Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1994, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1994, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994 37 Sjón flytur ásamt leikurum efni úr nýrri skáldsögu eftir sig. Sjón og Trífólí- hópurinn í kvöld hefst vetrarstarf Lista- klúbbs Leikhúskjallarans með nýstárlegri dagskrá Sjón og Trí- fólíhópsins sem hefst kl. 20.30. Trífólíhópurinn sýnir dansleik- inn Hillingar. Höfundar og flytj- endur eru leikkonurnar Anna E. Borg og dansarinn Ólöf Ingólfs- Leikhús dóttir. Tónhstina vinna þeir Páll Borg og Hrannar Ingimarsson. Dansleikur þessi var fyrst fluttur í Gerðubergi í vetur en að sögn höfunda er hann í stöðugri þróun og engar tvær sýningar eins. Augu þín sáu mig er skáldsaga eftir Sjón sem væntanlega kemur út á næstunni. Höfundur, ásamt leikurunum Steinunni Ólínu Þor- steinsdóttur og Birni Inga Hilm- arssyni, flytur efni úr sögunni.við stef eftir Hilmar Örn. Ásgerður Júníusdóttir syngur vögguvísu eftir Erik Júlíus Mogensen við texta úr bókinni. Það er betra að vera vel gallað- ur í mikilli rigningu. Vatnsheld föt Fyrstu tilraunir til að búa til vatnsheld fót og fótabúnað eru eignaðar franska stærðfræðingn- um, stjörnufræðingnum og verk- fræðingnum Francois Fresneau (1703-1770). Árið 1748 sendi hann vísindaakademíunni skýrslu og greindi frá því að stigvél og yfir- höfn sem hann hafði strokið með gúmmíkvoðu hefði reynst hin besta vatnsvörn. Það var síðan árið 1823 sem Skotanum Charles M. Mackintosh tókst fyrstum manna að búa til vatnshelt efni Blessuð veröldin sem notað var til klæðagerðar. Bómullarefni hans, sem gegn- vætt voru með blöndu af gúmmíi og terpentínu, héldu sveigjan- leika og þjálni til fullnustu. Niveakrem verður til Lyfsali einn í Hamborg, Beiers- dorf að nafni, fann upp árið 1911 eins konar húðkrem. Hann var eigandi fyrirtækis og lét það markaðssetja hina nýju vöru. Kremið var hvítt og var því kallað Nivea, en orðið er myndað af lat- neska orðinu niveus, sem þýðir snjór. Þetta nýja krem átti eftir að ryðja burt hinum feitu hör- undskremum sem voru notuð í þá daga og öðlast miklar vinsæld- ir. Og í fyrsta sinn var á markað- inum krem sem var í senn nær- andi og rakadrægt. Ný klæðing á nokkrum leiðum Á nokkrum fjölfórnum leiðum á landinu er vegagerð lokið í ár og hefur verið lögð ný klæðing á nokkr- ar leiðir og eru bílstjórar varaðir við Færð á vegum að ný klæðing getur orsakað stein- kast sem getur farið illa með bíla. Til að mynda er ný klæðing á leið- inni Reykjavík-Hvalfjörður og fyrir norðan á leiðunum Raufarhöfn- Þórshöfn og á Sandvíkurheiði. í Þrengslunum er vegavinnuflokk- ur að vinnu og er farið fram á hraða- lækkun þar. Þá er einnig verið að vinna á leiðinni Hvolsvöllur-Vík og bílstjórar sem fara þar um beðnir að sýna aðgát. Hljómsveitin Loðin rotta mun leika á Gauki á Stöng í kvöld og annað kvöld. Hljómsveitin var stofnuð 1989 og vakti strax mikla athygli. Upphaflega átö Loðin rotta að leysa aðra hljómsveit, Sköllóttu Skernmtanir músina, af hólmi í stuttan tíma en örlögin höguöu því þannig að enn þann dag í dag kemur Rottan sam- an á tyllidögum og leikur þá jafnan íýTir fullu húsi. Loðna rottu skipa nú þeir sömu og skipuðu hana í upphafi, það er Riehard Scobie söngvari og dj, Ing- ólfur Guðjónsson, hljómborðsleik- ari og hJjómsveitarstjóri til ijölda ára, Jóhann Ásmundsson, bassa- leikari og gleðimaður, Sigurður Gröndal gítarhetja og Halldór Hauksson trommuleikari. Á næstunni og allt til áramóta Loóin rotta er í dag skipuð sömu mönnum og léku í upphafi ferils hljóm- sveitarinnar órið 1989 og er myndin tekin um það leyti. mun sveitin leika vítt og breitt um landið og má jafnvel búast við geislaplötu á næstunni. Þar til plat- an kemur geta aödáendur Rottunn- ar litið inn á Gauki á Stöng í kvöld og annaö kvöld og notið framsæk- innar tónhstar með góðum tónlist- armönnum. Jennifer Ward-Leland og Lisa Chappell í hlutverkum sínum. TónlistúrValdi örlaganna Regnboginn hefur hafiö sýning- ar á nýsjálensku verðlauna- myndinni Neyðarúrræði (De- sperate Remedies). Mynd þessi hefur vakið verskuldaða athygli og íjölda viðurkenninga og var hún mjög umtöluð á síðustu kvik- myndahátíðinni í Cannes. Neyð- arúrræði er frumleg kvikmynd þar sem höfundarnir og leikstjór- amir Stewart Main og Peter Wells fara ótroðnar slóðir. Mynd- in er öll tekin í kvikmyndaveri og umgjörð öll minnir um margt á sviðsleikrit eða óperu. Tónhst skipar háan sess í kvikmyndinni og hún hljómar kunnuglega í eyr- Bíóíkvöld um íslenskra óperuunnenda enda að stórum hluta komin úr óperu Verdis, Valdi örlaganna. Þetta er fyrsta kvikmynd Mains og Wells í fullri lengd en áður hafa þeir framleitt stuttmyndir og heimildarmyndir. Þeir félagar eru þekktir hstamenn á Nýja-Sjá- landi þar sem aðalsmerki þeirra hefur verið að feta ótroðnar slóð- ir í hstsköpun sinni. Aðalhlut- verkin í myndinni ieika Jennifer Wrad-Leland, Kevin Smith, Lisa Chappeh og Clifíord Curtis. Nýjar myndir Háskólabíó: Loftsteinamaðurinn Háskólabíó: Jói tannstöngull. Laugarásbíó: Dauðaleikur. Saga-bíó: Skýjahöllin. Bióhöllin: Leifturhraði. Stjörnubíó: Ulfur. Bíóborgin: Sonur Bleika pardussins. Regnboginn: Neyðarúrræði. Gengið Almenn gengisskráning LÍ nr. 230. 03. október 1994 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 67,930 68,130 67,680 Pund 107,020 107,340 106,850 Kan. dollar 50,450 50,650 60,420 Dönsk kr. 11,1180 11,1620 11.16 Norsk kr. 9,9660 10,0060 10.0080 Sænsk kr. 9,0520 9,0890 9.1070 Fi. mark 13,8950 13,9500 13,8760 Fra. franki 12,7810 12,8330 12,8410 Belg. franki 2,1204 2,1288 2,1325 Sviss. franki 52,4300 52,6400 52.9100 Holl. gyllini 38,9300 39,0900 39.1400 Þýskt mark 43,6200 43,7500 43,8300 it. líra 0.04333 0,04355 0,04358 Aust. sch. 6,1910 6,2220 6.2310 Port. escudo 0,4279 0,4301 0,4306 Spá. peseti 0,5266 0,5292 0,5284 Jap.yen 0,68180 0,68390 0,68620 Irskt pund 105,710 106,240 105,680 SDR 99,12000 99,61000 99,35000 ECU 83,4300 83,7600 83,7600 Símsvari vegna gengisskráningar 623270. Krossgátan 7 T~ r~ & lo 7T ii 11 /V- 1ÍT“ TJT Í7- i4 ÍD u u Lárétt: 1 ábrystir, 7 jafnoki, 8 svar, 10 þjálfun, 11 díki, 12 eindagi, 14 kimu, 16 spara, 19 alger, 20 skelfíng, 21 ábata, 22 band. Lóðrétt: 1 nasavængur, 2 slíta, 3 klampi, 4 rófu, 5 birta, 6 sár, 9 fjármark, 13 ólærð, 15 bæta,.17 þroskastig, 18 veiðarfæri, 19 hvað. lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 gölt, 5 æst, 8 óreiða, 9 sviii, 10 lú, 11 sær, 12 þras, 14 snurfus, 16 ögri, 18 amt, 20 kálfs, 21 sá. Lóðrétt: 1 góss, 2 örvæn, 3 leirur, 4 til- þrif, 5 æðir, 6 sal, 7 trúss, 13 aums, 14 sök, 15 fas, 17 gá, 19 tá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.