Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Page 24
24 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994
Fréttaljósmynd ársins 1993, Börnin í Intifadahreyfingunni. Myndin er af drengjum á Gazasvæðinu en hana tók kanadískur Ijósmyndari, Larry Towell. Þessi mynd og fieiri verðlaunamyndir
World Press Photo verða til sýnis í Kringlunni 30. septembertil 15. október. Mynd: Larry Towell, Kanada. Magnum Photos, USA.
Fréttaljósmyndasýningin World Press Photo '93 hefst í Kringlunni 30. september:
Drengir á Gazasvaeðinu
með byssur á lofti
- átökin á Gazasvæðinu verkefni kanadíska ljósmyndarans Larrys Towells
Þegar uppreisnin á Gazasvæðinu
hófst árið 1987 þjappaði hún Palest-
ínumönnum saman um þaö mark-
mið að hrinda af sér hersveitum ísra-
ela. Börn og unglingar voru þar eng-
in undantekning og tóku virkan þátt
í baráttu Intifadahreyfingarinnar við
ísraelska hermenn. í mars í fyrra var
kanadíski ljósmyndarinn Larry
Towell staddur á Gazavæðinu og sá
þá hvar palestínskir drengir mund-
uðu leikfangabyssur til merkis um
andóf sitt. í því augnabliki tók hann
þá mynd sem valin hefur verið frétta-
ljósmynd ársins 1993 eða World Press
Photo of the Year.
Myndin af. drengjunum á Gaza-
svæðinu og aðrar verölaunaðar
fréttaljósmyndir verða til sýnis á
sýningunni World Press Photo sem
hefst í Kringlunni föstudaginn 30.
september og stendur til 15. októher.
Verðlaunamyndin hér að ofan var
hluti af 9 mánaða verkefni ToweUs á
Gazasvæöinu og austurhluta Jerú-
salem. Röð mynda úr þessu verkefni
Towells má sjá í flokki almennra
fréttamynda á sýningunni. Sýna þær
vel átökin og spennuna á Gazasvæð-
inu sem náöi hámarki í maí í fyrra
þegar 30 Palestínumenn voru drepn-
ir og hundruð særðir.
Auk þess að velja fréttamynd árs-
ins 1993 er valin mynd ársins í flokki
barnamynda en hana velur dóm-
nefnd skipuð bömum frá ýmsum
löndum. Fyrir valinu varð svarthvít
mynd af bami við söfnun á ösku-
haugum. Var myndin tekin í ná-
grenni Manila á Filippseyjum, á
svæði sem kallast Smokey Mountain,
en þar búa um 3000 fjölskyldur innan
um hauga af sorpi.
Sýningunni World Press Photo er
skipt í flokka og eru veitt verðlaun
fyrir þrjár bestu myndirnar í hverj-
um flokki. Þessir flokkar eru: frétta-
myndir af atburðum, almennar
fréttamyndir, fólk í fréttum, íþróttir,
tækni og vísindi, listir, náttúra og
umhverfi og daglegt líf. Flokkunum
er síðan skipt í flokka stakra mynda
og myndraðir (stories).
Meðal myndefnis á sýningunni er
byltingartilraunin í Moskvu, stríðið
í Bosníu, eiturlyfjaneysla í Banda-
ríkjunum, fyrirburar, flóðin miklu í
Bandaríkjunum og ýmsar skemmti-
legar myndir úr daglegu lífi fólks í
öllum heimshomum.
Háttí
23 þúsund myndir
Að sýningunni hér á landi standa
DV, Hans Petersen og Kringlan. Sýn-
ingin var einnig haldin í Kringlunni
í fyrra. Fékk sú tilhögun mjög góðar
undirtektir.
Alþjóðleg dómnefnd kom saman í
febrúar í ár. Við blasti ærið verkefni
þar sem 22.775 myndir 2.429 ljós-
myndara frá 93 löndum biöu skoöun-
ar.
Ljósmyndasýningar á vegum
World Press Photo hafa verið haldn-
ar frá árinu 1955. Að baki stendur
sjóður sem hefur það að markmiði
að verðlauna bestu fréttamyndir
hvers árs. Höfuðstöðvamar eru í
Hollandi en verðlaunaféð kemur frá
styrktaraðilum víða um lönd.
Skemmtilegustu
sumarmyndirnar
Á sama tíma og bestu fréttaljós-
myndir heims hanga í Kringlunni
verða einnig til sýnis verðlauna-
myndirnar í sumarmyndasam-
keppni DV og Hans Petersens,
Skemmtilegasta sumarmyndin.
Verða sjö verðlaunamyndir stækk-
aðar hjá Hans Petersen af því tilefni.
Verðlaunaafhending í sumarmynda-
samkeppninni verður sunnudaginn
2. október þar sem veitt verða vegleg
verðlaun fyrir bestu og skemmtileg-
ustu myndirnar.
„Þaö mætti nota myndir mínar í
fréttir en ég hef meiri áhuga á að
segja sögur. Ég keppi ekki viö sjón-
varp sem varpar kastljósum á hlut-
ina í stað þess að lýsa umhverfið.
Fyrir tilkomu sjónvarpsins fengu
Ijósmyndarar mikið af langtíma-
verkefnum en nú er eins og við eig-
um aö vera á bak við sjónvarps-
myndavélamar til aö snapa hljóö i
staö þess aö stunda persónulega
blaðamennsku," er haft efdr kana-
díska ljósmyndaranum Larry To-
welL
Larry Towell tóaut World Press
Photo-verðlaunin fyrir bestu
fréttamynd ársins 1993. Hann nam
ljósmyndun í Toronto en til að eiga
fyrir salti í grautinn kenndi hann
þjóðlagatónlist á árunum 1979-
1989. A þessu ári ar væntanleg bók
eftir Towell, undir nafninu Gaza,
þar sem margar mynda hans frá
Gazasvæðinu eru birtar ásamt
texta. Er þetta sjötta bók hans en
hann héfur áður samið ljöð auk
þess að gefa út ljósmyndabækur.
Towell býr í sveitinni i Ontario þar
sem hann vinnur Ijósmyndir, sem-
ur ljóð og stundar jarðrækt.