Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1994, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994
11
Mermincr
Um síðustu helgi var norræn al-
þýðutónlistarhátíð haldin hér á
landi. Fór hún að mestu fram í
Norræna húsinu, en einnig var
spilað á Ingólfstorgi, í Kolaportinu,
Hafnarfirði og víðar. Hátíðinni
lauk svo með tónleikum á Hótel
Sögu á sunnudagskvöldið og mun
hér greint frá þeim í stuttu máli.
TónJist
Ingvi Þór Kormáksson
f upphafi kynntu Njáll Sigurðs-
son, Sigurður Rúnar Jónsson og
Bára Grímsdóttir ýmis íslensk
þjóðlög, þar á meöal tvísöngslög.
Einnig voru íslenska fiðlan og lang-
spilið kynnt og auk þess kveðið úr
bæði Númarímum og Disneyrím-
um. Mörgum þykir kannski ótrú-
legt að rímnasönglög (eða rímna-
söngl) geti verið heillandi en það
jaðraði við að svo væri hér og tókst
þeim þremenningum vel upp. Svíar
tefldu fram spilamönnum úr Döl-
unum. Framlag þeirra hófst með
því að einn fiðlaranna, Anna Ristn-
er, hóf upp raust sína og voru þau
hljóð í óvönum eyrum enn undar-
legri en rímnakveðskapurinn rétt
áður. Markus Svensson lék því
næst mjög fallegt lag á sérkennilegt
hljóðfæri sem kallast nyckelharpa.
Annars voru fiðlur í aðalhlutverk-
um hjá Svíunum og líka hjá Norð-
mönnunum sem á eftir komu en
þar voru það reyndar harðangurs-
fiðlur auk langspils. Þeir voru hpr-
ir spilarar eins og þeir sænsku og
ekki voru þeir síðri í dansmennt-
inni. Eiginlega var tillag þeirra jafn
mikið ætlað augum og eyrum. Bún-
ingar beggja þjóða voru fallegir og
ekki af nýjustu tísku.
Er hér var komið sögu létu ís-
lendingar aftur til sín taka. Haukur
Sigtryggsson hvað nokkrar vísur á
léttum nótum, Reynir Jónasson lék
íjögur íslensk þjóðlög á harmoníku
og saman komu þau fram Ólína
Þorvarðardóttir og Arnþór Helga-
son í nýjum hlutverkum sem
kvæðamenn og var debut þeirra
með ágætum.
IN4FUN nefnist finnska hljóm-
sveitin sem næst var á dagskrá.
Voru þar sænskættuð ungmenni á
ferð með fiðlur, harmoníku og gít-
ar. í polka sem þau fluttu virtist
sem aðskotatónar flæktust með en
ónefndur skottís var skemmtilegur
og hafði þá bæst við harla frum-
stætt slagverkshljóðfæri með
nokkru norðurhjarayfirbragði.
Meðal yngri kynslóðar sænska
þjóðarbrotsins í Finnlandi er víst
mikill áhugi á þjóðlegri tónlist en
ungir „alvöru“ Finnar una sér ef
til vill betur við rokk, jenka og
tangó. - Rafvædd ballgrúppa, Balt-
inget, var fulltrúi Dana; ekta
gömludansahljómsveit sem spilar
víst gjarnan á krárböllum á sínum
heimaslóðum á Jótlandi. Tvær fiðl-
ur, harmoníka, gítar og kontra-
bassi í góðri sveiflu hleyptu stuði í
mannskapinn eftir fremur hátíð-
lega dagskrá. Og svo var slúttað
með Piparsveinapolka, Sjómanna-
skottís og fleiru og sáu um það liðs-
menn Harmoníkuunnenda ásamt
dönsurum, fiðluleikurum og
söngvurum frá Þjóðdansafélagi
Reykjavíkur.
VEISTU
að húsbúnaðardeild
H úsgagnahallarínnar
er smám saman að spyrjast
út fyrír fallegt úrval og
LAQT VÖRUVERÐ.
Húsgagnabollin
Stm hefur það alU
KvLkmyndir
Guðlaugur Bergmundsson
Þá er ekki annað eftir en að finna einhvem söguþráð
til að spinna utan um þessar persónur þar sem þeim
gefst öllum kostur á að sanna sig, bæði fyrir sjálfum
sér og félögum sínum, sýna sanna fórnarlund á hættu-
stund og almennt umbreytast í góðan gæja. Phil líður
ekki jafn bölvanlega og hann hélt, Glen er traustsins
verður og Duke hættir við að svindla á félögum sínum.
Og það sem mennirnir taka sér fyrir hendur er leit
aö fóldum gullfiársjóði sem segir frá á uppdrætti sem
Mitch fann saumaðan inn í hatt Curlys. Gulhð drífur
þá áfram en í raun skiptir gullið ekki máli, heldur
sannleikurinn sem þeir komast að um sjálfa sig. Eða
hvað? Verða menn í Ameríku ekki að fá einhverja
umbun erfiðisins?
Billy Crystal lætur sig dreyma um hetjulíf kúreka.
Varla verður þessi gullleitarferð Crystals og kó til
fiár í hinum harða raunveruleika ef gæði myndarinn-
ar ráða einhverju þar um. Hér hefur greinilega verið
kastað til höndunum við undirbúninginn því brandar-
arnir eru fáir og langt er á milli þeirra, auk þess sem
þeir eru bara alls ekkert fyndnir. Leikararnir eiga hka
í mestu vandræðum með sig, enda kannski ekki þeir
allra bestu, Jack gamh Palance er þó þeirra skástur.
En falleg kvikmyndataka og landslag standa fyrir sínu.
Það nægir þó ekki til að bjarga þessari mynd frá glötun.
Gullæðið (City Slickers. The Legend o( Curly's Gold).
Handrit: Billy Crystal, Lowell Ganz og Babaloo Mandel.
Leikstjóri: Paul Welland.
Leikendur: Billy Crystal, John Lovitz, Daniel Stern, Jack Pal-
ance.
Polki eða
polska
- norræn alþýðutónlistarhátíð
Stjömubíó - Gullæðið: ★ V2
Betra gull af
manni en gull
Billy Crystal og félagar hans gerðu það greinilega
svo gott með City Slickers númer eitt að þeir ákváðu,
eins og svo margir hafa gert á undan þeim og margir
eiga enn eftir að gera, aö höggva einu sinni enn, að
minnsta kosti, í sama knérunn og gera aðra mynd um
hina firrtu borgarbúa úti í guðsgrænni, eða þannig,
náttúrunni.
Undirritaður sá ekki fyrri myndina en fastlega má
gera ráð fyrir að höfuðpersónurnar séu hinar sömu,
útvarpsstjórinn Mitch (Crystal) sem er orðinn fertug-
ur, aulabárðurinn Phil (Stern), besti vinur hans og
undirsáti, og Glen (Lovitz), bróðir Mitch og ónytjung-
ur. Eina persónuna vantar þó, sjálfan kúrekann aldna,
Curly sem við hinir óinnvígðu fræðumst um að hafi
látist í fyrri myndinni og verið jarðsettur einhvers
staðar úti í kúrekaauðnum Ameríku. En höfundar
deyja þó ekki ráðalausir því í staðinn kemur Duke
(Palance), bróðir Curlys og tvífari.
Sviðsljós
Sigurvegarar í ökuleikni
Sigurvegarinn, Páll Halldórsson, ásamt Ragnari Magnússyiii, sem fékk
önnur verðlaun, og Sævari Gunnarssyni sem fékk þriðju verðlaun.
Anna Kr. Hansdóttir hlaut fyrstu verðlaun í kvennaflokki. í öðru sæti hafn-
aði Helga Jónsdóttir og í þvi þriðja Guðlaug Kristinsdóttir.
Lokaumferð Ökuleikni 1994 fór
fram helgina 12.-14. ágúst. Sigurveg-
ari í karlaflokki að þessu sinni var
Páll H. Halldórsson en í kvennaflokki
hlaut Anna Hansdóttir fyrstu verð-
laun.
Nýr haust- og vetrarlisti. 1300 bls. með frá-
bærum fatnaði á alla fjölskylduna; skólafötin,
vinnufötin, tískufatnaður, hér er það allt.
Gjafavara, heimilisvara, tæknivörur, búsáhöld,
allt fyrir heimilið.
Nýir sérlistar:
Madeleine, tískulistinn
lch mag's, stór númer
Euro Kids, barnalistinn
Image, fyrir unga fólkið
Aktive Freizeit, frístundalisti
Pantaðu lista eða komdu í nýja verslun
okkar og kynntu þér vörutilboð okkar.
LISTAKAUP HF.
DALVEGI 2, KÓPAVOGSDAL,
200 KÓPAVOGI. SÍMI 64-2000
• ÞÝSKAR GÆÐAVÖRUR
• STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI
• GOTT VERÐ
• ÍSLENSKUR ÞÝÐINGARLISTI
Word
Námskeið á
myndböndum
— Hagavík hf—
( 644244