Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1994, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994
9
Utlönd
Skilduerfingj-
anneinaneftir
ílautarferð
Massimo Altieri, flmm ára gam-
all ítalskur drengur, var skilinn
aleinn eftir úti í skógi eftir aö fjöl-
skylda hans hafði verið þar í laut-
arferð.
Massimo fannst skömmu síðar
grátandi og vegvilltur, 150 kíló-
metra frá heimili sínu 1 Róm.
Varð að gefa dreng ís til að hafa
hann hægan meðan lögreglan
leitaði að fjölskyldunni.
í ferð Altieri-Fjölskyldunnar
voru 13 manns og veitti enginn
því athygli að einn vantaöi þegar
haldið var heim. Afmn var með
i fór og héldu foreldrarnir aö
Massimo hefði farið með honum
en afinn að hann hefði farið með
foreldrunum.
Massimo komst heim heill á
húfi og útataður í ís eftir fimm
klukkutíma ævintýri úti í hinum
stóra heimi.
Evrópusambandið:
Óákveðnir
Norðmenn
vilja aðild
Skoðana-
kannanir í
Noregi benda
til að fiestir
þeirra sem: til
þessa hafa tek-
ið afstöðu til
Evrópusam-
bandsíns muni
samþykkja aðild í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni í nóvember.
Síðustu kannanir sýna að já-
mönnunum er stöðugt að fjölga.
Nei-menn halda sínu en óákveðn-
um fækkar. Um 45% aðspurðra
segjast nú vera á móti en 32%
með. Þríðjungur kjósenda er því
enn óákveðinn. Um hugi þeirra
mun Gro Harlem Brundtland
berjast næstu mánuði við Evr-
ópuandstæðinga.
Finnarsláfyrri
met í útflutningi
Flnnar gera sér nú vonir um
að einni alvarlegustu efnahags-
kreppu í sögu landsins sé lokið.
Útflutningur eykst óðfluga og var
á fyrra helmingi þessa árs meiri
en nokkru sinni fyrr. Vöxturinn
nemur 16% miðað við fyrra helm-
ing síðasta árs. Innflutningur
hefurásamatímaaukistum 11%.
Hrun Sovétríkjanna kom illa
við Finna en um 30% af útflutn-
ingstekjum þeirra komu frá
risanum í austri. Nú hefur tekist
aö vinna nýja markaði á Vestur-
löndum. fieuterogNTB
Díana prinsessa stendur höllum fæti vegna símaatsins:
Ráðabrugg hjá
drottningunni
- segir virtur hirösagnfræðingur um nýjustu uppákomuna
Heittsúkkulaði
Súkkulaðisalar í Belgíu kvarta
sáran eftir hitabylgjuna í sumar.
Almenningur varö að svala sér á
ís og gosi í hitunum þannig að
lítið bráðnaði af sætindunum á
tungum landsmanna.
„Ég þekki vel hvernig ráð eru
brugguð í konungshöllinni. Þar er
engu eirt og enn einu sinni er Díana
prinsessa fórnarlambið," segir Judi
Wade, virtur breskur hirðsagnfræð-
ingur, sem nú hefur snúist á sveif
með Díönu í vandræðum hennar
vegna umtalaðs símaats.
Wade gefur í skyn að alla uppá-
komuna megi rekja til Elísabetar
drottningar, sem vilji ýta prinsess-
unni endanlega út í kuladann. Wade
spáir því þó að Díana muni á endan-
um fara með sigur af hólmi í þessari
lotu í baráttunni við tengdafólk sitt
í Buckhinghamhöll.
Launráð í höliinni?
Fréttin af meintu símaati Díönu hjá
sameinginlegum vini hennar og
Karls prins er nú hætt að snúast um
hver hringdi og andaði í símann hjá
vininum. Nú þykjast menn sjá að
einhver standi fyrir ófrægingarher-
ferð gegn prinsessunni. Sjálf hefur
hún ítrekað sagt aö einhver vilji sér
illt en hefur ekki viljað segja hver
bruggi þau launráð.
Lögreglan hefur orðið að verja
hendur sínar í málinu. Sir Paul Con-
Díana prinsessa á nú í miklum erfið-
leikum og liggur undir ámæli fyrir
simaat. Fylgismenn hennar vilja þó
rekja atmálið allt til Elísabetar
drottningar.
Lét liminn fyrir að
tæla tvær stúlkur
Kólumbíski sælgætissahnn Marco
Velez fer ekki á fjörurnar við fleiri
stúlkur í bráð. Hann kom í gær inn
á sjúkrahús í heimabæ sínum Tula
og bar sig aumlega. Hann hafði hálf-
um mánuði fyrr tælt til sín tvær
ungar stúlkur með samræði í huga.
Þeim leik lauk svo að snótirnar
skáru af honum getnaðarhminn sof-
andi.
Marco er fertugm- að aldri. Hann
var við vinnu sína á götu í Tula þeg-
ar stúlkurnar tvær gengu fram hjá.
Hann blístraði á eftir þeim og bauð
þeim heim að undangengnu skjalli
og blíðmælgi ýmiss konar. Stúlkurn-
ar saklausu fóru með og virtust í
fyrstu til í tuskið.
Þær gáfu kavalernum tyggjó áður
en gengið var til sængur. Meir man
Marco ekki því að í tyggjóinu var
eitur sem svæfði hann á augabragði.
Að morgni saknaði hann bæði
kvennanna og lims síns.
Marco sagðist í gær hafa skammast
sín svo óskaplega vegna fyrirsjáan-
legrar fótlunar að hann beið í hálfan
mánuð með að leita til læknis. Nú
er honum tjáð að ekkert verði úr
þessu gert til að ráða bót á meininu.
Aðeins um 10% eru eftir af limnum
og ágræðsla óhugsandi.
Marco stendur því langt að baki
þjáningarbróður sínum, Bandaríkja-
manninum John Bobbitt, sem er
frægastur allra limskertra manna.
Læknar björguðu stolti hans með
viðunandi árangri.
Reuter
don, lögreglustjóri í Lundúnum,
gekk í gær fram fyrir skjöldu og lýsti
því yfir að hans menn hefðu ekki
yfirheyrt Díönu vegna símaatsins og
hætt rannsókninni þegar símhring-
ingarnar voru raktar í íbúð hennar.
Leki hjá löggunni?
Lögreglan á þó eftir að upplýsa
hver lak fréttinni um lögreglurann-
sóknina á símaatinu til íjölmiðla. í
því efni greinir menn á um hvort
lekinn kom frá lögreglunni eða úr
sjálfri konungshölhnni. Á þeim bæj-
um báðum bjuggu menn yfir vitn-
eskju um málið.
Hugo Vickers er annar hirðsagn-
fræðingur sem hefur tjáð sig um
stöðu Díönu. Hann segir að Díana
hafi vart átt erfiðari tíma frá því hún
skildi að borði og sæng við Karl
mann sinn fyrir tveimur árum.
„Prinsessan er á hálum ís,“ segir
hann. „Hún hefur ekki verið svo illa
stödd um langan tíma og er nú ein-
angraðri en nokkru sinni fyrr.“
Fleiri hafa orðið til að taka í sama
streng enda hefur Díana ekki lengur
fríða sveit hirðmanna til að verja
heiður sinn. Reuter
CJI£J
33. leikvika, 20.-21. águst 1994
Nr. Leikur:
1. Hammarby ■
2. Malmö FF
3. Frölunda
4. Örebro
5. Arsenal
6. Chelsea
7. C. Palace •
8. Everton
9. Ipswich
10. Man.Utd. -
11. Sheff.Wed -
12. Southamptn-
13. West Ham -
Trelleborg
Öster
Norrköping
AIK
Man. City
Norwich
Liverpool
Aston V.
Notth For.
QPR
Tottenham
Blackburn
Leeds
Röðir
2
X
2
1
1
1
2
X
2
1
2
X
X
Heildarvinningsupphæð:
75 milljónir
REIÐHJOLAUTSALA - VERSLIÐ ODYRT
10-15%
AFSLÁTTUR
14,5-52,5%
GEGN STAÐ-
GREIÐSLU
20" Verð frá kr. 13.900. stgr. 13.205.
24" Verð frá kr. 17.280. stgr. 16.416.
26" og 28" frá kr. 16.600, stgr. 15.770.
28" 10 gíra kr. 15.750. stgr. 14.962.
20" fjölskylduhjól kr. 15.400, stgr.
14.630.
HJÓLIN ERU AFHENT SAMSETT 0G STILLT A FULLK0MNU
REIÐHJÓLAVERKSTÆÐI. ÁRSÁBYRGÐ 0G FRÍ UPPHERSLA Á NÝJUM HJÓLUM
VARAHLUTIR
0G ViÐGERÐIR,
VANDIÐ VALIÐ 0G
VERSLIÐ í SÉRVERSLUN
20" m/fótbremsu, stgr. frá 15.105.
20" 12 gíra. stgr. frá 18.900.
24" 18 gíra, stgr. frá 20.430.
26" 18 gíra. stgr. frá 20.430.
26" 21 gírs. stgr. frá 26.930.
Barnastólar frá
HAMAX, viður-
kenndir og vandaðir,
tilboð kr. 2.900, verð
áðurkr. 3.800. Barna-
hjálmar, BELL, kr.
1.000, unglinga-
hjálmar, BOERI,
kr. 2.490.
Ármúla 40.
Símar 35320
688860
NOTUÐ HJÓL Á FRÁBÆRU VERÐI
ALGENGT VERÐ KR. 3.000-6.500
Verslunin