Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Side 26
34
LAUGARDAGUR 16. JULÍ 1994
LandsmótUMFÍ á Laugarvatni:
Líf og fjör á landsmóti
Þaö er mikið um aö vera á lands-
móti Ungmennafélags íslands sem
nú stendur yfir. Mótiö, sem er 21.
landsmót UMFÍ, var sett á fimmtu-
dag og stendur fram á annaö kvöld.
Keppt verður í fjölmörgum grein-
um og stööug dagskrá er í gangi frá
morgni til kvölds. Margir af bestu
íþróttamönnum landsins eru sam-
ankomnir á mótinu og þegar blaöa-
maður DV var þar á ferðinni í gær-
dag var mikið um að vera og veðr-
ið með ágætum þótt það væri dálít-
ið hvasst.
Á meðal þeirra greina sem keppt
er í má nefna knattspyrnu, körfu-
knattleik, glímu, blak, borðtennis
pönnukökubakstur, línubeiting,
stafsetningarkeppni, sund og júdó.
Búistvið
9-10 þúsund manns
„Við búumst við að það komi alls
um 9-10 þúsund manns en þær töl-
ur eiga eflaust eftir að fara upp ef
veðriö verður sæmilegt. Það voru
um fjögur þúsund manns komin
hingaö strax á fimmtudaginn,“
sagði Ólafur Öm Haraldsson,
framkvæmdastjóri mótsins.
„Það er mjög góð stemning hér
og ég hef ekki heyrt eina einustu
kvörtunarrödd um eitt né neitt. Við
erum með um 60 manns á vakt á
næturnar og 160 eru við störf á
daginn. Síðan er hér Hjálparsveit
skáta úr Kópavogi og öflugt lög-
reglulið frá Selfossi.
Það var mikill manníjöldi sem
fylgdist með alls kyns keppni sem
var í gangi í gær og keppendur sem
og áhorfendur voru á öllum aldri.
Þær Áslaug, íris og Hugborg, sem
komu með yfir 40 manna hópi frá
Ungmennasambandi Vestur-
Skaftafellssýslu, sátu á grasinu í
mestu makindum og voru að fylgj-
ast með dráttarvélakstri. Þær
komu á staðinn á fimmtudag og
ætla að vera fram á sunnudags-
kvöld.
„Við ætlum að keppa í æsku-
hlaupinu og svo ætlum við líka
bara að hörfa á,“ sögðu þær.
„Við erum nú orðnar soldið
spenntar en við tókum þátt í lýð-
veldishlaupinu og svo erum við
líka búnar að æfa okkur vel,“ sagði
Áslaug. Þær sögðust hafa fengið að
vera einar í tjaldi um nóttina og
fengið að vaka svolítið frameftir
sem hafi verið mjög gaman. „Við
vorum með soldið af nammi með
okkur og vorum að tala sarnan."
Keyptu sér flugna-
netfyrirmótið
Guðmunda Kristjánsdóttir og
Páll Jóhann Pálsson úr Skagafirði
voru aö horfa á spennandi keppni
í sundi ásamt sonum sínum Páli
Hreini, 11 ára, og Eggerti Daða, 9
ára, þegar blaðamann DV bar að
garði. Tíkin þeirra, Pila Páls, fékk
einnig að koma með á mótið og virt-
ist vera kát yfir öllum látunum og
umstanginu á svæðinu.
„Við komum á fimmtudagskvöld-
ið en þá var fólk svona byrjað að
tínast að. Okkur líst vel á þetta og
við ætlum að vera fram á sunnu-
dag. Við tjölduðum á keppnissvæð-
inu og þar hefur m.a. verið komið
fyrir stóru matartjaldi," sagði Páll.
„Við ætlum nú ekki að taka þátt í
neinni keppni, nema þá kannski
landshlaupinu, en synir okkar ætla
að taka þátt í æskuhlaupinu. Það
voru yfir 40 manns sem komu með
UMSS og af þeim ætla að minnssta
kosti 17 að taka þátt í æskuhlaup-
inu.“
Páll sagði að veðrið hefði verið
fínt þegar þau komu en það hefði
orðið frekar kalt fyrstu nóttina.
Hann sagði að þau hefðu þó sem
„Við tókum með okkur lopapeysur og hlýjan latnað," sögðu hjónin Guðmunda Kristjánsdóttir og Páll J. Pálsson úr Skagafiröi sem mættu á mót-
ið ásamt sonum sinum Páli Hreini, 11 ára, og Eggerti Daða, 9 ára. Tikin Píla Páls fékk einnig að koma með.
Stöllurnar Hugborg, Iris og Asiaug frá USVS sátu í mestu makindum í
grasinu og fylgdust með dráttarvélakstri. Þær kváðust ánægðar með
að hafa fengið að vera saman i tjaldi.
betur fer tekið lopapeysur og ann-
an hlýjan fatnaö með sér og því
hefði þetta allt blessast.
„Mér finnst aðstaðan hér bara
vera mjög góð og mér sýnist þeir
hafa skipulagt þetta mjög vel. Við
höfðum nú búist við fleira fólki en
það eiga örugglega miklu fleiri eftir
að koma.“
Guðmunda sagði að þau hefðu
fengið fregnir af því að mikið væri
um mý á staðnum og því heföu þau
byijað á að kaupa sér flugnanet
áður en þau lögðu af stað. „Það var
nokkuð um mý hér í gær en það
er þó ekki mikið um það.“ -
„Þetta hefur verið mjög fint en samt vantar nú sólina," sagði Margrét
Vera Knútsdóttir frá Seyðisfirði sem er hér ásamt eiginmanni sinum,
Jóni Halldóri Guðmundssyni, þremur börnum þeirra og vinkonu sinni,
Dagnýju Sigurðardóttur. DV-myndir ÞÖK.
Aðstaðan á svæðinu
til fyrirmyndar
Jón Halldór Guðmundsson og
Margrét Vera Knútsdóttir komu
alla leið frá Seyðisfirði með þremur
bömum sínum.
„Það voru 120 keppendur sem
komu á vegum UÍA og um 30 sem
komu frá Seyöisfiröi. Okkur líst
alveg ágætlega á þetta enn sem
komið er, sagði Jón.“
„Okkur var sagt að það hefði verið
mjög mikið um mý hér áður en við
komum en við höfum nú ekki orðið
mikið vör við það,“ sagði Margrét.
Margrét ætlar að keppa í handbolta
en Jón sagðist bara svona vera að
fylgjast með.
Þau sögðu að það hefðu ekki verið
nein læti fyrstu nóttina þeirra, að
minnsta kosti ekki á keppnissvæð-
inu þar sem þau væru með tjaldið
sitt og öll aðstaöa væri til fyrir-
myndar.
„Þetta hefur verið mjög fínt en
samt vantar nú sólina," sagði
Margrét.
Þess má geta að landsmótinu lýk-
ur með lokaballi sem hefst annaö
kvöld kl. 21. í samkomutjaldinu.