Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Síða 30
38 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994 Hún sá hina hliðina í flóttamannabúðum Rúandamanna: Maður sér árangnr Þessi mynd var tekin af Mariönnu (í miðið) í Afganistan ásamt tveimur innfæddum stúlkum sem hún þjálfaði og kenndi. starfs síns - segir Maríanna Csillag sem er nýkomin frá Tansaníu „Eg býst við að þetta hafi verið ævin- týraþrá í upphafi. Ég kynntist fólki sem hafði starfað í flóttamannabúö- um og það hafði áhrif. Mig langaði að prófa enda virtist þetta heillandi starf,“ segir Maríanna Csillag, 33 ára hjúkrunarfræðingur, sem er nýkom- in heim eftir þriggja mánaða dvöl í Tansaníu þar sem hún aðstoðaði flóttafólk frá Rúanda. í desember 1991 fór Maríanna í fyrsta skipti til hjálparstarfa en sú ferð var mjög afdrifarík. Það var í Afganistan þegar Jón Karlsson hjúkrunarfræðingur var myrtur af skæruhðum. „Þegar ég fór til Af- ganistan hafði verið stríð í gangi milli skæruliða og Rússa í þrettán ár þannig að maður átti ekki von á neinum breytingum á því. Svo illa vildi til að Rússarnir fóru og skæru- hðar gerðu árás á borgina. Það var hræðhegt að missa einn starfsmann og alveg ólýsanlegt. Við vorum þrír íslendingar og mikil samheldni með- al okkar, auk þess sem ég hafði unn- ið með Jóni á Borgarspítalanum. Þetta var mikið áfall," segir Mar- íanna. „Jón Karlsson starfaði við flutninga á særðum og sótti þá út fyrir borgina en við vorum á sjúkra- húsi þannig að það var talsverður munur á starfi okkar.“ Maríanna starfaði í sex mánuði í Afganistan og segir aö hún hafi aldr- ei mátt vera aö því að fá heimþrá. Þetta er í rauninni bijáluð vinna tólf th þrettán tíma á dag, enda sér mað- ur árangur af starfinu," segir hún. Maríanna segir að starf Rauða krossins sé tvíþætt, annars vegar að setja upp sjúkrahús á stríðssvæðum og hins vegar að koma upp aðstöðu fyrir flóttamenn, svokölluðum flótta- mannabúðum. Hræöileg lykt Rauði krossinn hafði samband við Maríönnu í maí sl. og bauð henni að fara th hjálparstarfa í Tansaníu með fjögurra daga fyrirvara. „Ég hafði starfað á stríðssvæði í Afganistan og langaði að prófa hina hhðina líka. Þetta var aht öðruvísi starf því þegar við komum á svæðið var þar ekkert, bara auðn. Þarna voru bara 350 þús- und manns sem biðu eftir aðstoö. Við þurftum því aö koma upp flótta- mannabúðum með hehsugæsluað- stöðu. Aðrir sáu um matardreifingu og salernisaðstöðu. Við vorum fimm Vesturlandabúar sem tókum að okk- ur að koma þessu upp en lyfjasend- ingar og annar búnaöur kom um svipað leyti og viö, m.a. tjöld þar sem útbúið var sjúkrahús. Ég gleymi ör- ugglega aldrei þeirri stund er ég kom fyrst á svæðið en lyktin þar var óbærileg, blönduð rotnunar- og skolplykt, en þarna voru aðeins örfá salerni. Flóttafólkið sem kom fyrst var ekki mjög hla á sig komið, enda hafði það flúið áður en skipulagðar aftökur fóru fram. Þegar leið á tím- ann fór þetta mjög versnandi. Sumir höföu fahð sig í margar vikur neðan- jarðar og voru mjög vannærðir og sjúkir." í lífshættu Maríanna segir að Rauði krossinn sé virtur í þessum löndum og þess vegna er fólkið mjög þakklátt þeirri hjálp sem það fær. „Stundum var fólk búið að ganga dögum saman áður en það kom að landamærunum og leggja sig í mikla lífshættu. Það hélt áfram aiveg þangað til það vissi að því yrði bjargað." Engu að síður er það ekki alveg hættulaust að starfa fyrir Rauða krossinn og Maríanna og félagar hennar urðu að flýja og fara í felur vegna árásar hútumanna sem beind- ist gegn hvíta manninum. „Þeir sem dvöldu í okkar búðum voru úr ætt- bálki hútumanna í Rúanda og meðal þeirra voru margir þekktir morð- ingjar sem voru leiðtogar ættbálks- ins en hinn ættbálkurinn, tútsi, hafði fyrirskipað að þeir skyldu allir drepnir. Einn af þessum stóru herr- um kom í tjaldið hjá Sameinuðu þjóð- unum en fylgismenn héldu að hann hefði verið handtekinn og gerðu að- súg að tjaldinu. Svo iha vhdi th að tjald Rauða krossins var við hhðina og því var ráðlegast aö koma hvíta fólkinu í burtu. Við komumst þó ekki langt því engir bílar voru þarna á þessu augnabliki en við vorum fahn í tjaldi, á bak við skhrúm. Þar biðum við og ég get ekki neitað að hjartslátt- urinn var hraður og „dettifoss" und- ir handleggjunum. Þetta voru um fjörutíu þúsund manns sem gerðu aðsúg og viö heyrðum þá koma nær og nær og ahtaf köhuðu þeir: „Drep- um hvíta manninn." Skyndilega upp- hófst skothríð fyrir utan og ég gat ekki annað en hugsað: ég var þó í skotvarnarbyrgi í Afganistan en þarna var ég í tjaldi. Þetta var ekki þægheg hugsun. Síðan kom einhver og sagði að búið væri að kalla á her- inn og þá ætti þetta aö róast, sem og varð,“ segir Maríanna sem sannar- lega var í mikilh lífshættu þarna. „Þetta orsakaði vitaskuld mikla spennu og við fórum ekki inn í þess- ar flóttamannabúðir næstu fimm daga.“ Soðnirbananar og hrísgrjón Maríanna segir aö ólíft hafi verið í flóttamannabúðunum þegar líöa tók á daginn vegna mengunar. „Þegar 350 þúsund manns byrja á sama tíma að elda með eldivið myndast ógurleg- ur reykur og það var ekki líft fyrir okkur í þessu lofti þannig að við bjuggum í tjöldum klukkustundar akstur frá flóttamannabúðunum. Þar svaf maður á hermannabedda í svefnpoka í þijá mánuði og maturinn samanstóð af soðnum banönum, hrísgrjónum og baunum þannig að ekki var fjölbreytninni fyrir að fara, enda töluðu margir um að ég hefði grennst þegar ég kom heim. Við sem störfuðum við hjálparstarfið bjugg- um þama saman svo maður var aldr- ei einn, það var ekkert prívat." Lífið snerist um vinnuna þessa þrjá mánuði sem Maríanna var í Tansan- íu og hún segir hana hafa verið mjög gefandi og verðugt verkefni. „Ég hef starfað sem hjúkrunarfræðingur í tíu ár og undanfarið á gjörgæsludehd Borgarspítalans þar sem tæknin er ahsráðandi. í Tansaníu hafði maður kunnáttuna og sjálfan sig. Maður læröi því margt á þessum tíma,“ seg- ir Maríanna. „Það var líka margt mjög óhugnan- legt sem ég sá þama og er maður þó ýmsu vanur. í eitt skiptið fór maginn marga hringi en þá var ég stödd við landamærin þar sem er fljót sem var talsvert í fréttum en þar lágu hk um aht. Einnig kom fólk þama yfir sem var mjög slasað eftir að ráðist hafði verið á það. Eitt skiptið kom kona gangandi á móti mér en hún var með djúpt og stórt sár á höfði og hálsi sem blæddi mikið úr og flugnager var í kringum hana. Það var ótrúlegt að þessi kona skyldi vera á lífi en hún var höfuðkúpubrotin. Ég bjó um sár- in eins og mögulegt var miöað við aðstæður en síðan var henni komið á eitt tjaldsjúkrahúsið þar sem lífi hennar var bjargað. Það var daglegt brauð að finna svona mikið slasað fólk við landamærin," segir Mar- íanna og segist ekki skilja þessa óg- urlegu grimmd sem hún varö vitni að. „Þetta fólk hlýtur að vera sam- viskulaust. Mannslífm eru lítils met- in og forgangsröðin er önnur en við þekkjum. Ég átti oft erfitt með að sætta mig við aö fólkið hugsaði aht öðmvísi en ég.“ Langar aftur Þrátt fyrir stríð og mikla eymd hélt lífið áfram sinn vanagang hjá flóttamönnunum og Maríanna segir að fæðingar hafi verið 40-50 í hverri viku. í fréttum birtast einungis slæmu fréttimar en Maríanna segir að það sé ótrúlegt hve fólkið rpyni að lifa eðlhegu lífi þrátt fyrir hörm- ungarnar. - En værir þú reiðubúin að fara aft- ur? „Já, strax á morgun. Þetta er spennandi og maður sér ótrúlegan árangur af starfi sínu. Á þessum tima sem ég var í Tansaníu sá maöur búð- imar rísa og þegar ég fór var fólkið farið aö bjarga sér sjálft. Það getur verið erfitt að kveðja," segir Mar- íanna Csihag, sem er ungversk í báð- ar ættir, en foreldrar hennar komu hingað th lands sem flóttamenn árið 1956. Séð yfir til Rúanda frá Tansaníu þar sem flóttafólkið streymdi yfir, sumt stórslasað. Við árbakkann lágu lík eins og hráviði. Þessi fjölskylda var nýkomin frá Rúanda með allar sínar eigur. Fólkið byggði sér strákofa og reyndi að lifa eðlilegu lifi. „Móðir þessa drengs gaf okkur hann,“ segir Maríanna sem er hér að hjúkra „fósturbarninu" í Afganistan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.