Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Side 2
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994 Fréttir Lögreglan rannsakar dularfuHt hvarf þriggja hrossa 1 Mosfellsbæ: Hrossin fengu hvorki vott né þurrt í 3 vikur - fundust innilokuö og orðin grindhoruð 1 útihúsi 1 nágrenninu „Þetta eru bara sjúklingar núna. Ég hef hrossin í húsi og gef þeim meöal annars vítamín. Fyrst fengu þau sprautu og þeim var gefiö reglu- lega. Ég er ekki viss um að þau fari úr hesthúsi fyrr en í vor. Þau verða jafnvel ekki búin að ná sér fyrr,“ sagði Kristján Guðmundsson á Hrafnhólum í Mosfellsbæ í samtali viðDV. Lögreglan rannsakar hvarf þriggja af hrossum Kristjáns sem talin eru hafa verið lokuð inni í útihúsi skammt frá í þrjár vikur. Næsta jörð er Skeggjastaðir og þar fundust hrossin. Nýir eigendur þar, meðal annars Baltasar Kormákur leikari, fundu hrossin þar sem þau voru illa á sig komin í einu af útihúsunum en þar eru hús sem eitt sinn voru notuð undir minkabú. Lögreglan var látin vita og eigandinn í framhaldi af því. áhyggjufullir „Stjómin samþykkti einróma að senda formanni framkvæmda- stjórnar Alþýðuflokksins bréf vegna umræðna um málefni og störf Guðmundar Árna Stefáns- sonar. Innihald bréfsins gerum við ekki opinbert þar sem sam- þykkt var að það færi ekki til fjölmiöla," segir Bolli Valgarðs- son, formaður Félags ungra jafii- aðarmanna í Reykjavik. Samkvæmt heimildum DV samþykkti 10 manna stjóm SUJ í Reykjavík í vikunni ályktun sem er efnislega nánast sam- hljóða þeirri sem Félag frjáls- lyndra jafnaðarraanna sam- þykkti á miðvikudaginn. 1 þeirri samþykkt var þess krafist að Guömundur Ámi geri hreint fyr- ir sínum dyrum en segi ella af sér sem ráðherra og varaformaður flokksins. Bréf ungkrata var sent Guömundi Oddssyni, formanni framkvæmdastjórnar flokksins. Stuðningur í Hafnarfirði Mál Guömundar Áma kom einnig til umræðu á fundi sfjóm- ar Alþýöuflokksfélagsins í Reykjavík í vikunni. Engar sam- þykktír voru gerðar á fundinum en samkvæmt heimildum DV komu fram miklar áhyggjur hjá stjórnarmönnum yfir þeirri stöðu sem flokkurinn er kominn í vegna umræðunnar um Guð- mund Áma. ■ Guömundur Ámi á þó einnig stuðningsmenn í Alþýöuflokkn- um. í gær sendu stjóm fulltrúar- áðs f Hafnarfirði og bæjarfulltrú- ar flokksins þar f bæ frá sér álykt- un, þar sem „áróðursherferð Qölmiöla", sem svo er nefnd, gegn honum er fordæmd. Er lýst full- um stuöningi við Guömund Árna. Framkvæmdastjórn Alþýðu- flokksins mun koma saman til fundar ánæstudögum tíl aðræða þá gagnrýni sem komið hefur fram, innan sem utan flokksins, á störf Guðraundar Áraa. Á fund- inum verður tekin ákvörðun um hvenær næstí flokksstjómar- fundur veröur haldinn til að taka á málinu. Buist er viö að fundur- inn veröi haldinn 24. september eða 1. október. Kristján Guðmundsson með hrossin í gær þegar hann hleypti þeim úr húsi. Hann segir að þau muni sennilega ekki ná sér fyrr en næsta sumar. DV-mynd GVA Ásakanimar á hendur Guðmundi Áma Stefánssyni: Fráleitt að tala um samsæri í f lokknum - segir Margrét S. Bjömsdóttir, formaður öjálslyndrajafhaðarmanna Guðmundur Ámi Stefánsson fé- lagsmálaráðherra sagði í viðtali viö DV í gær að það vektí athygli sína að formaður Félags frjálslyndra jafn- aðarmanna, sem krefst þess að Guð- mundur komi á fund í flokknum og hreinsi sig af ávirðingunum, væri Margrét S. Bjömsdóttir, aöstoðar- maður Sighvats Björgvinssonar heil- brigöis- og tryggingaráðherra. Guð- mundur hefur einnig sagst hafa heyrt sögur um að ávirðingamar, sem dunið hafa á honum undanfarið, séu skipulagðar í Alþýðuflokknum. Hann segist aftur á mótí ekki hafa viljað trúa því fram til þessa. - „Enginn úr forystuliði flokksins, hvorki þingmenn né ráðherrar, vissi af því þegar við vorum að semja þessa ályktun og samþykkja hana. Enginn, hvorki Sighvatur Björgvins- son né aðrir. Sighvatur hefur verið erlendis síðastliðnar tvær vikur og ég hef ekki rætt þetta mál við hann,“ sagði Margrét S. Bjömsdóttir, for- maður félagsins og aðstoðarmaður Sighvats Björgvinssonar, þegar hún var spurð um málið. - Hafnar þú því að hér sé um aðför að Guðmundi Árna aö ræöa sem sé skipulögð innan Alþýðuflokksins? „Ég tel alveg fráleitt að halda því fram að flokksmenn skipuleggi þetta. Það eru ekki flokksmenn sem skipu- leggja embættísfærslur Guðmundar Áma Stefánssonar. Það em ekki flokksmenn sem skipuleggja það hvað fjölmiðlar fjalla um og hvað ekki. Við erum einungis að bregðast við upplýsingum sem fram hafa komið og hans svörum viö þeim sem við teljum ekki fullnægjandi. Við tökum á þessu stígi enga efnislega afstöðu. Viö teljum hins vegar að' þetta hafi valdið trúnaðarbresti milli ráðherrans og almennings og okkar floksmanna. Þess vegna viljum við að þetta verði rætt á vettvangi flokksins. Og það hlýtur að vera kærkomið tækifæri fyrir Guðmund Áma aö ræða þar málin við sína flokksfélaga.“ -- Þykir þér hann ekki hafa gert það í greinum sínum og viðtölum? „Nei, okkur íinnst það ekki.“ Kjördæmisþing sjálfstæðismanna hefst á Vestflörðum í dag: Margir tilbúnir í próf kjörsslaginn - prófkjör líklega um miðjan október Kjördæmisþing sjálfstæðismanna á Vestfjörðum verður haldið á ísafirði um helgina. Þingið hefst í dag og stendur í tvo daga. Þar er að vænta ákvörðunar um prófkjör. Reiknað er með því að samþykkt verði að halda prófkjör sem þá yrði haldið um miðj- an október. Það er búist við mikilli baráttu í prófkjöri og margir em í startholun- um. Einar K. Guðfmnsson, Guðjón A. Kristjánsson og Einar Oddur Kristjánsson munu allir gefa kost á sér í efstu sætí listans. Þá hefur Ólaf- ur Hannibalsson lýst því yfir aö hann muni taka þátt í prófkjöri ef af því verður. Talið er líklegt að Steinþór Gunnarsson, ísafirði, muni fara fram. Ásgeir Þór Jónsson, Bolungar- vík, staðfesti í samtali við DV að hann mundi gefa kost á sér. Þá em Gísh Ólafsson, Patreksfirði, og Sig- ríður Hrönn Elíasdóttir, Súðavík, tahn líkleg í baráttuna. Þá heyrist nafn Hildigunnar Lóu Högnadóttur á ísafirði nefnt. Það liggur fyrir að margir muni taka þátt í baráttunni og líklega aldrei fleiri. Geirþrúður Charlesdóttir, formað- ur kjördæmisráðs, sagðist eiga von á því að samþykkt yrði að efna tíl próf- kjörs. „Ég var búinn að leita hrossanna og var farinn að hallast að því að þeim hefði verið stohð,“ sagöi Kristján. Óljóst er hvemig hrossin komust mn í framangreint útihús. Aðrar dyr hússins era innkeyrsludyr en hinar eru með renniloku. Því er alls ekki tahð útilokað að hrossin haíi verið lokuð inni af mannavöldum. Þau höfðu verið í giröingu ásamt fleiri hrossum og því var því ekki veitt sérstök eftirtekt þegar þau hurfu. Mögulegt er aö hrossin þrjú hafi far- iö að útihúsunum þegar hópurinn slapp út fyrir girðingu. Kristján sagði að eitt af hrossun- um, Hnokki, heföi verið selt til út- landa en af því gæti ekki orðið með sama hætti og áætlað hefði verið. Hin hrossin voru talin efnileg eins og Kristján orðaði það. Stuttar fréttir Háttsettur embættismaður hjá ráöherraráði Evrópusambands- ins gorir ekki ráð fyrir íslandi í hópí þeirra 16 nýju ríkja sem væntanlega verða gengin í sam- bandið árið 2004. RUV greindifrá þessu. Eftir helgi fer fram í Reykjavík ráðstefna um notkun og sam- ræmingu á þekkingu frumbyggja við vemdun umhverfis á norður- slóöum. Ráðstefnuna sækja full- trúar Norðurlandanna, Banda- ríkjanna, Kanada og Rússlands. Þörfáfrekaramati Skipulagsstjóri ríkisins hefur úrskurðað að frekara mat á um- hverfisáhrifúm þurfi að fara fram vegna lagningar Drangsnes- vegar um Selströnd í Steingrims- firði, milli Hálsgötugils og Hellu. Landgræðsluverðlaun Daviö Oddsson afhenti í gær landgræðsluverðlaunin 1994 við athöfn í Gunnarsholti. Verðlaun- in hlutu Ámi Gestsson, Böðvar Jónsson, Gautlöndum, og Skóg- ræktarfélag Garðabæjar. Gæruseljendur segja aö verð- stríö sé í gangi vegna harðrar keppni Skinnaiðnaðar á Akur- eyri og Loðskinns á Sauðárkróki um allar fáanlegar gærur til sút- unar. Samkvæmt RÚV má einnig vænta innílutnings á gærum. Frimerkjafróðleikur Norrænir unglingar keppa í spumingakeppni um frimerki á norrænu unglingasýningunni sem haldin er á Kjarvalsstöðum um helgina. Landssamband ís- lenskra frímerkjasafnara stend- ur fyrir sýningunni. Davíö Oddsson forsætisráö- herra segir mál Guðmundai- Ama Stefánssonar félagsmála- ráðherra alfarið innanhússmál hjá Alþýöuflokknum. Bylgjan greindi frá þessu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.