Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1994, Qupperneq 14
14
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994
dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT 8. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÖNSSON
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFÚR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk.
Skyndibitakra fta verk
Vestur í Bandaríkjunum reka margvíslegir sértrúar-
söfnuðir sérstakar sjónvarpsstöðvar og draga þar fram
svokaUaða trúboða sem predika orð Guðs með áköllum,
hrópum og hávaða. Þessir menn eru fæstir guðfræðingar
að mennt heldur sjálfskipaðir útverðir Drottins og segj-
ast hafa það til brunns að bera að geta framkaUað krafta-
verk. Syndugir og sjúkir eru leiddir í hálfgerða dáleiðslu
og tilbeiðslu og áður en varir eru fyrrgreindir sjónvarps-
predikarar orðnir að hálfguðum og frelsurum í augum
safnaðarmeðhma. Og raka saman fé í krafti boðskapar-
ins.
Einn þessara hálfguða, Benny Hinn að nafpi, sótti ís-
land heim nú í vikunni fyrir forgöngu Fíladelfíusafnaðar-
ins og hvorki meira né minna en fjögur þúsund manns
fylltu íþróttahúsið í Kaplakrika til að hlýða á predikun-
ina. Einkum virtist þó mannsöfnuðurinn mættur til að
fá bót meina sinna hjá kraftaverkamanninum.
Ekki skal gert lítið úr trúaráhuga þeirra sem stóðu
að samkomunni né heldur þeirra sem þangað mættu.
Fíladelfíusöfnuðurinn á íslandi er virtur og vel þekktur
söfnuður hér á landi og vammlaus í sinni trú. Eflaust
er Benny Hinn trúaður og góðhjartaður maður og sagt
er að samkoman í Kaplakrika hafi verið ólík þeim messu-
gjörðum sem tíðkast hér á landi. Enda verður því ekki
logið upp á þá Bandaríkjamenn að þeir kunni ekki að
troða upp. íslenska kirkjan mætti margt læra af kirkju-
starfi fyrir vestan. Yfirþyrmandi sorgar- og hátíðarblær
yfir venjulegu messuhaldi á íslandi er flestu venjulegu
fólki torskilinn og fráhrindandi. Hvers vegna þurfa trúar-
athafnir alltaf að vera svo drungalegar og alvarlegar að
enginn megi þar hósta né brosa? Á ekki trúin að vera
til gleði og uppörvunar?
En margt má á milli vera og skammt öfganna á milli
og erfitt að gera það upp við sig hvort betur eigi við,
hlátur eða grátur þegar sýnt er frá því hvar fólk í hjóla-
stólum og alvarlega sjúkt fólk mætir til trúarsamkomu
hjá hinum bandaríska sjónvarpspredikara í von um
kraftaverk.
Fólk fær ekki lækningu á sjúkdómum sínum eða mein-
um með áköllum til Guðs í himnum. Og það fær ekki
neina bót á eymslum eða meiðslum með snertingu frá
Benny Hinn, hversu góðviljaður sem hann kann að vera.
Hér er að ferðinni loddaraskapur og leikaraskapur sem
er því andstyggilegri sem hann hefur einlæga trú fólks
að leiksoppi. Saklaust og leitandi fólk er dregið á tálar.
Trúin er hins vegar af hinu góða þegar hún felst í
andlegum styrk enda eru huglækningar góðra gjalda
verðar með öðru og enginn vafi er á því að einbeiting
hugar og viljastyrkur ráða miklu um ástand og líðan
hvers einstaklings.
Vel kann það að vera að einhverjum líði betur 1 ná-
vist bænarinnar þegar bandarískur sjónvarpspredikari
fer fagmannlega með sín guðsorð á fjöldasamkomum og
leiðir viðstadda í trans, alveg eins og menn verða saddir
á skyndibitastað. En sá skyndibiti seður ekki hungur til
eilííðamóns fremur en kraftaverkin hans Benny Hinn.
Sú uppákoma sem átti sér stað í Kaplakrikanum verð-
ur ekki tekin alvarlega og er nánast grín ef ekki væri
verið að hafa trúna og sakleysið í farteskinu. í ofanálag
er fólki gert að greiða í samskotabauka fyrir að fá að
taka þátt í dýrðinni. Hvert renna þeir peningar? Benny
Hinn hefur hótað því að koma aftur og hver á þá að
borga brúsann? Varla ætlar guðsmaðurinn að framkalla
kraftaverk fyrir ekki neitt? Ellert B. Schram
„ísland hefur mikla sérstööu vegna einhæfni atvinnulifsins og þýðingar sjávarútvegsins,“ segir m.a. í grein
Ein'ars.
Vegvísir
til framtíðar
Þaö má segja aö samningurinn
um hið Evrópska efnahagssvæöi
hafi verið rökrétt framhald á þeirri
braut sem ísland hefur fariö í utan-
ríkismálum síöustu áratugina. Um
þennan samning var mjög deilt á
fyrri hluta þessa kjörtímabils. Nú
eru þessi átök hins vegar aö baki.
Þaö er athyglisvert að í allri
þeirri umræðu sem hefur fariö
fram um kosti og galla ESB-aðildar
hefur aldrei bólað á kröfu um aö
viö segjum okkur frá EES-samn-
ingnum. Þaö hlýtur að segja sína
sögu, ekki síður en sú yfirlýsing
eins helsta andstæöings EES-
samningsins, Steingríms Her-
mannssonar, aö „eftir að EES-
samningurinn var geröur erum við
komnir með viðskiptasamning sem
okkur dugar fullkomlega".
Liggur á?
Undarlegt má þaö heita aö nú er
talað þannig aö okkur hggi reiðinn-
ar ósköp á viö aö taka grundvall-
arákvarðanir um afstöðu okkar til
Evrópusambandsins, ESB. Að-
stæður hafi breyst svo, er fullyrt,
vegna þess aö fjögur EFTA-ríki
hyggi nú á inngöngu í Evrópusam-
bandið.
Nú er þaö svo aö það hefur lengi
legið fyrir aö stjórnvöld fjögurra
EFTA-ríkja hafa viljaö sækja um
aðild aö ESB. Þetta var til dæmis
ljóst á meðan við ræddum EES-
samninginn. Þess vegna var það
eðlilegt að Alþingi samþykkti án
mótatkvæða að taka upp viðræður
við Evrópubandalagið (síðar ESB)
um tvíhliða samskipti þess og ís-
lands. Raunar kemur fram í sjálfri
ályktuninni að það sé beinlínis gert
vegna þess að tilgreind fjögur ríki
hyggi nú á aðild að ESB.
KjaUariim
Einar K. Guðfinnsson
alþingismaður fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn á Vestfjörðum
Dregið úr stofnanaþættinum
Þær aðstæður sem þá ríktu eru
til staðar nú. Það er til dæmis alveg
jafn óljóst nú og þá hvort þjóðir
þessar samþykki aðild í þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Raunar er flest sem
bendir til þess að Norðmenn hafni
ESB-aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu
nú í haust.
För Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra fyrr í sumar til Brussel
skýrði margt í Evrópuumræðunni.
I mínum huga var það mikilvægast
sem þar kom fram aö ráðamenn
ESB töldu vel gerlegt að draga úr
stofnanaþætti EES-samningsins ef
EFTA-ríkin fjögur gengju í ESB.
Þar með var endanlega úr gildi fall-
in veigamesta röksemdin sem hald-
ið var á lofti fyrir aðild okkar að
Evrópusambandinu.
Óhugsandi nú
Það er ekkert að því að menn
velti fyrir sér kostum og göllum
ESB-aðildar. En þá mega menn
aldrei gleyma því að ísland hefur
mikla sérstöðu vegna einhæfni at-
vinnulífsins og þýðingar sjávarút-
vegsins. Þó allt annaö væri í okkar
huga jákvætt við ESB-aðild þá er
hún alveg óhugsandi nú meöan
sjávarútvegsstefna sambandsins er
við lýði. Við háðum öll okkar
þorskastríð til þess að tryggja yfir-
ráðin yfir fiskimiðum okkar. Því
viljum við ekki glata.
Þess vegna eru vangaveltur um
aðildarumsókn að ESB í einum
hvelli gjörsamlega tilefnislausar og
fráleitar. Alþingi hefur sagt hug
sinn með samningnum um hið Evr-
ópska efnahagssvæði og vfija til
viðræðna við ESB. Það er vegvísir
okkar til næstu framtíðar.
Einar K. Guðfmnsson
„Þess vegna var það eðlilegt að Alþingi
samþykkti án mótatkvæða að taka upp
viðræður við Evrópubandalagið (síðar
ESB) um tvíhliða samskipti þess og Is-
lands.“
Skoðanir annarra
Framtak í bændastétt
„Sá kraftur sem í bændastéttinni býr kemur eink-
ar vel fram þessa dagana í einstæðu framtaki tveggja
ijölskyldna bændafólks nyrðra að stofna hlutafélag
og efna til glæsilegrar landbúnaðarsýningar sem nú
stendur yfir. ... Þetta framtak gefur fólki í sveit og
þéttbýli tækifæri til þess að kynnast landbúnaðinum
og þeim krafti og þeim möguleikum sem eru í þess-
ari grein, þótt erfiðleikar steðji að.“
Úr forystugrein Tímans 23. ágúst.
Halaróf uaðgerð olíufélaganna
„Allar útskýringar olíufélaganna um að eitt félag-
anna hafi tekiö ákvörðun um hækkað verð og hin
fylgt samtímis í kjölfarið verka óneitanlega tvímælis
á almenning. í fyrsta lagi er skýringin ótrúverðug
og í öðru lagi verður þessi halarófuaðgerð að teljast
einstæð í vörusölu samkeppnisaðila, hérlendis jafnt
og erlendis.... Hvernig má þaö vera að öll olíufélög-
in hafa ákveðið að hækka bensínverð samtímis, þrátt
fyrir þá staðreynd að cif-verð á bensíni hafi farið
lækkandi frá áramótum eins og fram hefur komið í
verslunarskýrslum frá Hagstofu íslands?"
Úr forystugrein Alþbl. 23. ágúst.
Engu að tapa
„Það er viðurkennt af Benny Hinn, að ekki lækn-
ast allir, sem eftir því leita á samkomum hans. Það
er því tómt mál að tala um, að lækningum sé lofað.
en hverju tapa þá þeir, sem ekki læknast? Ekki er
um aö ræða fjárútlát, því aðgangur er ókeypis. Sjúk-
dómurinn er að vísu enn fyrir hendi, en hins vegar
verður lækning að teljast ólíkleg, þótt ekki heíði
verið sótt samkoman. Það er því erfitt að sjá, hvaða
tjón hefur hlotist."
Baldur Pálsson í Mbl. 23. ágúst.