Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1994, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
Frjálst óháð dagblaö
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994.
Hálendisferð:
Skotið á mann
gegnum
lokaðar
kamardyr
Maöur hlaut talsveröa áverka eftir
aö hafa fengið haglaskot í andlit um
höna helgii
Maöurinn var ásamt félögum sín-
um á Sultarfitjum á Tungnamanna-
afrétti og var gist í kofa sem þar er
og þurfti maðurinn að bregða sér á
kamar. Einn félaginn ætlaði að gera
honum grikk og skjóta á hurö kam-
arsins. En hann fór haglavillt, tók
stærri högl en hann hafði ætlað, og
svo fór að þau gengu í gegnum þykk-
an krossviðinn í hurðinni. Mörg
þeirra höfnuðu í andliti mannsins
sem var fluttur í heilsugæslustöðina
í Laugarási þar sem Hulda Brá
Magnadóttir læknir reyndi að gera
að sárum hans:
„Mér var sagt að þetta hefði verið
slys. Höglin voru mikið til við augn-
krókinn og ég treysti mér ekki til
þess að hreinsa allt í burtu. Ég sendi
hann því til Reykjavíkur til frekari
meðferðar."
Lögreglan á Selfossi staðfesti að
málið væri í rannsókn og sagði að
það færi sína leið til saksóknara því
hér væri augljóslega um að ræða
vítavert gáleysi í meðferð skotvopna.
Morfíniog
astmalyfjum
stoliðfrálækni
Morfini og bricanyl-astmalyfjum
var stohð úr tösku læknis á stofu
hans á heilsugæslustöðinni að Sól-
vangi í Hafnarfirði í fyrrinótt. Lög-
reglan telur ekki útilokað að þarna
hafi sami þjófur verið á ferð og sá
eða þeir sem tóku talsvert magn af
róandi lyfjum úr fórum dýralæknis
á Suðurnesjum fyrir helgina.
Farið var inn á tveimur stöðum í
húsnæði heilsugæslunnar - storm-
járn var spennt upp í stofu læknisins
en einnig var farið inn í herbergi við
hhð aðalinngangs en þar var umslag
tekið sem innihélt 6 þúsund krónur
í peningum.
Ördeyöa í Smugimni:
Haldaheim
Ördeyða er nú í Smugunni eða allt
niður í nokkra fiska í hah. Einhverj-
ir ísfisktogarar eru þegar á heimleið
án þess að ná fullfermi. Togarinn
Hólmanes frá Eskifirði lagði af stað
heimleiðis í gær með um 70 tonna
afla, en skipið getur tekið upp undir
200 tonn af ísfiski. Þá er togarinn
Runólfur á heimleið með rýran afla.
LOKI
Erþaðsattaðeina
kraftaverkið í Kaplakrika hafi
verið að KR sigraði FH?
Héraðsdómur Reykjavikur klæða áður en haldiö var með flug- í gæsluvarðhald á meðan málið var inginn.
dæmdi i gær fimm mamis, þar af véltilíslands22.marsl992.Þannig rannsakað. Fimmti aðilinn í þessu dómsmáli
þtjú systkin, í tveggja til tólf mán- var maðurinn frumkvöðull aö til- Systirin og yngri bróðirinn voru var einnig dæmdur í gær. Höfuð-
aða fangelsi fyrir að hafa flutt til raun til innflutnings á þremur kíló- bæði dæmd i þriggja mánaða fang- paurinn fékk hann th aö flytja 733
landsins samtalstæplega fimmkiló umafhassi. elsi. Framangreindur fjórði aðili í grömm af hassi og 4 grömm af
af hassi í þremur ferðum á árinu Fjórmenningamir voru hand- málinu var dæmdur í 9 mánaða marijúana til landsins 1. nóvember
1992, teknir þegar þeir komu til íslands. fangelsi i gær en hann var einnig 1992. Eins og í hinum tilvikunum
33 ára karlmaður, sem er elstur Systkin höfuðpaursins og fjórðí sakfelldurfyriraðhafa.ásamtelsta undirbjó höfuðpaurinn efnin til
systkinanna, var dæmdur fyrir að aðilinn höfðu límt á sig eitt kiló af bróðurnum, staðið að innflutningi flutnings en fékk annan til að flytja
hafa skipulagt og staðið aö inn- hassi hvert en sjálfur var hann á einu kílói af hassi til íslands í þau í flugvél til landsins.
flutningi á megninu af efninu. ekki með efni á sér þegar farið var byriun mars sama ár. Höfuðpaur- Mennirnir voru dæmdir fyrir að
Hann fékk systur sína, 26 ára, og heim. „Burðardýrin" áttu að fá um inn hafði í því tilviki keypt hass í hafa staðið sameiginlega að þess-
bróður, sem er 22 ára, til að flytja 150 þúsund krónur hvert fyrir Rotterdam og þaö síðan verið flutt um innflutningi i ágóðaskyni.
hass til landsins eftir að hafa farið flutninginn, auk þess sem ferðir til Lúxemborgar. Þar var hassið Burðardýrið var dæmt í tveggja
með þeim til Hollands og hjálpað þeirra voru greiddar. Fíkniefnalög- festviðlikamaþessfyrrnefndasem mánaða fangelsi fyrir sinn þátt i
þeim og fjórða aðila, 21 árs karl- reglan handtók fólkið við komuna flutti það til íslands. Hann átti að máhnu.
manni, að koma því fyrir innan- til landsins og fékk það úrskurðað fá 150 þúsund krónur fyrir flutn-
Skákþing íslands hófst í Vestmannaeyjum i gær með keppni í landsliðsflokki. Tólf keppendur taka þátt í mótinu
sem stendur til 3. september. í fyrstu umferð unnu þeir Rúnar Sigurpálsson, Jóhann Hjartarson, Sævar Bjarnason
og Helgi Ólafsson sínar skákir gegn þeim Þresti Þórhallssyni, Magnúsi Pálma Örnólfssyni, Stefáni Þór Sigurjóns-
syni og Jóni G. Viðarssyni. Skák Hannesar Hlífar Stefánssonar og James Burden lauk með jafntefli en skák Guð-
mundar Halldórssonar og Páls Agnars Þórarinssonar fór í bið. DV-mynd Ómar Garðarsson
Akureyrarfimdurinn:
skipta gróðan-
um f yrirfram
„Mér þykir það miður að heyra að
menn eru fyrirfram farnir að skipta
gróðanum af þessum veiðum og ríf-
ast um það hvernig honum megi
skipta,“ segir Sveinn Ingólfsson,
framkvæmdastjóri Skagstrendings
h/f, við DV í morgun þar sem hann
var á leið til fundar við aðra útgerð-
armenn á Akureyri.
Sveinn er þarna að vitna til þess
að útgerðarmenn hafa sumir sett
fram ákveðnar kröfur um kvóta í
Barentshafinu og komið hafa fram
ákveðin sjónarmið um það hverjir
eigi að njóta góðs af veiðunum.
„Ég þekki dæmi um að menn hafa
stofnað hlutafélög og byrjað á þvi að
skipuleggja skemmtiferðir til út-
landa fyrir hugsanlegan hagnað.
Þetta er í sama anda. Ég fer á þennan
fund án fyrirfram mótaðra skoðana.
Ég ætla að hlusta á rök manna áður
en ég mynda mér ákveðnar skoðan-
ir,“ segir Sveinn.
Akureyrarfundurinn hófst klukk-
an 10 í morgun þar sem útgerðar-
menn og stjómvöld ætla að ráöa ráð-
um sínum varðandi Svalbarðadeil-
una.
Veöriðámorgun:
Rigning á
Austfjörðum
Á morgun verður suðaustlæg
og austlæg átt, sums staðar
strekkingur norðaustanlands en
annars hægur vindur. Rigning á
Suðausturlandi og Austfjörðum
og eins einhver væta á Norðaust-
ur- og Suðurlandi. Veðrið verður
hins vegar þurrt lengst af um
landið norðvestanvert.
Veðrið í dag er á bls. 28
Reimar og reimskífur
1*oulsen
Suðurlandsbraut 10. S. 680499.