Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Side 14
14
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1994
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON
Framkvaemdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JONSSON
Fréttastjórar: JONAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613'
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð i lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk.
Fara verður að lögum
Póst- og símamálastjóri hyggst fara aö ósk húsfriðun-
amefndar um, aö gamla pósthúsiö á horni Austurstrætis
og Pósthússtrætis veröi málað í upprunalegum ht rauð-
brúnum. Með þessu fer hann aö lögum og gefur öörum
valdamönnum gott fordæmi, sem ekki veitir af.
Gamla pósthúsiö í Reykjavík var friðað áriö 1991, eftir
aö miklar skemmdir höföu veriö unnar á því að innan.
Síöan húsið var friðað má ekki breyta svipmóti þess og
hafa verður samráð við húsfriðunamefnd um breyting-
ar. Um mál af þessu tagi gilda sérstök húsfriðunarlög.
Fólk getur deilt um, hvort hin og þessi lög séu góð eða
skynsamleg, en nauðsynlegt er að fara eftir þeim. Ef lög
em tahn ónothæf, er til stofnun, sem getur breytt þeim.
Það er Alþingi. Þetta kerfi lagaheföar er homsteinn þjóð-
skipulagsins hér á landi og í öhum nágrannalöndunum.
Töluvert er um, að valdamenn vilji ekki fara að lögum
og komist upp með það. Nokkur dæmi um slíkt hafa
verið í fréttum að undanfómu. Th skamms tíma leit svo
út, sem Póst- og símamálastjóri mundi ekki leita samráðs
við húsfriðunamefnd um htinn á pósthúsinu.
Samkvæmt lögum ber að fá leyfi fornleifanefndar til
að raska fomleifum, sem em orðnar hundrað ára. Forn-
leifanefnd neitaði að veita leyfi til að raska bæjarstæði
Hrafns Sveinbjamarsonar læknis á Eyri við Amarfjörð,
þegar Hrafnseyramefnd vildi reisa þar torfbæ.
Samt fór Hrafnseyramefnd sínu fram gegn lögum og
rétti. Hún sneri sér til óviðkomandi aðila, þar á meðal
til forsætisráðuneytisins, sem lét sig hafa það að lýsa
sérstakri ánægju með lögbrotið. Menntaráðherra hefur
stutt lögbrotið með því að gera ekkert í máhnu.
Frumkvæði að lögbrotinu haföi fyrrverandi ráöuneyt-
isstjóri, sem heföi átt að vita betur. En valdshyggjan er
honum orðin svo eiginleg, að hann hefur misst sjónar
á, hvar geðþóttavaldið endar og hvar lögin byija. Hið
sama má segja um ráðuneytin, sem styðja hann.
Á Seltjamamesi er bæjarstjóri, sem þekktur er af
andstöðu við náttúru og menningarsögu. Hann hefur
látið gera við Ráðagerði voldugt bortorg, sem er tvöfalt
stærra en það þarf að vera. í því skyni hefur honum tek-
izt að sphla fjöru, sem ótvírætt er á náttúruminjaskrá.
Samkvæmt lögum þarf að hafa samráð við náttúm-
vemdarráð í slíkum thvikum, en það var ekki gert, enda
fuhyrti bæjarstjórinn í fjölmiðlum, að íjaran væri ekki á
náttúruminjaskrá. Óbeint er hann studdur af náttúru-
vemdarráði, sem enn hefur ekki mannað sig th mótmæla.
Áður haföi verið rifmn meira en aldargamah sjóvam-
ar- og túngarður við Eiði. Grjótið úr garðinum hefur nú
verið notað í annan vegg, sem er aht öðmvísi en gamh
garðurinn og sumpart á öðrum stað. Búið er að breyta
fornminjum í eins konar fyrirbæri úr tízkublaði.
Varað var við þessum spjöhum bæjarstjórans á Sel-
tjamamesi í tæka tíð. Samt var ekki farið að lögum og
engin tilraun gerð th að tryggja, að garðurinn yrði endur-
hlaðinn á upprunalegan hátt. Ef ljósmyndir hafa verið
teknar og teikningar gerðar, þá vom þær ekki notaðar.
Lögbrot em ekki bara framin á sviðum menningar-
sögu og náttúmvemdar. Á sama tíma hafa bankamir
ólögleg samráð um debetkort, þar sem tugum mhljóna
er velt á herðar almennings, og hafa síðan ólöglög sam-
ráð við samtök kaupmanna um staðfestingu lögbrotsins.
Með sífehdum lögbrotum af ýmsu tagi og afskiptaleysi
af lögbrotum af ýmsu tagi eru stjómvöld í anda aust-
ræns geðþótta að grafa undan homsteini þjóðfélagsins.
Jónas Kristjánsson
Nýju forsetamir
mæna vonaraug-
um til Moskvu
Ákvöröun um að leysa upp Sovét-
ríkin var í rauninni tekin á fundi
þriggja manna í veiöihöll í Bélo-
veskí skógi í Hvíta-Rússlandi í des-
ember 1991. Aö undirlagi Borísar
Jeltsíns, forseta rússneska sam-
bandslýðveldisins, hitti hann þar
forseta sovétlýðveldanna Hvíta-
Rússlands og Úkraínu. Þeir gengu
frá samstarfssamningi slavnesku
lýðveldanna þriggja, kjarna sovét-
veldisins, sem síðan leiddi til form-
legrar upplausnar þess á fundi í
Minsk, höfuðborg Hvíta-Rúss-
lands, síðar í sama mánuði.
Með því að leysa Sovétríkin upp
á þennan hátt sló Jeltsín tvær flug-
ur í einu höggi. Hann færði sjálfum
sér raunverulegt æðsta vald yfir
Rússlandi og hann gerði að engu
síðustu valdaátyllu Míkhaíls Gorb-
atsjovs sovétforseta keppinautar
síns.
Forsetar Hvíta-Rússlands og
Úkraínu fengu einnig stöðu þjóð-
höfðinga sjálfstæðra ríkja, en hafi
á ýmsu gengið fyrir Jeltsín í
Moskvu frá 1992, hefur flest gengið
á afturfótum í Minsk og Kíev. Þing-
ið setti Shúsketvitsj, forseta Hvíta-
Rússlands, af í fyrra og á sunnu-
daginn féll Leoníd Kravtsjúk Úkra-
ínuforseti í síðari umferð forseta-
kosninga.
Svo vildi til að sama dag var einn-
ig síðari umferð forsetakosninga í
Hvíta-Rússlandi og þar féll einnig
Vjatséslav Kebitsj sá sem bolaði
Shúskevitsj frá völdum. Meginund-
irrót ósigra beggja forseta er sú
sama, óstjórn í hvíveta og ófremd-
arástand í efnahagsmálum með
hraklegum kjörum fyrir allan al-
menning.
Sigurvegararnir í Kíev og Minsk
boða gerólíka stefnu til að ráða
fram úr öngþveitinu en eitt er þó
sameiginlegt í markmiðum þeirra.
Báðir segjast ætla að reyna að
koma á auknum tengslum og sam-
vinnu við Rússland, sérstaklega
með efldum viðskiptum.
Alexander Lúkasénko, nýi forset-
inn í Hvíta-Rússlandi, gengur svo
langt að lofa að beita sér fyrir efna-
hagslegri sameiningu við Rússland
og í ofanálag pólitísku bandalagi
slavnesku ríkjanna þriggja sem
áður voru sovétlýðveldi, Hvíta-
Rússlands, Rússlands og Úkraínu.
En að öðru leyti lofaði Lúkasénko
að útrýma spillingu í stjórnkerfinu,
koma á verðstöðvun í óðaverð-
bólgu, hefta einkavæðingu og
banna einkaeign á landi. Þessi
málflutningur færði honum yfir
fjóra fimmtu atkvæöa í síðari um-
ferð forsetakosninganna.
Leoníd Kútsjma sem sigraði
nafna sinn Kravtsjúk í Úkraínu
með um átta hundraðshluta mun
er maður af allt öðru sauöahúsi.
Hann stýrði mestu eldflaugaverk-
Erlend tídindi
Magnús Torfi Ólafsson
smiðju Sovétríkjanna, og þar með
vísast heimsins, áður en hann varð
um tíma forsætisráðherra hjá
keppninaut sínum.
Stjórnarferill Kravtsjúks hefur
einkum einkennst af kyrrstöðu og
aðgerðarleysi í efnahagsmálum.
Miðstýringarkerfið hefur fengið að
lafa uppi og ganga sér til húðar
meö þeim afleiðingum að lands-
framleiðsla hefur dregist saman
um tvo fimmtu milli ára. Verðbólga
æðir áfram.
Kútsjma setur á oddinn í kosn-
ingastefnu sinni efnahagsumbætur
með einkavæðingu og fjármála-
stjórn sem rís undir nafni. Þá vill
hann komast að varanlegu sam-
komulagi við Rússa um orkukaup
Úkraínumanna, en afhending
þeirra á olíu og gasi hefur verið
stopul vegna gífurlegrar skulda-
söfnunar Úkraínumanna.
Rússar eru fjölmennir í iðnaðar-
héruðum Austur-Úkraínu og á
Krímskaga og þar fékk Kútsjma
yfirgnæfandi meirihluta atkvæða.
Kravtsjúk skírskotaði hins vegar
til úkraínskrar þjóðernisstefnu og
uppskar yfirburða fylgi í vestur-
héruðunum.
Kravtsjúk lýsti yfir að kosning-
um loknum að hann heföi sett sér
að leitast við að sætta þessar and-
stæður en það verður ekki auðvelt
verk. Deila Úkraínu og Rússlands
um Svartahafsflota Sovétríkjanna
er óleyst og stjóm Rússa á Krím
stefnir að fullri sjálfstjóm. Þjóð-
ernissinnar í Vestur-Úkraínu hafa
stofnað eigin her.
Rússlandsstjóm kveðst til við-
ræðu við nýju valdhafana í Kíev
og Minsk um nánari tengsl og
aukna samvinnu, en kosningaúr-
slitin í nágrannaríkjunum geta
ekki verið Jeltsín óhlandið fagnað-
arefni. Lúkasénko hefur að ýmsu
tekið sér rússneska þjóðemis-
sinnann Vladímír Zhírínovski til
fyrirmyndar og ábyrgð á íjárhag
Hvíta-Rússlands gerði að engu ár-
angur Rússlandsstjómar við að
lækka verðbólgu.
Rígurinn milli Rússlands og
Úkraínu er djúpstæður og stafar
þar eins og víðar í fyrrum Sovét-
ríkjum ekki síst af því að samofnu
hagkerfi var sundrað með einu
pennastriki í Bélovskí skógi, án
þess skeytt væri um hvað kæmi í
staðinn.
Leoníd Kútsjma ræðir við fréttamenn í Kíev eftir kosningasigurinn.
Símamynd Reuter
Skoðanir annarra
Innrás á Haítí
„Innrás í Haítí mun ekki skapa viðunandi póli-
tískt ástand í landinu, ávinna vinsældir hjá ná-
grannalöndunum né gefa gott fordæmi um beitingu
hervalds á tímum þíðu í alþjóðastjórnmálum. Það
er engin trygging fyrir því að herir Bandaríkjanna
geti horfiö á brott jafn snöggt og þeir komu né fyrir
því að mannfjöldinn á Haítí fagni innrásarliði. Inn-
rás hefur heldur ekki víðtækan stuðning hjá almenn-
ingi í Bandaríkjunum né á þinginu."
Úr leiðara Herald Tribune 14. júlí 1994.
Byssusala bönnuð
„Rannsóknir staðfesta að tvisvar sinnum meiri
líkur séu á því að kona sé skotin og drepin af eigin-
manni sínum eða nánum ættingja heldur en að hún
falli fyrir höndum ókunnugs manns sem notar byssu
eða annað vopn til verksins. Sú staðreynd mælir
einfaldlega gegn því að byssusala sé leyfð til þeirra
sem hafa orðið uppvísir að ofbeldi inni á heimilinu.“
Úr leiðara USA Today 14. júlí 1994.
Ný staða í Úkraínu
„Kravtsjúk verður að bera ábyrgðina á að Úkra-
ína er ekki komin lengra áleiðis á þriggja ára valda-
tíma hans... Nýi forsetinn, Kútsjma, er hlynntur
nánu samstarfi við Rússa og eyðingu kjamorku-
vopna sem Bandaríkjamenn og Rússar höfðu áður
samið um. Það upprætir í sjálfu sér þann vanda sem
umheimurinn sá í Úkraínu.“
Úr leiðara Politiken 13. júli 1994.