Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1994, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1994, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 1. OKTÖBER 1994 „Þetta voru ólýsanlegir dagar sem ég mun minnast lengi,“ segir Elísabet Davíðsdóttir, Fordstúlkan 1994, sem er nýkomin heim frá Hawaii þar sem hún tók þátt í keppninni Supermodel of the World. Keppnin var að þessu »sinni ólík öðrum þar sem mun erfið- ara var að komast í hana en áður og aðeins starfaridi fyrirsaetur fengu að taka þátt. Elísabet var þegar komin með samning við Ford Models í París þegar hún lagöi land undir fót og hélt til Hawaii. Hún býst við að fara aftur til Parísar eftir áramótin. „Ég flaug fyrst til New York þar sem Systa og Óli, sem reka hótel skamint frá ílugvellinum, sóttu mig en ég gisti hjá þeim eina nótt. Síðan flaug ég til Los Angeles og þaðan til Hawaii. Á flugvellinum í Los Angeles kynntist ég ítölskum umboðsmanni sem var með þarlenda þátttakandan- um, einnig var ég samferða Ijós- myndara frá New York og Eileen Ford var hka í flugvélinni. Það var tekið á móti okkur á flug- velhnum og ekið að því glæsilegasta hóteh sem ég hef á ævi minni séð. Það mun vera eitt af tíu fínustu í heimi og heitir The Grand Wailea Resort. Það er á eyjunni Maui þar í garðinum fyrir utan hótelið þar sem litskrúðugir páfagaukar flugu um. ur sem reist var fyrir leikkonuna Marilyn Monroe en þar var haldin lokaveisla. Húsið er uppi í fjalli og mjög glæsilegt." Elísabet segir að flesta dagana hafi stúlkurnar verið á léttu fæði, ávöxt- um, grænmeti og mögru kjúklinga- kjöti. „Þetta var fæði við mitt hæfi,“ segir hún. Elísabet og danska stúlkan Eva fengu tilboð frá umboðsskrifstofu í Ástralíu að koma þangað í fyrirsætu- störf og leist þeim vel á. „Það verður haft samband viö Ford í París út af þeirri ferð,“ segir hún. „Núna ætla ég að einbeita mér að náminu í Menntaskólanum við Hamrahhð enda hef ég misst úr. Það gæti vel komið til greina að fara til Parísar eftir áramót en allavega fer ég næsta sumar. Elísabet hefur fengið nokkur tilboð hér heima við auglýsingar en hún segist ekki geta bundið sig við ákveð- in sýningarsamtök þar sem hún er samningsbundin við Ford. Hún tekur þó að sér ýmis verkefni. „Dagarnir á Hawaii voru ógleym- anlegir og ég mun lifa lengi á þeim,“ segir Elísabet Davíðsdóttir. Fordstúlkan komin frá Hawaii: Ógleymanlegir dagar - segir Elísabet Davíðsdóttir sem lifði í lúxus eins og kvikmyndastjama í átta daga Elísabet, Fordstúlkan 1994, fyrir utan hið glæsilega hótel á eyjunni Maui á Hawaii. sem keppnin fór fram. Þetta var sannkölluð paradís. Maöur þurfti ekkert að fara frá hótehnu því þar var ahtaf eitthvað nýtt að sjá á hverj- um degi. Umhverfið var ólýsanlegt og meira að segja htskrúðugir páfa- gaukar flugu um í garðinum. Þetta var æðislegt," segir Ehsabet sem varla er komin niður á jörðina eftir þessa ævintýraríku ferð. Glæsilegur sjónvarpsþáttur Stúlkumar sem tóku þátt í keppn- inni að þessu sinni voru þrjátíu og var þeim skipt í þrjá hópa. Alla þá átta daga sem keppnin stóð voru myndatökur í fuhum gangi enda var verið að búa til sjónvarpsþátt sem sýna á 14. október nk. í Bandaríkjun- um. Aldrei fyrr hefur svo mikið ver- ið lagt í keppnina og sjónvarpsþátt- inn í kringum hana. Hver hópur þátt- takenda hafði sitt hlutverk þessa átta daga og fylgdu myndavélar hverjum þeirra. Einn hópurinn ferðaðist um eyjuna eins og um ferðamannahóp væri að ræða og taldi Ehsabet að skemmtilegasti hefði verið í þeim hópi. Sjálf lenti hún í hópi sem var meira á hótelinu og í kringum það. Meðal þess sem stúlkurnar gerðu var að fara í eina af fjölmörgu heilsulind- um hótelsins þar sem eru jurtaböð af ýmsu tagi. „Hópamir gerðu misjafnlega mik- ið. Ferðahópurinn gerði mest og þurftu stúlkurnar að vakna um miðja nótt til að mæta í fórðun og greiðslu áður en haldið var í ferða- lag. Minn hópur hafði það mun ró- legra á hótelinu og við fengum reynd- ar einn dag frí þar sem viö gátum legið á ströndinni. Annars kom mér á óvart þegar viö flugum yfir Hawaii að sjá hversu margt er líkt með þess- ari eyju og íslandi, t.d. eldflöll og hraun,“ segir hún. Úrslitin kynnt 14. október „Allir dagarnir vom endalaus skemmtun og upptökur en mér fannst keppnin sjálf í rauninni minnsta atriðið," bætir Ehsabet við. Vegna sjónvarpsþáttarins verður ekki tilkyrmt um endanleg úrsht fyrr en hann verður sýndur. Þetta hafði stúlkunum verið tilkynnt áður. „Þrjár stúlkur vom valdar í úrsht, sú þýska, finnska og sú pólska. Þær vita ekki hver er sigurvegarinn fyrr en sjónvarpsþátturinn verður sýnd- ur þar sem siguratriði var tekið upp með hverri þeirra," segir Ehsabet sem segist þó vera fuhviss að þýska stúlkan sé sigurvegarinn. Þessi laun- ung er til að halda spennufyrir sjón- varpsþættinum. Stúlkumar þrjár fóm ahar til New York að lokinni dvöhnni á Hawaii og munu sjálfsagt bíða spenntar. Þær em þó allar komnar með samning við Ford Mod- els. „Á úrshtakvöldinu var haldin mik- il tískusýning þar sem við sýndum föt og það þurfti að taka hana upp tvisvar sinnum. Keppnin var haldin í garði hótelsins við sundlaugina, úti undir beru lofti, þannig að það var mjög sérstakt. Flestar aðrar upptök- ur vegna þáttarins vom þá yfirstaðn- ar. Meðal annars var ég í upptökum við regnskógana og á sykurreyrs- akri,“ segir Ehsabet. Heppin með félaga Herbergisfélagi Elísabetar var danska stúlkan Eva Moos og var það heppilegt fyrir hana þar sem hún talar dönsku eins og íslenskuna, enda var hún búsett í Danmörku í sjö ár. Með Evu voru blaðamaöur og ljósmyndari frá danska tímaritinu Alt for damerne sem fylgdust með stúlkunum og ræddu m.a. við Elísa- betu. Það var margt sem Elísabet upp- lifði þessa daga á Hawaii og meðal þess var að fara í kúrekabæ þar sem stúlkunum voru kenndir sérstakir dansar sem kenndir eru við þessa frægu kappa. „Við fórum eitt kvöldið á veitingahúsið Planet Hohywood og það var mjög skemmtilegt. Það var búið að girða innganginn og leggja rauðan dregil þegar við komum og í kring stóð fuht af áhorfendum. Ég neita því ekki að það var skrítin til- fhming að labba þangað inn eins og kvikmyndastjarna. Það var auðvitað mikið af blómakrönsum á Hawaii og við fengum nóg af þeim,“ segir Ehsa- bet. „Síðasta kvöldið var þó skemmtilegast. Þá fór hópurinn í set- Það verður varla séð að fyrirsætu- mamman Eileen Ford sé orðin sjö- tug. Hér er hún innan um keppendur í Supermodel of the World. Keppendur frá Danmörku, Póllandi og Kóreu. Ekki þótti annað tilheyra en að þátt- takendur bæru blómakransa um hálsinn eins og Hawaii er þekktust fyrir. 4 4 4 4 I I I ú

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.