Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1994, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1994, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994 Fréttir Skoðanakönnun DV um fylgi flokkanna: Flokkakerf ið í uppnámi Núverandi skipan ílokkakerfisins viröist í uppnámi samkvæmt skoð- anakönnun sem DV framkvæmdi um helgina. Samtals 44;i prósent að- spuröra treysti sér ekki til aö lýsa yfir stuðningi við einstaka framboðs- lista væri kosiö til Alþingis núna eða neitaði að gefa upp afstöðu sína. Þetta er nokkru hærra hlutfall en í síðustu könnun DV sem framkvæmd var í ágúst. Niðurstöður könnunarinnar urðu þær að af þeim sem tóku afstöðu reyndust 9,0 prósent styðja Alþýðu- flokkinn, 16,4 prósent Framsóknar- flokkinn, 40,9 prósent Sjálfstæðis- flokkinn, 16,1 prósent Alþýðubanda- lagið, 9,8 prósent Kvennalistann og 7.8 prósent sérstakt framboð tengt Jóhönnu Siguröardóttur. Miöað við könnun DV í ágúst minnkar fylgi Framsóknarflokks verulega, eða um 4,4 prósentustig. Flokkurinn hefur ekki mælst með minna fyigi í könnunum DV á kjör- tímabilinu. Um leið eykst fylgi Al- þýðubandalags um 3,4 prósentustig. Fylgi annnarra flokka breytist minna. Af öllu úrtakinu reyndust 5 prósent styðja Alþýðuflokkinn, 9,2 prósent Framsóknarflokkinn, 22,8 prósent Sjálfstæðisflokkinn, 9,0 prósent Al- þýðubandalagið, 5,5 prósent Kvenna- listann og 4,3 prósent sérstakt fram- boð tengt Jóhönnu Sigurðardóttur. Óákveðnir reyndust 38,3 prósent og 5.8 prósent neituðu að gefa upp af- stöðu sína. Til samanburðar má geta þess að í könnun DV í byrjun ágúst reyndust 37;7 prósent aðspurðra óá- kveðin og 4,7 prósent svöruðu ekki. Úrtakið í skoðanakönnun DV var 600 manns. Jafnt var skipt á milli kynja og eins á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins. Spurt var: „Hvaða lista mundir þú kjósa ef þing- kosningar færu fram núna?“ Skekkjumörk í könnun sem þessari eru 3 til 4 prósentustig. Kosningaspá DV DV hefur reiknað út kosningaspá sem tekur mið af reynslu úr fyrri könnunum. Samkvæmt spánni fengi Alþýðuflokkurinn 9,8 prósent at- kvæða ef kosið væri núna, eða 5,7 prósentustigum minna en í kosning- unum vorið 1991. Sjálfstæðisflokkur- - 44,1 prósent kjósenda óákveðið eða dylur afstöðu sína Fylgi flokka samkvæmt skoðanakönnun — MÁgúst □ Nú ■ Kosn. 20,8 1641 Ustl lóhönnu Skoðanakiinaua Fylgi flokka — samkvæmt kosningaspá — inn fengi 34,8 prósent, eöa 3,8 pró- sentustigum minna en í kosningun- um. Miðað við síðustu könnun DV tapa kratar 2,3 prósentustigum en sjálfstæðismenn auka fylgi sitt um 1,3 prósentustig. Samkvæmt spánni fengi Fram- sóknarflokkurinn 18,6 prósent at- kvæða sem er nánast kjörfylgi hans. Alþýðubandalagið fengi 19,0 prósent, bætti við sig 4,6 prósentustigum frá síðustu kosningum. Kvennalistinn fengi 10,1 prósent, sem er tæpum tveimur prósentustigum yfir kjör- fylgi. Loks fengi listi tengdur Jó- hönnu Sigurðardóttur 7,8 prósenta fylgi, sem er 1,2 prósentustigum meira en DV spáði í ágúst. Ef þingsætum er skipt á milli flokka samkvæmt spánni fengi Al- þýðuflokkurinn 6 menn kjörna á þing og tapaði 4 af núverandi þing- sætum sínum. Framsóknarflokkur- inn fengi 12 menn kjörna, tapaði einu þingsæti, Sjálfstæðisflokkurinn 22, tapaði 4, Alþýðubandalagið 12, bætti við sig 3, og Kvennalistinn 6, bætti við sig einu. Listi tengdur Jóhönnu Sigurðardóttur fengi 5 menn kjörna á þing samkvæmt spánni, bætti við sig einu þingsæti sé tekið mið af síö- ustu spá DV. Skekkjumörk í kosningaspánni eru 1,3 prósentustig hjá Alþýðuflokki, 1,8 hjá Framsóknarflokki, 2,6 hjá Sjálf- stæðisflokki, 2,1 hjá Alþýðubanda- lagi og 1,5 hjá Kvennalista. Ef þingsætum er skipt í réttu hlutfalli við úrslit kosningaspárinnar verða niðurstöður þessar. Til samanburðar er staðan í þinginu nú: kosn. feb. apr. jún. sept. nóv. jan. mars júní sept des. mars júni ág. nú Alþýðutlokkur 10 5 7 7 8 8 8 7 6 7 6 7 9 8 6 Frámsóknarfl. 13 17 17 17 18 17 18 17 19 18 16 16 14 14 12 Sjálfstæðisfl. 26 21 19 20 21 20 13 20 17 17 18 19 21 21 22 Alþýðubandal. 9 15 14 13 8 11 15 11 13 10 11 10 10 10 12 Kvennalisti 5 5 6 6 8 7 9 8 8 11 12 11 9 6 6 Listi Jóhönnu 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 4 5 Niðurstöður kosningaspárinnar urðu þessar (í %): kosn.feb.'-apr.'-jún.'-sept-nóv'- jan.'-mais jún. sept des. mais júnl ág. nú _____________ 92 92 92 '92 92 93 'S3 '93 '93 '93 '94 '94 '94 Alþýðuflokkur 15,5 9,1 11,5 11,2 12,3 13,1 13,0 10,7 9,7 10,6 9,3 11,6 14,1 121 9,8 Framsóknarfl. 18,9 26,7 26,0 26,8 27,3 26,8 27,9 26,6 29,8 28,6 25,8 25,1 22,9 23,0 18,6 Sjálfstæðisfl. 38,6 31,9 29,5 31,3 33,3 31,0 20,5 31,2 27,4 27,3 27,6 29,2 33,3 33,5 34,8 Alþýðubandal. 14,4 23,6 23,1 20,0 13,6 17,5 24,3 17,7 19,4 16,1 17,7 16,1 15,6 15,6 19,0 Kvennalisti 8,3 8,8 9,7 10,7 13,4 11,4 14,4 13,6 13,0 17,2 19,5 17,1 13,9 9,3 10,1 Þ-listi 1,8 0 0,3 0 0,3 0 0 0 0,5 0 0 0,3 0 0 0 M-listi 0 0 0 0 0 0,3 0 0 0 0,3 0,2 0,3 0 0 0 Græntframb. 00000000 0,3 000 0,2 00 Borgarafl. 00000000000 0,3 000 Listi Jóhönnu 0000000000000 6,6 7,8 Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar. Til samanburðar eru niðurstöður fyrri DV-kannana á kjörtímabilinu og úrslit þingkosninga kosn.feb.'-apr.'-jún.'-sept.-nóv'-jan.'-mars jún. sept des. mars júní ág. nú 92 92 92 '92 92 93 '93 '93 '93 '93 '94 '94 '94 Alþýðuflokkur 15,5 8,3 10,7 10,4 11,5 12,3 12,2 9,9 8,9 9,8 8,5 10,8 13,3 11,3 9,0 Framsóknarfl. 18,9 24,5 23,8 24,6 25,1 24,6 25,7 24,4 27,6 26,4 23,6 22,9 20,7 20,8 16,4 Sjálfstæðisfl. 38,6 38,0 35,6 37,4 39,4 37,1 26,6 37,3 33,5 33,4 33,7 35,3 39,4 39,6 40,9 Alþýðubandal. Kvennalisti 14,4 20,7 20,2 17,1 10,7 14,6 21,4 14,8 16,5 13,2 14,8 13,2 12,7 12,7 16,1 8,3 8,6 9,4 10,4 13,1 11,1 14,1 13,3 12,7 16,919,2 16,8 13,6 9,0 9,8 Listi Jóhönnu 0 0 0 0 0 0 0 0 0 '0 0 0 0 6,6 7,8 Aðrir 1,8. 0 0,3 0 0,3 0,3 0 0,3 0,8 0,3 02 0,9 0,3 0,0 0,0 Viðbrögð þingflokka við flárlagafhimvarpinu: Friðrik íslandsmeistari í hallarekstri ríkissjóðs - segir Steingrímur J. Sigfusson, varaformaður Alþýðubandalagsins Stuttar fréttir Smuguveiðar bannaðar? Austfirskir sjómenn hafa kom- ið því á framfæri við sjávarút- vegsráðherra aö hann banni veíðar í Smugunni að vetrarlagi sökum mikillar ísingarhættu. Einelti í Grafarvogi Þeldökk nigerísk kona, sem búsett er í Grafarvogi, telur sig verða fyrir einelti af nágrönnum sínum sem ítrekað vinni skeramdir á eignum hennar. Stöö 2 greindi frá þessu. Sjúkraflutningar íútboði í fjárlagafrumvarpinu 1995 er gert ráð fyrir að bjóöa út sjúkra- flutninga á tilteknum svæðum. Formaður landssambands sjúkraflutningamanna taldi það óráð í samtali vió RÚV. Nývegartenging Nefnd á vegum samgönguráð- herra hefur fundið vegarstæði fyrir nýja tengingu milli Norður- og Austurlands. Aö sögn Stöðvar 2 kostar verkiö vart undir 2 millj- örðum króna. Steingrímur J. Sigfússon, varafor- maöur Alþýðubandalagsins, segir engin stórtíðindi vera í íjárlagafrum- varpinu sem Friðrik Sophusson lagði fram um helgina. „Pólitískt séð eru merkilegust þau skilaþoð að hætta við þann vísi að hátekjuskatti sem var þó kominn og að leggja til hliðar að skattleggja fjár- magnsgróðann. Skattpíningu á al- menna launagreiðendur er haldið áfram en hátekjufólki og fjármagns- eigendum er hlift. Það undirstrikast með þessu frumvarpi að Friðrik Sophusson er ótvíræður íslands- meistari í hallarekstri ríkissjóðs á einu kjörtímabili," segir Steingrim- ur. „Mér sýnist , fjárlagafrumvarpið einkennast af því aö kosningar séu í nánd. Tekjur eru látnar ná niður hallanum. 011 fjárlagafrumvörp sem Friðrik hefur lagt fram hafa ekki staðist. Útgjöldin hafa í flestum til- fellum verið langtum meiri en að er stefnt," segir Finnur Ingólfsson, ný- kjörinn þingflokksformaður Fram- sóknarflokksins, um íjárlagafrum- varpið. Finnur segir það ótækt að í fjár- lagafrumvarpi sé gert ráð fyrir að menn fái happdrættisvinning í viku hverri, slíkt myndi ekki ganga upp í heimilisbókhaldinu. Finnur visar þar til Smuguveiöanna og óvenju- góðrar loðnuveiði sem ríkissjóður hefur talið sér til tekna. „Við höfum séð það fyrr að til standi að eyða fjárlagahallanum á tilteknu tímabili en án árangurs. Ég held aö það sé ekki frekar hægt núna þrátt fyrir vissan bata í efnahagslif- inu. Sá bati er hins vegar byggður á veikiun grunni. Mér sýnist að þarna sé verið að sýna betri tölur en við munum standa frammi fyrir þegar árið er llðið,“ segir Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, þingkona Kvenna- listans. „Ég tel að þetta frumvarp sé ótví- ræður vitnisburður um að það er bjartara framundan í efnahagsmál- um landsmanna. Hallinn minnkar stórlega sem sýnir að tekjur fara vaxandi. Einnig hefur tekist vel aö halda útgjöldum niðri. Fiármálaráð- herra og ríkisstjórn hafa staðið sig mjög vel við að koma þessu frum- varpi í þennan ánægjulega búning. Samt má ekki gleyma því aö hallinn er enn töluverður og það þarf að halda áfram að ná honum niður,“ segir Geir Haarde, þingflokksfor- maður Sjálfstæöisflokksins. „Fjárlagafrumvarpið mótast af því að ríkisstjómin er ákveðin í að halda áfram því starfi sem hefur unnið síð- astliðin þrjú ár um að halda verð- bólgu og vöxtum niðri. Aðhaldssöm- um aðgerðum í ríkisfjármálum verð- ur haldið áfram," segir Sighvatur Björgvinsson ráöherra. Stuttar fréttir Hraunflaga féil Gríðarstór hraunflaga féll úr bjargi á suðaustanveröu Langa- nesisl.íostudag. SamkvæmtRÚV slapp trillusjómaður, sem stadd- ur var á þessum slóðum, með skrekkinn. ÓlgaíSoftís Helstu stjórnendur Softis, sem þróar Louis-forritið, hafa sagt upp störfum sökum ósættis við eigendur um áherslur í rekstri. Mbl. greindi frá þessu. Ahrif Atíanta- verkfalls Svo gæti farið aö Samvinnu- ferðir-Landsýn semji við erlent flugfélag um írlandsflug veröi af boðuðu verkfalli flugmanna At- lanta 10. október nk. Sprengjuhótun á Alþingi Um það leyti sem Alþingi var sett á laugardag kom fram hótun á útvarpsstööinni Bylsunni um sprengju í Alþingishúsinu eða Dómkirkjunni. Séröæðingar lög- reglunnar fundu enga sprengju.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.