel Höfn á
Hornafirði, Óðni Eymundssyni,
fyrir 5-6 árum. Ég hef notað hana
mjög mikið og hún hefur lukkast
alveg einstaklega vel.“
I réttinn fer eftirfarandi:
1 kg heill humar, flokkaður (5-8
stk./kg)
rifmn ostur
Fylling:
2-stk. ferskir sveppir
1 stk. lítill laukur eða púrrulaukur
1 pressaður hvítlauksgeiri
2 msk. soðin hrísgrjón
1 msk. brauðrasp
1 tsk. steinselja
2 msk. hvítvín
1 msk. smjör
Hrærið fyllinguna saman og
smakkið hana til með salti og hvít-
um pipar. Takið humaröskjuna út
úr frysti 1 klst. fyrir notkun. Skerið
humarinn eftir endilöngu og
hreinsið haus og kvið, setjið fyll-
inguna í staðinn. Leggið humarinn
í eldfast mót og penshð hann með
smjöri, hvítlauk og salti, saman-
hrærðu. Rífið síðan ostinn yfir.
Bakið humarinn undir grilli í 3-5
mín. Berið fram með smjörristuðu
brauði og hvítvíni og spihð Moldá
eftir Smetana. Þannig geta menn
átt fuhkomna stund.
Ef ekki eru th humartangir er
hægt að nota hnetubrjót og heklu-
nál til þess að ná sem mestu úr
humrinum.
Nautabógsteik
„Uppskriftina að nautabógsteik-
inni fékk ég þegar ég var við nám
í Danmörku árið 1986,“ segir Ari.
„Það sem mér finnst gott við þessa
steik er hversu kraftmikil hún er.
Þessir bitar lenda oft utangarðs í
matreiðslunni vegna þess að það
eru sinar í þeim en með þessari
suðu nær maður þeim mjúkum og
fínum. Það kemur einmitt sérstak-
lega góður kraftur vegna þess að
beinin eru í. Við höfum eldað þenn-
an rétt oft heima og foreldrum mín-
um, sem eru af eldri kynslóðinni í
matarsmekk, hkar t.d. mjög vel við
hann.“
I réttinn þarf eftirfarandi:
11/4 kg nautabógsneiðar með beini
1 msk. grænn pipar
5 lárviðarlauf
1 msk. karrí
1 msk. sojasósa
50 g smjörlíki
2 stórir laukar
salt
vatn
1 dós sýrður rjómi, 18%
Skerið laukinn í bita og hitið
smjörlíkið á steikarpönnu. Setjið
karrí út í og brúnið laukinn upp
úr þessu. Þegar laukurinn er orð-
inn brúnn er honum hellt í pott og
feitin skilin eftir. Myljið græna pip-
arinn og nuddið honum inn í kjöt-
sneiðamar. Snöggsteikið kjötið á
pönnunni þar til það verður fahega
brúnt. Helhð sojasósunni yfir kjöt-
ið og setjið það í pottinn. Helhð
vatni yfir pönnuna og síðan út í
pottinn, setjið lárviðarlauf og salt
út í og sjóðið í eina og hálfa klukku-
stund. Þá er kjötið tekið upp úr og
snyrtar burt sinar, fita og bein og
því næst sett á fat. Sýrða rjómanum
er bætt út í soðið og það síðan þykkt
með sósujafnara. Smakkist th með
salti og pipar. Sósunni er síðan
hellt yfir kjötið. Borið fram með
soðnum kartöflum og hrísgrjónum.
Ari skorar á Guðmund Kristjáns-
son, skipstjóra á Súlnafehi EA 840,
að gerast næsti matgæðingur.
Hinhliöin
Fæ ekkert sumarfrí
- segir Karen Sævarsdóttir, íslandsmeistari í golfi
Karen Sævarsdóttir, íslands-
meistari í golfi, leyfir lesendum DV
að kynnast hinni hhðinni á sér aö
þessu sinni en hún sigraði á meist-
aramóti Golfklúbbs Suðumesja á
dögunum. Karen hefur fimm sinn-
um í röð orðiö íslandsmeistari í
golfi en hún var aðeins 16 ára er
hún vann titilinn fyrst. Hún mun
keppa á Evrópumóti kvenna sem
haldið verður í Svíþjóð 18. júlí en
þegar því móti lýkur eða þann 24.
júh fer hún beinustu leið á lands-
mótið í golfi sem hefst þann 26. júh
á Akureyri.
„Það má búast við harðari keppni
núna en oftast áöur en ég stefni að
sjálfsögðu að því að halda titlin-
um,“ segir Karen. Karen hefur
stundað nám í Texas í Bandaríkj-
unum og þar hefur hún sphað golf
með skólaliðinu.
Fullt nafn: Karen Sævarsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 21. febrúar
1973.
Maki: Jón H. Karlsson.
Börn Engin.
Bifreið: Ford Tempo ’87 en hann er
í Bandaríkjunum.
Starf: Nemi og þjálfari í golfi á
sumrin.
Laun: Viöunandi.
Áhugamál: Allar íþróttir.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Tvær.
Hvað íinnst þér skemmtilegast að
Karen Sævarsdóttir.
DV-mynd Ægir Már
gera? Að vera í góðum vinahópi.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Taka th.
Uppáhaldsmatur: Maturinn henn-
ar mömmu þaö sem hún eldar
hveiju sinni.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn og kalt
Eghs appelsín.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Steffi Graf.
Uppáhaldstímarit: Öll erlend golf-
blöð og svo íþróttablaðið hér
heima.
Hver er fallegasti karlmaður sem
þú hefur séð fyrir utan maka? Það
er svo mikið til af þeim. Ahir ís-
lenskir karlmenn eru yfirleitt
myndarlegir.
Ertu hlynnt eða andvig ríkisstjórn-
inni? Fylgist litiö með, er alveg
hlutlaus.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Golfarann Nick Faldo.
Uppáhaldsleikari: Harrison Ford.
Uppáhaldsleikkona: Meg Ryan.
Uppáhaldssöngvari: Whitney Ho-
uston.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Þeir
eru allir ágætir.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Guffy í Andrés önd.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Iþróttir
yfir höfuð og þá ber hæst golfið.
Ertu hlynnt eða andvíg veru varn-
arliðsins hér á landi? Hlynnt.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Flakka á milh.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Anna
Björk Birgisdóttir á Bylgjunni.
Hvort horfir þú meira á Sjónyarpið
eða Stöð 2? Er þeim megin sem
dagskráin er betri hveiju sinni.
Uppáhaldssjónvarpsmaður?Edda
Andrésdóttir á Stöð 2.
Uppáhaldsskemmtistaður: Heima
hjá mér.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Golf-
klúbbur Suðurnesja.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Stefni upp á við.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Fæ ekkert sumarfrí.
Ægir Már Kárason
•3
1