Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1994, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1994, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994 7 i3 v Sandkom Rogginn hlaupari Nokkrirgoö- vinirSand- : komsritara sprettuúrspori ímaraþoninuá sunnudag. Þeg- arDVbírtiöll úrslitiná inaniulag vur ákafiþoirrn þvilikurað haldamáitiaö unniðhefói veriðtílmeiri- háttar áfreka sem dáðst yrði að kyn- sióð fram afkynslóð. Kinn í þessum hópi, maður á fertugpldri, á það til að sjá airek sín i eilítið öðru Ijósi en samferöamenn. Rogginn sagðist hann hafa orðið i tvöhundmðtutt- ugastaogeinhverju sæti í sínum ald- ursflokki og átt ógleymanlegan enda- sprett að auki. Sperrtí hann sig s vakaiega Stóð svo ekki lengi þvi fijótt höiðu karlrembnir félagar hans fundið út að 50 konur hefðu haft betri tima en hann. Og ekki batnaði það þegar i ljós kom að hefði hann verið 50 ára kona hefði hann einungis lent íþriðja saití. annaðtalað þcssa dagmia enkrafta- verksasam- komuBenny HiimsiKapla- krika. Fvrir samkomuna voruaðstand- endurekkií vafaumað þarna mundu gerast krafta- verk og brostu sínu breiðasta. í þessu sambandi var ritara sagt frá miklum ruslagámi ekki iangt frá samkomu- staðnum. Ekkí spáðu menn sérstak- lega í gámirm fyrr en eftir á. Háð- fugla í milii var fuHyrt að gámurtnn hefði verið pantaður að húsinu og i hann hefði átt safna óþörfum hjálpar- tækjum læknaðra eínstakhnga; hjólastólum, hækjum og göngustöf- um. Hins vegar hefði ekki annað en tómahijóð verið i gámnum eftir kraftaverkin. Var hún súr? Eins ogvenja ervarmikið suliaðmeð injótk þgar Breiðabliks- stulkurunnu . Mjólkurbikar- inn í knatt- spymusl. sunnudag. En þegarþa-r grænklii'ddu helltumSólk- innihveryfir aðra var eftir þ ví tekið að þær virt- ust einungis hafa litlar fernur aö kreista, ekki stórar eins og mjólKur- bikarmeistarar í karlafiokki. Vakti þetta gremju margra kvenna sem á horfðu. Hins vegar vakti það meiri athygli að mjóUmrbaðið virtist fara frekariUa í þær sumar, svo Ula að virtist Uggja við uppsölu. Spurðu ófá- irþvíhvortmjölkinhefði veriðorðin gömulogsúr. Skökuðu og ældu IVikurfréttum þeirraSuður- nesjamanna máttíádögun- umlesatrétt eínhverrarsjó- hctju um sjó- stangaveiðimót semvmnufé- lagar innan deUdaKefla- víkurverktaka héldunýlega. Aflivarvíst ágætur og eins úrval tegunda. Segir meðal annars frá skipstjóra bátsins, Óla Birni, og hvatningarorðum hans til veiðimannanna. Er hér vítnað til frásagnar blaðsins: „Já, menn veiddu og veiddu, skökuðu og drógu, sungu ogældu. „Þaðþýðirekkertaðhengja haus núna, þegar aUt er fullt af fiski," kallaði hann ákveðinn tU skrifstofub- lókanna, sem útbíuðu sjóinn með tnorgimkomi og öðru ómeltu úr morgunkaflinu." Fréttír Fundað á Akureyri í dag um veiðar í Smugunni og við Svalbarða: Stjórnvöld kraf in um skýra afstöðu Fundur útgerðarmanna og stjórn- valda.sem haldinn verður á Akur- eyri í dag, markast af þeirri skýru kröfu sjómanna á Smugusvæðinu að þessir aðUar taki sameiginlega ákvörðun um það hvernig haga eigi þessum veiðum í framtíðinni. Sú krafa hvílir á stjómvöldum að þau marki skýra stefnu í þessum málum og fylgi henni fast eftir. Sjó- menn hafa að undanfomu gagnrýnt íslensk stjómvöld harðlega, og þá sérstaklega sjávarútvegsráðherra, fyrir slaka frammistöðu að þeirra mati. Ástandið í Smugunni, þar sem nú er ördeyða, hefur skapað óróleika meðal íslensku skipstjóranna sem vita af miklum fiski innan seilingar á fiskvemdarsvæðinu við Svalbarða. Þeirra krafa er skýr; þeir vUja veiöa inni á þvi svæði og krefja nú útgerð- ir sínar og stjómvöld um lausnir sem gera þeim kleift að veiða þar óáreitt- ir. Stjórnvöld í snúinni aðstöðu Sú aðstaða sem íslensk stjórnvöld eru komin í varðandi veiðar ís- lenskra skipa á þessum svæðum hlýtur að teljast snúin. Stjórnvöld hafa aUar götur frá því veiðamar hófust borið af sér ábyrgð á þeim og sagt að hver útgerð bæri ábyrgð á sínum skipum. Reyndar höfðu þau up_pi veikburða tilraunir í upphafi til að stjóma veiðum á svæðinu, m.a. með lokun á hluta Smugunnar með reglugerð. þá hafa þessar veiðar þró- ast tilvUjanakennt vegna framsækni íslenskra útgerða á Norður- og Aust- urlandi. Með fyrstu skipum á þessar slóðir var Stakfell ÞH frá Þórshöfn. Stjórnendur þess höföu þá fengið nákvæmar upplýsingar um veiði- slóðina hjá Færeyingum sem stund- uðu þessar veiðar á hentifánaskip- um. Færeyingarnir lönduðu fiski til vinnslu á Þórshöfn og þar með opn- uðust augu manna fyrir því að þama væm möguleikar fyrir íslensk skip að auka við verkefni sín sem eru tak- mörkuð á íslandsmiðum. Á síðasta hausti stunduðu svo nokkur skip þessar veiðar meö góö- um árangri. Þarna var það þó þolin- mæðin sem gilti því eftir því sem fleiri skip voru við veiðar í Smug- unni því meira rask varð á botninum og fiskurinn dreifði sér og var ekki í veiðanlegu ástandi dögum saman. Margir gáfust þvi upp og fóm heim með öngúhnn í rassinum. Hinir sem þraukuðu uppskára umbun erfiðis síns því þegar um hægðist í Smug- unni jókst veiðin. Vitað er að Norð- menn vöktuðu fiskverndarsvæðið ekki eins og nú er orðið og því gátu þeir sem höfðu til þess kjark og vilja komið þar við og jafnvef bjargað túr- um. Niðurstaða þeirrar reynslu sem komin er á Smuguveiðar er sú að Smugan þoh ekki sókn aflt að 50 skipa eins og nú eru þar. Það er því nauðsynlegt fyrir skipin að fá aðgang aö Svalbarðasvæðinu eigi veiðamar að skila árangri. Smugan er ekki Fréttaljós Reynir Traustason nema tíundi hluti af stærð Sval- barðasvæðisins og það rask sem verður af öllum þessum skipum leið- ir ördeyðu yfir allan flotann. Sú stað- reynd að íslensk skip gátu veitt á fiskverndarsvæðinu í sumar án þess að eiga á hættu að verða færð til hafnar hefur leitt til þess að menn era komnir á bragðið. Þrýstingur á það að fá að veiða á þessum slóðum er því mikifl Málið fyrir Alþjóðadómstól Einn möguleikinn í stöðunni nú er að eftir Akureyrarfundinn taki stjómvöld af skarið og vísi málinu til Alþjóðadómstólsins þar sem kraf- ist yrði veiðiréttar fyrir íslendinga á Svalbarðasvæðinu. Slíkur mála- rekstur tekur tvö til þrjú ár en ís- lendingar eiga þann millileik í stöð- unni að óska bráðabirgðaúrskurðar sem mundi tryggja þeim vinnufrið á fiskvemdarsvæðinu. Það tæki dóm- stólinn trúlega innan við einn mánuð að kveða upp slíkan úrskurð. For- dæmi þessa er að finna í landhelgis- deilu Islendinga við Breta og Þjóð- verja vegna útfærslu landhelginnar í 50 mílur. Verði slík ákvörðun tekin mun ró færast yfir flotann í Smugunni og menn trúfega hafda að sér höndum í þeirri trú að bráðabirgðaúrskurður tryggi þeim innan skamms veiðirétt næstu tvö ár. Samningaleiðin Fari svo að stjómvöld vilji fara samningaleiðina í trausti þess að Norðmenn komi að samningaborð- inu eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna í nóvember nk. mun það kalla yfir þau skriðu mótmæla og enn munu þau sökuð um finku í þessum málefnum. Tif að styggja ekki Norðmenn munu þau ekki gangast inn á þá hugmynd, sem Friðrik Guðmundsson setti fram, að útgerðarmenn og stjómvöld taki sig saman um að senda eitt skip inn á Svalbarðasvæðið sem Norð- menn myndu taka og færa til hafnar og fá dæmt eftir norskum lögum. Gallinn á þeirri hugmynd er sá að þótt eitt skip sé tekið á þessum for- sendum tryggir það ekki að öll hin geti haflð veiðar. Norðmenn munu þá tefja fyrir réttarhöldum eins og þeir mögulega geta og fari fleiri skip á Svalbarðamið er það skoðun manna að Norðmenn muni reyna að taka dýmstu skipin og færa til norskrar hafnar. Slíkt gæti jafnvel riðið einhverium útgerðum að fullu. Einhliða kvóti ekki lausn Hugmynd Jóhanns A. Jónssonar um að íslendingar setji sér einhliða kvóta á svæðinu getur aldrei orðið lausn í málinu nema sem partur af annarri lausn. Það gæti orðið til að styrkja máfstað íslands fyrir Al- þjóðadómstófnum sem ábyrgrar fisk- veiðiþjóðar. Þó svo að sú tillaga yrði samþykkt breytti það engu um málið í heild sinni. Það er Ijóst að hafi ráðherrarnir ekkert bitastætt í pokahominu á Akureyrarfundinum gæti komið til kasta útgerðarmanna sjálfra að ákveða að stefna Norðmönnum fyrir Alþjóðadómstólinn hvort sem stjórn- völdum llkar betur eða verr. Þar með munu þeir halda því frumkvæði sem þeir hafa haft frá upphafi og stjórn- völd aðeins koma að deilunni sem áhorfendur. Baldvin Þorsteinsson E A í Smugunni: Við vorum í miklum vafa með að senda skipið á þessar slóðir - segirÞorsteinnVilhelmssonskipstjóri „Auðvitað erum við smeykir, við vorum í mjög miklum vafa um hvort við ættum að senda skipið á þessar slóðir. Við getum ekki spornað við því ef Norðmönnum dettur í hug að gera eitthvað og beita okkur ein- hveijum aðgerðum," segir Þorsteinn Vilhelmsson, skipstjóri og einn aðal- eigenda Samherja hf. Óvissa er nú á Smugusvæðinu og bíða íslensku skipstjórarnir átekta. Mönnum þykir það vera nokkuð ljóst að fái Norðmenn færi á að taka skip og færa til hafnar muni þeir reyna að velja eitthvert hinna dýrari skipa og helst þau sem smíðuð em í Nor- egi og fjármögnuð að hfuta með norskum lánum. Flaggskip Sam- herja, Baldvin Þorsteinsson EA, er nú í Smugunni í fyrsta sinn og öðru hveiju heyrist um það kvittur frá Noregi að norskir bankar muni gjaldfella lán á þeim togurum sem smíðaðir em þarlendis og fengu til þess ríkistryggð lán. Þorsteinn segir engin merki þess að slíkt gerist og að engin boð hafi borist þeim vegna Báldvins. Þá segir hann ákvæði í skuldabréfl sem Norðmenn hafa ver- ið að vitna til óljóst og jafnvel eiga við skelfiskveiðar en ekki þorskveið- ar. „ Það er spuming um að senda inn á fiskvemdarsvæðið ódýrt skip og knýja fram niöurstöðu i þessum málum,“ segir Þorsteinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.