Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1994, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1994, Page 25
24 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1994 Táningar á Tálknafirði stofnuðu til útgerðar fyrir sjö árum: Hafa bjargað fjórum sjómönnum úr háska - síðast einum manni úr brennandi báti í vikunni Þorpið sefur enn þegar fyrsta skíma dagsins gægist yfir fjallstopp- ana. Tveir menn ganga hröðum skrefum niður smábátabryggjuna og síðan heyrist vélarhljóð rjúfa morg- unkyrrðina. Bræðurnir á krókabátn- um Garra frá Tálknafirði eru að gera sig'klára í róður, eins og reyndar starfsbræður þeirra í sjávarplássum allt í kringum landið. Það sem þó skilur bræðurna frá Tálknafirði frá félögum þeirra á sambærilegum bát- um er það að daginn áður björguðu þeir félaga sínum af brennandi báti út af Tálknafirði. Það sem gerir þó máliö enn athyglisverðara er það að þetta er þriðja björgunin sem bræð- urnir standa að á rúmum tveimur árum. Alls hafa þeir fiutt í land íjóra sjómenn úr þessum skipsköðum. Stærstur hluti sjómanna kemur aldrei að skipskaða eða björgun mannslífa þótt auðvitað séu til und- antekningar frá því. Dæmi eru um sjómenn með langan starfsaldur að baki sem oftar en einu sinni hafa orðið þeir gæfumenn að bjarga félög- um sínum úr sjávarháska. Það er þó nokkuð ljóst að ekki eru til seinni- tíma dæmi um að sömu mennirnir á sama bátnum hafi á jafnskömmum tíma komið að svo mörgum skip- sköðum og tekist að bjarga öllum bátsverjum. Neyðarkall og svo þögn „Ég heyrði á neyðarbylgju að það lcom einhver inn og sagðist vera að sökkva. Ég kallaði og spurði hver væri að biðja um hjálp. Það kom ekkert svar og bersýnilegt að það hafði eitthvað alvarlegt gerst. Ég hafði samband við Tilkynninga- skylduna og við fórum yflr þaö hvaða bátar kæmu til greina. Eftir það sam- tal fór mig að gruna að þetta væri vinur minn á Ingþóri Helga BA sem ég vissi að var með línuna ekki langt undan,“ segir Jón Ingi Jónsson, skip- stjóri og útgerðarmaður á Garra BA. „Ég keyrði með allt í botni í þann punkt sem ég vissi að hann hafði lagt línuna. Það var leiðindahjakk á móti og við þessa keyrslu ætlaði allt um koll að keyra. Ég vissi auðvitað ekki á þeirri stundu hvort það væri félagi minn sem væri í háska, það var eng- inn tími til að hugsa um það. Ég varð bara að ganga úr skugga um hvort svo væri. Ég keyröi þangaö sem ég vissi að hann hafði lokið við að draga línuna og setti svo út hvaða leið hann hefði keyrt til að fara heim í Tálkna- fjörð. Þegar ég var búinn að keyra þessa leið í um hálftíma kom ég að gúmbáti og þar um borð voru tveir menn, félagi minn og sá sem var á bátnum með honum. Ég náði þeim um borð en þeir voru orðnir mjög kaldir og hraktir," segir Jón Ingi. Þarna lýsir hann því þegar hann varð í fyrsta sinn þeirrar gæfu að- njótandi að bjarga mönnum úr sjáv- arháska. „Hjálparsveitin" á Garra BA Þetta var þó ekki í síðasta sinn sem bræðumir á Garra, 5 tonna Sóma- báti frá Tálknafirði, komu að og björguðu mönnum úr sjávarháska. Núna, rúmum tveimur árum eftir að Garri kom að gúmbátnum út af Pat- reksfjarðarflóa, eru þeir bræður búnir að bjarga mönnum úr tveimur bátssköðum í viðbót. í vikunni björg- uðu þeir manni af brennandi báti út af Tálknafirði en í millitíðinni hafði „hjálparsveitin" á Garra BA bjargað manni úr sökkvandi báti út af Látra- bjargi. Þar var um að ræða bátinn Hönnu Kristínu BA en yngri bræð- urnir, Bjarni og Hugi, komu þar viö sögu. „Þetta var góður vinur minn og hann hringdi í mig og sagði að það væri kominn mikill leki að bátnum. Ég var skammt undan og fór um borð til hans. Þá var kominn mikill sjór í bátinn og rafmagnið hafði farið af. Við reyndum að ausa en það bar ekki árangur. Það var ekkert að gera annað en fara frá borði og við fórum yfir í Garra en báturinn sökk að því marki að bara stefnið stóð upp úr,“ segir Bjarni. Bræðurnir þrír á Tálknafirði, sem hljóta ef miðað er við þetta tveggja ára tímabil að teljast eiga íslandsmet í þvi aö bjarga mönnum úr sjávar- háska, hafa starfað saman að útgerð frá því 1987 þegar þeir keyptu sár færabát og hófu róðra án þess að hafa aðra reynslu en þá að hafa vitj- að um rauðmaganet og veitt þorsk í fjöruborðinu á árabát. Þegar þeir keyptu bátinn sem þeir nefndu Garra voru þeir ungir að árum. Sá yngsti, Hugi, var 12 ára, Bjami 14 ára og Jón Ingi 18 ára. Það urðu hka margir til þess að spá þeim óförum í útgerðinni. „Þetta var auðvitað hálfgerð vit- leysa hjá okkur. Hugsunin var bara sú að hafa af þessu sumarvinnu. Við réðum vanan mann til að vera með bátinn og sá átti að setja okkur inn í þetta. Hann hætti eftir örfáa róðra og þá urðum við að bjarga okkur sjálfir. Við vorum þá algjörlega óreyndir og urðum að fikra okkur áfram við þetta. Það urðu margir til þess að spá því að þetta gengi ekki upp hjá okkur," segir Jón Ingi. Bræðumir áttu bátinn í fjögur ár og hafði reynsluleysið ekki háð þeim meira en svo að þeir keyptu þá nýjan og öflugri bát sem heitir sama nafni og hinn. Til upplýsingar fyrir þá sem ekki þekkja til kosta bátar á borð við þennan, sem er af gerðinni Sómi 860, í kringum 8 milljónir þannig að tán- ingarnir á Tálknafirði virtust strax búnir að skáka mörgum þeim reynslumeiri sem farið hafa halloka í útgerð. Átti að vera sumar- starf „Það var aldrei ætlunin að gera þetta að heilsársstarfi. Þetta bara þróaðist svona. Ég og Bjarni vorum á sjónum og báðir í skóla. Þrátt fyrir að það hafi verið ætlunin að gera þetta með skólanum þá fór svo fljót- lega að þetta varð að heilsársvinnu og skóhnn varð að víkja. Ég var í menntaskólanámi og lauk að vísu stúdentsprófi en hætti svo námi til að vera við þetta,“ segir Jón Ingi. „Menn verðá að róa eins og brjál- æðingar til að þetta gangi upp. Það er oft verið að tefla á tæpasta vað. Það er t.d. mjög hættulegt þegar menn era að róa einir á hnu. Þetta er eini möguleikinn sem menn eiga Komið með skipbrotsmennina af Ingþóri Helga BA til Patreksfjarðar. Jón Ingi á Garra fann mennina kaida og hrakta í gúmbát eftir að bátur þeirra sökk. Táningarnir sem stofnuðu til útgerðar á Tálknafirði. Frá vinstri: Jón Ingi, 18 ára, Bjarni, 15 ára, og Hugi, 12 ára. Myndin er tekin um jólin 1987, á fyrsta ári bræðranna í útgerð. Með góðan feng á bryggjunni á Tálknafirði. Bræðurnir Bjarni og Jón Ingi ásamt félaga sínum, Jens Bjarnasyni. LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1994 33 til þess að byrja í útgerð í dag og málið er bara það að ef menn ætla að komast yfir eitthvað stærra með kvótaverða þeir að eiga sand af seðl- um. Ég er aldrei hræddur til sjós, stundum dálítið stressaður. Það er frekar að ættingjarnir óttist um mann. Það er oft sukksamt á þessum bátum en við höfum aldrei lent í neinum háska sem tekur því að tala um ,“ segir Jón Ingi. Við það að heyra sögu þeirra bræðra af tíðum björgunum vakna þær spurningar hvað valdi þvi að Garri BA er svo oft staddur á háskaslóðum. Er eitthvað í undirmeðvitundinni sem segir bræðrunum að þarna sé þeirra þörf á þessum tíma. Málið er nefnilega ekki méð þeim hætti að sjó- slys séu svo tíð á þessum slóðum. Það virðist sem þeir bræður komi að mjög háu hlutfalh þeirra bátsskaða sem verða og ósjálfrátt dettur fólki í hug að þeir bræður reki eins konar neyðarþjónustu. Oft á réttum stað á réttum tíma „Maður er kannski oft á réttum stað á réttum tíma og á hraðskreið- um bát. Þetta er eins og gerðist í dag þegar við björguðum manninum af Gísla Jóns. Ég heyrði óljóst að ein- hver kom ofan í samtal og sagði að það væri eldur í Gísla Jóns. Ég greip þetta ekki strax og fór út á dekk, allt í einu uppgötvaði ég hvað var um að ræða og ég setti á fulla ferð þangað sem ég vissi að Gísh Jóns hafði verið að leggja línuna. Fljótlega sá ég rosa- legan reykjarmökk og fimm múnút- um síðar var ég kominn að bátnum. Þá var maðurinn kominn í gúmbát- inn og var að reyna að komast frá hinu brennandi flaki. Við náðum að toga hann frá flakinu og koma hon- um um borð hjá okkur. Við vorum smeykir um að báturinn mundi springa þar sem við vissum að það var gaskútur um borð,“ segir Jón Ingi. Foreldrar bjargvættanna eru hjón- in Jón Bjarnason, ættaður frá Ólafs- vík, og Asa Jónsdóttir, sem er ættuð úr Kjósinni, þau fluttu til Tálkna- ijarðar 1967 þar sem Jón starfaði sem skrifstofustjóri hjá Hraðfrystihúsi Tálknaíjarðar. Þau hjónin eru sam- mála um að áhugi bræðranna hafi alla tíð snúið að öhu sem tengist veiðimennsku og sjósókn. „Eldri strákarnir komu sér fljót- lega upp bátshorni sem þeir notuðu til að leggja rauðmaganet. Þeir seldu svo aflann í plássinu. Það voru svona smáerjur í kringum þetta þar sem þeir voru með netin skammt frá æðarvarpi og það slysaðist í þetta fugl og fugl, þetta jafnaði sig nú samt aUt saman,“ segir faðir bræðranna og Ása bætir við að það hafi aldrei neitt annað komist að hjá strákun- um. Krókaleyfið bjargar atvinnulífinu Á Tálknafirði er búið að selja togar- ann og þróunin hefur samt orðið sú að þorskafh hefur ekki minnkað. Aukinn afli krókabáta, sem vom állt að 4Ö á staðnum í sumar, hefur vegið upp það sem tapast hefur af þorski vegna minni kvóta. TU dæmis má nefna að á síðasta fiskveiðiári var landað yfir 2000 tonnum af þorski úr krókabátum en aðeins 1000 tonnum af skipum sem bundin em kvóta. „Krókaleyfið hefur algjörlega bjargað þessu hér. Ég veit ekki hvernig ástandið heföi orðið ef þessir Doði yfir fólki að vetrinum „Það þarf að finna eitthvað annað tU að byggja á hér. Þetta er allt of einhæft og kannski staðnað. Við höf- um verið of seinir tU að aðlagast. Við sjáum bara Austfirðingana sem hafa sfidina og loðnuna. Þetta vantar al- veg hér. Maður finnur sárlega til þess að þetta er á niðurleið hérna. Það sem er verst er að þegar sumrinu lýkur þá dalar atvinnulífið og þá færist doði yfir fólk og að vetrinum er ekkert að gerast hér. Það er ekki nóg að stjórnvöld dæli peningum hingað og þangað. Það verður að vera einhver glóra í þeim rekstri sem fær þessa styrki, á það hefur allt of oft skort," segir Bjarni. Jón Ingi sam- þykkir þetta og bætir við. „Maður er eiginlega fastur hér þó að ég sé ekki búinn að kaupa hér íbúðarhús þá á ég helming í fiskverk- un á móti félaga mínum ÞórhaUi Óskarssyni, sem var annar þeirra sem ég bjargaði 1992. Svo er auðvitað útgerðin og allt það sem henni fylg- ir.“ AUir þeir sem koma að útgerð smá- báta þekkja það að ef vel á að fara er þetta vinna allan sólarhringinn. Fæstir hafa tíma tU annars en sinna útgerðinni á meðan úthaldið stend- ur. Er tími hjá bræðrunum fyrir önn- ur áhugamál. „Eins og er kemst ekkert annað að en fiskur - þetta hefur verið botnlaus vinna allt þetta ár. Ef ég hef færi á þá fer ég á rjúpnaveiði. Þá hef ég gaman af lestri góðra bóka, sérstak- lega yfir háveturinn þegar ekkert er að gera og maður Uggur nánast í híði. Þá hef ég áhuga á að starfa að slysa- varnamálum en málið er bara það að björgunarsveitin er ekki virk,“ segir Jón Ingi sem einmitt var heiðr- aður á sjómannadegi fyrir björgun mannana af Ingþóri Helga. Hann vill þó gera sem minnst úr því. Vantaói einhvern til að heiðra „Ég held að það hafi bara vantað einhvern til að heiðra. Þetta var skömmu fyrir sjómannadaginn og mönnum enn í fersku minni þessi björgun," segir Jón Helgi. Þeir bræður eru sammála um að á Utlu bátunum hafi menn verið aUt of kærulausir við að láta Tilkynning- arskylduna vita af ferðum sínum. „Við höfum sjálfir ekki staðið okk- ur sem skyldi í þeim efnum og það þarf að laga. Það er geysUega áríð- andi að það sé hægt að átta sig á því í gegnum skylduna hvar bátar eru staddir. Þetta getur skipt sköpum þegar eitthvað ber út af og finna þarf menn,“ segir Bjarni og Jón Ingi sam- sinnir því og segist hvetja menn til að vanrækja ekki þennan öryggis- þátt. Það er orðið bjart þegar Jón Ingi og Bjarni komast af stað í 'róður þennan fimmtudagsmórgun sem DV er á ferð á Tálknafirði til að ræða við þessa bræður sem sífellt eru að koma fólki á óvart. Ýmist með því að bjarga mönnum úr sjávarháska eða bara fyrir það að spjara sig í út- gerð. Yngsti bróðirinn Hugi er á sjó á bát frá BUdudal en hinir tveir róa á happafleytunni Garra. Hvort þeir eiga eftir að bjarga fleirum úr klóm Ægis er ekki ljóst. Það getur framtíð- in ein leitt í ljós. Eitt er þó alveg ljóst, það er að táningamir, sem hófu útgerð frá Tálknafirði fyrir sjö árum, eru búnir að sanna sig. Jón Ingi og Bjarni með foreldrum sínum, þeim Jóni Bjarnasyni og Ásu Jónsdóttur. DV-mynd ÞÖK krókabátar væru ekki til staðar. At- vinna hefði verið sáralítil hér í sum- ar. Það fylgir þessari vertíð smábát- anna mikið líf og hér verður þensla í atvinnulífinu," segir Bjarni. Tálknafjörður er byggðarlag af svipaðri stærð og Þingeyri, Flateyri og BUdudalur sem átt hafa í gífurleg; um erfiðleikum í atvinnulífinu. Á Tálknafirði var sameiningu við ná- grannasveitarfélögin hafnað í tví- gang. Talað er um að það sem mestu ráði um þá afstöðu íbúanna sé að sveitarfélagið stendur tiltölulega vel fiárhagslega miðað við nágrannana. Er ástandið á Tálknafirði betra en annars staðar á Vestfiörðum og ætla bræðurnir að búa þarna áfram. í bát sinum Garra BA en þeir bræður hafa á rúmum tveimur árum bjargað DV-mynd ÞÖK Jón Ingi og Bjarni Jónssynir um borð sjómönnum úr þremur bátssköðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.