Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Blaðsíða 39
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1994
47
Fréttir
Héraðsdómur Vestfjarða:
Málum fjölgaði um
38% á milli ára
Sláðu inn efnisflokk 1212
VERÐ KR. 39,90 MÍNÚTAN
E
Siguijón J. Sigurðsson, DV, fsafirði:
Fyrstu sex mánuði þessa árs bárust
Héraðsdómi Vestíjarða 285 mál sem
er um 38% aukning frá sama tíma í
fyrra. Þá bárust dóminum 207 mál
til meðferðar. Af þessum 285 málum
er aðeins 23 ólokið.
Dóminum hafa borist 87 aðfarar-
beiðnir á móti 31 íyrstu sex mánuði
1993 og hafa 86 þeirra verið áritaðar
um aðfararhæíl en ein var endur-
send þar sem bú aðila hafði þegar
verið tekið til gjaldþrotaskipta.
Þingfest voru 199 einkamál, tveim-
ur fleiri en á síðasta ári, og er 107
þeirra lokið. Dóminum bárust 37
gjaldþrotaskiptabeiðnir á móti 22 á
sama tíma 1993 og kveðnir hafa verið
upp úrskurðir í 18 þeirra. Stærstu
málin varða Önfirðing hf. á Flateyri
og Djúpfang hf. í Bolungarvík. Enn
á eftir að afgreiða 4 gjaldþrotaskipta-
beiðnir. Dóminum bárust 23 ákærur
á móti 22 á síðasta ári og er 22 þeirra
lokið. 13 ákærum lauk með dómi og
sjö með viðurlagaákvörðun dómara.
Þá bárust dóminum beiðnir um
fjögur sjópróf og er þeim öllum lokið.
NOKKRA DAGA
SUIHAR
MU
Bolungarvlk:
Gufa í stað elds
X
>
"T1
l
n
X
O'
k
X
BESSA- § E|/
STAÐIR ^ FJARÐARKAUP
Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísaiiröi:
Loðnubræðslan Gná í Bolungarvík
hefur endurnýjað tækjakost sinn.
Gömlum eldþurrkara var skipt út
fyrir notaðan gufuþurrkara sem
keyptur var frá Danmörku og enn
fremur var flutningskerfi verksmiðj-
Óshlíð:
Nýrvegskáli reistur
við Ófæru með stiga
Sigurjón J. Sigurðsson, DV, Ísafirði:
Þessa dagana er unnið að fullu við
byggingu nýs vegskála á Óshlíðar-
vegi. Verkið, sem er unnið af starfs-
mönnum Jóns Fr. Einarssonar, hófst
25. maí og er ráðgert að því verði
lokið 1. september nk.
Vegskálinn, sem nú er í byggingu,
er sá fjórði sem reistur hefur verið í
Óshlíð og er hann 55 metra langur
og um 8 metra breiður. Hann er við
„Öfæru með stiga“.
Að lokinni byggingu skálans lýkur
langtímaáætlun Vegagerðar ríkisins
um byggingu vegskála í Óshlíð en
langtímaáætlun um aðrar fram-
kvæmdir í hlíðinni halda áfram.
Kostnaðaráætlun við verkið var
40,8 millj. króna. Ráðgert er að bund-
ið slitlag verði sett á veginn beggja
vegna skálans í haust. Þessi vegskáli
er sá næstminnsti eða 55 m. Skáh
sem var byggður 1993 er 65 m. Veg-
skálinn við Hvanngjá ytri er 30 m og
skálinn við Steinsófæru, fyrsti skál-
inn reistur í hlíðinni, er 90 m.
unnar endurnýjað. Gná fékk fyrstu
loðnu vertíðarinnar fyrir viku þegar
Höfrungur kom með 800 tonn.
„Þetta eru mjög miklar fram-
kvæmdir. Við höfum veriö að í tvo
mánuði og ennþá er eftir að ganga
frá nokkrum lausum endum,“ sagði
Einar Jónatansson, annar eigenda
fyrirtækisins, í samtali við blaðið.
Hann segir að með nýju tækjunum
náist betri nýting á hráefninu og
hærra verð fáist fyrir gufuþurrkað
mjöl en eldþurrkað. Þá voru gömlu
tækin úr sér gengin og þörfnuðust
endurnýjunar. Framkvæmdirnar
kosta á milh 30 og 40 millj. króna.
©
C
73
ÍSBROl ■
SKÚTUHRAUN ? i 5
• v'í 'i H 5 > 5 * z
KAPLAHRAUN | | g
i g
BÆJARHRAUN 2 FH 5
REYKJAN ESBRAUT
ALI
Mikið úrval tækja |||S
og verkfæra á 1*. Ty /Q
ÓTRÚLEGU VERÐII ^Afs'Bn
ÍSBROT
OPIÐIDAGfrá kl.10-17
SUNNUDAG frá kl.13 -17
ALLA VIRKA DAGA frá 9 -18.30
KAPLAHRAUN 5.
SÍMI 653090
HATNARFIRÐI
Homstrandir:
Aðvörun um ísbirni
Sigurjón J. Sigurðsson, DV, ísafirði:
Djúpbáturinn Fagranes flutti á
fjórða hundrað manns norður á
Strandir í síðustu viku. Þar af 150
sem eingöngu fóru norður til að vera
við árlegt messuhald í Aðalvík.
Straumur ferðamanna á Strandir í
júní var fremur lítill en ásóknin hef-
ur tekið kipp það sem af er júlí.
Veðurstofa Islands varaði ferða-
menn fyrir stuttu við að ísbirnir
gætu verið á svæðinu en Reynir
Ingason, starfsmaður Djúpbátsins,
sagði að tilkynning Veðurstofunnar
hefði ekki fælt ferðamenn frá. Hann
kvaðst furða sig á því að Veðurstofan
ynni gegn ferðaþjónustu á svæðinu
með shkri tilkynningu því hætta á
að ísbirnir væru á svæðinu væri
engin.
Frystiskip Granda:
500 milljóna
verðmæti I ár
Frystiskip Granda, þrjú að tölu,
hafa veitt ágætlega á þessu ári. Land-
aður afh fyrstu fimm mánuðina var
8 þúsund tonn, aðallega karfi og út-
hafskarfi. Verðmæti aflans úr skip-
unum var komið í tæpar 500 milljón-
ir króna í lok maí sl. Þar af gaf út-
hafskarfi 182 núhjónir og annar karfi
rúmar 100 mihjónir.
Frystiskipin, Snorri Sturluson,
Þerney og Örfirisey, hafa farið í á
annan tug veiðitúra frá áramótum
og verið úti samtals í 300 daga. Fyrstu
fimm mánuðina veiddu Granda-
frystiskipin 6 þúsund tonn af úthafs-
karfa og rúm 1 þúsund tonn af öðrum
karfa. Allt þetta kemur fram í frétta-
bréfi Granda.
IIÍI
VERÐ KR. 39,90 MÍNÚTAN
l __________
—i
_i m
Spáöu í úrslit heimsmeistarakeppninnar í fótbolta meö
lesendum DV. Þú hringir í síma 99-1750 og velur efnisflokk
1212. Þú getur spáö um úrslit Búlgaríu gegn Svsþjóö , eöa
Brasusu gegn Ítalíu.
Úrslit spárinnar verða síöan birt á íþróttasíðum DV þar sem
þú getur fylgst með hversu forspáir lesendur DV eru.
Verður þú sá heppni?! Þrítugasti hver þeirra sem hringir
inn vinnur 18” pitsu frá Hróa Hfetti og 2ja lítra TAB X-TRA
frá Vífilfelli.
Þú getur sem vinningshafi hringt í Hróa Hött strax daginn
eftir og fengiö pitsuna ásamt 2ja lítra TAB X-TRA sent heim.
Síminn er 44444. / fllpfljll
VERTU MEÐI HM-SPÁNNI Í SfMA 99-1750
Síminn er 44444.
t-j
r: ■ i DVI