Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1994, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1994
Fréttir
Stjómsýsluúttekt Stefáns Jóns Hafstein:
Borgarkerf inu verði skipt
í f imm stjórnunarsvið
- á von á því að farið verði eftir tillögunum, segir Ingibjörg Sólrún
Stefán Jón Hafstein leggur til að
skipaður verði vinnuhópur til að út-
færa hugmyndir um að koma á fót
fimm stjómunarsviðum innan borg-
arkerfisins. Framkvæmdastjóri
verði yfir hveiju sviði og verði for-
stööumenn stofnana ábyrgir gagn-
vart framkvæmdastjóra á viðkom-
andi sviði. Framkvæmdastjórar
verða ábyrgir gagnvart borgarstjóra.
Þetta kemur fram í niðurstöðum for-
könnunar Stefáns Jóns Hafstein á
stjómkerfi borgarinnar sem kynnt
var á aukafundi í borgarráði í gær.
Lagt er til að sviðin skiptist í tvö
rekstrarsvið. Atvinnumál, sam-
göngumál og heilbrigðismál heyri
undir rekstrarsvið eitt en skóla-,
íþrótta- og æskulýðsmál falli undir
rekstrarsvið tvö. Fjármálastjóm og
lögfræðimál verði á fjármálasviði,
yflrstjórnin í ráðhúsinu tilheyri
stjórnsýslusviði og embætti borgar-
verkfræðings falli undir fram-
kvæmdasviö, svo nokkur dæmi séu
nefnd.
Suðurlandsvegur lokaður
Mánudaginn 3. október verður
umferð um Suðurlandsveg, milli
Tunguháls og Rauðavatns, beint á
nýju Breiöholtsbrautina og Reykja-
nesbrautina vegna framkvæmda við
nýja Suðurlandsveginn. Fram-
kvæmdirnar munu taka 3 til 4 vikur.
Ökumenn sem ætla austur yfir fjaU
munu fara um Reykjanesbraut að
Mjódd og þaðan upp Breiðholtsbraut
á Suðurlandsveg við Rauðavatn. Þeir
sem koma ofan Vesturlandsveg fara
beint niður á Elliðaárbrýrnar og nið-
ur á Reykjanesbrautina undir Miklu-
braut.
Vegarkafli sem veröur
lokaður frá og meö
3. október í þrjár til
fjórar vikur
°^fsbraut
Nýr
vegur
DV
Bíræfnir þjófar vom á ferð hjá séuhundruðþúsundakrónavirði.
Golfkiúbbi Hellu á Strandarvelli Lögreglan biöur þá sem telja sig
milii klukkan 12 og 13 í gær. Þjófur- hafa orðið vara viö mannaferðir
inn eða þjófamir fóru inn í tækja- við golfskálann á þeim tíma sem
geymslu og hreinsuöu út úr henni um ræöir að sitja ekki á þeim upp-
tæki og verkfæri sem ætla má að lýsingum.
Nauðsynlegt er að kanna betur
hlutverk og tilgang embættis borgar-
ritara, endurvekja stjórnkerfisnefnd
borgarinnar og auka sjálfstæði
borgarendurskoðunar þcmnig aö hún
heyri beint undir borgarstjóm. Þá
verði upplýsingastarfsemi ráðhúss-
ins, atvinnumál ogferðamál samein-
uð og starfsmannapóhtík borgarinn-
ar skilgreind. Stefán Jón leggur til
að endurmenntun og þjálfun stjóm-
enda verði sett á oddinn.
í skýrslunni kemur fram að hörð
gagnrýni hafi verið í garð Reykjavik-
urborgar vegna þess hvemig staðið
hafl veriö að verkúthlutunum og út-
boðum, sérstaklega á vegum embætt-
is borgarverkfræðings og stofnana
þess. Eindregnar óskir hafi komið
fram um að Reykjavíkurborg setti
skýrar reglur og viðhefði agaðri
vinnubrögð en hingað til.
„Ég á von á því að við förum eftir
þessum tillögum. Ég bind miklar
vonir við að við komumst langt meö
stjómkerfisbreytingar á næsta ári,“
Nýlega gerði Innkaupastofnun Reykjavikurborgar samning við Rekstrarvör-
ur hf. um kaup á Ijósritunarpappír. Samningur þessi er gerður i framhaldi
af opnu útboöi sem fór fram i júni sl. Rétt til aö kaupa eftir umraeddum
samningi eiga allar stofnanir borgarinnar og fyrirtæki í eigu hennar. Á
myndinni eru þeir Marinó Þorsteinsson, skrifstofustjóri Innkaupastofnunar,
og Kristján Einarsson, forstjóri Rekstrarvara, við undirritun samningsins.
Skóladeilan 1 Mývatnssveit:
Einkaskóli að Skútustöðum
rekinn á kostnað foreldra
- þetta er skrípaleikur, segir formaður skólanefndar
Samkomulag náðist í skóladeil-
unni í Mývatnssveit í gær. í gær-
kvöldi átti að kynna það á fundi
sveitarstjómar og í dag verður það
lagt fyrir foreldra í suöurhluta
Skútustaöahrepps. Megininntak
samkomulagsins felst í því, eins og
fram kom í DV í gær, að einkaskóli
fyrir 21 bam í 1.-7. bekk verður rek-
inn að Skútustöðum á kostnað for-
eldra í sveitinni.
Aðilar málsins vildu alls ekki ræða
það við fjölmiðla í gær og ekki skýra
frá efnisatriðum fyrr en þau hefðu
verið kynnt foreldrum. Samkvæmt
heimildum DV gerir samkomulagið
hins vegar ráð fyrir einkaskóla, eða
skólaseli, að Skútustöðum sem rek-
inn verður á kostnað foreldra í sveit-
inni. Skútustaðahreppur og ríkiö,
sem eiga skólahúsiö að Skútustöð-
um, leggja það til endurgjaldslaust
en suðursveitungar verða að greiða
viðbótarkostnað við rekstur hússins,
s.s. varðandi hita, og suðursveit-
ungar þurfa ekki að greiða kennslu-
kostnað.
Þeir verða hins vegar að sjá um
skólaakstur, mötuneyti og fleira þess
háttar. í niðurstöðunni er einnig gert
ráð fyrir að áfram verði unnið að
lausn skólamála í hreppnum en sam-
komulagið, sem nú hefur verið gert,
gildir einungis í vetur.
„Ég verö að segja aö þetta sam-
komulag er skrípaleikur," segir Hin-
rik Árni Bóasson, formaður skóla-
nefndar Skútustaðahrepps, en hann
tók ekki þátt í samningsgerðinni. „Ég
er auðvitað ánægður með að börnin
komast loks í skólann en það er brot-
ið á þeim um leið. Þau fá aldrei sam-
bærilegan aðbúnað og þau heföu
fengið í skólanum í Reykjahlið. Sam-
komulagið bitnar líka á bömunum í
Reykjahlíð, það felur í sér að þau fá
mun meiri samkennslu en elia sem
er mjög slæmt,“ segir Hinrik Árni.
segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri.
„Eg hef helst áhyggjur af því að
verið sé aö færa borgarstjóra frá
borgarbúum og auka milliliði í kerf-
inu. í skýrslunni er gagnrýnt að ekki
séu nógu skýrar línur milli þeii'ra
sem vinna næst borgarstjóra en ég
er alls ekki sammála því,“ segir Ámi
Sigfússon, oddviti sjálfstæðismanna.
Laugavegurinn:
Langur
laugar-
dagur
Langur laugardagur verður í
búðum á Laugavegi og i Banka-
stræti í dag og verður svo fyrsta
laugardag hvers mánaðar í vetur.
Verslanir og veitingahús bjóða
afslátt og tilboð í tilefni dagsins.
Verslanir verða opnar frá kl. 10
til 17.
Kringlan:
laugardag og sunnudag nú um
helgina og einnig um næstu helgi.
Ákveðið hefur verið að Kringlan
verði opin fyrsta sunnudag hvers
mánaðar fram til vors. Búðir
verða opnar frá kl. 10 til 16 á laug-
ardag og frá 13 til 17 á sunnudag.
Kynjakettir
sýndir
Kynjakettir, kattaræktarfélag
íslands, heldur kattasýningu á
sunnudag i Rafha-húsinu við
Lækjargötu í Hafharfirði. Sýn-
ingin verður opnuð kl. 9 um
morguninn og eru 129 kettir
skráöir. Sýningunni veröur lokað
um kl. 18 síðdegis.
Flugslysið í Eyjum:
Aðeins annar
flugmannanna
hefurfundist
í frétt DV í gær um orsakir flug-
slyssins við Vestmannaeyjar kom
fram mishermi um mennina tvo
sem fórust meö vélinni fóstudags-
kvöldið 23. september.
Sagt var að lík beggja mann-
anna hefðu fúndist. Það er ekki
rétt. Aðeins lík farþegans, 26 ára
Breta, hefúr fundist. Beðist er
velvirðingará þessum mistökum.
Flugmaöurinn var 24 ára Hol-
lendingur.
í fréttinni var einnig sagt að
vélin hefði verið stödd norðvest-
an viö Vestmannaeyjar þegar
hún átti eftir 12 milur að Eyjum.
Hið rétta er aö hún var þá stödd
suöaustan við Vestmannaeyjar.