Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Side 29
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ1994
37
Trimm
- Guðmundur Harðarson kynnir nýstárlega sundkeppni í Kópavogi
Guðmundur Harðarson ætlar að fitja upp á nýmælum við Sundiaug Kópavogs. DV-mynd BG
í tengslum vlð Sundlaug Kópa-
vogs er starfræktur ársgamall
trimmklúbbur sem nýtur stöðugt
vaxandi vinsælda. Klúbbfélagar
hittast á mánudögum og míð-
vikudögum og er skipt i tvo hópa.
Annarerfyrirþásem viljaganga
eöa skokka rólega, hinn fyrir þá
sem treysta sér í ögn lengra
skokk eða hlaup. I lok hvers tíma
er gjaman synt og teygt vel á í
vellíðan heitra potta sem eru
mýmargir í Kópavogslauginni.
Auk þess er frjáls tími á laugar-
dögum sem allir nýta sér, bæði
byrjendur og lengra komnir.
Þátttakendnr greiða 1.000 krón-
ur fyrir sex vikna þátttöku. Fastir
félagar í hópnum fá 10% aukaaf-
slátt af 30 miöa kortum með
sundmiðum og greiða því i raun
aðeíns 81 krónu fyrir hverja
sundferð. Leiðbeinandi er Aðal-
steinn Jónsson iþróttakennari en
nánari upplýsingar fást í Sund-
laug Kópavogs.
Margir taka þátt í almennings-
hlaupum án þess að komast
nokkru sinni á verðlaunapall.
Fiestir eru ánægðir án þess en
aðrir hafa hent á nauðsyn þess
að skilgreina upp á nýtt í hverju
sigur felst.
Veltum fyrir okkur eftirfarandi
atriðum. Fórstu yfir marklínuna
áður en auglýsingaborðinn um
hlaupiö var tekinn niður? Þú
vannst. Þegar hlaupiö var hálíh-
aö hefðir þú getað stafað nafnið
þitt með færri en þrem villum?
Þú ert sigurvegari Fór maður
með sementspoka á bakinu nokk-
uð fram úr þér á leiðinni? Þú
vannst. Ekki spurning. Gastu
komist hjálparlaust á klósettið
daginn eftir hlaupið (það má
skríöa)? Þú vannst.
Þarna sést aö með réttu hugarf-
ari er hægt að ganga frá hveijum
leik sem sigurvegari. Góða
skemmtun í næsta hlaupi.
„Þegar norræna sundkeppnin var
tóku allir íslendingar þátt og syntu
200 metrana hver um annan þveran.
En 200 metrar er ekki nóg. Venjulegt
fólk er 6-8 mínútur að því en við
þurfum meiri hreyfingu. Með þessari
nýstárlegu sundkeppni viljum við
sýna fólki fram á að það er enginn
vandi að synda lengra og ekki eins
erfitt og margir halda. Við viljum
stuðla að aukinni þátttöku almenn-
ings í sundi og um leið kynna þá frá-
bæru aðstöðu sem býðst í sundlaug-
inni okkar hérna í Kópavogi," sagði
Guðmundur Harðarson, forstöðu-
maður í Sundlaug Kópavogs, í sam-
tali við trimmsíðuna.
Sundkeppnin, sem sérstaklega er
ætlað að höfða til almennings og köll-
uð Kópavogssund, fer fram í sund-
Umsjón
Páll Ásgeir Ásgeirsson
lauginni 4. september. Keppnin felst
í því að hver og einn syndir eins langt
og hann getur undir eftirliti sérstaks
talningarmanns og fær verðlaun fyr-
ir í samræmi við vegalengd. Þeir sem
synda meira en 500 metra fá bron-
spening, þeir sem synda meira en
1.000 metra fá silfurpening og gull er
veitt þeim sem synda meira en 1.500
metra. Sérverðlaun verða veitt þeim
sem synda lengstu vegalengdina í
aldursflokki 12 ára og yngri, 16 ára
og yngri, 17-A9 ára og 50 ára og eldri.
Þátttökugjald er 500 krónur fyrir þá
sem eru fæddir 1978 eða fyrr og 300
krónur fyrir þá sem eru yngri.
Ymislegt
til skemmtimar
„Sá sem er í meðallagi vel syndur
ætti að komast 1.000 metra á um 30
mínútum. Að áreynslu jafngildir
þetta 4-5 kílómetra skokki, “ sagði
Guðmundur.
Keppnin er haldin í samvinnu við
sunddeild Breiðabliks sem mun að-
stoða við eftirlit og annast veitinga-
sölu á svæðinu. Boðið verður upp á
kaffi og kökur og fleira gott. Einhver
tónlistaratriði eru í bígerð og ýmsar
uppkomur eru fyrirhugaðar fólki til
skemmtunar.
Sundlaug Kópavogs er ný og glæsi-
leg og reist við hlið gömlu sundlaug-
innar á Rútstúni. A þessu ári hafa
verið gerðar þær endurbætur að
gamla laugin var endurnýjuð og
grynnkuð svo nú hentar hún sérlega
vel til kennslu og er vinsæl af bama-
fólki.
Þrír nýir pottar voru settir upp við
nýja laugarkerið í sumar, þar af eiáw5
með loft- og vatnsnuddi og einn sér-
stakur bamapottur. Auk þess eru
tveir pottar við gömlu laugina enn
notaðir. Við sundlaugina er gufubað,
sólbaðsstofa, nuddstofa, lítill æfinga-
salur, fjöldi vatnsleikfanga og síðast
en ekki síst fræg rennibraut.
Akureyri á hlaupum
Hraðatafla
Þessi tafla sem sýnir mismunandi
skokk- og hlaupahraða á ýmsum
vegalengdum er ágætt hjálpartæki.
Með töflunni getur skokkari fylgst
með framförum sínum og sett sér
framtíðarmarkmið. Klippið töfluna
út og geymið. Skylt er að geta þess
aö tafla þessi er úr fómm Gísla Ás-
geirssonar í Hafnarfirði sem hefur
stundað langhlaup um árabil.
Akureyrarmaraþon fer fram í
þriðja sinn laugardaginn 23. júlí. Að
sögn Sigurðar Magnússonar í sam-
tali við trimmsíðuna taka norðan-
menn sér Reykjavíkurmaraþon til
fyrirmyndar í öllum framkvæmda-
atriðum. Þátttakendumr er boðið í
veglega pastaveislu kvöldið fyrir
hlaup, allir fá pening fyrir þátttöku,
sigurvegarar í öllum flokkum fá bik-
ar til eignar, sigurvegarar í hálfm-
araþoni fá peningaverðlaun, nýja
skó, bikar og matarboð í verðlaun.
Flugleiðir gefa öllum sem ætla að
hlaupa afslátt á flugi til Akureyrar
og bæjarstjórinn ræsir hlaupið með
pompi og prakt við íþróttavöllinn. 10
vegleg aukaverölaun verða dregin
út og sérstök pitsuverðlaun veitt 10
þátttakendum.
Boðið er upp á hálfmaraþon, 10
kílómetra og 4 kílómetra hlaup. Að
sögn Sigurðar voru tæplega 200
keppendur í fyrra en í ár er mikill
áhugi og hafa meöal annars borist
skráningar erlendis frá. Á Akureyri
er skráð á skrifstofu UFA og í símuife'
27791 og 25279 á kvöldin en í Reykja-
vík er tekið við skráningum á skrif-
stofu Reykjavíkurmaraþons í Laug-
ardal.
Tímiákm 5 km 7 km 10km 15km hálf- mara-
maraþon þon
3.00 15.00 21.00 30.00 45.00 1.03.18 2.06.35
3.10 15.50 22.10 31.40 47.30 1.06.49 2.13.37
3.20 16.40 23.20 33.20 50.00 1.10.20 2.20.39
3.30 17.30 24.30 35.00 52.30 1.13.51 2.27.41
3.40 18.20 25.40 36.40 55.00 1.17.22 2.34.43
3.45 18.45 26.15 37.30 56.15 1.19.07 2.38.15
3.50 19.10 26.50 38.20 57.30 1.20.53 2.41.45
3.55 19.35 27.25 39.10 58.45 1.22.38 2.45.17
4.00 20.00 28.00 40.00 1.00.00 1.24.24 2.48.47
4.05 20.25 28.35 40.50 1.01.15 1.26.09 2.52.19
4.10 20.50 29.10 41.40 1.02.30 1.27.55 2.55.49
4.15 21.15 29.45 42.30 1.03.45 1.29.40 2.59.21
4.20 21.40 30.20 43.20 1.05.00 1.31.26 3.02.51
4.25 22.05 30.55 44.10 1.06.15 1.33.11 3.06.23
4.30 22.30 31.30 45.00 1.07.30 1.34.57 3.09.53
4.35 22.55 32.05 45.50 1.08.45 1.36.42 3.13.25
4.40 23.20 32.40 46.40 1.10.00 1.38.28 3.16.55
4.50 24.10 33.50 48.20 1.12.30 1.41.59 3.23.57
5.00 25.00 35.00 50.00 1.15.00 1.45.30 3.30.59
5.10 25.50 36.10 51.40 1.17.30 1.49.01 3.38.01
5.20 26.40 37.20 53.20 1.20.00 1.53.32 3.45.03
5.30 27.30 38.30 55.00 1.22.30 1.56.03 3.52.05
5.40 28.20 39.40 56.40 1.25.00 1.59.34 3.59.07
5.50 29.10 40.50 58.20 1.27.30 2.03.05 4.06.09
6.00 30.00 42.00 1.00.00 1.30.00 2.06.35 4.13.11
7.00 35.00 49.00 1.10.00 1.45.00 2.27.41 4.55.22
8.00 40.00 56.00 1.20.00 2.00.00 2.48.47 5.37.34
Reykjavíkur maraþon 21. ágúst 1994:
Mikilvægt að teygja
vel eftir hlaup
- teygjur auka liðleika vöðva
8. vika
17/7-23/7 Sunnud. Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Samt. km
(10km) (21 km) 8km ról. 16km ról. hvíld hvíld 4kmról. 7kmjafnt 3kmról. hvíld 5kmjafnt 25 6kmról. 11 kmjafnt 4kmról. hvíld 7kmjafnt 44
Mjög mikilvægt er að teygja vel
eftir sérhvert hlaup. Við viðhöldum
liðleika með því að teygja. Með lið-
leika er átt við hreyfivídd í einum
eða fleiri liðamótum. Viö getum við-
haldið alhliöa liðleika líkamans með
því að fara í gegnum undirstöðu-
teygjuæfingar. Við skulum einnig
hafa það hugfast að með því að teygja
vel kemur þú í veg fyrir strengi dag-
inn eftir áreynslu. Þessar teygjuæf-
ingar hafa áhrif á stóra vöðvahópa.
Teygjuæfingar þessar finnast í bók hefur lengi fengist í bókaverslunum
höfundarins Bobs Andersons en hún hér í bæ. J.B.H.
mmmmm
VOLVO
850
Styrktaraðili Reykjavfkurmaraþons