Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1994, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 1. OKTOBER 1994
13
World Press Photo
af
Bandariski Ijósmyndarinn Christopher Morris tók þessa mynd fyrir Time
hlaut fyrir fyrstu verðlaun i flokki almennra fréttamynda.
umsátrinu um þinghúsið i Moskvu og
Fréttaljósmyndasýningin World Press Photo í Kringlunni:
KATTASÝNING
KVNJflKflTTfi
oðalstyrktoraðili sýningarinnar
Verður haldin í
RAFHA-húsinu
v/ Lækjargötu í Hafnarfirði
ó morgun
sunnudaginn 2. október
Sýningin er opin
kl. 09:00- 18:00
Komið og skoðið fallegar
og óvenjulegar kisur
Verið velkomin
LflTTU EKKI OF MIKINN HRABA A
VALDA ÞÉR SKADA!
IJUWEROAR
Fer land úr landi
tíu mánuði á ári
- umsjónarmaðurinn, Kari Lundelin, býr einn í ferðatösku
Amsterdam, Helsinki, Reykjavík,
Miinchen, Mílanó, Peking, Seoul,
Buenos Aires, Amsterdam, Osló og -
ja, hvað næst? Kari Lundelin er hætt-
ur að hugsa sérstaklega um hvaða
borg hann heimsækir næst.
Hann stingur niður færi í allt að
70 borgum á ári og segir að öll ferða-
lögin séu ekki eins spennandi og
ætla mætti við fyrstu sýn. „Þetta
verður á endanum þreytandi," segir
hann' og brosir. Þakkar þó fyrir
hreina loftið hér á íslandi og birtuna.
Hún er hvergi svona skýr nema helst
í Norður-Finnlandi.
Kari verður dreyminn á svip þegar
hann nefnir heimaland sitt. Hann
býr nú í þokunni og mistrinu í Amst-
erdam þegar hann er ekki í „ferða-
töskunni11 á flugi land úr landi.
„Einhvem tíma' hætti ég þessu
flakki og sest um kyrrt á fallegum
stað með konu og bömum,“ segir
Kari. „Eins og starfi mínu er háttaö
nú kemur það ekki til greina en
kannski hitti ég fallega flugfreyju
og... Nei ég hef séð svo margar flug-
freyjur." Enn hlær Finninn sem
saknar birtunnar í Norður-Finnlandi
og hatar ferðatöskur.
Kari Lundelin.
En af hveiju er hann ekki bara
heima hjá sér eins og aðrir? Jú, hann
er sýningastjóri hjá World Press
Photo. Það er umfangsmesta farand-
sýning sem fer um heiminn árlega.
Á sýningunni eru allar bestu
fréttaljósmyndir síðasta árs og að
auki verðlaunamyndir úr daglega líf-
inu. Fólk í nærri fimm tugum landa
fær árlega kost á aö sjá sýniguna og
nú er hún komin til íslands á haust-
dögum eins og undanfarin ár.
Sýnt er á göngum Kringlunnar þar
sem þúsundir gesta fara um á degi
hverjum. „Það gefur góða raun að
sýna myndirnar í verslunarmið-
stöðvum," segir Kari. „Það er þó all-
ur gangur á hvar myndirnar eru sett-
ar upp en við viljum helst að sem
flestir sjái þær.“
Óhugnanlegum myndum af stríði
og manndrápum er haldiö til hlés til
að særa ekki viökvæmar sálir. Sann-
leikurinn er ekki alltaf fallegur og
það er sannleikurinn sem kemur
fram á myndunum.
„Við sýnum alltaf allar myndirnar
eða enga,“ segir Kari. „Hér líðst eng-
in ritskoðun þótt við reynum að taka
tillit til að margir sjá myndirnar án
þess að hafa gert sér sérstakt erindi
til þess.“
Sýningin hér á landi er styrkt af
DV, Hans Petersen hf. og Kringl-
unni. Hún verður uppi fram til 15.
október. Áhugasömum er bent á að
þeir geta keypt árbók með öllum
myndunum gegn vægu gjaldi hjá
Hans Petersen í Kringlunni.
*
Arshátíð - Mannfagnaðir
Nýþjónusta!!!
Er árshátíð, ráðstefna
eða jólaglögg fram
undan hjá ykkur?
Við hjá hópferðabílum
K. Willatzen bjóðum
upp á ódýrar pakka-
ferðir, hvort sem um er
að ræða dagsferð eða
helgarferð á hina ýmsu staði úti á lands-
byggðinni. Tilvalið fyrir fyrirtæki, félaga-
samtök og einstaklinga.
Eftirtaldir staðir eru í boði:
Hótel Stykkishólmur
Hótel Ólafsfjörður
Hótel Geysir, Haukadal
Hótel Vík, Mýrdal
Veitingahúsið v/Bláa lónið
Nesbúð, Nesjavöllum
Allar nánari upplýsingar er að finna á skrifstofu
Hópferöabíla K. Willatzen, Garöabœ,
Sími 658505, fax 658508.
Hafíð samband og ræðum málin!!!
©pfflmssfÉmi fflram ttSE jj&ta
Hámiidaga til fkmisitiidagia Ma 9 * 18
Féstadaga M. @ - 19 1« .
Laiagairdaga M. 9 - 1 <8
Húsgögn húsbúnaður-gjafavörur-Iampar ofl. Verið velkomin í stærstu
húsgagnaverslun landsins. Alltaf heitt kaffi á könnunni og næg bílastæði.
Húsgagnahöllin - Fyrir falleg heimili