Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Síða 11
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994
11
Fréttir
Innanlandsflugsfyrirtækis Flugleiða bíður erfitt verkefni:
Byrjað verður á að
lækka áhaf narkostnað
- til að minnka gríðarlegt tap af innanlandsfluginu
Heimildarmönnum DV innan flug-
málageirans ber saman um að erfitt
verkefni bíði forráðamanna fyrir-.
tækisins sem Flugleiðir ætla að
stofna í kringum innanlandsflugið.
Undanfarin fimm ár hefur tapast í
kringum 1 milljarður króna af innan-
landsfluginu og hafa Flugleiðamenn
fengið sig fullsadda af taprekstrin-
um. Til að byrja með er reiknað með
áframhaldandi tapi hjá nýja félaginu
en fyrsta verkefnið verður að lækka
áhafnarkostnað. í hlutfafli af heild-
arrekstrarkostnaði er kostnaður
vegna áhafna Flugleiða talinn með
þeim hærri sem tíðkast hjá sambæri-
legum flugfélögum.
Áhafnarkostnaður Flugleiða á síð-
asta ári var í kringum 230 milljónir
króna. Það er um 24% hlutfall af
rekstrarkostnaði innanlandsflugs-
ins. Hjá sambærilegum flugfélögum
í Evrópu og Ameríku er hlutfaflið
15-20%. Þetta er hlutfall sem ætlunin
er að lækka hjá nýju fyrirtæki um
innanlandsflugið.
í fréttatilkynningu frá Flugleiðum
kemur fram að viðræöur hefjist við
starfsfólk og stéttarfélög hið fyrsta
um breytingar á starfsemi félagsins
og „nauðsynlegar breytingar sem
gera þarf á kjarasamningum vegna
þeirra“.
Tryggvi Baldursson, formaður Fé-
lags íslenskra atvinnuflugmanna,
FÍA, sagði við DV að félagsfundur
væri boðaður eftir helgi þar sem
þessi mál yröu rædd og í kjölfarið
mætti vænta viðræðna við Flugleiða-
menn.
Ekkert útilokar óbreytt ástand
„í okkar huga er ekkert ljóst í þessu
nema það að núverandi kjarasamn-
ingur og starfsaldurskerfi gerir ekki
ráð fyrir aðskilnaði á þennan hátt.
Hins vegar er ljóst að þetta nýja félag
mun þurfa að sækja ýmsa þjónustu
tfl móðurfélagsins. Því er ekkert sem
útilokar óbreytt ástand og félagið
leigi bara starfskrafta flugmanna af
móðurfélaginu," sagði Tryggvi.
Hjá Flugleiðum hefur þetta verið
þannig aö menn byrja sem flugmenn
innanlands, verða svo flugmenn í
millilandaflugi, síðan flugstjórar
innanlands og loks flugstjórar í milli-
landafluginu.
Tryggvi sagðist ekki sjá möguleika
á stórfelldum breytingum á kjara-
samningum flugmanna þar sem
þeim hafi oft verið breytt undanfarin
ár til að auka hagræðingu í rekstri
Flugleiða. „Að sjálfsögðu munum við
ekki samþykkja skert kjör en við
erum opnir fyrir viðræðum sem
mögulega fela í sér einhveijar
áherslubreytingar sem geta leitt til
hagkvæmni í rekstri," sagði Tryggvi.
Sitja uppi með Fokkerana
Annar stór þáttur, sem bíður úr-
lausnar nýs fyrirtækis, er flugvéla-
kosturinn. Flugleiðir eru með fjórar
Fokker 50 vélar á kaupleigu frá
Fokker-verksmiðjunum og hafa ver-
ið í vandræðum meö verkefni fyrir
eina vélina. Flugleiðamenn segja að
Fokkerarnir borgi sig ekki nema á
fjórum stærstu áætlunarstöðum fé-
lagsins: Akureyri, Egilsstöðum,
ísafirði og Vestmannaeyjum. Hins
vegar sagði einn reyndur flugmaður
við DV að 19 sæta vélar dygðu á öll-
um leiðum nema milh Akureyrar og
Reykjavíkur.
STÖÐVUM BILINN
f við þurfum að
ila í farsímann!
y^JFEROAR
Flugleiðir sitja í rauninni uppi með
Fokker-vélarnar - því samkvæmt
kaupleigusamningnum geta þeir los-
að sig við eina vél árið 1997 en þá
næstu ekki fyrr en árið 2002. Árið
1997 verður einkaleyfi Flugleiða til
nokkurra áætlunarstaða afnumið í
samræmi við flugmálareglur EES-
samningsins þannig að rekstur
Fokker-véla gæti reynst enn erfiöari
eftir þann tíma.
Hringdu
iflnig
íkvöld.
einn+eim
99 18 30
39,90 mín.
PONÍÍl
mmm
sioustu »«e*ft/4M}ntyUNfm
FRÁBÆRT ÖRVAL AF ÓOÝRRI VÖRU, TIL OÆMIS:
Saba VR-6828 myndbandstœki
m/scart-tengi, fjarst., 365 daga
upptökuminni o.m.fl.
51,900,-
Samsung SCM-81UU ni|omtœkiasam-
stœða 2x60W, geislasp., kass,-
tœki, útv., magnari, hót.og fjarst.
59.900, *
Samsung CX-6833ZN 28"
Nicam-stereo sjónvarp m/ ísl.
textavarpi, Super VHS, scart-tengi
o.m.fl.
69.900,.-
Saba T-7048 28" Nicam-stereo
sjónvarp m/ ísl. textavarpi, Super
VHS, scart-tengi o.m.fl.
69.900,:
greiðslukjör
við allra hœfi
Hraðþjónusta víð landsbyggðina:
sr»t númer:
(Kostar innanbœjarsímtal og
vörumar eru sendar samdcegurs)
Grensásvegi 11
Sími: 886 886 Fax: 886 888