Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Page 6
6
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994
Stuttar fréttir
Utlönd
lifidef lotterí
John Major segir nýtt happ-
drætti verða til hagsbóta fyrir
Breta alla.
Eyjóifitfhressíst
Heilsufar Frakka fer skánandi
þrátt fyrir of mikla víndrykkju
og of xnargar sígarettur.
Stjórninofaná
Ríkisstjóm
Pouls .. Nyrups
Rasmussens,
forsætisráð-
herra Dan-
merkur, og
flokkar sem
eru lengst tii
vinstri njóta
fylgis 53,5 prósenta kíósenda en
hægriflokkamir 45,5 prósenta,
samkvæmt nýrri könnun.
Balladurliklegastur
Franskir kíósendur telja aö
Edouard Bailadur forsætisráö-
herra verði næsti forseti.
Banniaflétt
Breska stjórnin ætlar að aflétta
banni við að útvarpa röddum
leiðtoga Sinn Fein, pólitísks arms
IRA.
Rannsakað á Kýpur
Rannsóknin á moröinu á
danska leiösögumanninum Lou-
ise Jensen á Kýpur mun taka eina
til tvær vikur.
Verða ekki með
Samtök heittrúaðra múslíma í
Alsír taka ekki þátt i viðræðum
um framtíð landsins í næstu viku.
Varaðirvið
Bandarískir þegnar á Haití hafa
verið beðnir um að búa sig undir
innrás og sanka að sér vistum.
PáfiogBusheinhuga
Jóhannes Páll páfi og George
Bush eru báðir andvígir innrás
Bandaríkjamanna á Haítí.
Ahovekurreiði
Orð Eskos
Ahos, forsætis-
ráðherra Finn-
lands, um aö
finnska þingiö
kynni aö fresta
að taka ákvörð-
un um hvort
Finnland geng-
ur í Evrópusambandiö, hefur
vakið reiði stjómmálamanna.
Stöðva hjálparflug
Bresk samtök hafa stöðvað
hjálparflug til Sarajevo.
Jeltsin fram
Helsti talsmaður Jeltsíns Rúss-
landsforseta sagði að lýöræöisöfl-
in gerðu rétt í að treysta á fram-
bOð hans 1996. Reuter, Ritzau
Allt klárt fyrir innrás Bandaríkj amanna á Haítí:
Hraðarhendur
Bandaríski herinn ætlar að hafa
hraðar hendur eftir næturinnrásina
sem verður væntanlega gerð á Haítí
á næstu dögum og senda hersveitir
um allt landið til að ná því á sitt vald.
„Viö höfum gert þaö lýðum ljóst
að við viljum takmarka mannfall
eins og hægt er. Þetta verður ekki
nein smáaðgerð. Við vfljum fara út í
sveitir landsins' með hraði til að
koma í veg fyrir ofbeldisverk fylk-
inga Haítímanna," sagöi háttsettur
embættismaður í bandaríska vam-
armálaráðuneytinu sem ekki vildi
láta nafns síns getið.
Innrásaráætlunin gerir ráð fyrir
því að sérsveitir flotans og aðrar sér-
sveitir laumist fyrst á land í höfuö-
borginni Port-au-Prince til að afla
upplýsinga og undirbúa þyrluárás
frá flugmóðurskipinu America með
þátttöku tvö þúsund hermanna.
Á svipuðum tima munu allt að tvö
þúsund menn úr 10. fjallaherdeild-
inni koma frá flugmóðurskipinu Eis-
enhower inn til höfuðborgarinnar og
um 1800 landgönguliðar flotans
munu koma með þyrlum til Cap-
Haitien á norðurhluta eyjarinnar.
Yfirmenn í hernum segja að allt
verði til reiðu fyrir innrás í dag eða
á morgun en herforingjastjórn Haítí
hefur enn tækifæri til að fara sjálf-
viljug frá svo hægt verði að finna
friðsamlega lausn á deilunni. Clinton
Bandaríkjaforseti aflýsti fyrirhug-
aðri fjáröflunarferð tÚ Kaliforníu á
sunnudag vegna þessa.
Frönsk stjórnvöld ætla að senda
sveitir til frönsku eyjarinnar Mart-
inique í Karíbahafi til að hægt verði
að flytja franska þegna og aðra Evr-
ópubúa burt frá Haítí verði lífi þeirra
stefnt í voða í innrás Bandaríkja-
manna. Reuter
Gaulversku kapparnir Steinríkur og Astrikur hafa kætt margan manninn með uppátækjum sínum síðustu áratug-
ina. Þeir voru í London i gær til að halda upp á 25 ára afmæli fyrstu ensku útgáfunnar á ævintýrum þeirra.
Bækurnar um þá félaga hafa verið þýddar á 57 tungumál. Símamynd Reuter
Veðsett í útlöndum og 1 eigu fárra fjölskyldna:
Svíþjóð eins og bananalýðveldi
Eru það þegnar bananalýðveldis
sem ganga að kjörborðinu á sunnu-
dag þegar sænskir kjósendur flykkj-
ast á kjörstaði?
Þétta er ein þeirra spurninga sem
menn hafa verið að velta fyrir sér í
Svíþjóð undanfarna daga og sá sem
lýsir landinu sem bananalýöveldi er
dálkahöfundurinn Ulf Nilsson í blað-
inu Expressen.
Nilsson segir að Svíþjóð uppfylli
öll venjuleg skilyrði fyrir slíkri nafn-
gift: Landið er veðsett í útlöndum og
það eru aðeins nokkrar fjölskyldur
sem eiga þaö. í Svíþjóð er þaö einkum
Wallenbergfjölskyldan sem sfjómar
Ericsson, ÁBB, S-E bankanum og
flestum öðrum stórfyrirtækjum.
Umdeildar staðhæfingar Nilssons
fengu svo aukið vægi þegar bæði
Peter Wallenberg og fjórir af æðstu
mönnum fyrirtækja hans blönduðu
sér í kosningabaráttuna og vöruðu
við skattahækkunum. Þeir sögðu að
þær myndu skaða samkeppnisstöðu
sænskra fyrirtækja og þeir kynnu
því að neyðast til að flytja fyrirtæki
sín til útlanda.
Ailir litu á útspil kaupsýslumann-
anna sem árás á þau áform jafnaðar-
manna aö hækka skatta á tekjur yfir
vissu lágmarki.
Þá eru það erlendir fjárfestar sem
fjármagna stóran hluta gífurlegrar
lántöku sænska ríkisins en skuldir
þess nema rúmlega 1300 milljörðum
sænskra króna.
Samkvæmt síðustu skoðanakönn-
unum fær jafnaðarmannaflokkur
Ingvars Carlssons 44 prósent at-
kvæða og verður hann því að fara í
samsteypustjórn með einum eða
tveimur flokkum til að hafa meiri-
hlutastuðning á þingi á bak við sig.
Ritzau, Reuter
Rotterdam-markaður:
Bensínverð
hrynur enn
Bensínverð á markaði í Rotterdam
hrundi í vikunni. Á einni viku hefur
verðið lækkað um allt aö 10%. Þann-
ig fór tonnið af 92 okt. bensíni úr 160
í 145,50 dollara og 98 okt. úr 183,50 í
168 dollara. Lækkunin er rakin til
offramleiðslu og mikilla birgða.
Svipuð lækkun átti sér stað á 95
okt. bensíni en olían hefur breyst
minna. Þannig hefur svartolía í raun
hækkað um einn dollar tonnið und-
anfama viku. Hráolían hefur lækkað
lítillega svo og gasolían.
Hlutabréfaverð í stærstu kauphöll-
um heims er almennt lægra en fyrir
viku síðan ef Wall Street er undan-
skilin. Væntingar um lækkandi verð-
bólgu varö til þess að Dow Jones
hlutabréfavísitalan náði sínu hæsta
frá því í febrúar sl.
Kauphallir og vöruverð erlendis |
2250 DAX-30
2200 [>
2150 fti Vi/M\
2íooJ U
2000 2113,98
j j Á S
2150i
210001
. >20500 1
jsfíOOOO
i .19500
19796,26
Á S
Sophia Loren
sextug í næstu
vikuenslung
ítalska kvik-
myndaleikkon-
an Soplúa Lor-
en holdur upp á
sextugsafmæliö
sitt í næstu
viku en hún
liefur þó aldrei
kosið þar sem
hún er of ung, að eigin sögn.
„Innst inni er ég enn eins og
tólf ára bam. Ég er yngri en böm-
in mín,“ sagði Lqren í viðtali við \
ítalskt timarit. „Ég hef aldrei kos- ;
iö þar sem ég hef ekki aldur til
þess.“ Sophia er gift kvikmynda- :
framleiöandanum Carlo Ponti og |
eiga þau tvo uppkomna syni. „Ég í
trúi á hjónabandið, vinnuna,;
börnin, tryggðina og mínar eigin '
rætur,“ sagði leikkonan.
Andstæðingar
ESB í Noregi eru
fastirfyrir
Nákvæmlega helmingur kjós-
enda 1 Noregi segist ætla að
greiða atkvæöi gegn aöild lands-
ins að Evrópusambandinu í þjóð-
aratkvæðagreiöslunni í nóvemb-
er en aðeins 28 prósent munu
samþykkja aöild. Tuttugu og tvö
prósent kjósenda eru óákveðin.
Þetta kemur fram í nýrri skoð-
anakönnun sem birtist í blaðinu
Aftenposten í gær. Hún sýnir
einnig að andstæðingar em fastir
íyrir og aö það muni ekki breyta
miklu þótt Svíar og Finnar sam-
þykki aðild.
Reyndar hefur andstæðingum ].
ESB fjölgað um tvö prósentustig;
miðað við síðustu könnun Aften- i
posten en stuðningsmönnum hef- j
ur aftur á móti fækkað um þrjú i
prósentustig.
Sjómenn
hundóánægðir i
meðþorskkvót- |
ann í Eystrasalf i
Dönsku sjómannasamtökin ero
afar óánægð með niðurstöður
samningaviðræðnanna um
þorskkvótann í Eystrasalti á
næsta ári og kalla þær „hrikaiega
lélegar".
Sjómennirnir krefjast bóta trá
stjórnvöldum, m.a. til að leggja
skipum sínum, ef sjómenn á
Borgundarhólmi og aðrir þeir
sem stunda veiðar í Eystrasalti
eiga að komast klakklaust í gegn-
um næsta ár.
Allt bendir til aö þorskkvótinn
verði 100 þúsund tonn en danskir
sjómenn, þýskir og sænskir krefj-
ast 200 þúsund tonna kvóta.
UffeEllemann
sagðiósattum
fjárstuðning
Uffe Elle-
mann-Jensen,
fyrrom utan-
rikisráðherra
Danmerkur, er
sakaður um að
hafa sagt ósatt í
sjónvarpsum-
ræðura á
fimmtudagskvöld þegar hann
sagði að flokkur hans, Venstre,
hefði ekki þegiö íjárstuöning frá
samtökum í landbúnaöi.
Flokkurinn þáði sem svarar um
hálfri milljón íslenskra króna í
kosningasjóö frá samtökum
ntjólkurframleiðenda og segir
Uffe að það sé stuðningur frá
samtökum úr atvinnulíflnu.
Varaforseti búnaðarsambands-
ins segir hins vegar að Uffe sé að
reyna aö þvo hendur sínar af
málinu. Reuter, NTB, Ritzau